Morgunblaðið - 03.01.1999, Page 8

Morgunblaðið - 03.01.1999, Page 8
8 B SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Hernaðarum: í Hvalfirði eft styrjöldina sí FLOTABÆKISTÖÐ Breta á Hvítanesi í Hvalfirði vorið 1943. í stöðinni voru birgðageymslur, verkstæði, íbúðaskálar, spítali, og fleira til þjónustu við herskipaflota bandamanna sem átti athvarf í firðinuin á stríðsár- unum. Þar áætluðu Bandarikjamenn að reisa sína eigin flotastöð í tengslum við beiðni sína um herstöðvar til langs tíma að stríðinu loknu. Skemman fremst á nesinu stendur nú á lóð Siglingamálastofnunar í Kópavogi. Umsvifum hers og flota bandamanna í Hvalfírði í síðari heimsstyrjöldinni er lýst ítarlega í bókinni „Vígdrekar og vopna- ----------------------------7----------- gnýr - Hvalfjörður og hlutur Islands í orr- ustunni um Atlantshafíð“, eftir Friðþdr Eydal sem kom út fyrir jólin!997. Ekki var rými í bókinni fyrir umfjöllun um afdrif stöðva og mannvirkja hersins og umsvif í Hvalfírði að styrjöldinni lokinni og bætir bókarhöfundur úr því nú. Bandamenn komu sér upp aðstöðu á íslandi til þess að fylgjast með og hefta siglingar þýskra herskipa og kafbáta og verja skipaleiðir sínar á norðaust- anverðu Atlantshafí. Bretar lögðu flugvelli í Reykjavík og Kaldaðar- nesi í þessu skyni, en Bandaríkja- menn tvo flugvelli suður með sjó til loftvarna og liðsflutninga til Bret- lands. Eftirlitsskip og fylgdarskip skipalesta áðu í Hvalfírði og Seyðis- firði. Um eins og hálfs árs skeið var kaupskipum frá Bretlandi og Bandaríkjunum safnað saman í Hvalfirði til siglingar í skipalestum norður fyrir land og um Smugu- slóðir til rússneskra hafna. Hætt var að hafa þennan hátt á í árslok 1942 og sigldu Rússlandsskipalest- irnar eftir það beint frá Skotlandi án viðkomu. Herskipadeildir og fylgdarskip skipalesta höfðu þó við- komu hér á landi eftir sem áður. í Hvalfirði lá oft fjöldi skipa á kaupskipalæginu utan Hvammsvík- ur og á móts við Ferstiklu og her- skipalæginu sem var í firðinum inn- anverðum. Gat þar oft að líta stærstu herskip veraldar sem veittu skipalestunum vernd gegn orrustu- skipum þýska flotans í Noregi. Bretar reistu flotastöð í Hvítanesi þar sem m.a. var gert við netalagn- ir, sem lágu þvert yfir fjörðinn ut- anverðan, til varnar gegn óvina- skipum og kafbátum, svo og tund- urdufl sem girtu fjörðinn við Háls- nes í sama tilgangi. I stöðinni voru birgðageymslur, verkstæði, íbúða- skálar, spítali, og annað til þjónustu við herskipaflotann ásamt kvik- myndahúsi, verslun, veitingastofu og tómstundaheimili fyrir sjóliðana. Oflug flotkví lá innanvert við nesið ásamt viðgerðar- og birgðaskipum og lyfti skipum til botnviðgerðar. Bandaríkjamenn reistu mikla eldsneytisbirgðastöð i landi Mið- sands og Litlasands við fjörðinn norðanverðan. Þar tóku skip sem áðu í firðinum olíu og einnig olíu- skip sem fylgdu flotadeildunum og gáfu þeim eldsneyti á hafi úti. A Miðsandi var jafnframt birgðastöð vegna skipaviðgerða. I Hvammsvík reis