Morgunblaðið - 21.04.1998, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.04.1998, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1998 B 5 AIHaf stefnt á toppinn VALUR ISLANDSMEISTARI I HANDKNATTLEIK Morgunblaðið/Kristinn SIGFUS Sigurðsson sneri aftur að Hlíðarenda eftir ár með Selfyssingum og hefur verið mjög sterkur í Valsliðinu í vetur. Hefur leikið vel á línunni og verið einn lykilmanna í varnarleiknum. Reynir Þór og Daði til Minden TVEIR leikmenn silfurliðs Fram, Reynir Þór Reynis- son markvörður og Daði Haf- þórsson, fara í dag til Þýska- lands til þess að skoða aðstæður hjá GWD Minden og æfa með fé- laginu fram undir helgi. Minden hefur verið að safna að sér liðs- styrk fyrir næstu leiktíð og m.a. fengið í sínar raðir Talant Duis- hebaev úr röðum Nettelstedt og Aleksandr Tutschkin frá Essen. Reynir og Daði hafa ekki fengið tilboð um að leika með liðunum, aðeins boð um að æfa. Fram- haldið verður síðan skoðað að loknum þessum æfingum. Daði ætlar síðan í framhaldinu að fara til Bayer Dormagen í sama tilgangi, en hjá Dormagen eru fyrir tveir íslenskir leik- menn, Héðinn Gilsson og Róbert Sighvatsson. Fram í fremstu röð á ný eftir fjöldamörg mögur ár, segir þjálfarinn. „Einn þeirra þátta sem leikmenn þurfa að ganga í gegnum er að tapa en það er alltaf sárt“ 99 Reynsluleysi (c „FYRST og fremst var það reynsluleysið sem varð okkur að falli,“ sagði Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfari Fram, að leikslokum. „Fæstir leikmenn hafa áður farið í gegnum keppni sem þessa á sama tíma og Valsmenn þekkja vart annað. Einn þeirra þátta sem leikmenn þurfa að ganga í gegnum, er að tapa en það er alltaf sárt. Á móti kemur að út úr svona slag koma menn reynslunni ríkari. Framarar geta hins vegar verið stoltir eftir veturinn, þrátt fyrir að þeim hafi ekki tekist að sigra voru þeir í baráttunni á öllum vígstöðvum eftir að hafa verið í „kjall- aranum" í tvo áratugi.“ Ahersla á andlegu hliðina Við spiluðum mjög illa á mið- vikudaginn og vorum stað- ráðnir í að gera betur. Okkur leið mjög illa eftir þann leik enda urðum við okkur hálf- partinn til skammar því við börðumst ekki einu sinni,“ sagði Óskar Óskarsson, al- sæll aðstoðarþjálfari Vals, eftir sigurinn á sunnudaginn. að virðist skipta miklu máli að byrja vel og núna gerðum við það. Það er mikið andlegt álag á mönnum og því mikilvægt að ná að yfirstíga það sem fyrst. Leikurinn hefði getað þróast allt öðruvísi hefðu Framarar náð að byrja bet- ur. Það kom upp ómeðvitað kæru- leysi undir lokin og slíkt gerist oft þegar menn eru talsvert yfir. Eg tók leikhlé þegar við vorum sjö mörkum yfir til að reyna að fá menn til að keyra á fullu út leiktím- ann, en það gekk ekki. Svo finnst mér oft þegar annað liðið er mikið undir að dómamir breytist. Þetta gerðist í bikarúrslitaleiknum og þetta gerðist líka núna.