Morgunblaðið - 12.07.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 E 11 9
Ræðslumiðstöð
Reykjavíkur
Hamraskóli
Umsjónarmaður með lengdri viðveru
Starfið erfólgið í skipulagningu og umsjón
með lengdri viðveru 6—9 ára barna.
Kröfurtil umsækjenda:
• Uppeldismenntun.
• Stjórnunarhæfileikar og reynsla.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
Umsóknarfresturertil 26. júlí nk. Upplýsingar
veita skólastjóri og aðstoðarskólastjóri skólans
í símum 567 6300 & GSM 895 9468.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354)535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Fræðslu-
og menningarsvið
Garöabær
Leikskólar
Garðabæjar
Leikskólinn Sunnuhvoll
Leikskólakennari óskast til starfa frá og með
1. ágúst nk. Leikskólinn ertveggja deilda, mjög
heimilislegur í fallegu umhverfi.
Upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri,
Oddný S. Gestsdóttir, í síma 565 9480.
Launakjör eru samkvæmt samningum launa-
nefndar sveitarfélaga og starfsmannafélags
Garðabæjar.
Leikskólar Garðabæjar eru reyklausir
vinnustadir.
Leikskólafulltrúi.
Spennandi tækifæri
út á landi
Þórshafnarhreppur óskar eftir að ráða aðalbók-
ara til starfa. Starf aðalbókara felst í mekingu
og skráningu fylgiskjala, afstemmingu fjár-
hags- og viðskiptamannabókhalds, gera bók-
haldið tilbúið til endurskoðanda auk fleiri verk-
efna í samráði við sveitarstjóra.
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að hafa nokkra
reynslu af bókhaldi, verða töluglögg(-ur),
kraftmikil(-l), og eiga gott með að umgangast
fólk. Æskilegt er að viðkomandi sé viðskipta-
fræðingur.
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við
Henrý Má Ásgrímsson, oddvita Þórshafnar-
hrepps í símum 468 1220,854 9322 epa 468
1217 eða sendi umsóknir á skrifstofu Þórshafn-
arhrepps, Langanesvegi 16a, 680 Þórshöfn
merktar „ Aðalbókari " fyrir 20. júlí 1998.
fl
ll
LANDSPITALINN
.../ þágu mannúðar og vísinda...
Meinatæknir
óskast tímabundið í 50% starf á göngudeild
kvenna.
Sjúkraliði
óskast í 50% starf á móttökudeild kvenna.
Upplýsingar veitir Guðrún Björg Sigurbjörns-
dóttir í síma 560 1000.
----------------------------—-----------------— ,
Laun samkv. gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags
og fjármálaráðherra.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannahaldi
Ríkisspítala. Þverholti 18 og i upplýsingum á Landspítala.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
_____________________I_______________________________7
Fjarðarnet ehf.
Netagerðarmenn
Óskum eftir að ráða faglærðan netagerðar-
mann. Upplýsingar gefa Jóhann og Björn í
símum 472 1379 eða 472 1579.
Ert þú faglærður netagerðarmaður sem hefur
gaman af fjallgöngum á sumrin, rjúpnaveiðum
á haustin eða að skreppa á skíði á veturna?
Þá er Seyðisfjörður rétti staðurinn fyrir þig.
Fjarðarnet ehf.,
Fjarðargötu 10,
710 Seyðisfirði.
HOTEL
REYKJAVÍK
Sigtúni 38, Reykjavík
Starfsfólk/
framreiðslunemar
Grand Hótel óskar eftir starfsfólki til að sjá um
morgunverð frá kl. 06.30 til 11.00.
Ráðningartími erfrá 1. ágúst.
Ennfremur getum við bætt við okkur nemum
í framreiðslu.
Upplýsingar á staðnum 13. og 14. júlí frá
kl. 13.00-15.00.
Hafnarfjarðarbær
Leikskólastjóri
Staða leikskólastjóra við leikskólann Norður-
berg í Hafnarfirði er laus til umsóknar.
Staðan verður veitt frá 15. september 1998 en
umsóknarfrestur ertil 27. júlí. Leitað er að
áhugasömum stjórnanda með leikskólakenn-
aramenntun. Umsóknareyðublöð liggjafram-
mi á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Strandgötu
31, en upplýsingarumstarfiðveitirleikskóla-
fulltrúi í s. 555 2340.
