Morgunblaðið - 21.04.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.04.1998, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Meistarabarátta síðustu ára Gangur úrslitaviðureignanna síðan keppnin um meistaratitilinn fékk núverandi form árið 1992 HEIMA ÚTI 'C Isiands- meistari 1992: FH - Selfoss 1993: Valur-FH 1994: Valur - Haukar 1995: Valur-KA 1996: Valur-KA HiIlEiö] mm 1:1 [3rTl 13:1 irrm mmm mni2i mm 1:1 2:2 rnöiizíii 1997: KA - Afturelding [37T] Q7T| 1998: Valur - Fram Í3:11 27ói ■1=0.lÍ2dJ M FH 1992 |ÍJ/alurS ’ Valur 1995 ' Valur-. 1996 Wjj) | ka :• 2lSl997 mm ■ BRESKI hnefaleikakappinn Prince Naseem Hamed varði heimsmeist- ai’atitil sinn í fjaðurvigt er hann sigr- aði Wilfredo Vazquez á laugardaginn og er þetta í tíunda sinn sem hann ver titilinn. Naseem virtist hikandi fram- an af bardaganum en Vazquez var sprækur og náði góðu höggi á Na- seem í upphafi annan-ar lotu. ■ PRINSINN náði sér á strik í þriðju lotu og sló þá mótherja sinn í gólfið með góðu vinstri handar höggi. Vazquez var ekki lengi á fætur og hafði yfirhöndina í fimmtu lotu en í þeirri næstu var hann aftur laminn í gólfið. Kaðlar slitnuðu í hringnum og átta mínútna hlé varð á bardaganum á meðan gert var við þá. ■ TÖFIN sló Prinsinn ekki útaf lag- inu því í sjöundu lotu sló hann Vazquez aftur í gólfið, en hann stóð enn á fætur þannig að Prinsinn lét til sín taka á ný og nú dugði það til sig- urs. Prins Naseem er sagður hafa meitt sig í hendinni og talið er að hún geti verið brotin. Reynist meiðsli hans alvarleg er óvíst hvort hann verði tilbúinn í enn eina titil- vörnina í júlí. ■ ÞÓREY Edda Elísdóttir stangar- stökkvari úr FH sigraði í stangar- stökki á alþjóðlegu móti á Spáni á á laugardaginn, stökk 3,90 m og náði þar með lágmarki fyrir Evrópu- meistaramótið í Búdapest í ágúst. ■ JON Arnar Magnússon úr Tinda- stóli sigraði í langstökki á sama móti, stökk 7,59 í nokkrum meðvindi. Þá hljóp hann 110 m grindahlaup á 14,50 sek. í mótvindi. ■ MAGNÚS Aron Hallgrímsson kringlukastari frá Selfossi varð í fjórða sæti í kringlukasti á mótinu á Spáni, kastaði 57,40 m. Hann á best 58,12 m. ■ JÓHANNES Már Marteinsson spretthlaupari úr ÍR hljóp 100 m á 11,00 sekúndum í mótvindi sem var 3,7 m/sek. ■ GUÐNÝ Eyþórsdóttir einnig úr ÍR varð í fjórða sæti í 100 m hlaupi á 12,97 sek. í mótvindi upp á 4,1 m /sek. ■ SIGMAR Vilhjálmsson spjótkast- ari úr ÍR kastaði spjóti 64,15 m og náði fjórða sæti. ■ ÓÐINN Björn Þorsteinsson 16 ára gamall kringlukastari úr ÍR kastaði fullorðinskringlu 39,06 m og bætti sinn fyrri árangur um 3 metra. Þá stökk Ágústa Tryggvadóttir sem er aðeins 15 ára 5,23 m í langstökki og bætti sig verulega. Ágústa er frá Selfossi. ■ TEGLA Loroupe maraþonhlaup- ari frá Kenýa náði á sunnudaginn besta tíma sem náðst hefur í kvenna- flokki í maraþonhlaupi er hún sigraði í Rotterdam-maraþoninu. Loroupe hljóp á 2:20.47 klst. en besti tíma sem áður hafði náðst var 2.21.06 er norska stúlkan Ingrid Kristiansen sigraði London-maraþoninu árið 1995. Þetta var síðasta metið í eigu Kristiansen sem fellur. ■ FRANSKI júdómaðurinn Djamel Bouras hefur verið settur í eins árs bann þar sem hann hefur notað nandrolone, sem er ólöglegt lyf. Bouras varð Ólympíumeistari í 78 kílóa flokki á Ó1 í Átlanta og hlaut silfurverðlaun í sama flokki á