Morgunblaðið - 09.10.1998, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LIF
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1998 B B
byrðis og samvinnu kvenna segir hann birtast
í margvíslegum myndum. „Ef karlar eru sam-
an í hópi og eitthvað þarf að gera, sem öllum
finnst fremur leiðinlegt, keppast þeir við af-
saka sig í bak og fyrir til að koma sér undan
verkinu, sem þá fellur jafnan í hlut þess sem
hefur óframbærilegustu afsökunina. Hann
tapar. Við svipaðar aðstæður vilja konur ólm-
ar verða sjálfboðaliðar og enda yfírleitt með
að hjálpast allar að.“
Tilfinningarnar og kringumstæðurnar
Líkt og hellisbúinn segist Bjarni Haukur
eiga erfitt með að tala um tilfinningar. Hann
hefur ekkert á móti því að konur tjái sig um
sínar eins og þeirra er háttur, en finnst miður
þegai' þær agnúast út í karla fyrir þumbara-
skap. „Tilfinningar finnst okkur kynlegt fyr-
irbæri, enda höfum við alltaf verið að veiða.
Allt í einu ætlast konur til að við útskýrum
þetta fyrirbæri, sem ku hrærast innra með
okkur öllum. Vandinn er að karlar vita
sjaldnast hvernig tilfinningar þeir hafa og
þykja ömurlegir þegar þeir
forðast að hætta sér út á hálar
brautir í umræðunni,“ segir
Bjarni Haukur, sem finnst
einkennileg árátta sumra
kvenna að vilja endilega ræða
um tilfinningar þegar karlarn-
ir eru búnir að koma sér þægi-
lega íyrir fyrir framan sjón-
varpið.
Annar ósiður kvenna, sem
Bjarna Hauk er fyrirmunað að
skilja, tengist líka sjónvarpi og
veður uppi á bestu bæjum.
Dæmið segir hann geta verið á
þessa leið: Þau eru að horfa á
myndband þegar hún allt í einu stekkur upp
til þess að setja í vélina. Hann spyr hvort
hann eigi að setja á bið. Nei, nei svarar hún.
Kemur kannski ekki aftur fyrr en eftir fimm
mínútur og byi-jar að horfa. Spyr ekki einu
sinni hvað hafi gerst fyrr en myndin er að
verða búin. „Af hverju er hann að drepa þenn-
an?“ spyr hún alveg hissa og
hann verður náttúrlega að
setja á bið og rekja söguþráð-
inn. „Afskaplega þreytandi,"
segir Bjami Haukur mæðu-
lega og virðist hafa upplifað
áþekkar aðstæður.
Tugþrautin og húmorinn
I gervi hellisbúans lifir
Bjarni Haukur sig inn í hlut-
verk misskilins og ráðvillts
eiginmanns, sem hann er viss
um að á marga sína líka. „Ég
er bara leikari og enginn sér-
fræðingur um farsæl sam-
skipti kynjanna - enda ungur maður og
ókvæntur, en býst við að málamiðlanir og
gagnkvæm tillitssemi gefist best ásamt væn-
um skammti af húmor. Hvoru kyninu um sig
er þankagangur og háttalag hins oft allsend-
is óskiljanlegt. Þrátt fyrir síðari tíma fyrir-
bæri eins og jafnréttisbaráttu, sálfræðinga,
alnetið, R-listann, ofurkonur og áfallahjálp
hafa grunneðlishvatir karla og kvenna ekk-
ert breyst. Ekki verður aftur snúið þótt ým-
islegt í umhverfinu sé nánast afbrigðilegt
miðað við mismunandi eðli karla og kvenna,“
segir Bjarni Haukur, sem þó vill ekki í
standa í sömu sporum og hellisbúinn forðum
daga.
Hellisbúann segir hann fyrst og fremst
gamanleikrit þar sem góðlátlegt grín er gert
að muninum á eðli karla og kvenna og mark-
miðið að fá fólk til að hlæja. „Þetta er ekki
ádeiluverk um mismunun, réttindi og þess
háttar. Ef til vill er hellisbúinn dulbúinn
hjónabandsráðgjafi því hann er sagður koma
fólki til að líta í eigin barm og sjá að minnsta
kosti ýmsar skoplegar hliðar á eilífðar tug-
þrautinni hjónabandinu."
Bjarni Haukur telur líklegt að sjálfur eigi
hann einhvern tíma eftir að keppa í þeirri
þraut og efalítið standa sig með mikilli prýði,
enda segist hann hafa lært mikið um sam-
skipti kynjanna af hellisbúanum Bjarna.
BJARNI Haukur er vel
upp alinn og hlynntur
jafnrétti á öllum sviðum
KOBTA BODA
KRINGLUNNI
Sími 568 91 22
liHma>íða: inljmlís,win fdia.úv'ini*varnggvl 13
auping
E-vítamín eflir
varnir líkamans
eilsuhúsið
Skólavörftustíg, Kringlunni, Smáratorgi
og Skipagötu 6, Akureyri
Þaö er
skynsamlegt
að kaupa
Ford Fiesta.
Þess vegna kaupa konur hann.
Útlit bíls skiptir konur máli en þær vita að það er
lítils virði efannað vantar. Og það vantar ekkert í
Ford Fiesta því hann sameinar kraft, þægindi ogfínt
verð. Konur láta ekki aðra segja sér hvaða bíl þær eigi
að kaupa heldur kanna málið sjálfar. Pess vegna hafa
fleiri konur en karlar keypt Ford Fiesta.
Timantið What Car, 1998, kemst að kjama málsins:
„Besti smábíll ársins! Nú verða gæði smábíla miðuð
við yfirburði Ford Fiesta. 1
Þrenns konar tilboð!
Komdu strax og kannaðu málið.
Ford Fiesta
-jyrir konur sem vilja komast áfram
Staðalbúnaður meðal annars:
Vökvastýri, samlæsing, upphituð framrúða,
16 ventla, 1,25 lítra vél, rafdrifnir og upphitaðir speglar.
Verð (á götuna): 3ja dyra kr. 1.098 þúsund, 5 dyra kr. 1.158 þúsund.
Brimborg-Þórshamar
Tryggvabraut 5,
Akureyri
sími 462 2700
Bíley
Búðareyri 33,
Reyðarfirði
sími 474 1453
Betri bílasalan
Hrísmýri 2a,
Selfossi
sími 482 3100
Bílasala Keflavíkur
Hafnargötu 90,
Keflavík
sími 421 4444
Tvisturinn
Faxastíg 36,
Vestmannaeyjum
sími 481 3141
BRIMB0RG
FAXAFENI 8 • SfMI 515 7010