Morgunblaðið - 02.02.1999, Síða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ
Þjálfarinn Kristján Arason leynivopn FH-inga
ÞJÁLFARINN Kristján Arason fór fyrir sínum mönnum í vörn-
inni og lagði grunninn að sæti FH í bikarúrslitunum í Laugar-
dalshöll með tveggja marka sigri, 24:22, á Gróttu/KR í íþrótta-
húsinu á Seltjarnarnesi á laugardag. Heimamenn léku vel á
köflum en reynsla lykilmanna FH vó þungt. Vagga handknatt-
leiksins á íslandi er í Hafnarfirði og ávallt eru gerðar miklar
kröfur til FH. Hins vegar hefur Hafnfirðingum gengið illa að
undanförnu. Staða þeirra í deildinni er ekki góð og Ijóst að
liðið mátti illa við því að komast ekki í bikarúrslit. Það var
langt því frá sjálfgefið og Ijóst að breytingar varð að gera til
að vonin yrði að veruleika. En FH-ingar þurftu ekki að leita
langt yfir skammt í því efni. „Eftir tapið á móti KA fyrir norðan
var einhugur hjá stjórn og leikmönnum um að ég spilaði á
móti Gróttu/KR í vörninni í þeirri von að binda hana saman og
ég varð við þeirri ósk,“ sagði Kristján við Morgunblaðið, en
hann lék síðast með FH á móti Fram í úrslitakeppni íslands-
mótsins í fyrra.
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
Fyrir um það bil áratug var
Kristján í hópi bestu hand-
knattleiksmanna heims og þótt
hann sé ekki á sama
stalli nú hefur hann
engu gleymt í vörn-
inni og átti stóran
þátt í að FH-ingar
fógnuðu sigri. Hann gerði samt lít-
ið úr eigin hlut. „Eg skóp ekki sig-
urinn, þótt ég hafí átt einhvem
þátt í honum, heldur er gífurlegri
liðsheild að þakka. Strákamir
börðust, gáfu sig alla í verkefnið og
fundu svar við erfíðri vörn
mótherjanna."
Dýrkeypt mistök
Lið Gróttu/KR hefur slípast
mikið í vetur. Sérstaklega hefur
markvarslan batnað og vamarleik-
urinn hefur vakið athygli og ugg
mótherjanna en sóknarmistök hafa
tekið sinn toll. Liðið vaknaði fyrst
til lífsins þegar sex mínútur voru af
leik og staðan 4:0 fyrir FH. Munur
sem mörgum reynist oft erfitt að
brúa en Vesturbæingamir jöfnuðu,
10:10, fyrir hlé og komust yfír,
12:11, í byrjun seinni hálfleiks. En
úrslitin réðust þegar gestirnir
FOLK
■ GUNNAR Berg Viktorsson lék
með Fram á laugardaginn gegn
Aftureldingu. Þetta var fyrsti leik-
ur hans í tvo mánuði vegna
meiðsla. Hann lék eingöngu í vöm-
inni og styrkti hana verulega.
■ BERGSVEINN Bergsveinsson
varði tvisvar sinnum víti á sömu
mínútunni um miðjan fyrri hálfleik.
Hann varði fyrst vítaskot frá
Titov, en boltinn barst aftur út í
teiginn til Titovs en þá var brotið á
honum og dæmt annað víti. Gunn-
ar Berg tók það en Bergsveinn sá
við honum.
■ AFTURELDING var með 55%
sóknarnýtingu í leiknum, 68% í
fyrri hálfleik og 43% í seinni. Fram
var með 46% í leiknum öllum, 50% í
fyrri hálfleik og 43% í þeim síðari.
■ ANTON Pálsson dæmdi ekki
um helgina eins og til stóð og dæm-
ir ekki á næstunni. Hann hand-
leggsbrotnaði í leik með Víkingi á
móti Fylki um fyrri helgi.
breyttu stöðunni úr 18:17 í 21:17 og
innan við átta mínútur til leiksloka.
