Morgunblaðið - 21.04.1998, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 21.04.1998, Blaðsíða 7
6 B ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1998 NJARÐVÍK ÍSLANDSMEISTARI í KÖRFUKNATTLEIK NJARÐVI'K ÍSLANDSMEISTARI f KÖRFUKNATTLEIK „Gengið framar vonum“ „Ég reiknaði aldrei með því að vinna KR 3-0 í þessu einvígi,“ sagði Friðrik Ragnarsson fyrirliði Njarðvíkur og einn besti maður liðsins í úrslitaleiknum. „Ég held að okkur hafi bara langað meira í sigurinn en KR-inga að þessu sinni og við lékum mjög vel í öllum leikj- unum. Fyrirfram var talað um að við þyrftum að vinna einn leik á útivelli til þess að vinna meistara- titilinn, nú höfum við unnið tvo og sýnt fram á að í liðinu býr mikill persónuleiki.“ Friðrik sagði menn hafa verið meðvitaða um að þeir yrðu að koma af fullum ki’afti í þennan leik til þess að sigra, en alltaf væri hætta á að lið sem hefðu 2-0 for- skot slökuðu á. Slíkt væri hættu- legt auk þess sem KR-ingar myndu eflaust selja sig dýrt til þess að ná vinningi að þessu sinni. „Þó lokatölurnar gefi til kynna að sigurinn hafi verið öruggur skal enginn halda að þetta hafi verið auðveldur sigur, þvert á móti var þetta erfitt og við vorum lengi að hrista KR-inga af okkur. Einbeit- ingin þurfti að vera í lagi og það var hún.“ Friðrik sagði lið Njarðvíkur ekki vera stjörnum prýtt heldur væri það skipað jöfnum og góðum leikmönnum þar sem og mismun- andi væri hver væri mest áberandi hverju sinni. „Það kom í minn hlut að taka af skarið að þessu sinni. I síðasta leik var það Örlygur [St- urluson] sem gerði það. Svona hef- ur þetta verið hjá okkur og er mjög jákvætt." Það að vinna titilinn nú er fyrr en nokkur þorði að vona í haust þegar keppnistímabilið hófst. „Við erum með ungt lið og ætluðum að byggja það upp. Þessi sigur kemur fyrr en við héldum.“ 4. sæti 10. sæti KR-inga í deildinni í vetur og efsta lið eftir hverja umferð l.sæti umf. 1. sæti 2. sæti 2. sæti 3. sæti 3. sæti 5. sæti 6. sæti 8. sæti 5. sæti 6. sæti 7. sæti 8. sæti 9. sæti Umferð ■ LEIKMENN beggja liða hittu vel úr þriggja stiga skotum á upphaf- smínútum leiksins. Af fyrstu 29 stigunum voru 18 gerð með þriggja stiga skotum. Keith Wassel, Marel Guðlaugsson og Ingvar Ormars- son höfðu gert eina hver fyrir KR og Petey Sessoms, Örlygur Sturlu- son og Friðrik Ragnarsson eina hver fyrir gestina. ■ FRIÐRIK Ragnarsson náði sér vel á strik í leiknum og einkum tók hann frumkvæðið í byrjun leiks er KR-ingar voru sterkari. Friðrik hafði gert 12 af fyrstu 25 stigum Njarðvíkur er hálf níunda mínúta var til leikhlés. ■ FRIÐRIK var fyrstur leikmanna til þess að fá þrjár villur, en hana fékk hann er 5,29 mín. voru til hálf- leiks. Þremur sekúndum síðar fékk Wassel sína þriðju villu, fyrstur KR-inga. ■ TEITUR Örlygsson fór sér hægt framan af og skoraði ekki sín fyrstu stig fyrr en 7,43 mín., voru til hálfleiks, staðan 28:27. ■ PETEY Sessoms og félagi hans, Friðrik Ragnarsson, gerðu 35 af 51 stigi Njarðvíkur í fyrri hálfleik. ■ ÓSKAR Krístjánsson, leikmaður KR, varð fyrstur til að fá fimm vill- ur. Það gerðist þegar 7,51 mín., var til leiksloka er hann _ braut á Sessoms. Reyndar var Óskar afar óánægður með þennan dóm og fékk fyrir vikið á sig tæknivillu sem féll á liðið í heild þar sem Ósk- ar hafði fýllt sinn kvóta. ■ MAREL Guðlaugsson, félagi Óskars, fékk sína fimmtu villu þeg- ar 5,45 mín. voru eftir. ■ ÞEGAR 59 sekúndur voru eftir af leiknum sendi Friðrik