Morgunblaðið - 12.05.1998, Qupperneq 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 12. .MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Kaflaskipti í Skotlandi
eftir níu ára einokun!
WIM Jansen, hollenski þjálfarinn
sem stýrði Celtic að fyrsta skoska
meistaratitlinum í knattspymu í
tíu ár, sagði í gær upp starfi sínu.
Hann er nú með liði sínu í Portú-
gal en hópurinn kemur aftur til
Skotlands á fimmtudag.
Fyrir sex vikum sagði Jansen
að hann væri óánægður hjá Celtic
og myndi taka ákvörðun um fram-
haldið eftir tímabilið. Hann tók við
knattspymustjórastöðunni í júlí í
fyrra en í samningnum var ákvæði
þess efnis að hann gæti hætt
núna. Ástæða óánægjunnar eru
samstarfsörðugleikar við fram-
kvæmdastjórann Jock Brown og
ósamþykki við kaup á nauðsynleg-
um leikmönnum að hans mati en
engu að síður hefur Jansen keypt
leikmenn fyrir 12 milljónir punda,
tæplega 1,5 milljarða ísl. kr. „Ég
vildi fá ákveðna leikmenn en fékk
ekki að kaupa þá,“ sagði Hollend-
ingurinn. „Eg vildi fá meiri pen-
inga til að kaupa menn því það
er nauðsynlegt til að ná árangri."
Hollendingurinn Dick Advocaat
tekur við Rangers á næstunni og
Jansen telur sig vita hvað hann
fær af peningum til að styrkja lið-
ið.
Brown sagðist ekki hafa rætt
málið við Jansen sem fór frá
Feyenoord vegna ámóta mála. „Ég
hef ekki rætt við Wim um málið að
undanfömu vegna þess að það var
best fyrir félagið að allir einbeittu
sér eingöngu að því að ná titlin-
um.“ Hann bætti við að félagið
hefði ekki rætt samninginn við
Jansen opinberlega og ætlaði ekki
að gera það. „Hann hefur talað op-
inskátt um málið en við geram það
ekki.“ Félagið sendi aðeins stutta
tilkynningu til hlutabréfamarkað-
arins í London þar sem greint var
frá ákvörðun Hollendingsins.
Tommy Burns, sem var látinn
fara þar sem liðið náði ekki að
velta Rangers af stalli undir hans
stjóm þó það hafi fengið fleiri stig
undanfarin tvö ár, hvatti Celtic um
helgina til að gera allt sem félagið
gæti til að halda Jansen. „Ég dáist
að honum og vona að hann verði
áfram,“ sagði Bums sem er nú
knattspymustjóri hjá Reading.
„Fái Wim nauðsynlegan stuðning
er hann maðurinn til að koma fé-
laginu á toppinn í Evrópu," bætti
hann við en honum varð ekki að
ósk sinni - Jansen er hættur. Sam-
kvæmt fréttum í Skotlandi era
Gordon Strachan, stjóri Coventry,
og Mick McCarthy, landsliðsþjálf-
ari írlands, líklegastir eftirmenn
Hollendingsins.
Reuters
Fagnaöi titlinum
en sagði svo upp
WIM Jansen, hollenskl þjálfar-
Inn sem kom Celtic aftur á
topplnn, tll vlnstri, eftlr afl
Skotlandsmelstaratltillinn
var f hðfn um helglna.
Til hægrl er aðstoðarmaður
hans, Murdo McLeod.
Celtic kom í veg fyrir að Ran-
gers yrði Skotlandsmeistari í
10. sinn í röð þegar liðið vann St.
Johnstone um helgina og tryggði
sér þar með meistaratitilinn í
fyrsta sinn síðan 1988. Svíinn
Henrik Larsson skoraði eftir
þrjár mínútur og Norðmaðurinn
Harald Brattback, sem hafði að-
eins verið inni á í 13 mínútur,
bætti öðra marki við 18 mínútum
fyrir leikslok. Tímamót í deildinni
og kaflaskipti þar sem ríkjandi
fyrirkomulag í skosku deildinni
verður aflagt og nýtt tekið upp í
haust.
Mikil gleði braust út á Celtic
Park þegar titillinn var loks í
höfn. „Þetta er stórkostlegt og
getur ekki verið betra,“ sagði
Hollendingurinn Wim Jansen,
knattspyrnustjóri Celtic. „Ég er
yfír mig ánægður með að við
skyldum ná titlinum eftir eins
langa bið og raun ber vitni.“
Mikið taugastríð hefur ríkt á
toppnum að undanfömu en
HoUendingurinn sagði að liðið
hefði aldrei misst tökin á titlinum.