heims- meistaramótinu í París. Lyfið virðist vera í tísku í Frakklandi því Bouras er áttundi íþróttamaðurinn sem sett- ur er í bann vegna neyslu þess á síð- ustu mánuðum. Pimm knattspyrnu- menn hafa verið settir í bann, hand- boltamaður og skautamaður. GARDRÆKT kátttaka í keppnisíþróttum 'snýst um að standa upp úr, lygssyni og Kiistni Einarssyni, svo dæmi séu tekin. En garðyrkju- vera fremstur á meðal jafningja, fá gullverðlaun. Enginn minnist þeirra sem á eftir koma. Misjafnar era leiðir manna að þessu marki en flestir ná því aldrei. Stundum er haft á orði að félög reyni að kaupa sér titla með þvi lá til sín úrvals leik- menn úr ýmsum áttum, greiða þeim laun og búa þannig til stjörnu- prýdda sveit sem á að lánga allar vegtyllur sem í boði eru. Þannig lið skortir oft hjartað því þeir sem það skipa koma hver úr sinní átt> inni og með ólíkan bakgrunn. Þetta er vel þekkt staðreynd um allan heim. Aðrir kjósa leið þolin- mæðinnar, rækta sinn reit af alúð og natni, vissir um að það skili ríkulegri uppskeru er fram liða stundir - hollri og næringargóðri sem sé grunnur að ötlugu starfi, heilbrigðu félagi með sterkt hjarta. Síðasttöldu leiðina hafa sigur- vegarai' helgarinnar, handknatt- leiksdeild Vals og körfuknattleiks- deild Njai-ðvíkur kosið að fai-a og niðurstaðan er öllum ljós. Vals- menn unnu fimmta íslandsmeist- ai'atitil sinn á sex árum i karla- flokki og Njarðvfldngar stóðu á efsta þrepi eftir þriggja ára bið. Bæði lið eiga það sammerkt að þau eru skipuð leikmönnum sem hafa vaxið úr aldingörðum félaga sinna. Þeir fáu sem koma annai's- staðar að, td. tíl Vals, kusu það vegna þessarar stefnu. Njai'ðvíkingar ætluðu að nota veturinn tíl að hlúa að þeim sem skipa liðið og gera þá sterkaii fyr- ir átök næstu ár. Heimamaðurinn Friðrik Ingi Rúnarsson vai- kallað- ur heim til þess að fylgja ungu leikmönnunum fyrstu skrefin út lífið vandlega styrktur af harðger- um ávöxtum liðinna uppskeruára - Friðriki Ragnarssyni, Teiti Ör- maðunnn fekk strax uppskeru - íslandsmeistaratitil og safaríka uppskera í ungum leikmönnum sem hafa alið sinn aldur hjá félag- inu og fylgt því gegnum súrt og sætt. Valsmenn hafa eins og Njai-ð- víkingai' lagt mikla alúð í starf yngri flokka og ráðið þeim þjálf- ara sem hafa markmið og metnað. Boris Bjarni Akbashev hefur verið „yfirgarðyrkjumaður“ Vals I mörg ár og komið þeirri hugsun inn hjá félaginu að það skuli hugsa til framtíðar. Fjárhagui- Vais hefur e.t.v. gert það að verkum að mönn- um hefur verið þröngur stakkur skorinn, en þær krónur sem til hafa verið vel nýttar. Þetta hefur skilað þeim ái'angii að yngri flokk- ar hafa síðustu ár verið á sigur- braut og eru enn um leið og ung- mennin horfa til sigurvegara í keppni þeirra bestu, staðráðin í feta í fótsporin, stolt af félagi sínu, þess albúin að halda merki félags- ins áfram hátt á lofti. Þegar Valsmenn urðu íslands- meistarar fyrir tveimur áram fóru lykilmenn til útlanda í atvinnu- mennsku. Þá hófst uppbygging að nýju meistaraliði sem skyldi vera tilbúið eftir tvö ár. Þetta gátu menn sagt vegna þess að þeir vissu að efniviðurinn var fyrir hendi, niðurstaðan liggm- nú fvrir. Á meðan sitja sumii' eftir með sáit ennið og leggja á ráðin iyiii' næsta tímabil. Megi stefna Vals vera þeim til eftirbreytni. ívar Benediktsson Aðrír kjósa leið