birgðastöð fyr- ir skotfæri og djúpsprengjur flot- ans ásamt tómstundaheimili fyrir skipshafnir Bandaríkjaflota. Sams konar tómstundaheimili var reist fyrir áhafnir kaupskipanna í Hvammsey. Á Hvammshólum, sem gnæfir yfir Hvammsvíkina, var að- setur hafnarstjórans í Hvalfirði, sem var breskur sjóliðsforingi, og stjórnuðu menn hans allri skipaum- ferð í firðinum. Skipalægið og flotastöðvarnar í Hvalflrði voru vandlega varðar gegn óvinaárásum. Segulmælinga- lagnir á sjávarbotninum milli Sel- tjarnamess og Akraness gerðu við- vart um skipaumferð í myrkri eða dimmviðri og varðskip önnuðust eftirlit á innanverðum Faxaflóa. Hljóðsjárbúnaður lá á sjávarbotni beggja vegna álsins í firðinum utan- verðum og var eftiriitsstöð með henni að Gröf í Skilamannahreppi. Á Kjalarnesi, Akranesi og í Borgar- nesi var talsvert herlið sem hafði það hlutverk að verja óvinum leið- ina landveginn. Stórar fallbyssur við bæinn Dalsmynni á Kjalarnesi vörðu innsiglinguna. Slíkar byssur voru einnig á Valhúsahæð á Sel- tjamarnesi og Hvaleyri við Hafnar- fjörð. Úr krikanum utan Hvaleyrar og yfir að Grundartanga lá netalögn úr sverum vír sem stöðva skyldi skip og kafbáta á leið inn fjörðinn. Net- unum var haldið uppi af fjölmörg- um stórum duflum og lágu festar í akkeri á botninum. Hlið var á lögn- inni og varðskip við sem hleypti skipum í gegn. Fallbyssm’ og ljós- kastarar á bökkunum undan Út- skálahamri að sunnan, og að Klafa- stöðum að norðan, vörðu netalögn- ina. Að auki lá tundurduflagirðing með segulnemum þvert yfir fjörð- inn undan Hálsnesi. I varðstöð á nesinu mátti sprengja duflin, eitt eða fleiri, undir óboðnum kafbátum eða skipum sem kæmust svo langt. Þessi varnarviðbúnaður banda- manna í firðinum ásamt ströngu eftirliti á Faxaflóa var þýskum hernaðaryfii-völdum ljós og aftraði þeim frá að stefna skipum og kaf- bátum gegn þessum mikilvæga án- ingarstað. Til loftvarna vai’ öflugum byssum komið fyrir undir Hvamms- hólum við Hvammsvík, á Hrafneyri handan fjarðarins og á Þyrilsnesi. Smæiri loftvarnabyssur voru þar og í Hvítanesi og við olíustöðina á Söndum. Þýskar könnunarflugvélar lögðu oft leið sína með ströndum landsins í leit að skipum, loft- myndatöku af hernaðarmannvfrkj- um og til veðurathugana. í einstaka tilfellum gerðu þær árásir á skip eða mannvirki. Oft lá leiðin yfir Hvalfjörð til að gæta að skipum á læginu. Flug þefrra var áhættu- samt, enda margar loftvarnabyssur í firðinum bæði í landi og á skipum. Einnig voru flugvellirnir í Reykja- vík og Keflavík skammt undan en þar var fjöldi orrustuflugvéla sem höfðu það hlutverk að granda hin- um óboðnu gestum. Þýsku njósna- flugvélai-nar flugu gjarna lágt yfir fjöllum svo loftvarnaskytturnar rétt grilltu í skotmarkið. Bandaríkjaher grandaði 5 þýskum flugvélum við landið í styrjöldinni, öllum með orr- ustuflugvélum og tveimur eftir að þær höfðu lagt leið sína yfir Hval- fjörð. Er leið á styrjöldina og banda- menn náðu yfirhöndinni í baráttu við þýska kafbátaflotann