Morgunblaðið - 09.10.1998, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1998 B 7
DAGLEGT LÍF
SUSAN Wilson, Ásta Harðardóttir og Lovísa Stefánsdóttir.
SJÁLFBOÐALIÐASTARF á veg-
um Rauða kross íslands getur
verið gefandi, en eðli málsins
vegna er það einnig afar kreíj-
andi. Störfin geta verið ýmiss
konar og í þau sækir fólk úr öll-
um áttum. En hver sem störfin
eru og hvaðan sem fólkið kemur,
hvort það er fagfólk á sviðinu
eða áhugamenn, er víst að nám-
skeið í sálrænni skyndihjálp kem-
ur því að notum.
Susan Wilson leggur stund á
nám í félagsfræði við Háskóla fs-
iands. Sjáifboðastarf hennar felst
í fangaheimsóknum og svo er
hún í skyndihjálparhóp í ung-
mennahreyfingu samtakanna.
„Mér finnst þetta mjög fróðlegt.
Þarna fær maður góðar ábend-
ingar sem að nýtast manni í sjálf-
boðastarfínu. Eg fer alltaf
tvisvar í mánuði upp á Litla-
Hraun og heimsæki þar sama
manninn. Við sem erum í fanga-
heimsóknunum megum bara
hitta einn í einu. Þennan tiltekna
mann hef ég heimsótt í rúmt ár
en samtals hef ég heimsótt þrjá.
Þetta er mjög spennandi og
áhugavert verkefni. Það er gam-
an eða geta lagt eitthvað af
mörkum. Auk þess er þetta
áhugavert fyrir mig vegna þess
að ég er að spá í að fara í af-
brotafræði í framtíðinni.“
Ollum
er hollt
að líta
sér nær
Lovísa Stefánsdóttir starfar
hjá Hans Petersen og er sjálf-
boðaliði í Rauðakrosshúsinu, en
þar er rekið athvarf fyrir börn
og unglinga. Lovísa svarar í
síma, aðstoðar þá sem eru á vakt
og tekur til mat fyrir gesti.
„Þetta getur tekið á en fer eftir
því hve vandamálið er stórt. Við
sjálfboðaliðarnir ræðum saman
og höldum alltaf fundi mánaðar-
lega með leiðbeinanda til að tala
um það sem okkur finnst erfitt.
Mér líst mjög vel á þessi nám-
skeið, þau eru mjög gagnleg. Þau
hjálpa manni að ýmsu leyti, til
dæmis að læra að svara rétt þeg-
ar fólk hringir inn með vanda-
mál. Námskeiðin hafa mætt mín-
um væntingum og munu eflaust
hjálpa mér að hjálpa öðimm í
framtíðinni."
Að kljást við líffið
Ásta Harðardóttir starfar sem
sjúkraliði og skúrar auk þess í
banka. Hún er líka þriggja barna
móðir. „Ég er sjálfboðaliði niðri í
Rauðakrosshúsi, í unglingahús-
inu, og bauðst þess vegna að
sækja þetta námskeið. Ég held að
það sé hverjum manni hollt að
skoða sinn gang og líta sér nær.
Við mætum öll áföllum í Iifinu
sem við þurfum að kljást við,
annars fylgja þau okkur. Ég hef
auðvitað kynnst ýmsu sem
sjúkraliði. Það er mjög gott fyrir
mig að mæta á svona námskeið,
bæði vegna starfsins og vegna
sjálfboðavinnunnar.
Mér sýnist þetta vera passlegt
fyrir alla, fyrir óbreytta sem fag-
fólk. Ég hvet fólk til að fara á
svona námskeið. Þetta getur
hjálpað þér í þínu daglega lífí,
því maður mætir alls staðar við-
brögðum fólks og oft eru þau svo
óskiljanleg. Að hugsa um þessa
hluti hjálpar manni kannski að
skilja betur að það getur verið
eitthvað undirliggjandi sem am-
ar að en ekki persónuleg óvild.
Fólk er bara að kljást við lífið.“
þessu. Þetta er í fyrsta sinn sem
Rauði krossinn og Geðhjálp starfa
saman.“
Hún var ánægð með námskeiðið.
„Það opnast svo margt fyrir manni,
t.d. hvernig maður á að bregðast við
gagnvart sjálfum sér og öðrum.
Ekki síst minnir þetta mann á hvað
við samborgararnir þurfum að vera
vakandi hver fyrir öðrum, að það
séu ekki bara fagaðilar sem við get-
um leitað til. Við lendum öll í ein-
hverju, við getum öll miðlað ein-
hverju. Mér er svo mikils virði að
fólk viti af þessari línu. Það eru svo
margir sem hafa þörf fyrir að létta á
hjarta sínu.“
Allir leggi sitt af mörkum
Leiðbeinandi námskeiðsins sem
undirritaður heimsótti var Margrét
Blöndal, hjúkrunarfræðingur. Hún
hefur margháttaða reynslu af því að
hlúa að fólki, hefur t.d. unnið í átta
ár á gjörgæsludeild Landspítalans,
eitt og hálft ár á geðdeild og við
unglingageðdeild við Dalbraut. Hún
starfar núna á slysadeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur við fræðslu og
forvamir fyrir hjúkrunarfræðinga
þar.
