Morgunblaðið - 12.07.1998, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ
.12 E SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998
Samskip
Starfsmaður í
mötuneyti
Um er að ræða starf frá kl. 12.30 til kl. 16.00.
Starfið felur í sér að aðstoða við framreiðslu
á hádegismat og sjá um kaffi og meðlæti í
kaffitíma. í mötuneytinu borða um 25 til 40
manns.
Viðkomandi þarf að geta leyst af í veikindum
og sumarfríum.
Umsóknir sendist til skrifstofu Samskipa fyrir
18. júlí. Umsóknareyðublöð liggja frammi á
skrifstofunni. Upplýsingar veitir Birna Matt-
híasdóttir, sími 569 8300.
Framkvæmdastjóri
Sniðill hf. í Mývatnssveit, sem ergamalgróið
verktakafyrirtæki á sviði bygginga og flutnings
og rekur auk þess bifreiðaverkstæði, óskar eftir
að ráða framkvæmdastjóra frá og með 1. sept-
ember nk. Þarf að hafa víðtæka reynslu af
rekstri slíks fyrirtækis. Húsnæði í boði.
Allar nánari upplýsingar gefur Kristján í síma
464 4117 alla virka daga frá kl. 8—17.
Umsóknum skal skila skriflega fyrir 25. júlí
merkt:
Sniðill hf„
b.t. Jóhannes,
Múlavegi 1,
660 Reykjahlíð.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Förðunardeild
Starfsmaður óskast í förðunar- og hárkollu-
deild Þjóðleikhússins. Umsækjendur þurfa að
hafa menntun og/eða reynslu í leikhúsförðun.
Um er að ræða vaktavinnu. Laun fara eftir
kjarasamningi SFR við ríkissjóð.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf þurfa að berast skrifstofu Þjóðleik-
hússins, Lindargötu 7, fyrir 27. júlí nk.
Skólastjóri óskast
að Laugagerðisskóla
Staða skólastjóra við Laugagerðisskóla á Snæ-
fellsnesi er laustil umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 17. júlí nk.
Skólinn er um 120 km frá Reykjavík. Nemendur
eru um40, allir í heimanakstri. Kennsluaðstaða
góð. Vel búnar og rúmgóðar kennslustofur.
Iþróttahús og sundlaug eru á staðnum.
Skólastjórabústaður er einbýlishús með frírri
hitaveitu.
Upplýsingar veita Daníel Hansen, sími 435 6858
og Guðbjartur Alexandersson, sími 435 6685.
Leikskólakennarar
Leikskólakennarar óskast til starfa við leikskól-
ann í Bjarnahúsi á Húsavík.
Umsóknarfresturertil 1. ágúst 1998. Húsavík-
urkaupstaðuraðstoðarvið útvegun húsnæðis
og flutning búslóðar.
Upplýsingar veitir leikskólastjóri, Jóna Björg
Freysdóttir, í síma 464 2420.
Verslunarstjóri
— tölvur
Ört vaxandi tölvuverslun í Reykjavík óskar að
ráða verslunarstjóra. Ábyrgðarsvið: Daglegur
rekstur, innkaup erlendis frá og innanlands,
tilboðsgerð og starfsmannastjórn.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist
afgreiðslu Mbl. merkt: „V — 5346" fyrir kl. 16,
föstudaginn 17. júlí nk.
Farið verður með allar uppl. sem trúnaðarmál.
IHeilsugæslustöðin Sólvangi
___Hafnarfirði
Afleysingalæknar
Tvær stöður afleysingalækna við Heilsugæslu-
stöðina Sólvangi í Hafnarfirði eru lausartil um-
sóknarf.o.m. 1. ágúst nk.
Önnur staðan er til 6 mán., möguleg framleng-
ing um aðra 6 mán. Hin staðan er til 3
mán., möguleg framlenging um aðra 3 mán.
Umsóknargögn sendisttil yfirlæknis Heilsu-
gæslustöðvarinnar Sólvangi, sem jafnframt
veitir nánari upplýsingar í síma 550 2600.
Leikskólastjóri
Borgarfjörður, nýtt sveitarfélag í Borgarfjarðar-
sýslu norðan Skarðsheiðar, auglýsir eftir leik-
skólastjóra við leikskólann Hnoðraból í Reyk-
holtsdal.
Leikskólinn er lokaður mánuðina júní-ágúst
og þarf leikskólastjóri að hefja starf 1. septem-
ber. Launakjör samkvæmt kjarasamningum.