„Gæsin var ekki langt undan en
við misstum af henni að þessu
sinni,“ sagði Ólafur Lárasson,
þjálfari Gróttu/KR. „Leikurinn var
í jafnvægi fram í miðjan seinni
hálfleik og okkur vantaði aðeins
herslumuninn en fórum illa með
færin þegar við voram einum fleiri
og fengum á okkur mörk þegar
liðsmunurinn var okkur í hag
vegna þess að menn fóru ekki eftir
ákveðnum grannreglum. Við
misstum boitann, gripum hann
hreinlega ekki sem þýddi að á
svipstundu vorum við fjóram
mörkum undir og búið spil. Þegar
okkur tókst að halda tuðranni
fengu FH-ingar ekki hraðaupp-
hlaup en þegar við misstum bolt-
ann léku þeir á als oddi. Það er
sárt að segja það en því miður gáf-
um við þeim sigurinn - þeir unnu
ekki á eigin verðleikum."
Rýr uppskera
Sigurgeir Höskuldsson varði vel
hjá Gróttu/KR, framsaskin vörn
liðsins með Einar B. Arnason í
aðalhlutverki var góð og skemmti-
leg tilþrif sáust í sókninni, einkum
hjá leikstjórnandanum Agústi
Jóhannssyni. Magnús A. Magnús-
son var traustur á línunni í fyrri
hálfleik, Armands Meldaris lét til
sín taka í skyttuhlutverkinu í
seinni hálfleik og Zoltan Belany
stóð sig vel en mistökin urðu dýr-
keypt. „Fæstir leikmannanna hafa
spilað í undanúrslitum og aðeins
einn í úrslitum og því voru sumir
einfaldlega of spenntir sem kom
niður á leiknum í byrjun. Hins
vegar lék liðið mjög vel seinni
hluta fyrri hálfleiks og að mörgu
leyti ágætlega í byrjun seinni
hálfleiks. Það fékk tækifæri til að
komast tveimur mörkum yfír en
missti frumkvæðið og það má ekki
gera mistök á móti liði eins og FH.
Liðið er gott en hefur ekki upp-
skorið í samræmi við það og í raun
er langt síðan ég hef séð annað
eins. Liðið spilar mjög vel en það
skilar litlu og það er grátlegt til
þess að hugsa að hafa misst marga
íeiki í tap eftir að hafa verið með
þá í góðri stöðu.“
Hugurinn við deildina
Magnús Arnason var góður í
marki FH, Kristján hélt vörninni
saman og Valur Arnarson var öfl-
ugur í sókninni auk þess sem
Guðjón Amason og Gunnar Bein-
teinsson gerðu góða hluti en Hálf-
dán Þórðarson lék á ný eftir að
hafa verið meiddur undanfarnar
vikur. „Öryggisleysi í vörninni hef-
ur háð okkur að undanförnu en
okkur tókst að setja undir lekann,"
sagði Kristján. „Grótta/KR hefur
sýnt það í vetur að liðið getur unn-
ið upp erfiða stöðu en það hefur
líka misst dampinn. Liðið reynir að
halda boltanum og „frjósi“
mótherjarnir á móti framliggjandi
vörn þess er stutt í hraðaupp-
hlaupin. Þeir skoraðu úr þremur
slíkum í fyrri hálfleik en síðan ekki
aftur fyrr en undir lokin. Við náð-
um mikilvægum áfanga og það
verður gaman að leika í Höllinni á
ný. Hins vegar er staða okkar 61410
í deildinni og við þurfum að ein-
beita okkur að tveimur næstu
leikjum þar áður en við föram að
hugsa um bikarúrslitin.“
LERIKMENN Aftureldingar fögnuðu gífurlega þegar Ijóst var að
Tilhlökkun
að leika aftur
í Höllinni
Haukar
sterkari í
bráðabana
TVÆR framlengingar og bráðabana þurfti til að útkljá hvort Hauka-liðið
eða FH skyldi fara í bikarúrslitaleik við Fram þegar liðin áttust við í
Kaplakrika á sunnudaginn. Eftir mikla dramatík, aragrúa mistaka, jöfnun-
armörk á síðustu sekúndum, rúmlega þúsund taugaspennta áhorfendur
og tæplega eina og hálfa klukkustund af barningi réðust úrslit þegar
Sandra Anulyte tryggði Haukum 31:30 sigur eftir 1 mínútu og 27 sekúnd-
ur í bráðabana.