Ingi Rún- arsson, þjálfari Njarðvíkur, þrjá unga leikmenn inn á sem ekki höfðu komið við sögu fyrr í leikn- um. Þetta voru Örvar Krisljáns- son, Ragnar Ragnarsson og Logi Gunnarsson. Engum þeirra tókst að gera stig á þeim stutta tíma sem þeir léku. ■ VEIGUR Sveinsson, leikmaður KR, var sendur inn á í fyrsta skipti um leið og þremenningarnir úr Njarðvík komu til leiks. ■ ELLERT Eiríksson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, lét sig ekki vanta á leikinn. Er íslandsbikarinn hafði verið afhentur tilkynnti Ellert að íþróttaráð Reykjanesbæjar hefði samþykkt að veita Njarðvíkingum 200.000 styrk í tilefni af sigrinum. Afhenti hann Friðriki Ragnars- syni, fyrirliða Njarðvíkur, skjal styrknum til staðfestingar. Morgunblaðið/Kristinn ORLYGUR Sturluson, leikstjórnandinn stórefnilegi, hampar íslandsbikarnum á sunnudag. Þetta var í fyrsta skipti sem Örlygur verður íslandsmeistari, þeim áfanga náði hann aldrei í yngri fiokkum en fagnaði nú sigri í meistaraflokki í fyrstu tilraun. Ekki slæmur árangur það! ' Morgunblaðið/Kristinn Islandsmeistarar Njarðvíkur 1998 KAMPAKÁTIR Njarðvíkingar eftir sigurinn á KR-ingum, í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi á sunnudaginn. Aftari röð frá vinstri: Brynjar Guðmundsson vatnsberi, Gunnar Þorvarðarson, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Einar Jóhannsson aðstoðarþjálfari, Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari, Örvar Kristjánsson, Kristinn Einarsson, Páll Kristinsson, Petey Sessoms, Ægir Gunnarsson, Einar Jóhannsson, Sara Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og Bjarni Bragason vatnsberi. Fremri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson ásamt Ernu Lind dóttur sinni, Guðjón Gylfason, Ragnar Ragnarsson, Friðrik Ragnarsson fyrirliði, Logi Gunnarsson og Örlygur Sturluson. Sígandi lukka er besl Njarðvíkingar fögnuðu 10. Islandsmeistaratitlinum NJARDVÍKINGAR eru íslands- meistarar í körfuknattleik karla, sigruðu KR-inga 106:94 á sunnu- daginn í þriðja úrslitaleiknum. Sigur Njarðvíkinga var sanngjarn og greinilegt að liðið er á hárréttu róli því eftir að hafa lengstum verið í fimmta sæti í deildinni, og um tíma dottið niður í það átt- unda, tókst því að leggja alla mótherja sína að velli í úrslitum og sigra. Sígandi lukka er því best, að mati Njarðvíkinga. Þetta var áttundi titill Njarðvíkinga síð- an úrslítakeppninni var komið á 1984 og sá tíundi í efstu deild karla frá upphafi. Leikurinn á sunnudaginn var besti leik- ur úrslitarimmunnar enda veittu KR- ingar nú verulegt viðnám, hófu leikinn af miklum krafti og keyrðu upp hraðann sem mest þeir máttu, nokkuð sem heldur hefur verið vörumerki Njarðvík- inga. Þetta gekk vel. KR var yfír lengstum fyrri hálfleiks en þegar fjórar mínútur voru til leikhlés var dæmd vafasöm villa á Ósvald Skúli Unnar Sveinsson skrífar Knudsen þar sem hann var að kljást við Friðrik Ragnarsson. I sömu mund skor- aði Petey Sessoms þriggja stiga körfu og Friðrik úr tveimur vítaskotum. Þetta virtist fara illa í KR-inga og síðustu fjór- ar mínútur hans gerðu Njarðvíkingar 17 stig gegn fimm stigum heimamanna og staðan því 41:51 í leikhléi. Það virtist allt stefna í hálfgerða skot- keppni á upphafsmínútum leiksins. Hrað- inn var mjög mikill, leikmenn hittu vel og áhorfendur skemmtu sér hið besta og sjálfsagt hafa allir í húsinu vonast eftir KR-sigri til að fá annan leik - nema Njarðvíkingar sem reyndar