fór skipa- komum fækkandi í Hvalfirði og við- HERSKIPAFLOTI í Hvalfirði í síðari heimsstyijöldinni. búnaður sömuleiðis. Breski flotinn starfrækti flotastöð sína í Hvítanesi til stríðsloka en hóf þá brottflutn- ing. Dregið hafði verulega úr vai-n- ai-viðbúnaði í firðinum er leið að styrjaldarlokum. Tundurduflagirð- ingin lá þó enn undan Hálsnesi uns henni var eytt í sprengingu í maí. Um líkt leyti var kaíbátanetunum sökkt þar sem þau lágu þvert yfir fjörðinn og höggvið á landfestar þeirra. Olíustöðin, sem Bandaríkjamenn reistu fyrir Breta á svokölluðum „láns og leigukjörum" , var rekin af bresku olíufélagi frá ársbyrjun 1944. Réð fyrirtækið til þessa verks um 30 íslenska starfsmenn sem að- setur höfðu í skálahverfinu á Mið- sandi. Að styrjöldinni lokinni tók Bandaríkjafloti aftur við stöðinni og hugðist reka hana áfram sam- kvæmt áætlunum sem þeir þá höfðu uppi um herstöðvar til langs tíma. Eftir stóðu í ftrðinum fjölmörg mannvirki sem reist höfðu verið í miklum flýti og með ærinni fyrir- höfn og kostnaði. Var komið að hernaðaryfirvöldum að losa sig við þessi mannvirki ásamt búnaði og birgðum sem ekki þótti ástæða til að nýta eða flytja af landi brott, enda flutningatæki, mannafli og farmrými af skornum skammti. Ljóst var að verðgildi mannvirkja á svo afskekktum stað gat ekki orðið í neinu samræmi við upphaflegan byggingarkostnað og varla að búast við að þau nýttust nema með flutn- ingi annað. Samkomulag hafði verið gert milli hernaðaryfii*valda og rík- isstjórnarinnar um að hún keypti og/eða yfirtæki mannvirki og búnað hersins og endurseldi einkaaðilum eftir atvikum. I mörgum tilvikum var um að ræða greiðslu fyrir land- spjöll sem orðið höfðu við umsvif herliðsins, einkum þegar um mann- virki var að ræða. í Hvítanesi var hafskipabryggja úr stáli og önnur smærri stein- bryggja og heilt þorp íbúðarbragga og vöruskemma auk nokkurra hlað- inna steinhúsa. Þar var að finna vatnsveitu, rafstöð og kyndistöð og gatnakerfi með lýsingu. í Hvamms- vík og nágrenni voru vöruskemmur og skotfærageymslur og fjöldi íbúð- arbragga. Þá voru braggahverfi að Dalsminni, Útskálahamri, á Háls- nesi, Þyrilsnesi, Hrafneyri, að Klafastöðum og Gröf. Nefnd setu- liðsviðskipta annaðist ráðstöfun búnaðar og mannvirkja hersins fyr- ir hönd ríkissjóðs. Mannvirki og búnaður í Hvítanesi höfðu kostað breska flotann a.m.k. 270.000 sterl- ingspund, sem var jafnvirði 2,9 hundraðshluta af verðmæti út- fluttra sjávarafurða árið 1945 og gæti með sömu viðmiðun numið rúmlega 2,7 milljörðum króna í dag. Stöðin á Hálsnesi hafði kostað 10.000 pund og í Hvammsvík átti flotinn mannvirki að verðmæti 7.000 sterlingspund. Greiðlega gekk að selja búnað og byggingar, enda flestai’ færanlegar. Helstu mann- virkin í Hvítanesi voru tvær stórar vöruskemmur og steypt plan við þær og bryggjurnar tvær. Fékk Vita- og hafnarmálastofnunin m.a. tvo stóra gufukrana sem gengu á járnbrautarspori fram á bryggjuna ásamt skemmunum tveimur. Greiddi stofnunin 3.000 