Sft ifan
Stefansson
sI rifai
Eg er svo þreytt að ég get varla
talað,“ sagði Harpa Melsteð, fyrirliði
Hauka, þegar reynt var að ná tali af
henni strax eftir leikinn í
Hafnarfirði en náði sér
fljótlega. „Þetta var bikar-
leikur eins og bikarleikir
eiga að vera þar sem
bragðið getur til beggja vona en það er
alltaf sérstaklega erfitt að eiga við FH.
En við unnum bæði á vellinum og áhorf-
endapöllunum, því stuðningsfólk okkar
hafði mikil áhrif. Við hættum aldrei og
eigum að vera með reynslu til að geta
það. Nú kemur að úrslitaleik og þá verð-
ur aftur að gera sitt allra besta og vona
einnig það besta.“
Miklar sveiflur í byrjun gáfu for-
smekkinn að framhaldinu því FH-stúlk-
ur skoruðu 5 mörk í jafnmörgum sókn-
um á fyrstu fímm mínútum leiksins en
síðan kom eitt mark frá þeim úr 14
sóknum næstu 18 mínúturnar því
Haukastúlkurnar voru komnar í gang -
það tekur alltaf nokkum tíma fyrir þær
hafa sig af stað. Eftir hlé munaði ekki
nema einu sinni meira en einu marki þar
til yfir lauk og um leið fór mistökunum
að fjölga en miklu skipti fyrir FH-inga
að Jolanta Slapikiene, markvörður
þeirra, varði oft vel. Eftir að Thelma
Björk Ái-nadóttir jafnaði 22:22 fyrir
Hauka þegar sekúnda var eftir af venju-
legum leiktíma, skiptust liðin á að skora
í tveimur framlengingum en Jolanta
kom mikið við sögu þegar hún varði tólf
skot á þeim tíma. í bráðabananum, þeg-
ar leiknum lýkur um leið og annað hvort
liðið skorar, byrjuðu FH-stúlkur með
boltann en fengu dæmdan á sig ruðning
eftir mínútu leik svo að Haukar fengu
tækifærið og Sandra skoraði þegar hún
braust í gegnum vörn FH.
„Við áttum jafna möguleika, en urðum
að berjast og aftur berjast - meira en
áður,“ sagði Hildur Erlingsdóttir, fyrir-
liði FH, eftir leikinn. „Við vorum ekki
stressaðar og liðsheildin var tilbúin en
okkur vantaði heppnina, sem Hauka-
stelpurnar höfðu með sér í dag,“ bætti
Hildur við en hún, Jolanta í markinu,
Þórdís Brynjólfsdóttir og Drífa Skúla-
dóttir áttu góðan leik. FH-stúlkurnar
lögðu sig vissulega mikið fram en sókn-
arleikurinn var oft bitlaus og of mikið
fór í gegnum vömina - mesta lukka að
Jolanta varði vel.
Haukaliðið var lítið meira sannfær-
andi, lengi í gang en fór þetta svo að
mestu á gömlu seiglunni. I sóknarleikn-
um gengu oft upp einföld leikkerfi en
þess á milli gerðist ekkert nema hvað
Harpa lét sig vaða inn í vörn FH og fékk
aukakast. Varnarleikurinn var mun
betri og gaf h'tið eftir. Harpa, Björg
Gilsdóttir, Hanna G. Stefánsdóttir og
Judit Rán Esztergal vora bestar hjá
Haukum.
WSMit
HANNA G. Stefánsdóttir, I
inn og skorar hér eit