Morgunblaðið - 09.10.1998, Qupperneq 1
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1998
■ HELLISBÚINN BJARNI HEFUR ORÐIÐ UM
ANNA/2 ■ ÖÐRUM HJÁLPAÐ AÐ HJÁLPA
■ GULRÓTIN - GRÆNMETIÐ MEÐ MESTU
I Of vinsælir til þess I
að vera í tísku?
EFTIR að hafa baðað sig í áratug
sviðsljósinu hefur æfingaskónum nú ver-
ið kastað út í ystu myrkur eftir því
sem tískusérfræðingar
segja. Frá því að
vera nokkurs konar
sameiningartákn
þeirra sem skapa
tískuna eru æfingaskór
nú í augum þeirra sömu
orðnir hámark þess hall-
ærislega.
Sérblað Sunday Times,
Style segir ástæðuna fyrir
því að æfingaskórnir séu
þannig komnir út í kuldann, þá að allir
noti þá. Peir séu leið smáborgarans til
þess að plata sig inn í tískuheiminn; sjáið hér
er ég í „réttu“ æfingaskónum. Skórnir voru
orðnir hin auðvelda og fyrirsjáanlega leið fólks til
þess að stytta sér leið inn í tískuheiminn, sem hefur
það einkenni helst að vera mjög gagnrýninn á hverj-
um er hleypt alla leið inn.
Frá því að vera neðanjarðartískufyrirbæri unga
fólksins og breiðast þaðan út til „rétta“ tískuliðs-
ins, urðu æfíngaskórnir almenn verslunarvara.
Þeir sem voru ófærir um að skilja flókinn hugs-
unarháttinn að baki, gátu auðveldlegá stælt
frumherjana og afleiðingin varð sú sem allir
alvöru tískuspekningar hræðast. Allir litu
eins út, jafnt hátískufólkið sem smáborgar-
amir. Eftir það gat leiðin aðeins legið niður
á við.
Style segir Nike þegar hafa orðið fyrir
16% sölusamdrætti í æfingaskóm á heims-
vísu. Blaðið hefur líka eftir sérfræðingum að
vinsældir æfingaskónna hafi haft - og muni
hafa - áhrif á næstu kynslóðir skófatnaðar þar
sem margir þekktustu tískuhönnuðumir leiti
enn í smiðju hugmyndafræðinnar að baki þeim.
Þá eru menn almennt á því að æfingaskórnir muni
eiga sér uppreisn æru. Til þess þui-fi þeir hins veg-
ar að hverfa úr hinu almenna sviðsljósi til þess að
verða aftur eftirsóknarverðir í augum götugengj-
anna sem svo miklu ráða um tískusveiflurnar.
*
SAMSKIPTI KYNJ-
SÉR SJÁLFIR/6
MÖGULEIKANA/8B
pegill,
spegill
herm þú
hver . . .
SJÁLFSMYND fólks,
kvenna jafnt sem karla,
er margbrotið fyrirbæri
en þó virðist margt
benda til þess að ytra at-
gervi vegi þar sífellt
þyngra. I Daglegu lífí í
dag og næstu tvær vik-
ur eru þessi mál skoðuð
með sérstöku tilliti til
íslenskra kvenna.
f blaðinu í dag er stiklað á
breytilegum fegurðarviðmið-
um og fjallað um viðleitni
kvenna til þess að bæta sífellt
útlit sitt eða breyta því. Meðal
annars er rætt við
sjónvarpsfréttakonu
sem lýsir löngum
stundum í förðunar-
stólnum fyrir út-
sendingar. „Það eru
forréttindi að fá að
punta sig,“ segir
önnur ung kona en
sú þriðja segir leik-
gleðina þurfa að vera í fyrir-
rúmi. Fallegt útlit megi ekki
vera krafa. Þá er gluggað í
gömul ævintýri þar sem
fegurð og velgengni
kvenna haldast óneit-
anlega oft í hendur.
Opið virka daga: kl. 10:00 -18:00
laugardaga: kl. 11:00 - 16:00* Sími 581 2233
Svefnherbergis-
húsgðgn
VAUGHAN
: 1 Éti$y'i
Amerfsku heilsudýnurnar
Svefnsófar Islenskar
frá Þýskalandi svanadilnssængur