Morgunblaðið - 12.05.1998, Side 9

Morgunblaðið - 12.05.1998, Side 9
\ a MORGUNBLAÐIÐ PRIÐJUDAGUR12. MAÍ 1998 B 9 KNATTSPYRNA Áhorfenda- Þrenna fra Inzaghi met sett í tryggði Juve titilinn Þýskalandi 394.024 áhorfendur mættu á leiki síðustu umferðar í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu um helgina og þar með var slegið met í deildinni en fjöldi áhorfenda fór í fyrsta sinn yfir 10 milljónir. Alls voru 10.009.529 áhorfendur á leikjunum á tímabil- inu, 32.275 að meðaltali en voru 30.267 í fyrra. Bayem Munchen fékk 54.529 áhorfendur að meðaltali en Borussia Dortmund 52.893 manns. FILIPPO Inzaghi var með þrennu þegar Juventus vann Bologna, 3:2, í ítölsku deildinni um helgina og tryggði sér meist- aratitilinn 1 25. sinn. Rússinn Igor Kolyvanov skor- aði fyrir Bologna eftir 11 mínút- ur og skömmu síðar var tilkynnt að Ronaldo hefði skorað fyrir Inter á móti Bari en fyrir leiki helgarinnar var Juve með fjög- urra stiga forystu á Inter. Inzaghi jafnaði 10 mínútum fyr- ir hlé, skoraði með skalla eftir sendingu frá leikstjórnandanum Zinedine Zidane. Inzaghi bætti öðru marki við þegar fjórar mínútur voru liðnar af seinni hálfleik en skömmu síðar jafnaði Roberto Baggio. Juve sótti stíft til sigurs og 10 minútum fyrir leikslok kom markið mikilvæga. Hvort sem það hafði áhrif eða ekki jafnaði miðherjinn Nicola Ventola fyrir Bari skömmu síðar og Phil Masinga gerði sigur- mark liðsins rétt áður en flautað var til leiksloka. „Þetta hefur verið frábær keppni,“ sagði Massimo Moratti, forseti Inter. „Þegar 10 mínútur voru eftir var allt opið.“ Juve er með sjö stiga forystu fyrir síð- ustu umferðina en þá sækir liðið Atalanta heim en Inter fær Empoli í heimsókn. „Bæði liðin eru góð og ég óska Inter til hamingju með titilinn í UEFA- keppninni," sagði Vittorio Chi- usano, forseti Juventus. Fiorentina vann Lazio 4:1 og tryggði sér sæti í UEFA-keppn- inni í haust en þar verða líka Roma, Udinese og Parma. Lazio fer í Evrópukeppni bikarhafa og Inter í Meistaradeildina með Ju- ve. Reuters ZINEDINE Zidane, franski snillingurinn hjá Juventus, til vinstri, fagnar Ítalíumeistaratitlinum í knattspyrnu eftir sigur á Bologna á heimavelli. Fyrir miðri mynd er landi Zidanes, Didier Deschamps og lengst til hægri varamarkvörðurinn, Michelangelo Rampulia. Davids í hópinn á ný GUUS Hiddink, landsliðs- þjálfari Hollands, hefur valið 22 manna landsliðshóp fyrir . heimsmeistarakeppnina í ' Frakklandi í sumar. Mesta ' athygli vekur að miðvallar- leikmaðurinn snjalli hjá Ju- ventus, Edgard Davids, er í hópnum á ný - í fyrsta skipti síðan hann var rekinn heim frá Evrópukeppninni í Englandi vegna deilna við þjálfarann. Markverðir: Edwin van der Sar (Ajax Amsterdam), Ruud Hesp (Barcelona), Ed de Goey (Clielsea). Varnarmenn: Michael Reizi- ger (Barcelona), Ferdi Vierklau (Tenerife), Frank de Boer (Ajax), Jaap Stam (PSV Eindhoven), Arthur Numan (PSV), Winston Bog- arde (Barcelona). Miðjumenn: Clarence Seedorf (Real Madrid), Aron Winter (Inter Milan), Ronald de Boer (Ajax), Phillip Cocu (PSV), Wim Jonk (PSV), Edgar Da- vids (Juventus), Giovanni van Bronckhorst (Feyenoord). Framlieijar: Pien*e van Hooi- • jdonk (Nottingham Forest), Patrick Kluivert (AC Milan), Marc Overmars (Arsenal), Jimmy Floyd Hasselhaink (Leeds United), Dennis Berg- kamp (Arsenal), Boudewyn Zenden (PSV). Olympiakos varði gríska titilinn OLYMPIAKOS Piraeus tryggði sér gríska meistara- titilinn annað árið í röð þegar liðið vann Apollon, 5:3, á heimavelli á sunnudag. Olympiakos er með sex stiga forystu á Panathinaikos þeg- ar tvær umferðir eru eftir og þó að liðin yrðu jöfn að stig- um væri Olympiakos ofar vegna sigra í innbyrðis leikj- um þeirra. Júgóslavneski þjálfarinn Dusan Bajevic tók við liðinu í fyrra og þá varð það meistari í fyrsta sinn í 10 ár en áður hafði liann stýrt AEK til sig- urs í deildinni íjögur ár í röð. Spenna til síðustu stundar Guðni Bergsson og félagar í Bolton féllu úr úrvalsdeildinni en Everton slapp með skrekkinn BOLTON tapaði 2:0 fyrir Chelsea í London og féll í 1. deild ensku knattspyrnunnar ásamt Crystal Palace og Barnsley en Everton gerði jafntefli, 1:1, við