Morgunblaðið - 25.10.1998, Side 5

Morgunblaðið - 25.10.1998, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1998 B 5 spennandi. Hann spilaði með Jimi Hendrix og kærusturnar hans voru Barbra Steisand og Janis Joplin. Gullplöturnar urðu fjórar, Grammy- verðlaunin tvenn og brennivíns- birgðirnar ótæmandi; einhvern tím- ann sofnaði hann á sviðinu. Nakinn í heitum potti Hann lék á móti Steisand í endur- gerðinni Stjarna er fædd eða „A St- ar is Born“ en upphaflega var hug- myndin að Elvis Presley færi með hlutverkið. Framleiðandi var Jon Peters, kærasti Steisand á þeim tíma, en alræmdast úr þeirri mynd- gerð er atriðið með Krist og Barbra í heita pottinum. Peters, sem smokraði sér í kvikmyndirnar sem hárgreiðslumeistari Barbra, harð- neitaði því að Krist færi nakinn með kærustunni sinni í baðið en sveita- söngvarinn lét það sem vind um eyru þjóta og hlammaði sér í heita pottinn eins og guð sjálfur skóp hann. Peters trylltist spm frægt mun vera í Hollwyood. „Eg held að Jon hefði kosið það helst að ég væri í kafarabúningi,“ er haft eftir Kri- stofferson í dag, „en ég var óheflað- ur á þeim tíma.“ Myndin varð óhemju vinsæl og platan sem fylgdi henni ekki síður. Cimino hafði samband við Kris út af mynd sem hann hafði í smíðum og hét Himnahliðið. Leikar- inn/söngvarinn var þá nýskilinn við Rita Coolidge og Cimino hvatti hann til þess að sýna sársaukann sem því fylgdi í myndinni. Sársauk- inn var reyndar á endanum gríðar- legur fyrir þá báða. Cimino hefur síðan ekki gert mynd af viti og Kris allt að því hvarf 1 gleymskunnar dá. „Ég lít á heila málið sem morðtil- ræði í dag,“ er haft eftir Kristoffer- son. „Aumingja Michael. Fyrir hann var þetta eins og að horfa á barnið sitt myrt og vera síðan kennt um það.“ SELDUR sem leikfangadúkka; í hlutverki sínu í „Blade". Eftir Himnahliðið fór að halla undan fæti. Hljómplötufyrirtæki Kris fór á hausinn og næstu 15 árin voru myndirnar sem hann lék í varla eftirminnilegar; hann hélt tónleika en salan var ekkert til þess að hrópa húrra fyrir. Svo gerðist það að John Sayles fékk hann til þess að leika fyrir sig lítið en mikilvægt hlutverk í mynd sinni „Lone Star“ og allt í einu tók menn að ráma aftur í Kris Kristofferson. „Myndin kom mér aftur í gang,“ segir hann. Merchant og Ivory veittu honum athygli og buðu honum aðalhlut- verkið í „A Soldier’s Daughter Never Cries“ en hún byggir á æviminningum Kaylie Jones sem út komu árið 1990 og fjalla um hvernig það var að alast upp sem dóttir James Jones, rithöfundarins sem skrifaði Héðan til eilífðar eða „From Here to Eternity". Ivory hafði reiknað með Nolte í hlutverkið en Nolte var þá búinn að samþykkja að leika í mynd Terrence Malicks, „The Thin Red Line“, sem vill svo til að byggir á framhaldi James Jones á Héðan til eilífðar. „Ég hringdi í Ter- rence og spurði hann hvað væri í gangi,“ er haft eftir Ivory, „en eftir að við fengum Kris til að vinna fyrir okkur var þetta aldrei nein spurn- ing.“ Svo gæti farið að Kris Kristoffer- son settist niður við skriftir. Hann hefur áhuga á því að gerast rithöf- undur og víst er söguefnið óþrjót- andi. SEM rithöfundurinn James Jones í mynd James Ivorys. Margt að starfa Kris leikur á móti Wesley Snipes í hasarmyndinni „Blade“ sem geri hefur það gott í miðasölunni í Banda- ríkjunum í haust og er það í fyrsta sinn í tvo áratugi sem nafn Kri- stoffersons hefur verið nefnt í sömu andrá og gróðamynd; þá er það í fyrsta skipti einnig sem seld eru leik- föng í dótabúðum sem eru eftirlíking- ar af honum. Og Ki'is verður í mörg- um fleiri myndum á næstunni. Hann leikur á móti Mel Gibson í mynd sem heitir „Payback“ og á móti Martin Landau í myndinni „The Joyriders“ og síðan á móti leikkonunni Brendu Blethyn úr Leyndarmálum og lygum í myndinni „Girls’ Night“. Þá er væntanlegur geisladiskur með tónlist hans, „The Austin Sessions". „Mér líður bara nokkuð vel,“ sagði hann nýlega í samtali við skemmtanatíma- ritið Entertainment Weekly, „af gömlum manni að vera.