Morgunblaðið - 03.01.1999, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999 B 15
NAMI
} MAROMIDLDAI
orMddar
GRAFIK
Margmiðlun og sjónmiðlar hverskonar eru í miklum vexti og verður gríðarleg þörf fyrir fólk
með þekkingu á þessu sviði í náinni framtíð. Námskeið þetta á að búa fólk undir vinnu á
þessu sviði og frekara nám því þetta svið er nokkuð sem tekur sífelldum breytingum og gerir
kröfu um það að fólk viðhaldi þekkingu sinni.
íámskeið er fyrir alla sem hafa áhuga á margmiðlun og tölvuvæddri grafík-, mynd- og
klippivinnslu. Eftir þetta námskeið hafa nemendurfengið góða innsýn í heim margmiðlunar
og hafa því forskot á aðra bæði hvað varðar störf og frekara nám.
Photoshop:
Photoshop kennslan byggist á vönduðu kennsluefni frá Ziff Davies þar sem blandað er saman
skýringum, step by step æfingum og verkefnum.
Freehand:
Við kennslu á Freehand er stuðst við kennslugögn frá Macromedia, framleiðanda Freehand.
Blandað ersaman skýringum og æfingum.
3D Studio MAX:
Kennslan í 3D Studio MAX byggist mjög mikið á verklegum æfingum í tengslum við þá kafla
sem verið er að fara í. Einnig eru verkefni sem kennari setur fyrir auk frjálsra verkefna sem
þó eru valin í samráði við kennara. Kennslugögnin eru úr handbókum sem fylgja 3D Studio
MAX auk viðbóta.
Ath! Framhald á 3D Studio MAX námi er í Margmiðlun PRO
Kennsla í ritstjórn og dagskrárgerð ferfram í fyrirlestraformi.
Framleiðsla margmiðlunarefnis
Samstarf mismunandi faghópa svo sem hugbúnaðarfólks, hönnuða, textagerðarmanna og
markaðsfólks þannig að framleiðslan gagni upp.
Authorware
Við kennslu á Authorware er stuðst við kennslugögn frá Macromedia,
framleiðanda Authorware. Blandað er saman skýringum og æfingum.
Myndgerð
Kennslan í myndgerð fer fram sem blanda af fyrirlestrum og
verklegum æfingum.
Speed Razor:
Kennslan í Speed Razor klippiforritið er blanda af fyrirlestrum
og æfingum þar sem nemendur klippa saman í hópum, en 6
klippikerfi eru fyrir nemendur. Stuðst verður við bækur frá
framleiðanda Speed Razor, In-Sync.
Hljóðvinnsla
Kennslan í hljóðvinnslu tekur yfir grunnþætti hljóðhönnunar
ásamt æfingum sem byggja á fjölrása hljóðvinnslutækni.
Kennd verða undirstöðuatriði hljóðbreytinga, hvernig breyta
á hljóðum/tónum yfir á tölvutæktform ásamtfrágangi á hljóðefni.
Lögð er áhersla að nemandinn vinni sín verkefni á sjálfstæðan
hátt í samráði við kennara.
Lokaverkefni:
Nemendur gera margmiðlunardisk, stuttmynd eða auglýsingu
í samráði við kennara
Undirstaða:
I Almenn þekking á Windows.
rgmiðlunar- og þrívíddarnámið er 260 kennslustundir.
Kennt er tvö kvöld í viku frá kl. 18:00-21:30
og aðra hverja helgi einn dag í senn frá kl. 8:30-16:30.
Námið er að fullu lánshæft.
nnritun í síma 568 5010