Framkvæmdastjóri fræðslusviðs,
Hafnarfirði.
Starfsfólk óskast
Hard Rock í Reykjavík óskar eftir starfsfólki í
eldhús, 1 vönum pizzubakara og körlum/-
strákum í sal. Við erum að leita að metnaðar-
gjörnu, samviskusömu og heiðarlegu fólki með
líflega og skemmtilega framkomu.
Umsækjendur þurfa að vera eldri en 18 ára.
Tekið verður á móti umsækjendum á Hard
Rock Café, mánudaginn 13. og þriðjudaginn
14. júlí á milli kl. 14.00 og 16.00. Ekki verður
tekið á móti umsóknum í gegnum síma.
„Au pair"
í Frakklandi
Frönsk-íslenskfjölskylda, búsett í Nantes, óskar
eftir ábyrgðarfullri manneskju í eitt ártil að
gæta tveggja barna og sinna heimilisstörfum.
Þarf að vera a.m.k. 19 ára og geta byrjað
í lok ágúst.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 31. júlí,
merktar: „F — 5301".
Málmsmíði
Vegna stóraukinna verkefna óskum við eftir
að ráða menn, vana eða áhugasama um að
læra alhliða smíði úr ryðfríu stáli og fram-
leiðslu á kæli- og hitatækjum.
Um er að ræða framtíðarstarf á björtu og vel
tækjum búnu verkstæði. Þeir, sem hafa áhuga
á að heyra meira um starfið, hafi samband við
verkstjóra eða mætið á staðinn.
Athugið reyklaus vinnustaður.
Skeiðarási 8, 210 Garðabæ,
sími 565 7799.
Forstöðumaður
almenningsbókasafns
Laus er staða forstöðumanns Héraðsbókasafns
Rangæinga á Hvolsvelli.
Safnið er samsteypusafn með Hvolsskóla og
hefur á undanförnum árum verið að eflast og
auka umsvif sín. Safnið er í eigin húsnæði
270 m2, bjart og rúmgott og vel búið tölvum.
Staðan veitist frá Ol.sept.n.k. Leitað er að
bókasafnsfræðingi eða einhverjum með sam-
bærilega menntun. Tölvukunnátta skilyrði.
Upplýsingar veita Brynja Dadda Sverrisdóttir,
yfirbókavörður, í síma 487 8606, hs. 487 8438,
póstfang bdadda@smart.is og formaður
stjórnar, Pálína Jónsdóttir, sími 487 8283.
Mosfellsbær
Leikskólinn
Hlaðhamrar
Leikskólakennarar óskast til starfa, um er að
ræða stöður eftir hádegi. Til greina kemur að
ráða einstakling með aðra uppeldismenntun
og/eða reynslu. í leikskólanum er lögð áhersla
á gæði í samskiptum og skapandi starf. Nánari
upplýsingar veitir undirrituð í símum 566 7951
eða 566 6351.
Leikskólastjóri.
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi
Staða yfirlæknis
við stofnunina er laustil umsóknar. Staðan
veitist frá hausti 1998, eða samkvæmt sam-
komulagi. Leitað er eftir sérfræðingi í heimilis-
lækningum, eða sérfræðingi sem hefur reynslu
í heimilislækningum, en hefur menntun á öðr-
um sviðum læknisfræði s.s. öldrunarlækning-
um, endurhæfingar- eða lyflækningum. Um-
sóknarfrestur er til 17. júlí nk.
Umsóknir sendist framkvæmdastjóra stofnun-
arinnar, Bolla Ólafssyni, sem jafnframt veitir
nánari upplýsingar.
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi,
Flúðabakka 2, sími 452 4206.
Starfsfólk óskast
Starfsfólk óskast í eldhússtarfa í Félags- og
þjónustumiðstöð aldraðra, Norðurbrún 1.
Einnig er óskað eftir starfsmanni við ræstingu.
Laun skv. kjarasamningi Starfsmannafélagsins
Sóknar og Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar veitir Steinunn Ingimund-
ardóttirforstöðumaður í síma 568 6960, eða
á staðnum.