Upplýsingar um leikskólann og starf hans veitir
oddviti, Ríkharð Brynjólfsson, Hvanneyri, sími
437 0124 og Steinunn Garðarsdóttir, Gríms-
stöðum, sími 435 1191. Umsóknarfrestur er
til 1. ágúst.
Heilsugæslulæknir
Staða heilsugæslulæknis (100% staða) við
heilsugæslustöð Selfoss er laus til umsóknar.
Umsækjendurskulu hafa viðurkenningu sem
sérfræðingar í heimilislækningum.
Allar nánari upplýsingar veitirÁsmundur Jón-
asson yfirlæknir í síma 482 1300.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf skulu sendarÁsmundi Jónassyni
yfirlækni heilsugæslustöðvarinnar v/Árveg,
800 Selfoss, fyrir 20. júlí nk.
Framkvæmdastjóri.
Gatfche
CAFE * RESTAURANT * CAFE
Starfsfólk til þjónustustarfa
óskast í fullt starf á kaffihús og bar
í hjarta Kópavogs.
Aðeins fólk með reynslu kemur til greina.
Rive Gauche • Hamraborg 10 • Sími 554-1350
Sunnuhlíð
Hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi
Hjúkrunarfræðingar
— sjúkraliðar
óskast nú þegartil sumarafleysinga í ágúst
og september. Upplýsingar veitirÁslaug
Björnsdóttir í síma 560 4163.
Sjúntækja fræáingur
Ég-C óskar eftir að ráða
sjóntækjafræðing í fullt starf.
Eg C • 554 3200 • 564 3200
Kennarar athugið!
Enn vantar kennara næsta skólaár við Grunn-
skóla Austur-Landeyja.
Skólinn er einsetinn, fámennur grunnskóli,
staðsettur um 120 km suðausturfrá Reykjavík.
Nemendur eru 34 í 3 deildum og þeir eru
einstaklega áhugasamir og skemmtilegir
starfsfélagar.
Hvernig væri nú að skella sér í sveitina og
kenna þar, þið sjáið ekki eftir því.
Frekari upplýsingar gefur skólastjóri, Svanhild-
ur Ólafsdóttir, í síma 487 8503 eða 487 8582.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Miðasala
Starfsmaður óskast í miðasölu Þjóðleikhúss-
ins. Umsækjendur þurfa að vera vanir að vinna
við tölvuskráningu. Um er að ræða vaktavinnu.
Laun fara eftir kjarasamningi SFR við ríkissjóð.
Umsóknir þurfa að berast skrifstofu Þjóðleik-
hússins, Lindargötu 7, fyrir 20. júlí nk.
Hafnarfjarðarbær
Afgreiðslufulltrúi
Afgreiðslufulltrúa vantar í hálft starf frá og með
1. ágúst nk.
Viðkomandi þarf helst að vera eldri en þrjátíu
ára og hafa örugga og skilningsríka framkomu.
Þá þarf viðkomandi að hafa góða íslensku-
kunnáttu og geta starfað á Windows ritvinnslu-
kerfi.
Umsóknirskulu berast Félagsmálastofnun
Hafnarfjarðar eigi síðar en mánudag 20. júlí.
Laun eru skv. kjarasamningi STH og Hafnar-
fjarðarbæjar. Upplýsingar veita Birna Þórhalls-
dóttir rekstrarfulltrúi og Marta Bergmann fé-
lagsmálastjóri í síma 565 5710.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði.
Framreiðslunemi
Óskum eftir að ráða framreiðslunema sem
fyrst. Upplýsingar verða veittar á staðnum hjá
veitingastjórum, þriðjudaginn 14. júlí milli
kl. 17 og 19.
Loftræsti- og
hitakerfi
Óskum eftir starfskrafti til að kynna og selja
loftræstikerfi og hitakerfi, stjórn og stýribúnað.
Hæfniskröfur: Þarf að vera skipulagður, geta
unnið sjálfstætt og eiga auðvelt með mannleg
samskipti. Tæknifræði eða önnur sambærileg
menntun æskileg.
Vinsamlegast skilið inn umsóknum fyrir 20.
júlí 1998, merktum: „6211".
Ritari
— fasteignasala
Umsvifamikil fasteignasala óskar að ráða rit-
ara. Við leitum að duglegri manneskju með
létta lund sem hefur áhuga á að vinna við fjöl-
breytt og krefjandi verkefni.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. merktar:
„Fasteign — 777".