Morgunblaðið - 21.04.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.04.1998, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ VALUR ÍSLANDSMEISTARI í HANDKNATTLEIK Ifpp - ■ i' ■' ' - wœgga yjjÉHpF-/' WfsáQMBBjpJsGjB r Morgunblaðið/Kristinn Islandsmeistarar Vals 1998 VALSMENN fögnuðu að vonum vel eftir að íslandsmeistaratitillinn var í höfn. Aftari röð frá vinstri: Guðni Haraldsson, formaður hand- knattleiksdeildar, Jóhann Birgisson, liðsstjóri, Svanur Baldursson, Ingi Rafn Jónsson, Theodór Valsson, Júlíus Gunnarsson, Daníel Snær Ragnarsson, Jón Kristjánsson, þjálfari, Ari Allansson og Reynir Vignir, formaður Vals. Fremri röð frá vinstri: Davíð Ólafsson, Ein- ar Öm Jónsson, Freyr Brynjarsson, Guðmundur Hrafnkelsson, fyrirliði, Sigfús Sigurðsson, Kári Guðmundsson og Valgarð Thoroddsen. Aldrei vafi Yfirburðir Vals miklir í síðasta úrslitaleiknum VALSMENN eru svo sannarlega vel að íslandsmeistaratitlinum komnir, það undirstrikuðu þeir rækilega með yfirburða sigri á Fram I fjórða leik liðanna. Reyndar segja lokatölurnar, 27:23, ekki nema litla sögu því lengst af voru yfirburðir Valsmanna allt að því ótrúlegir miðað við að þarna var á ferðinni úrslita- leikur. Segja má að þeir hafi verið búnir að gera út um leikinn eftir um 20 mínútur þegar forystan var orðin sex mörk, 10:4. Ihálfleik munaði sjö mörkum, 13:6, og áfram hélt Valsvagninn ein- stefnu sinni í síðari hálfleik. Var að jafnaði með sjö til átta marka forystu og náði mest níu mörkum, 23:14, þeg- ar liðlega tíu mínút- ur voru eftir. Gífurleg einbeiting leikmanna sem endurspeglaðist í frá- bærri vöm frá upphafi og yfirveguð- um sóknarleik, að ógleymdri mark- vörslu Guðmundar Hrafnkelssonar Ivar Benediktsson skrifar markvarðar, vann að þessum sigri sem innsiglaði 20. meistaratitil fé- lagsins í karlaflokki og um leið þann fimmta á síðustu sex árum. Enginn einn leikmaður skaraði fram úr í liði meistaranna, allir voru jafningjar í þessum ójafna leik þar sem leikmönnum Fram var hrein- lega rúllað upp og þeir vissu aldrei sitt rjúkandi ráð. Islandsbikarinn er sannarlega vel geymdur að Hlíðarenda næsta árið eftir þessa orrustu um hann. A leið sinni að honum lögðu Valsmenn Aft- ureldingu örugglega og KA eftir oddaleik á heimavelli meistara síð- asta árs. Því næst tóku við leikirnir fjórir við Fram þar sem Valsmenn voru mun sterkari aðilinn í þremur leikjum af fjórum. Markviss upp- bygging íþróttarinnar hjá félaginu hefur svo sannarlega skilað sér og fátt bendir til annars en áframhald verði á næstu árum því félagið stendur svo sannariega vel að vígi þegar litið er til þeirra flokka sem skipaðir eru yngri leikmönnum. Þarna er e.t.v. einn grandavallar- munur á liðunum. Valsmenn leika nær eingöngu með leikmenn sem eru aldir upp hjá Val og hafa ekki kynnst öðru en sigri og vilja halda því áfram og halda merki félagsins hátt á lofti. Leikmenn Fram koma hver úr sinni áttinni og telja má þá leikmenn á fingrum annarrar handar sem upp- aldir eru hjá félaginu og voru í eld- línu þessarar orrustu sem nú er lok- ið. Leikmenn Fram vora einfaldlega ekki reiðubúnir að taka