voru fjöl- mennir á áhorfendapöllunum. Friðrik Ragnarsson, fyrirliði Njarðvík- inga, fór á kostum og þegar hann minnk- aði muninn í 26:25 hafði hann.gert 12 af stigum liðsins og hann ásamt hinum frá- bæra Petey Sessoms gerði 35 af 41 stigi Njarðvíkinga í fyrri hálfleiknum og alls 63 stig í leiknum. Liðin gerðu 12 þriggja stiga körfur í fyrri hálfleik, Njarðvíking- ar átta en KR-ingar fjórar. Njarðvíkingar voru yfir allan síðari hálf- leikinn. Minnstur varð munurinn þrjú stig, 56:59 er 16 mínútur voru til leiksloka. KR- ingar reyndu allt hvað þeir gátu að minnka muninn enn frekar en Njarðvík- ingar voru einfaldlega of sterkir fyrir Vesturbæinga. Heimamenn breyttu um varnaraðferð, léku nokkuð stífa pressu- vöm og féOu síðan í svæðisvöm, en allt kom fyrir ekki. Njarðvíkingar áttu svar við öllu sem þeir reyndu. Þegar Njarðvík komst í 96:76 er hálf sjötta mínúta var eft- ir, urðu KR-ingar að játa sig sigraða. Titill til KR verður að bíða enn um sinn. KR-ingar léku mun betur á sunnudag- inn en þeir hafa gert í úrslitarimmunni, en það dugði ekki til. Keith Vassell átti fínan leik og barðist mjög vel í vörninni. Ingvar Ormarsson var í byrjunarliðinu að þessu sinni og hann gerði það sem vænt- anlega hefur verið fyrir hann lagt, að halda uppi hraðanum og reyna að skjóta utan af velli. Ósvaldur Rnudsen var einnig drjúgur en hann hékk of mikið á boltanum og reyndi talsvert mikið á eigin spýtur. Baldur Ólafsson, sem hefur leikið vel í vetur, átti ágætan leik en hann lang- aði greinilega mikið til að troða og mis- fórast þrjár tilraunir hans til þess og um leið sex dýrmæt stig. Sessoms og Friðrik voru í sérflokki hjá Njarðvíkingum og áttu hnökralítinn leik. Teitur var sterkur og Örlygur St- urluson átti fína spretti en lenti snemma í villuvandræðum. Annars var liðsheildin sterk hjá Njarðvíkingum og hún er aðal liðsins þó svo mest mæði á sex til sjö leikmönnum. + Úrslitakeppnin í körfuknattleik 1998 Þriðji úrslitaleikur liöanna, leikinn á Seltjarnarnesi 19. apríl 1998 KR NJARÐVÍK 94 Skoruðstig 106 16/23 Vítahittni 26/34 8/25 3ja stiga skot 12/27 27/44 2ja stiga skot 22/42 21 Varnarfráköst 22 10 Sóknarfráköst 8 8 Bolta náð 12 9 Boltatapað 14 12 Stoðsendingar 19 27 Villur 20 Morgunblaðið/Kristinn KRISTINN Einarsson hefur verið lengi í eldlínunni og fagnaði enn einum titlinum. „Erum fylli- lega sáttir" Aðalvopn okkar hefur verið að koma boltanum inní teiginn en nú breyttum við aðeins útaf og ætl- uðum að reyna að skjóta meira fyr- ir utan. Við eram greinilega ekki með eins góðar skyttur og Njarð- víkingar og kannski ekki sama hraðann heldur og það munar auð- vitað um það. Einhverra hluta vegna gengu þessar sóknaraðgerðir okkar ekki nógu vel upp. Okkur gekk ágætlega á köflum að koma þoltanum inní teiginn, en það var bara of gloppótt. Vörnin hjá okkur er alltaf til staðar en það er ekki nóg þegar þeir skora endalaust úr þriggja stiga skotum," sagði Jón Sigurðsson, þjálfari KR-inga, eftir að Njarðvík hafði tryggt sér Is- landsmeistaratitilinn. „Við breyttum sóknarleik okkar í dag þannig að við reyndum að opna leikinn og gefa þar með aukin færi á að keyra að körfunni. Þetta heppnaðist mjög vel í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik komu kaflar þar sem við voram of uppteknir af því að koma okkur fram í sóknina og gleymdum hreinlega að spila vörn. Það munar auðvitað miklu að hafa ekld Nökkva [Má Jónsson]." Nú reynduð þið að halda