þolin- mæðinnar, rækta sinn rett af alúð og natni Kostaði Valsmaðurínn DANÍEL SNÆR RAGNARSSON ekki of fjár? Félagsskiptin greidd í mynt DANÍEL Snær Ragnarsson heitir ung og örvhent skytta í herbúðum fslandsmeistara Vals sem vakið hefur mikla at- hygli á síðustu vikum. Hann hefur sífellt verið að leika stærra og stærra hlutverk í liðinu. Hann er orðin ein helsta skytta liðsins og lék vel í úrslitaleikjunum við Fram og var markahæstur Valsmanna ásamt Jóni Kristjánssyni í fjórða og síðasta leiknum á laugardaginn með 6 mörk. Daníel hef- ur verið í herbúðum Vals sl. þrjú þangað sem hann kom frá Aftureldingu fyrir 5.000 krónur. Þótti verð hans vera það lágt að Valsmenn tóku sig saman og greiddu Mosfellingum upphæðina í myntpeningum sem þeir settu í sparibauk. Aftureldingarmönnum þótti upphæðin vera svo út f hött að þeir hafa ekki hirt um að sækja baukinn sem enn er á skrifstofu HSÍ. Daníel er fæddur 27. september 1978 og verður því tvítugur í haust. Hann býr í foreldrahúsum í ilHHM Breiðholti og er nemi ívar við Menntaskólann Benediktsson yið Sund þaðan sem sknfar hann lýkur í vor stúdentsprófi frá náttúrufræðibraut. Handknatt- leiksiðkun hóf hann 11 ára gamall hjá Aftureldingu í Mosfellsbæ og var hjá félaginu til ársins 1995 að hann fór til Vals, en hver var ástæðan fyrir því að hann skipti? „Það var enginn 2. flokkur hjá Aftureldingu á þessum tíma og mig langaði til þess að leika meira með jafnöldrum mínum, en ég hafði verið í meistai'aflokkshópn- um en skiljanlega fengið fá tæki- færi til þess að spreyta mig enda enn í 3. flokki.“ Hvers vegna varð Valur fyrir valinu? ,Ástæðan var einfóld. Ég hafði heyrt það hjá mörgum jafnöldrum mínum að Boris Bjarni þjálfari hjá Val væri góður leiðbeinandi. Þá skipti það einnig máli að hjá Val er lögð mikil áhersla á uppbyggingu yngri flokkana." Eftir eitt ár á lánssamningi hjá Val ákvaðst þú að stíga skrefið til fulls og segja skilið við UMFA sumarið 1996. „Eftir góða reynslu af Val í eitt ár leist mér ekkert á að fara upp í Mosfellsbæ á ný. Auðvitað var það leiðinlegt að þurfa að taka þess ákvörðun, en ég taldi það vera mér fyrir bestu að vera áfram hjá Val.“ Hefur Boris kennt þér mikið? „Segja má að hann hafi kennt mér nær allt sem ég kann í hand- knattleik og ég tel að ég hefði aldrei fengið þá kennslu hjá Aftur- eldingu sem ég hef fengið hjá hon- um. Boris er góður leiðbeinandi og ráðgjafi." Hverjar eru fyrirmyndir þínar? „Ég hef alla tíð litið upp til Sig- urðar Sveinssonar og Kristjáns Arasonar, en fyrst og fremst er það Ólafur Stefánsson. Til hans hef ég lengi horft og reynt að læra af honum.“ Ykkur hefur verið líkt saman? „Það kann að vera, enda höfum við notið leiðsagnar sama manns; Borisar Bjarna. En auðvitað eru engir tveir eins en ég mun gera mitt besta til þess að verða eins góður og Ólafur.“ Hver eru framtíðaráformin? „Halda áfram hjá Val, styrkjast þai' og þroskast sem leikmaður. Draumurinn er að komast út í at- vinnumennsku og vonandi verður af því einhverntímann í framtíð- inni. Sigurinn um helgina er góð reynsla sem kemur mér til góða þegar fram líða stundir." Eru engin áform uppi um að yf- irgefa Val? „Síður en svo, þar ætla ég að vera áfram. Þar er ég í góðum fé- lagsskap sem hefur reynst mér vel.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.