Morgunblaðið - 08.12.1998, Side 10

Morgunblaðið - 08.12.1998, Side 10
UR UMSOGiV IK)M\l l i\'DAR stílfegurd' „í skáldsögunni Borgin bak vid orðin fer saman athyglisverð og áleitin saga og einstök stílfegurð. I frásögninni er stefnt saman barnslegri sýn og visku hins fuil- orðna í ljóðrænum texta sem leiftr- ar af hugmyndaflugi. Aðalpersóna sögunnar á erindi við fóik, við les- endur; hann færir okkur - ef ekki sannleika - þá örugglega skáldskap sem oft og tíðum virðist innblásinn guðlegum anda.“ Hunárað mill\6rt\r fyrir hálfklárada hók! Nicholas Evans er Englendingur en bækur hans, Hestahvíslarinn og Seiður úilfanna, gerast báðar í Montana í Bandaríkjunum. Vel- gengni Evans hefur verið með ólík- indum. Þegar hann var rétt hálfn- aður með handrit að fyrstu bók sinni, Hestahvíslaranum, hvatti vin- ur hans hann til að koma handrit- inu á framfæri. Á alþjóðlegri bóka- sýningu í Frankfurt árið 1994 slóg- ust útgefendur um útgáfurétt bók- arinnar og fékk Evans hundrað milljónir króna fyrir handritið áður en það var tilbúið. Handritið hieypti einnig kappi í framleiðendur í Hollywood og var leikarinn og leikstjórinn Robert Redford fljótur að kaupa kvik- myndarétt sögunnar. Hann vatt sér beint í að gera stórmynd byggða á bókinni og er hún nú sýnd í kvik- myndahúsum í Reykjavík. Handhafi Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar 1998, Bjarni Bjamason. .Æ? . A5 Á mörkum draums, ævíntýris ogveruleika, Bjarni Bjarnason hlaut Bók- menntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 1998 fyrir skáldsögu sína Borgin bak við orðin. Síðasta bók hans, Endurkoma Maríu, fékk einnig lofsamlega dóma og var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna ár- ið 1996. Bjarni hefur því skipað sér á bekk með fremstu rithöfundum sinnar kynslóðar. Tveir heimar Pessi saga gerist í tveimur heimum en einungis aðalper- sónan, lítill drengur, þekkir þá báða. Hann birtist skyndi- lega á götum nútímalegrar stórborgar og enginn veit hvaðan hann kemur. Sjálfur segir hann fjarstæðukenndar sögur úr heimkynnum sínum, ævintýralegu konungsríki, og lesandinn veit ekki hverju hann á að trúa. Um trúverð- ugleika aðalpersónunnar seg- ir höfundur: „Hann trúir því sjálfur að sögurnar séu veruleikinn - og kannski er skáldskapurinn eins konar sannleikur. Svo gæti þetta ríki verið mynd af sálarlífi drengsins.“ Þögnin gerð áþreifanleg Hinn „vandaði, ljóð- ræni og persónulegi stíll sem einkennir alla frásögnina“ vakti aðdáun dómnefndarinnar. Lýsingar eru með nokkuð nýstár- legum hætti og aðspurður um hvort einhver sérstök ástæða sé fyrir því segir höfundur: „Já, margar. Ein er sú að mér finnst kvikmyndin ná hefð- bundinni lýsingu, þ.e. lýsingu á því sem augað sér, betur en texti. Þess vegna reyni ég að lýsa helst aldrei aðeins því sýnilega, heldur alltaf öðru í Ieið- inni. Ef ég er að lýsa náttúrunni tek ég t.d. þögnina og reyni að gera hana áþreifanlega og sýni- lega, þannig að það verður kannski ekki ljóst hvort ég er að lýsa þögninni eða náttúrunni. En ef lýsingin lifnar í huga lesandans bæta þögnin og náttúran hvort annað upp og lesandinn skynjar eitthvað handan við hvort tveggja." í kjölfar Hesta- Tivfslarans Rohert Redford keypti kvik- myndaréttinn að Hestahvíslar- anum fyrir metfé. Úlfar birtast á nýjan leik í smábæ í Montana í Banda- ríkjunum eftir áratuga fjarveru og ráðast á húsdýr og börn en við það vaknar afti upp gamalt hatur og deilur. Þetta er upphaf skáldsög- unnar Seiður úlf- anna eftir met- söluhöfundinn Nicholas Evans sem skrifaði hina þekxiu dok Hestahvíslarann. í bókinni segir frá Helen Ross, 29 ára líffræðingi, sem er send til að rannsaka og verja úlfana fyrir þeim sem vilja útrýma þeim. Hún berst af krafti fyr- ir verndun villidýranna en bændurnir vilja úlfana burt frá kvikfénaði sínum og ráða lögum og lofum á svæðinu. Sagan er um bar- áttu mannsins við sitt innsta eðli, hættulegar ástríður, ást og frelsi. Seiður úlfanna hefur á undanförnum vikum komið út víða um lönd og hvarvetna slegið í gegn. Það virðist því ekkert lát á velgengni Evans. Skemmtilegt að þýða bókina Helgi Már Barðason eyddi síðastliðnu sumri við að þýða Seið úlfanna. Þó svo lítið hafi orðið úr sumarfríi átti hann margar góðar stundir við tölvuna. „Þetta er eitt skemmtilegasta verkefni sem ég hef fengist við,“ segir Helgi um þýðingarvinnuna. IJR nOMVlM „Seiður úlfanna er áhrifa- mikil og snilldarlega skrif- uð saga. Þessi nýja bók Nicholas Evans mun án efa ná sömu vinsældum og Hestahvíslarinn.“ - Publishing News

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.