Coventry í Liverpool og náði að bjarga sér á síðustu stundu. Everton hefur verið í efstu deild síðan 1954 og utan hennar í fjögur tímabil frá 1888. Liðið varð meistari 1987 en hefur verið í fallbaráttu fjórum sinnum á liðnum fimm árum. Gareth Farrelly skoraði af 20 metra færi á áttundu mínútu, fyrsta mark hans fyrir Everton, og 40.000 áhorf- endur önduðu léttar. Sigurinn virt- ist öruggur þegar Everton fékk vítaspyrnu undir lokin en Magnus Hedman varði frá Nick Barmby. Nokkrum sekúndum síðar náði norski markvörðurinn Thomas My- hre ekki að verja eftir skalla frá Dion Dublin, sem varð markakóng- ur með Michael Owen hjá Liverpool og Chris Sutton hjá Blackburn en þeir gerðu 18 mörk hver. A sama tíma var staðan 1:0 fyrir Chelsea á Stamford Bridge eftir að Gianluca Vialli hafði skorað á 73. mínútu, en við tíðindin frá Goodison Park hróp- uðu áhangendur Bolton „sækið, sækið...“ Leikmennimir gerðu það og minnstu munaði að varamaður- inn Gaetano Giallanza jafnaði en Jody Morris sendi liðið niður með marki á lokamínútunni. Howard Kendall, knattspyrnu- stjóri Everton, fagnaði sætum sigr- um og titli þegar hann var við stjómvölinn á níunda áratugnum en var í gjörólíkri stöðu að þessu sinni. „Ég vil ekki upplifa annan svona dag og þetta félag á ekki eftir að kynnast þessu aftur meðan ég verð við stjórn. Ég geri einhverjar breyt- ingar á hópnum en ekki miklar því ég er með sterkan hóp.“ Dave Watson er eini leikmaður liðsins sem var líka í liðinu sem slapp við fall í síðasta leik 1994. „Þetta er ótrúlegt. Eftir 94 hélt ég að við þyrftum ekki að ganga í gegn- um þetta aftur, Þegar Nick tókst ekki að skora úr vítinu og boltinn fór á milli handa Thomas hélt ég að þetta væri búið en hugarfarið var rétt og frammistaðan frábær.“ Colin Todd, stjóri Bolton, varð að sætta sig við tap eftir tvo sigurleiki í röð. „Þetta er skemmandi,“ sagði hann. „Við vomm mjög óheppnir að skora ekki í fyrri hálfleik en þeir björguðu tvisvar á línu. Ég hefði ekki getað beðið leikmenn mína um meira en þetta hefur verið hræði- legur dagur fyrir okkur.“ Blackburn f UEFA-keppnina Chris Sutton tryggði Blackburn 1:0 sigur á Newcastle og sæti í Evr- ópukeppni félagsliða í haust. David Batty hjá Newcastle var vikið af velli en það breytir ekki því að hann fær að spila bikarúrslitaleikinn við Arsenal. Hins vegar stjakaði hann við dómaranum David Elleray eftir brottvikninguna og gæti fengið þyngri refsingu fyrir vikið. Meistarar Arsenal luku keppni með tveimur tapleikjum i röð, fyrst 4:0 fyrir Liverpool og nú 1:0 fyrir Aston Villa. Dwight Yorke skoraði og Villa fer í UEFA-keppnina ef Chelsea verður Evrópumeistari bikarhafa. Crystal Palace kvaddi efstu deild með 1:0 sigri á Sheffield Wednesday en þetta var annar heimasigur liðs- ins í deildinni á tímabilinu. Varamað- urinn Clinton Morrison gerði eina mark leiksins á síðustu mínútu. Her- mann Hreiðarsson lék allan leikinn með Palace og fékk að sjá gula spjaldið. Fyrsti sigurinn í 20 ár Michael Owen var ekki fæddur þegar Derby vann Liverpool 4:2 í mars 1978 en síðan hafði Derby ekki unnið í innbyrðis leikjum lið- anna og tapað síðustu 10 leikjum þar til kom að viðureign félaganna í fyn*adag. Aldrei hafa verið fleiri áhorfendur á Pride Park, 30.492, og heimamenn fögnuðu langþráðum sigri en Paulo Wanchope skoraði eina mark leiksins á 63. mínútu, 17 mark hans á tímabilinu. Haukur Ingi Guðnason var vara- maður hjá Liverpool og kom ekki inn á en Paul Ince, Steve McManaman, Jason McAteer og Öyvind Leonhard- sen meiddust í síðasta leik og voru því ekki með en fyrir voru meiddir Robbie Fowler, Jamie Redknapp, Dominic Matteo, Rob Jones og Mark Wright. Úrslitin breyttu engu, Liver- pool er í þriðja sæti og fer í ÚEFA- keppnina en Derby situr eftir. Manchester United vann Bams- ley 2:0 og lauk keppni einu stigi á Eftir Arsenal. Andy Cole og Teddy Sheringham skoruðu. West Ham vann Leicester 4:3 en varð í áttunda sæti og kemst ekki í Evrópukeppni. Júrgen Klinsmann kvaddi Tottenham með glæsilegu marki og tryggði Spurs jafntefli, 1:1, við Southampton en Matt Le Tissier skoraði fyrii* gestina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.