Morgunblaðið - 21.04.1998, Síða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Leikmenn óku sigur-
hring á Camp Nou
Barcelona
Spánarmeistari
í fimmta sinn á
líðandi áratug
Barcelona tryggði sér á laugar-
daginn spænska meistaratitil-
inn í knattspyrnu í fímmtánda sinn
og í fimmta sinn á þessum áratug.
Liðið lagði Real Zaragoza 1:0 með
marki brasilíska miðjumannsins
Giovanni.
Barcelona hefði dugað jafntefli í
leiknum og allt útlit var fyrir að
heimamenn slyppu með það því
gestirnir frá Zaragoza voru mun
sterkari og eitthvert slen virtist á
leikmönnum Börsunga. Gestunum
tókst þó ekld að koma knettinum yf-
ir marklínu heimamanna og á 77.
mínútu leiksins tryggði Giovanni
Barcelona sigur með ágætu marki
með skalla eftir fyrirgjöf Alberts
Celades.
Góð marktækífærí
Eftir markið hresstust meistar-
arnir allir og fengu nokkur ágætis
marktækifæri en tókst ekki að bæta
við mörkum, Giovanni átti meðal
annars þrumuskot í þverslána.
Þrátt fyrir að gestimir væru sterk-
ari fengu heimamenn nokkur
þokkaleg færi og besta færi leiksins
var er Rivaldo skaut í varnarmann
og rétt yfír.
Argentínumaðurinn „Toro“
Acuna, leikmaður Zaragoza, var
Börsungum erfiður, sérstaklega í
síðari hluta fyrri hálfleiks þegar
hann gaf fyrir og Roger Garcia
komst inn í sendinguna og setti
boltann nærri því í eigið mark.
Acuna fékk tvö þokkaleg færi strax
í upphafi síðari hálfleiks og á 76.
mínútu fengu gestimir sitt besta
færi. Luis Enriques Martinez missti
boltann á miðjunni og Jamelli náði
honum, lék að marki og átti gott
skot sem fór rétt framhjá. Heima-
menn svömðu með sókn sem endaði
með marki þannig að það var
skammt stórra högga á milli á þess-
um tíma.
Þegar flautað var til leiksloka
stukku leikmenn Barcelona uppí
bílinn sem notaður er til að flytja
slasaða menn af velli og óku heið-
urshring um völlinn við mikinn
fögnuð stuðningsmanna liðsins.
Bikarinn eftir
Louis van Gaal, þjálfari
Barcelona, var rólegur og yfirveg-
aður eftir sigurinn. „Menn hljóta að
vera nokkuð ánægðir þegar þeir
sigra og við erum mjög ánægðir,"
sagði Hollendingurinn. Hann ákvað
að sleppa ekki hefðbundinni æfingu
á sunnudaginn, daginn eftir sigur-
inn, enda á Barcelona von um að
verða einnig bikarmeistari. „Ég er
íþróttamaður og mig langar til að
vinna allt sem hægt er að vinna. Til
þess þurfum við að æfa og það er
æfing á morgun,“ sagði hann eftir
sigurinn á laugardaginn.
Reuters
LEIKMENN Barcelona fögnuðu áfanganum með því að aka sigurhring á Camp Nou.
Arsenal á fleygiferð
en Man. Utd. að dala
Allt bendir til þess að Arsenal og
Manchester United verði í
Meistaradeild Evrópu í haust en Li-
verpool verði að sætta sig við
UEFA-sæti. Arsenal er á fleygiferð
í átt að enska meistaratitlinum en
Manchester United virðist vera að
missa flugið og Liverpool er of langt
á eftir til að geta blandað sér í bar-
áttuna.
Arsenal vann Wimbledon 5:0 og
er með eins stigs forystu á United
sem gerði aðeins jafntefli, 1:1, á
móti Newcastle á Old Trafford.
Sömu úrslit urðu í leik Liverpool og
Coventry en Liverpool er níu stig-
um á eftir United og á fjóra leiki
eftir. United á aðeins eftir að leika
þrjá leiki en Arsenal fimm leiki.
Michael Owen gerði gull af marki
fyrir Liverpool skömmu fyrir hlé en
Dion Dublin jafnaði úr vítaspymu
snemma í seinni hálfleik. Reyndar
var boltinn kominn út fyrir hliðarlínu
áður en Darren Huckerby var felld-
ur en línuvörðurinn, sem gat vart
verið nær, lét leikinn halda áíram.
Arsenal hefur verið á góðri sigl-
ingu undanfama mánuði, ekki tapað
síðan um miðjan desember og gert
12 mörk í síðustu þremur leikjum.
Wimbledon átti enga möguleika eft-
ir að fyrirliðinn Tony Adams skall-
aði í net liðsins eftir 11 mínútur en
mörk írá Marc Overmars, Dennis
Bergkamp, Emmanuel Petit og
Christopher Wreh fylgdu í kjölfarið.
Sem fyrr var franski knatt-
spymustjórinn Arsene Wenger,
sem sagði um helgina að hann von-
aðist til að vera hjá Arsenal til 1999,
jarðbundinn. „Enn er langur vegur
eftir," sagði hann. „Við verðum að
fara varlega. Miklu skiptir að verða
meistari en eina vandamál mitt er
að við eigum mikið eftir.“
Arsenal gerði sjö mörk í tveimur
leikjum um páskana og leikmenn-
irnir mættu fullir sjálfstrausts í
viðureignina á móti Wimbledon.
„Páskamir gerðu okkur kleift að
vera öraggir og ákveðnir,“ sagði
Wenger um leikinn sem kom liðinu
á toppinn. Staðan í veðbönkum er 7-
1 á að Arsenal verði meistari í
fyrsta sinn síðan 1991.
