Morgunblaðið - 21.04.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.04.1998, Blaðsíða 12
Morgunblaðið/Kristinn SIGRI hrósandi Njarðvíkingar eftir sannfærandí sigur á KR-ingum í þriðja úrslitaleiknum á sunnudag. Frá vinstri: Logi Gunnarsson, Örlygur Sturluson - en þeir eru aðeins 16 ára - Páll Kristinsson og Petey Sessoms. KORFUKNATTLEIKUR „Stórkostlegt“ Frábær vetur „ÞETTA er meiriháttar; fyrsti tit- illinn minn,“ sagði Örlygur St- urluson, hinn 16 ára gamli leik- stjórnandi Njarðvíkinga, eftir sig- urinn og bætti því við að hann ætlaði að krækja í annan á næst- unni - í unglingaflokki. „Þetta er búið að vera frábær vetur. Ég fékk tækifæri til að leika mikíð, eftir að ég tók mild- um framfórum í haust, og það hef- ur verið mjög gaman. Friðrik [Ingi Rúnarsson] er ótrúlega góð- ur þjálfari og hann hefur kennt mér allt sem ég kann í sambandi við að vera leikstjórnandi." En kenndi pabbi þinn þér ekk- ert? „Jú, hann hefur kennt mér mjög mikið af því sem ég kann í körfubolta," sagði Örlygur bros- andi en þess má geta að Sturla Örlygsson, faðir hans, var lengi með Njarðvík og hefur leikið 13 landsleiki. Vaistu ekkert banginn t'yrir úr- slitaleikina? „Nei, nei. Taugarnar voru fínar. Þetta er í ættinni, við höfum eng- ar taugar." „ÉG er alveg rosalega ánægður með þennan sigur,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Njarðvík- ur, eftir að lið hans varð Islands- meistari í körfuknattleik á sunnu- daginn - eftir sigur á KR í þriðja úrslitaleiknum í röð - en þetta var í þriðja sinn sem hann stýrði liði til sigurs í úrvalsdeildinni á þeim sjö árum sem hann hefur þjálfað lið í meistaraflokki karla. Þetta er ann- ar Islandsmeistaratitillinn sem hann vinnur með Njarðvík en auk þess stýrði hann Grindavík til sig- urs fyrir tveimur árum. Þá hefur hann einu sinni orðið bikarmeistari sem þjálfari með hvoru liði, Njarð- vík og Grindavík. „Það er alveg stórkostlegt að vinna 3-0, á því átti ég aldrei von. Ég taldi okkur eiga möguleika á að vinna en að tapa ekki leik var nokkuð sem ég hafði ekki látið mér detta í hug. Hins vegar sá ég eftir fyrsta leikinn að við höfðum ýmis- legt fram yflr þá eins og kom á daginn." Friðrik sagði að KR-ingar hefðu farið að gera hluti í þessum þriðja leik sem þeir hefðu e.t.v. átt að byrja á fyrr, s.s. að skjóta fyrir ut- an. „Við vorum undir það búnir og ég var öruggur um það er Ingvar Ormarsson byrjaði að það myndi verða raunin því hann er maður sem þorir, eins og kom í ljós. Við FRIÐRIK Ingi Rúnarsson með íslandsbikarinn. vorum líka undir það búnir andlega að halda í við þá. Þeir voru með bakið uppi við vegg í byrjun, þetta var þriðji leikurinn og ef við næð- um að halda jöfnum leik fram undir hálfleik þá vissi ég að við værum í góðum málum. Þeirra von var sú að taka okkur í bólinu eins og Fram gerði við Valsara í þriðju viðureigninni í handknattleiknum. Þá voru einhverjir tveir eða þrír leikmenn ekki á sömu blaðsíðu og aðrir í liðinu og það er nóg til þess að liðið finnur ekki taktinn. Hjá okkur voru allir leikmenn á sömu blaðsíðu frá upphafi. Við notuðum þetta atriði úr Valsliðinu sem víti til vamaðar." Friðrik segir að ákveðin örvænt- ing hafi gripið um sig hjá KR eftir miðjan síðari hálfleik er í ljós kom að þrátt fyrir að þeir væru að leika vel og skora talsvert úr þriggja stiga skotum hafi leikurinn verið í jámum. „Þá náðum við fmmkvæði sem við gáfum aldrei eftir.