“ Hér í Valsheimilinu hangir uppi opna úr Morgunblaðinu frá því 10. aprO 1996 þar sem segir að nýtt Valslið verði fullmótað eftir tvö ár. Er það fullmótað? „Enn er eitthvað í það en ég held að það sé að nálgast. Við erum með rosalega marga efnilega leikmenn. Daníel [Ragnarsson] er að koma upp, 4. flokkurinn er íslandsmeist- ari. 3. flokkurinn er góður og líka 2. flokkurinn, þannig að þetta er allt að mótast." Varstu ekki ánægður með vörn- ina hjá Val í dag? „Jú, hún var mjög góð. Við erum búinir að leika sex leiki við Fram í vetur og síðan höfum við skoðað þá vel af myndbandi þannig að við kunnum leikkerfi þeirra og í raun allar hreyfingar. Ef einhver einn leikmaður hjá okkur tekur ekki nægilega vel á þá er vörnin búin því Framarar leika mjög vel saman og hafa leikið frábærlega í allan vetur. Eg er því mjög ánægður með að við skyldum ná að vinna.“ FOLK ■ ÓSKAR B. Óskarsson aðstoðar- þjálfari Vals og Boris Bjarni Ak- bashev gátu ekki tekið þátt í gleði félaga sinna í Valsheimilinu í leiks- lok. „Komdu - þínu starfi er ekki lokið,“ sagði Boris Bjarni við Óskar, fljótlega eftir að flautað var til leiksloka og síðan geystust þeir upp í íþróttahúsið í Austurbergi til þess að stýra 3. flokki Vals gegn FH í undanúrslitum íslandsmótsins. ■ FYRR um daginn höfðu þeir verið að stýra 4. flokki karla í úrslitum sem lyktaði með því að Valsmenn fögnuðu íslandsmeistaratitili. ■ FRAM vann Val í úrslitum Is- landsmóts 3. flokks karla á sunnu- daginn, 17:15, og var það örlítil sárabót fyrir Safamýrarpilta. ■ DAVIÐ Ólafsson hornamaður Vals varð 23 ára sl. sunnudag, dag- inn eftir að hann varð Islandsmeist- ari í handknattleik. ■ SIGURPÁLL Árni Aðalsteinsson hornamaður Fram lék ekkert vegna meiðsla sem hann hlaut undir loka fyrri hálfleiks. Var jafnvel talið að hann væri meiddur. ■ ALLIR fjórtán leikmenn Vals sem voru á leikskýrslu fengu að spreyta sig í úrslitaleiknum á laug- ardaginn. ■ ÞRÍR af fjórtán leikmönnum Fram komu ekkert við sögu í leikn- um, Þór Björnsson, Vilhelm Sig- urðsson og Halldór Magnússon. Ykkur var spáð 7. sæti íhaust og enduðuð í 5. sæti í deildinni, sem raunar var mjög jöfn. Voruð þið alltaf vissir um að verða Islands- meistarar? „Við héldum fund á Laugarvatni í haust og þar sagði hver einn og ein- asti leikmaður að markmiðið í vetur væri að verða Reykjavíkur-, bikar-, deildar- og íslandsmeistari. Reykja- víkurmeistaratítillinn kom helgina á eftir og hér hjá Val þekkja menn ekki annað en stefna alltaf á hæsta tind. Við lékum ekki vel í deildinni í vetur og ég gæti vel trúað að þar spili inní að menn eins og Jón, Guð- mundur og Ingi eru búnir að spila svo oft í úrslitakeppninni að undir lok deildarkeppninnar eru þeir farnir að bíða eftir að komast í úr- slit,“ sagði Oskar. Guðmundur sagði um síðasta leik- inn í einvíginu að alla grimmd hafi skort í liðið, en hvers vegna svo hafi verið vití hann lvar ekki. „Við vorum að Benediktsson gera hlutina á svipaðan skrífar hátt og í þriðja leiknum er allt gekk okkur í hag, en því miður er líklegasta skýr- ingin á þessu skortur á reynslu. Það er alltaf sárt að tapa en það er nauð- synlegur hlutí af þessu og leikmenn Fram munu búa að þessari reynslu á meðan þeir eru í handknattleik." Hvers vegna stendur á þessum mikiu sveiflum sem eru í leik ykkar? „Ég hef enga haldbæra skýringu á þeim, en þetta hefur fylgt liðinu í vetur og í fyrra. Sem dæmi frá því í fyrra þá töpuðum við fyrir Gróttu í í bikarkeppninni, en unnum þá með sautján mai-ka mun í deildinni í næsta leik nokkrum dögum síðar. Sama gerðist t.d. í vetur gegn HK. Við töpuðum fyrir því í deildinni en unnum stórsigur innan við viku síð- ar. Sveiflurnar hafa fylgt okkur og gerðu það einnig í úrslitakeppninni.