„Við trúðum alltaf að við gætum
orðið meistarar og ekkert slær
það út að tryggja sér titilinn í síð-
asta leik á heimavelli. Stuðnings-
mennimir hafa verið frábærir og
þeir hafa hjálpað okkur.“
Celtic fékk 74 stig, tveimur
meira en Rangers, sem vann
Dundee United 2:1 í lokaumferð-
inni með mörkum frá Brian
Laudrap eftir hálftíma leik og
Jörg Albertz úr vítaspyrnu
snemma í seinni hálfleik. Lars
Zetterlund gerði mark heima-
manna um miðjan seinni hálfleik.
Rangers hefur oftast orðið
Skotlandsmeistari, 46 sinnum, en
Celtic fagnaði nú titlinum í 36.
sinn. Félagið varð meistari níu ár í
röð, 1966 til 1974, afrek sem Ran-
gers náði að jafna, en Celtic tapaði
tveimur fyrstu leikjum sínum á
þessu tímabili og er eina félagið á
öldinni sem hefur orðið Skotlands-
meistari í kjölfar slíkrar byrjunar.
Félagið varð einnig deildabikar-
meistari fyrr á tímabilinu.
Bikarinn var fluttur í lögreglu-
vernd úr geymslu í miðbænum á
Celtic Park þar sem fyrirliðinn
Tom Boyd tók við honum
skömmu eftir leik. Hefði Rangers
orðið meistari hefði verið farið
með bikarinn á Ibrox Park í hin-
um enda Glasgowborgar þar sem
32.000 áhangendur Rangers
fylgdust með leiknum í Dundee á
Stór stund á
Celtic Park
TOM Boyd, fyrirliðl Glasgow
Celtlc, með Skotlandsbikar-
Inn á laugardaglnn. Þetta er
f fyrsta sklpti f tfu ár sem
fyrirllfll Celtlc kemur vlð
þennan eftlrsótta blkar;
erkifjendumlr hinum megln
f borglnni - Rangers - hðfflu
orðlfl melstarar nlu ár ( rðð.
Reuters
risastóram skjá en lið Rangers
hefði verið flutt í þyrlu frá
Dundee.
Hearts var með í baráttunni á
toppnum fram á síðustu stundu en
varð að sætta sig við þriðja sætið.
Liðið vann Dunfermine 2:0 um
helgina en neðsta liðið, Hibemian,
gerði jafntefli, 1:1, við
Kilmarnock.
Martinez
og Rivaldo
bestir á
Spáni
LUIS Enrique Martinez og Ri-
valdo hjá Barcelona voru
kjörnir bestu leikmennirnir f
spænsku deildinni en þjálfarar
liðanna kusu fyrir biaðið E1 Pa-
ís. Martinez var kjörinn besti
Spánverjinn en Rivaldo besti
erlendi leikmaðurinn en félag-
arnir eru næst markahæstir í
deildinni með sín 18 mörkin
hvor.
ítalski miðherjinn
Alessandro Del Piero var kjör-
inn besti leikmaður heims og
lið hans, Juventus, besta liðið.
Jose Antonio Camacho, þjálfari
Espanyol, setti Real Madrid í
efsta sæti liða en Espanyol
vann Real Madrid 1:0 um helg-
ina. Juan Manuel Lillo, þjáifari
Tenerife, sagði að Diego Mara-
dona væri besti leikmaður
heims. Jupp Heynckes, þjálfari
Real, neitaði að taka þátt f
kjörinu.
Berger fer
frá Liverpool
TÉKKNESKI miðjumaðurinn
Patrik Berger mætti ekki í leik
hjá varaliði Liverpool í liðinni
viku og var sagt í kjölfarið að
hann yrði ekki lengur hjá fé-
laginu auk þess sem honum var
gert að greiða 30.000 pund, um
3,6 miiy. kr., í sekt.
Roy Evans, knattspyrnu-
syóri Liverpool, sagði f mars
að hann ætlaði að sejja Berger
ef einhver vildi greiða fjórar
milljónir punda fyrir hann.
Berger hefur verið óánægður
vegna þess hvað hann hefur
spilað lítið en Liverpool keypti
hann frá Dortmund fyrir 3,5
miiy. punda eftir Evrópu-
keppnina á Englandi fyrir
tveimur árum. Hann hefur
leikið 31 leik fyrir Liverpool og
gert 10 mörk en aðeius verið
átta sinnum í byijunarliðinu á
tfmabilinu.
Graeme Souness, þjálfari
Benfica, vildi fá Berger f vetur
en var ekki tilbúiun að greiða
uppsett verð.
sagði upp
Wim Jansen