Morgunblaðið - 25.10.1998, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 25.10.1998, Qupperneq 1
VOÐALEGT POPP BAÐLAUG I LAUGARDAL SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1998 SUNNUPAGUR BLAÐ ÞEGAR krían er farin og allir ferðamenn horfnir á braut úr Flatey í Breiðafirði á haustmánuðum, færist allajafna kyrrð og friður yfir þessa fögru eyju með gömul hús sín og minjar um horfna tíma og lífshætti. Allt annað er hins vegar uppi á teningum þessa dagana, eins og Gunnlaugur Árnason varð áskynja þegar hann kom við í eyjunni um síðustu helgi. Flatey hafði umbreyst á skömmum tíma í heilt kvikmyndaver og þegar atgangurinn var hvað mestur voru þar um 80 manns við tökur á kvikmyndinni Ungfrúin góða og húsið sem gerð eftir sögu Halldórs Kiljan Laxness. Dóttir skáldsins, Guðný Halldórsdóttir, leikstýrir myndinni og aðalhlutverkin, prófastsdæturnar tvær, eru í höndum Tinnu Gunnlaugsdóttur og Ragnhildar Gísladóttur, auk þess sem fjöldi annarra þekktra leikara kemur við sögu. B2 ► SEGLSKÚTAN Jó- hanna var leigð frá Færeyjum til að nota í kvikmyndinni og setti mikinn svip á um- hverfið. Leikurunum þykir hins vegar greinilega heldur kalsasamt að standa þarna í fjörunni. HÚSIÐ Vogur í Flatey er í hlutverki hússins þar sem sagan í Eyvík gerist að miklu leyti. Það hefur yfir sér dtvíræðan heldri- mannabrag enda bú- staður prófastsins og helsta atvinnurekand- ans í plássinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.