“ Guðmundur segir að í raun hafi fyrsti leikurinn verið lykilleikur og því hafi það riðið baggamuninn að hann vannst ekki. „í raun töpuðum við frumkvæðinu í einvígi þá. Við höfum undirstrikað að við erum sterkir á heimavelli og með tapi þar í fysta leik misstum við frumkvæðið. Sigur í fyrsta leik hefði þýtt að við hefðum verið í allt annarri stöðu í leiknum sl. laugardag. Annars var þessi ósigur e.t.v. ekki eins sár og tapið í bikarúrslitaleikn- um. Þetta einvígi gat farið á báða vegu, en í bikarúrslitunum vorum við með nær unninn leik sem við misst- um niður. Ég hefði verið sáttari ef við hefðum við a.m.k. náð þeim titli.“ Þrátt fyrir tapið segir Guðmundur að Framarar megi ekki láta hugfall- ast. Á undanfómum þremur árum hafi verið mikill stígandi hjá félag- inu. Það kom upp úr annarri deild og hafi nú verið í eldlínunni á öllum víg- stöðvum. Þetta sé í samræmi við markmið sín og stjómarinnar. Mikill áhugi sé nú fyrir leikjum og stuðn- ingsmennirnir orðnir fjölmargir og hafi unnið frábært starf. „Þegar ég tók við vorum við í annarri deild að leika fyrir örfáa áhorfendur, en nú era við að leika fyrir fullu húsi og eigum fjölda stuðningsmanna. Þama hefur orðið gjörbreyting á. Það tek- ur sinn tíma að byggja upp lið sem ekki hefur verið í eldlínunni undan- farna áratugi. Nú eram við komnir í fremstu röð og verðum bara að halda áfram að þróa okkur. Næsta skrefið er að vinna titia, hvort sem það ger- ist á næsta ári eða eitthvað síðar. Það er engin ástæða til að örvænta þótt engin titlar hafi unnist í ár. Stærsta þáttinn í þessari auknu vel- gengni á stjórn deildarinnar sem hefur unnið frábært starf. Hún tók við félaginu á slæmum tíma og hefur lagt á sig gríðarlega vinnu og metn- að í að reisa deildina við.“ Sterk vörn, góð markvarsla og hraðaupphlaup hafa verið aðal Fram í vetur og þegar þessi atriði hafa ver- ið í lagi hefur liðið verið illviðráðan- legt. „Við höfum lagt mikla áherslu á að þjálfa þessi atriði í vetur og ég tel að við getum verið stoltir af hvernig til hefur tekist,“ sagði Guðmundur. Þessi atriði hafa hins vegar ekki náð að blómstra hjá Fram-liðinu í úr- slitaleikjunum að undanskildum þriðja leiknum við Val á heimavelli. Guðmundur segir menn hafa ekki verið nógu grimma t.d. í síðasta leiknum tíl þess að þessi atriði væra í lagi. Þá hafi agaleysi verið í sókn- inni, sem hafi lýst sér þannnig að menn voru að skjóta úr slæmum færam og gera sig seka um ýmiss konar mistök. „Ekki var það síðan til þess að bæta úr skák að máttarstólp- ar í sókninni eins og Guðmundur Helgi og Sigurpáll Árni voru meidd- ir, Sigurpáll alla leikina gegn Val og Guðmundur meiddist í fyrsta leikn- um og lék ekkert í öðram leik, tókst að leika þann þriðja en var nánast ekkert með í síðasta leiknum, en gerði að vísu heiðarlega tilraun. Þessi atriði koma nátturlega veru- lega við okkur. Það hefur hins vegar margt já- kvætt verið hjá okkur í vetur og í kringum liðið og því engin ástæða tíl að hengja haus þótt ekki hafi tekist að vinna titla í ár. Fram er á ný kom- ið í fremstu röð eftir mörg mögur ár, við færumst nær takmarkinu."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.