“ Kris er þó ekki svo gamall, 62 ára, en hefur lifað margt um sína æri. ALLSBER í baði; með Barbra í Stjama er fædd. er ansi brokkgengur og hann hefur leikið fyrir hina ólíkustu og kannski ólíklegustu leikstjóra. Einnig hefur hann það á bakinu (hvernig svosem mönnum líkar myndin) að hafa farið með aðalhlutverkið í Himnahliðinu, einum stærsta og umtalaðasta skelli krikmyndasögunnar. Hann fæddist inn í hermannafjöl- Pat Garrett og Billy the Kid og í þeirri kannski vanmetnu mafíu- mynd, Færið mér höfuð Alfredo Gareia eða „Bring Me the Head of Alfred Garcia“. Einnig lék hann á móti Ellen Burstyn í mynd Martin Scorsese „Alice Doesn’t Live Here Anymore". Tónlistarsriðið var ekki síður Hann hefur róast mikið með aldrinum að eigin sögn. Liðnir eru þeir dagar þegar hann sat nakinn fyr- ir í herratímaritinu Playboy ásamt bresku leikkonunni Söru Miles árið 1976 (þau léku þá saman í Sjóaranum sem haf- ið hafnaði eða „The Sailor Who Fell From Grace With the Sea“). „Það er komin svo mikil regla á líf mitt,“ hef- ur tímaritið eftir honum. „Ég þarf ekki að hafa áhyggj- ur af þri lengur að fí'amkvæma allt sem ég predika. Ég verð ekki fullur lengur, ég reyki ekki gras, ég geri ekkert sem er ólöglegt framar." Úr boxi í bókmenntir Þegar litið er yfir feril Kristoffer- sons í krikmyndunum sést að hann Aftur í gang Kris Kristofferson er aftur kominn á ról í kvikmynd- unum eftir mikla lægð. Arnaldur Indriðason kynnti sér feril þessa skyldu og hlaut strangt uppeldi í Brownsrille í Texas. Lagði fyi-ir sig hnefaleika í Pomona háskólanum ár- ið 1958 en tók þveröfuga stefnu í líf- inu og fór að læra ljóðagerð sem Rhodes styrkþegi rið Oxford há- skóla - Bill Clinton fór einnig til Ox- ford á slíkum styrk. Kristofferson hætti í miðju kafi og tók sér ýmis- legt fyrir hendur í framhaldinu. Hann lærði að fljúga þyrlum og bað um að fá að fara til Víetnam. Við- brögð hersins voru á þá leið að senda hann beinustu leið í West Point herskólann þar sem hann kenndi enskar bókmenntir. „Maður komst ekki í neitt betra,“ segir hann, „ef maður ætlaði sér á annað borð frama í hernum." En það átti hvorki fyrir honum að liggja að fljúga þyrlum né kenna bókmenntir. Hann hafði lengi haft hugann rið sönglagagerð og flutti til Nashville, miðstöðvar sveita- söngvanna, með eiginkonu sinni og tveimur börnum. Á meðan hann var að koma undir sig fótunum starfaði hann fyrir olíufyrirtæki og sem húsvörður en sem slíkur fylgd- ist hann m.a. með upptökum Bob Dylans á plötunni „Blonde on Blonde“. Hann kynntist sveitasöngvaran- um Johnny Cash og orðspor hans sem lagasmiðs fór vaxandi. Hann komst loks á samning og hver smell- urinn fylgdi öðrum eins og „Help Me Make it Through the Night" og „Me and Bobby McGee“. Þess var ekki langt að bíða að krikmyndatil- boðin tóku að streyma til hans. Fyrsta myndin sem hann lék í hét reyndar því dularfulla nafni Síðasta bíómyndin eða „The Last Movie“ og var gerð árið 1971 en Dennis Hopper var potturinn og pannan í myndinni. Á áttunda ára- tugnum lék hann fyrir hasar- myndaleikstjórann riðkunna Sam Peckinpah í myndunum sérstæða leikara og sveitasöngvara BANDARISKI sveita söngvarinn og krik- myndaleikarinn Kris Kristofferson hafði staðið fjarri krikmyndunum í langan tíma þegar hann fór með bragðmikið hlutverk í mynd hins óháða leikstjóra John Sayles fyrir eins og þremur árum. Hún hét „Lone Star“ og var gríðarlega vel tekið af gagnrýnendum. Eftir það tóku kvikmyndatilboðin að streyma til Kristoffersons á ný og þótt endurkoma hans á hvíta tjaldið sé ekki með sömu ósköpum og Johns Travolta eftir að hann lék í „Pulp Fiction", hafa menn veitt hon- um eftirtekt í myndum hér og þar; nú síðast í nýjasta verki hinna fág- uðu og fínlegu Ismail Merchants og James Ivorys sem heitir Dóttir her- mannsins grætur aldrei eða „A Soldier’s Daugther Never Cries“. Það er stærsta hlutverk í bíómynd sem Kristofferson hefur haft með höndum frá því hann var í Himna- hliðinu eða „Heaven’s Gate“ eftir Michael Cimino. Sú mynd var rökk- uð niður af gagnrýnendum og hvarf með manni og mús árið 1980. KRISTOFFERSON snýr aftur; 62 ára og kominn aftur í gang.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.