sterl- ingspund fyrir þá stærri og flutti á lóð sína við Vesturvör í Kópavogi. í bi-yggjuna sjálfa, sem kostað hafði 126.000 pund að smíða, barst ein- ungis eitt boð að upphæð 400 pund og var það einnig frá Vita- og hafn- armálastofnuninni. Mælti breski flotaforinginn í Reykjavík með því að boðinu yrði tekið, þótt lágt væri, enda vart að búast við öðru betra og stofnunin hefði reynst breska flotanum hjálpleg á ýmsan hátt og keypt mikið af búnaði og þ. á m. umrædda skemmu á fullu verði. Breska flotastjórnin ákvað hins vegar að gefa íslenska ríkinu bryggjuna gegn því að ríkisstjórn Bretlands væri þai’ með leyst und- an allri ábyrgð vegna viðhalds hennar eða kröfum sem upp kynnu að koma síðar vegna þessa mann- virkis. Ekki kom til þess að bryggj- an yrði seld eða rifín og töldu ís- lensk stjórnvöld í fyrstu réttast að eiga hana þar uppistandandi ef til þyrfti að taka og greiddi Vitamála- skrifstofan landeiganda dálitla leigu fyrir aðgang að bi-yggjunni, a.m.k. fyi’stu árin. Snemma fór þó að bera á því að tekið væri timbur úr bryggjunni. Hirti þá Vitamálaskrif- stofan það sem hún náði upp af brautarsporinu og undirlagstrjám. Eigandi jarðarinnar óskaði eftir því árið 1949 að fá bryggjuna keypta af ríkissjóði og árið 1960 að ríkissjóð- ur afsalaði honum bryggjunni til niðurrifs vegna þehra búsifja sem hernámið í Hvítanesi hefði haft í för með sér og hversu takmarkaðar skaðabætur hefðu hlotist fyrir. Var það álit vitamálastjóra í bæði skipt- in að ekki væri ástæða til að afsala bryggjunni, heldui’ bíða hentugs tækifæris í þeirri von að gera mætti úi’ henni frekari verðmæti en brota- járn. Má eflaust geta sér þess til að mannvirki þau sem eftir stóðu í Hvítanesi hefðu ef til vill fengið nýtt hlutverk ef síld hefði gefið sig oftar í eins ríkum mæli í Hvalffrði og hún gerði veturinn 1947-1948, þegar nánast engar síldarverk- smiðjur var að finna á Suðvestur- landi. Þá má ætla að þróun heims- mála í kalda stríðinu hafl gefið mönnum tilefni til að halda að brátt yrði aftur þörf á hernaðaraðstöðu í firðinum. HvaHjarðarsíldin og hreinsun fjarðarins Veiðar á síld til beitu voru hefð- bundnar í Faxaflóa á haustvertíð. Veturinn 1947 varð mikillar síldar vart í Kollafirði og á Sundunum og var talsvert veitt þar um veturinn af blandaðri síld í nót sem siglt var með í bræðslu til Siglufjarðar, enda hefðbundnar sfldveiðihafnir á Norð- ur-og Austurlandi og engar stórar síldarbræðslm- að finna fyrir sunn- an. Sumai’sfldveiðarnar fyrir Norð- urlandi brugðust illa þetta sumar, svo og veiðai’ reknetabátanna á Faxaflóa um haustið. Auk þeirrar óáranar sem sfldarlaust sumar hafði í för með sér stefndi nú í al- varlegan beituskort um veturinn. Reknetabátarnir lömdu allan flóann um haustið, en án teljandi árangurs uns mikillar síldar varð vart inni í Hvalfirði í byrjun október. Vai’ það upphaf stórfenglegi’a síldveiða í firðinum sem stóðu fram í mars- mánuð árið eftir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.