uppi hraðanum í fyrri hálfleik og ef eitt- hvað var þá voru það Njarðvíkingar sem reyndu að halda hraðanum niðri. Varþetta dagsskipunin? „Já, við vorum ákveðnir í að selja okkur dýrt og reyndum að keyra eins mikið fram og við gátum í stað þess að bíða alltaf og stilla upp í sókninni. Þetta tókst nokkram sinnum en síðan datt þetta niður hjá okkur og þar sem okkur tókst ekki að nýta okkur aðalstyrkinn, að koma boltanum inní teiginn, fór sem fór. Njarðvíkingar era með mjög gott lið og sigur þeirra var sanngjarn, þetta eru tvö bestu liðin, á því er enginn vafi. Við unnum okkur upp í annað sætið í deildinni og erum fyllilega sáttir við veturinn. Auðvitað hefð- um við viljað gera betur í úrslita- leikjunum og það era vonbrigði að tapa þrjú núll í úrslitunum. Njarð- víkingar eru búnir að spila vel og eiga heiður skilinn og ef til vill má segja að reynsla þeirra hafi vegið þungt því þeir era með miklu fleiri leikmenn sem vita hvað það er að sigra,“ sagði Jón. Hann bætti því við að sér væri til efs að önnur eins skytta og Petey Sessoms hefði komið til landsins. „Ég hef fylgst lengi með körfuknattleik og Sessoms er ótrú- lega góður leikmaður. Hann hittir mjög vel og tekur alltaf mikið af fráköstum og það var alveg sama hvern við settum til að gæta hans, hann náði alltaf að skora. Annað sem er athyglisvert í sambandi við úrslitaleikina er hittnin hjá Njarð- víkingum, hún hefur verið mjög góð og þegar svo er er erfitt að eiga við þá,“ sagði Jón. KR-ingar með sorg- arbönd KR-INGAR léku með sorgar- bönd á sunnudaginn til minn- ingar um Guðmund Jóhanns- son sem varð bráðkvaddur á föstudaginn. Fyrir leikinn var einnar mínútu þögn til minningar um hann. Guð- mundur lék 83 leiki með meistaraflokki KR á árunum 1985 til 1988. Mættu ákveðnir til leiks NJARÐVÍKINGAR mættu ákveðnir til leiksins á sunnu- daginn. Þegar leikmenn voru kynntir komu þeir fram á gólfið eins og öskrandi Ijón og var greinilega mikill hug- ur í þeim. KR-ingar fóru sér hins vegai’ Iiægar við kynn- inguna og virtust ekki vera til stórræðanna, en annað kom á daginn í upphafi leiks því KR-ingar léku betur en þeir hafa gert síðustu vik- urnar. Njarðvík- ingar góðir á línunni VITANÝTING Njarðvíkinga hefur verið mjög góð í úr- slitaleikjunum og sem dæmi má nefha að í leiknum á sunnudaginn hittu þeir úr 11 af 12 vítaskotum í fyrri hálf- ieik. Eftir hlé dró heldur úr örygginu þvf þá hittu þeir „aðeins" úr 15 skotum af 22 en vel fór á því að Teitur Ör- lygsson skoraði 100. stigið úr vítaskoti. KR-ingar hittu hins vegar úr 7 af ellefu í fyrri hálfleik og 9 af 12 í þeim síð- ari. Sessoms skoraði 98stig PETEY Sessoms vai’ð stiga- hæsti maður úrslitarimm- unnar, gerði 98 stig í leikjun- um þremur sem gerir 32,6 stig að meðaltali í ieik. Næst- ur honum í liði Njarðvíkur er Öriygur Sturluson með 45 stig, Friðrik Ragnarsson gerði 43, Teitur Örlygsson 41 og Páll Kristinsson 23. Þeir Ieikraenn sem ekki voru í byijunarliði félagsins gerðu alls 14 stig í leikjunum þrem- ur. Hjá KR var Keith Vassell stigahæstur með 58 stig. Ellefu mín- útna töf ÞEGAR 1,08 mín., voru liðn- ar af síðari hálfleik varð að gera hlé á leiknum þar sem skotklukkurnar beggja vegna á vellinum urðu óvirk- ar. Illa gekk að koma þeim í gang á ný og varð endirinn sá að menn gáfust upp við það. Alls varð 11 mínútna töf á leiknum á meðan menn freistuðu þess að koma klukkunum í lag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.