“ Petey Sessoms er frábær leik- maður, að mati Friðriks, auk þess að vera góður félagi og íþróttamað- ur. „Ég held að það sé óhætt að segja að hann sé okkur jafnmikil- vægur og Rodney Robinsson var á sínum tíma og eflaust einn allra besti eriendi leikmaðurinn sem leikið hefur hér á landi. A sínum ferli hefur hann aldrei leikið með bakið í körfuna, alltaf verið skot- maður, en nú er jafnvel farið að tví- og þrídekka hann undir körfunni. Hann er fæddur sigurvegari og hefur átt frábært tímabil eins og allt liðið í heild. Friðrik Ragnars- son hefur einnig verið að leika vel og eflaust eitt sitt besta tímbil og einnig hefur Teitur Örlygsson leik- ið vel og staðið undir gífurlegri pressu sem hefur verið á honum og svo mætti lengi telja.“ ■ Garðrækt / B2 ■ Sígandi lukka / B6 FOLK ■ PATREKUR Jóhannesson skor- aði 7 mörk í 28:22 sigri Essen á Minden í þýsku 1. deildinni í hand- knattleik um helgina. Var marka- hæstur í liði sínu í þessum örugga sigri, en Essen var yfir allan tím- ann, m.a. 16:8 í leikhléi. ■ ÓLAFUR Stefánsson var með 4 mörk, Dagur Sigurðsson 2 og Geir Sveinsson 1 mark er Wuppertal undir stjórn Viggós Sigurðssonar lagði Alfreð Gíslason og lærisveina í Hameln 30:26 á heimavelli. Wupp- ertal er í 8. sæti þegar það á einum leik eftir ólokið, hefur 26 stig. ■ HAMELN er í neðsta sæti með 14 stig, eftir að Bayer Dormagen gerði jafntefli við Gummersbach á heima- velli, 24:24. Dormagen er með 14 stig en hefur betri markatölu en Hameln. ■ RÓBERT Sighvatsson var með 6 mörk fyrir Dormagen í leiknum, en leikmenn Dormagen voru klaufar að missa leikinn niður í jafntefli þar sem þeir voru 19:13 yfir þegar 20 mínútur voru eftir. ■ HÉÐINN Gilsson var með fjögur mörk í leiknum fyrir Dormagen. ■ BJARKI Gunnlaugsson skoraði fjórða og síðasta mark Molde í 4:0 sigri á Lilleström í norsku úrvals- deildinni í knattspymu. Bjarki kom inn á sem varamaður í síðari hálf- leik. ■ HEIÐAR Helguson var með Lil- leström í leiknum en Rúnar Krist- insson er enn frá vegna meiðsla. ■ TRYGGVI Guðmundsson skóraði fyrsta mark sitt í norsku úrvals- deildinni er Tromsö gerði 2:2 jafn- tefli við Strömgodset. Tryggvi gerði fyrra mark Tromsö á 57. mín. Óskar Hrafn Þorvaldsson var ekki með Strömgodset í leiknum. ■ RÍKHARÐUR Daðason lagði upp eina mark Vikings frá Stafangri í 1:3 tapi fyrir Rósenborg. Ríkharður var sprækur í leiknum og átti a.m.k. tvö marktækifæri að sögn dagblaðs- ins Verdens Gang. Auðun Helgason lék einnig með Viking allan leikinn í vöminni. ■ ÁGÚST Gylfason var á meðal leikmanna Brann sem gerði 2:2 jafntefli við Kongsvinger á útivelli. ■ BRYNJAR Björn Gunnarsson var ekki í liði Váleringa sem lagði Haugasund 3:2 á heimavelli í hörku- leik þar sem Váleringa var 2:0 und- ir eftir 28 mínútna leik. ■ HELGI Sigurðsson lék síðustu mínútumar er Stabæk tapaði 1:0 fyrir Moss á heimavelli. ■ SVERRIR Sverrisson skoraði annað mark sitt í jafnmörgum leikj- um er Malmö tapaði 2:1 á útivelli fyrir Norrköping. Mark Sverris kom Malmö yfir á 6. mínútu en dugði skammt. ■ PÉTUR Björn Jónsson lék með í 56 mínútur er Hammarby gerði 1:1 jafntefli við Gautaborg. Eins og annars staðar kemur fram í blaðinu skoraði Pétur Marteinsson mark Hammarby í leiknum. ■ BIRKIR Kristinsson markvörður hefur ekki náð að vinna sér fast sæti í liði Norrköping sem er í efsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar að lokn- um þremur umferðum. ■ ARNÓR Guðjohnsen var að vanda með Örebro sem gerði markalaust jafntefli við Helsing- borg á útivelli. ■ HARALDUR Ingólfsson kom inn á sem varamaður á 70. mín fyrir Elfsborg er liðið gerði 2:2 jafntefli við Örgryte á útivelli. ■ STEFÁN Þórðarson lék í fram- línu Öster í fyrri hálfleik er liðið tapaði 3:0 fyrir Frölunda. ■ LÁRUS Orri Sigurðsson skoraði fyrra mark Stoke í mikilvægum 2:0 sigri á Norwich. Þetta var annað mark Lárusar með Stoke. ■ HERMANN Hreiðarsson var á varamannabekk Crystal Palace er liðið vann Derby 3:1 á heimavelli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.