Margrét var á námskeiði í vor til
þess að verða leiðbeinandi í sál-
rænni skyndihjálp og var nú með
sinn fyrsta hóp. „Mér finnst þau
standa sig vel. Þetta er auðvitað
fólk með reynslu. Verkefnin sem
lögð eru fyrir námskeiðinu geta ver-
ið mjög erfið en þau hafa innsýn í
sálræna skyndihjálp. Ég held raun-
ar að allir hafi það í sér að geta
stutt samborgara sína.“
Margrét telur að þótt vitneskja
hafi aukist sé viss ástæða til að
hafa áhyggjur af afskiptaleysi fólks
á þessu sviði. „Eftir alla þessa góðu
umræðu um andlega líðan og
áfallahjálp sem hefur verið í samfé-
laginu undanfarin ár þá hefur það,
að því er virðist, jafnframt gerst að
borgararnir hafa ýtt því frá sér að
sinna sínu fólki sjálft eins og það
hefur alltaf gert. Fagfólk hefur
áhyggjur af því að fólk treysti sér
ekki lengur til að sinna hvert öðru
af ótta við að gera mistök og þess
vegna horfir það til sérfræðinga og
fagaðila.
Þeir sem eru að vinna að áfalla-
hjálp í dag leggja mikla áherslu á að
hvetja þá sem eru í nánasta um-
hveríi þess sem verður fyrir áfalli
að leggja sitt af mörkum því þeir
eru best til þess fallnir. Og það er
þessi sálræna skyndihjálp. En síðan
ef illa gengur er mikilvægt að leita
til fagaðila. Námskeið í sálrænni
skyndihjálp er ekki meðferð.“
Fyrirkomulag
og markmið
NÁMSKEIÐ í sálrænni skyndihjálp er byggt upp á fyrir-
lestrum, umræðum og hópvinnu. Markmið þess er að
fræða almenning um:
• muninn á stóráfalli og áfalli
• áhrif áfalls á einstaklinginn
• eðlileg viðbrögð einstaklinga við óeðlilegum aðstæðum
• áhrif streitu á einstaklinginn
• ýmsar tegundir af lífskreppum
• hvernig við getum best veitt mannlegan stuðning
• áhrif áfalla á börn
• hvemig við getum best veitt börnum stuðning í kjölfar áfalls
• sorgarferlið
• sorg barna
NYTT FRA SVISS!
Ekta augnhára- og
augnbrúnalitur
með c-vítamíni.
Allt í einum pakka,
auðvelt í notkun og
endist frábærlega. .
Útsölustaðir: Líbia Mjódd, Dísella Hafnarfiröi. Háaleitis-.
J apótek, Grafatvogsapófek, Apótekiö Smiöjuvegi,
; Egilsstaöaapótek, Apótekiö Hvolsvelli, Apótekið Hellu,
1 löunnar apótek, Isatjarðarapótek, Borgarnesapótek,
i Regnhlítabúöin, Apótekið Suðurströnd, Apótekið löufelli,
| Apótekiö Smáratorgi, Vesturbæjarapótek, Hafnarapótek,
Hötn, Akureyrarapótek, Hraunbergsapótek.
Dreifing: KROSSHAMAR. S. 5888808.
Íl SvvisS'O-Par^
Dreiling:
•| KROSSHAMAR, simi 588 8808
•»—»' .■m.T
§wl|§-0-Par
Kílóm af
án fyrirhafnar
Arma Þóra Pálsdóttir
Verslunarmaður:
„Síðan ég byrjaði að taka NATEN hef ég lést
um 12 kíló á einu ári án nokkurrar fyrirhafnar!
Eg hef meira úthald og meiri orku og langur
vinnudagur minn er núna miklu léttari.
NATEN léttir líf mitt og ég er öll hressari.”
ioo% hreint lífrænt náttúruefni
°g Þá þarfnast engra annarra vítamína
eða fæðubótarefna!
NATEN
-ernógl
Útsölustaðin Hagkaup, Nýkaup, Blómaval Akureyri og Rei/kjavík, Apótekin,
verslanir KÁ, Kaupfélögin, Urð Raufarhöfn, Hornabær Homafirði,
Lónið Þórshöfn, Heilsulindin Keflavík, Melabúðin Neskaupsstað.
Dreifing: NIKO ehf - sími 568 0945
Karín Herzog
• vinna gegn öldrunareinkcnnum
• enduruppbyggja liúðina
• vinna á appelsínuhúö og slili
• vinna á unglingabólum
• viöhalda ferskleika húðarhmar
• Þœr eru ferskir vindar í umhirðu húðar *
SOLUSTAÐIR:
World Class — Reykjavík og Akureyri
Sigurboginn — Laugavegi
Verslunin Sautján — Laugavegi
Clara — Kringlunni
Sandra — Smáratorgi
Snyrtihöllin — Garðatorgi
Neglur og fegurð — Eiðistorgi
Breiðholtsapótek — Mjódd
Grafarvogsapótek — Hverafold
Háaleitisapótek — Háaleitisbraut
Holtsapótek — Glæsibæ
Hraunbergsapótek — Breiðholti
Hringbrautarapótek — Hringbraut
Ingólfsapótek — Kringlunni
Laugavegsapótek — Laugavegi
Snyrti- og nuddstofan Paradís
Englakroppar — Stórhöfða 17
Sól og sæla — Fjarðargötu 11
Þitt mál — Heilsustúdíó — Garðatorgi
Akranesapótek — Akranesi
Borgarnesapótek — Borgarnesi
Hveragerðisapótek — Hveragerði
Keflavíkurapótek — Keflavík
Sauðárkróksapótek — Sauðárkróki
Selfossapótek — Kjarnanum — Selfossi
Heilsustúdíó yöxtur — Ólafsvík
Betri línur — Vestmannaeyjum
Dreifing: Solvin, box 9184,129 Reykjavík, sími 899 2947