þátt í þeim slag sem úrslitaleikjum af þessu tagi fylgir. Þeir náðu góðum leik í þriðja leiknum en í fjórða leiknum að Hlíð- arenda komust þeir aldrei í takt við leikinn. Þeir reyndu að brjóta hefð- bundinn leik sinn upp með því að leika framliggjandi 3-3 vöm en Vals- menn létu það ekki slá sig út af lag- inu. Vörn Fram var slök og allt að því eins og stórt gatasigti í fyrri hálf- leik. Sóknarleikurinn var staður og öflugri Valsvörn reyndist ekki skota- skuid úr því að verjast honum. Þá bætti það ekki úr skák hjá Safamýr- arpiltum að leikstjórnandinn Guð- mundur Helgi Pálsson var þjakaður af meiðslum og lék aðeins með fyrstu mínúturnar og Sigurpáll Árni Aðal- steinsson, sem ekki hefur gengið heill til skógar í úrslitaleikjunum, meiddist á ökkla undir lok síðari hálfleiks. Hvað sem því líður voru Valsmenn yfirburða lið að þessu sinni, þeir léku af einurð og festu að leiknum í Framheimilinu undanskildum. Af mistökunum í þeim leik lærðu þeir lexíu, lexíu sem notuð vai’ til þess að innsigla íslandsmeistaratitilinn á heimavelli. Morgunblaðið/Kristinn DANIEL Snær Ragnarsson, sem slegið hefur í gegn með Vals^ mönnum í vetur, undirbýr skot að marki Fram i síðasta leiknum að Hlíðarenda á laugardag. Daníel gerði sex mörk að þessu sinni og var markahæstur Valsmanna. SÓKNARNÝTING Fjórði úrslitaleikur karlaliðanna, leikinn að Hlíöarenda 18. apríl 1998 Valur Fram Mörk Sóknir % é Mörk Sóknir % 13 24 54 F.h 6 23 26 14 29 48 S.h 17 30 57 27 53 51 Alls 23 53 43 9 Langskot 9 6 Gegnumbrot 2 2 Hraðaupphlaup 4 3 Horn 2 5 Lína 2 2 Víti 4 Þannig vörðu þeir I sviga era skot sem fóru aftur til mótherja. Guðmundur Hrafnkelsson, Val 17/1 (5). 12 (2) eftir lang- skot, 2 (1) eftir gegnumbrot, 1 (1) af línu, 1 (1) eftir hraða- upphlaup og 1 vítakast. Reynir Þór Reynisson, Fram 16 (1). 11 langskot, 2 af línu, 1 (1) eftir gegnumbrot, 1 úr horni og 1 hraðaupphlaup. Þétt set- inn bekk- urinn HANN var þétt setinn bekk- urinn í Valsheimilinu á laug- ardaginn er Valur og Fram mættust. Þeir áhorfendur sem sátu á fremsta bekk voru með fæturna á hliðarhnunui og slíkt býður alltaf hættunni heim, en áhorfendur voni til mikils sóma og aldrei þurfti að stöðva leikinn vegna þess að þeir trufluðu leikmenn eða dómara. Kynnirinn góður KYNNIRINN á leiknum stóð sig mjög vel og það er skemmtileg tilbreyting að vera laus við að hátalarakerf- ið sé notað til að hvetja annað liðið. Að þessu sinni voru áhorfendur aðeins hvattir til að skemmta sér og styðja við bakið á sínu liði. Sigur- söngvar kyrjaðir STUÐNINGSMENN Vals voru sigurvissir enda munur- inn á liðunum það mikill að þeir gátu leyft sér að syngja sigursöngva þegar um tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik og staðan 18:10 fyrir þá rauðklæddu. Sannkall- aður Vals- dagur ÞAÐ má segja að laugardag- urinn 18. apríl hafl verið sannkallaður Valsdagur. Meistaraflokkur félagsins varð Islandsmeistari í hand- knattleik kai'la og fyrr þann sama dag varð 4. flokkur fé- lagsins einnig íslandsmeistari auk þess sem 3. flokkur lék í undanúrslitum íslandsmótsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.