Morgunblaðið - 20.09.1998, Page 2
2 B SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER1998
MORGUNBLAÐIÐ
/
Virkjunarkostir á hálendi Islands
Maðurinn hefur í
árþúsundir reynt að lifa í
sátt við umhverfi sitt.
Lengi vel hafði náttúran
yfirhöndina og gat hún
verið bæði erfið
viðureignar og hörð.
Síðastliðnar aldir hefur
maðurinn sótt í sig
veðrið, náð betri tökum á
náttúrunni og meðal
annars lært aö beisla
orku hennar. Þróunin
hefur verið hröö og sums
staðar í heiminum hafa
framkvæmdir mannsins
tekið toll af stórbrotinni
náttúrufegurð. íslendingar
standa frammi fyrir
mikilvægum spurningum.
Á að ráðast í frekari
framkvæmdir á beislun
vatnsorku háiendisins,
eóa á aö staldra vió og
gefa náttúrunni grið? í
greinaflokknum Landiö
og orkan er velt upp
spurningum um framtíö
hálendisins. Ragna Sara
Jónsdóttir kynnti sér
nokkra virkjunarkosti
á hálendinu og áhrif
þeirra á umhverfið, og
Ragnar Axelsson festi
svæðin á filmu. í
greinaflokknum Landið
og orkan verður fjallaó
um áhrifasvæöi virkjana
næstu fimm sunnudaga.
Sunnudagurinn 20. september
Kárahnúkavirkjun
Með virkjun Jökulsár á Brú yrði Kárahnúka-
virkjun að veruleika. Ef til hennar kæmi yrði
hún stærsta virkjun landsins, um 500 MW.
Hálslón yrði uppistöðulón fyrir virkjunina og
myndi það einna helst hafa áhrif á hreindýrastofninn auk
þess sem ásýnd Dimmugljúfra myndi breytast töluvert. Krafa
um virkjanir í sátt við umhverfið hefur aukist undanfarin ár.
Spjallað er við umhverfisstjóra Landsvirkjunar og stiklað á
stóru í sögu hreindýra á íslandi.
Sunnudagurinn 27. september
Fljótsdalsvirkjun
Fljótsdalsvirkjun hefur verið umdeild í mörg
ár sökum þeirra áhrifa sem Eyjabakkalón
myndi hafa á fugla- og gróðurlrf á Eyjabökk-
um. Á meðan sveitarstjórnir á Austurlandi
leggja áherslu á að finna orkukaupanda hið fyrsta þrýsta
aðrir hagsmunaaðilar á að virkjunin fari í lögformlegt um-
hverfismat. Enn aðrir benda á að náttúruupplifun á svæðinu
sé engu lík, en umferð ferðamanna á þessum slóðum hefur
farið vaxandi undanfarin ár.
Sunnudagurinn 4. október
Arnardals- og
Brúarvirkjun
Virkjun Jökulsár á Fjöllum er viðkvæmt mál
fýrir marga þar sem vatnsrennsli í Dettifossi
yrði stórlega skert, a.m.k. að vetri til. Virkj-
unin kaliar einnig á miðlunarlón á stæið við
Þingvallavatn sem sökkva myndi Arnardal að mestu leyti.
Hagkvæmni og möguleikar á orkusölu um sæstreng verða
skoðaðir sem og alþjóðasamþykktir um náttúruvernd.
Sunnudagurinn 11. október
Sunnudagurinn 18. október
Fossinn Dynkur
Fossinn Dynkur í Þjórsá er glæsilegur og
kröftugur, en Irtið heimsóttur af ferðamönn-
um. Norðlingaöldumiðlun kæmi til með að
skerða verulega vatnsrennsli í Þjórsá og þar
af leiðandi einnig um fossinn Dynk og aðra fossa í ánni.
Ferðamenn og aðrir í ferðaþjónustu segja álit sitt á fyrirhug-
uðum virkjunarframkvæmdum og kannað er hvað ferðamenn
sækja til íslands. Einnig er velt vöngum yfir virði landsins
og framtíð þess.
Norðlingaöldulón
Vatnsmiðlun við Norðlingaöldu hefur lengi
staðið til. Slík miðlun myndi sökkva hluta
Þjórsárvera en þau voru gerð að friðlandi
árið 1981 eftir hávær mótmæli náttúru-
verndarfólks, en Þjórsárver eru stærsta heiðagæsabyggð
heims. Miðlunin myndi nýtast flestum virkjunum sem fyrir
eru á vatnasvæði Þjórsár-Tungnaár. Reynsla Norðmanna
af virkjunum er skoðuð sem og tillögur um breytingar í
orkumálum.