Manchester United hefur ekki al-
mennilega náð sér á strik undan-
farnar vikur og virðist hafa misst
flugið við að falla úr Meistaradeild-
inni. Möguleikar á meistaratitlinum
þriðja árið í röð fara dvínandi með
hverri umferð en að þessu sinni
tryggði David Beckham stigið,
skallaði í netið eftir hárnákvæma
sendingu frá Ryan Giggs skömmu
fyrir hlé. Nær hálftíma fyrr hafði
Svíinn Andreas Andersson skorað
fyrir Newcastle. Undir lokin sóttu
heimamenn stíft, Newcastle náði
gagnsókn og Norðmaðurinn Ole
Gunnar Solskjær felldi Robert Lee
við vítateig United. Norðmanninum
var vikið af velli en gestunum tókst
ekki að skora og jafnteflið var stað-
reynd. Stigið skipti Newcastle
miklu í fallbaráttunni en töpuðu
stigin felldu United af stalli.
Alex Ferguson, stjóri United,
hrósaði vamarleik Newcastle og
sagði að menn sínir hefðu ekki get-
að gert mikið meira í sókninni en
þeir gerðu. Hann neitaði samt að
gefast upp. „Það er of snemmt. Allt
getur enn gerst því þetta er svo
undarlegur leikur.“
Ekki bætti úr skák hjá meistur-
unum að danski landsliðsmarkvörð-
urinn Peter Schmeichel meiddist á
lærvöðva og er talið að hann hafi
leikið síðasta leik sinn með United á
tímabihnu.
Staða þriggja neðstu liðanna
breyttist lítið. Reyndar hafði Bolton
sætaskipti við Barnsley með því að
tapa 3:2 fyrir Leeds en Barnsley
gerði 1:1 jafntefli við Tottenham.
Crystal Palace er áfram neðst en
liðið vann Derby 3:1 og fagnaði
fyrsta sigri í heimaleik á tímabilinu.
Tímamót
í augsýn
hjá Lens
LENS, sem hefur aldrei unnið
til stærstu verðlauna í
frönsku knattspymunni og
slapp naumlega við fall í
fyrra, á möguleika á að vera
tvöfaldur meistari í ár. Að-
eins Metz getur náð liðinu að
stigum í deildinni þegar tvær
umferðir eru eftir en PSG er
hindrunin í bikarúrslitunum.
Metz hefur ekki orðið Frakk-
landsmeistari en varð bikar-
meistari 1984 og 1988 og
deildabikarmeistari fyrir
tveimur árum.
Lens vann Cannes 2:0 og er
tveimur stigum á undan Metz
sem vann Nantes 3:2 en þar
sem Marseille og Mónakó töp-
uðu hafa Lens og Metz tryggt
sér sæti í meistaradeild Evr-
ópu í liaust. Marseille tapaði
2:1 fyrir Auxerre og er sjö
stigum á eftir Metz en Tou-
louse vann meistara Mónakó
1:0.
„Mikill áhugi er á að skrifa
fyrsta meistaratitilinn í sögu
félagsins,“ sagði miðjumaður-
inn Frederic Dehu hjá Lens.
„Við vonum að uppskeran
1998 verði góð.“
Enginn leikmaður Lens er í
franska landsliðinu en engu
að síður gerast þeir æ eftir-
sóttari. „Ég hef beðið leik-
mennina um að sýna bið-
lund,“ sagði þjálfarinn Daniel
Leclercq, sem hefur reynt að
halda mönnum sínum við
jörðina. „Ef Stephane Ziani
getur sagt 10. maí að hann sé
franskur meistari fær hann
meira fyrir sinn snúð.“
Celtic nær titlinum
CELTIC er með þriggja stiga
forystu í skosku deildinni þeg-
ar þijár umferðir eru eftir.
Celtic vann Motherwell 4:1 en
Rangers tapaði 1:0 fyrir Aber-
deen.
„Eftir sigurinn á Celtic sagði
ég mikilvægt að sigra í öllum
fjórum leikjunum sem eftir
voru en nú erum við í erfiðri
stöðu,“ sagði Walter Smith,
þjálfari Rangers, sem hefur
orðið Skotlandsmeistari und-
anfarin níu ár. „Við gefumst
samt ekki upp.“ Wim Jansen,
þjálfari Celtic, sagði eftir sigur
liðs síns að ekkert væri í höfn
enn, staðan gæti snúist við um
næstu helgi. „Allir leikir sem
eftir eru skipta máli.“
Venables tekur við Palace
TERRY Venables staðfesti um
helgina að hann tæki við stjórn-
inni hjá Hermanni Hreiðarssyni
og samheijum í Crystal Palace f
sumar, en þar hófst einmitt
þjálfaraferill hans.
Undanfama mánuði hefur ver-
ið hávær orðrómur um að Vena-
bles væri á leiðinni til Palace og
ekki alls fyrir Iöngu sagði Mark
Goldberg, verðandi stjórnarfor-
maður, að hann og Venables
hefðu gert áætlun til fimm ára
sem á að koma félaginu í
fremstu röð á Englandi.
Venables sagðist hafa hafnað
tilboðum frá Þýskalandi, Spáni
og Grikklandi til að reyna að
snúa blaðinu við hjá Palace, sem
væri dæmt til að falla. Attillio
Lombardo stjórnar liðinu út
tímabilið og sagðist vona að
hann yrði áfram leikmaður
Palace.
Ástralíumenn þökkuðu Ven-
ables góð störf, en hann hefur
verið landsliðsþjálfari Ástralíu í
nær tvö ár og komið því á kortið
eins og formaðurinn David Hill
orðaði það, en gert er ráð fyrir
að hann stjórni landsliðinu í síð-
asta sinn þegar það mætir liði
Króatíu í vináttuleik í júní.