Morgunblaðið - 02.02.1999, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999 B 9
Arsenal hleypti aukinni spennu í baráttu efstu liða
Dwight Yorke skaut
United á toppinn
ARSENAL stöðvaði Chelsea í
ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu um helgina og hleypti
aukinni spennu í baráttu efstu
liða. Manchester United skaust
í efsta sætið en er aðeins
tveimur stigum á undan Ar-
senal sem er í fjórða sæti.
Dwight Yorke tryggði Manchest-
er United 1:0 sigur á Charlton
með skallamarki mínútu fyrh’ leiks-
lok. Fyi-ri hálfleikur var tilþrifalítill
en gestirnir sóttu stíft eftir hlé og
svo fór að vörn heimamanna gaf sig.
Alex Ferguson, knattspymustjóri
United, hrósaði mönnum sínum fyrir
hugarfarið, að gefast aldrei upp.
„Þetta er aðal liðsins. Við héldum
ótrauðir áfram og það er gott að hafa
menn eins og Yorke og Andy Cole
sem geta gert út um leiki. Ef lið er í
efsta sæti er það merki þess að eitt-
hvað sé gert rétt og við gerum margt
rétt þessa dagana. Við höfum leikið
mjög vel að undanfórnu og menn
hafa lagt sig fram í öllum stöðum.
Menn hafa unnið mjög vel án bolta,
verið á ferðinni og uppskorið sam-
kvæmt því.“ Hann sagði að barátta
Chelsea, Arsenal og United á toppn-
um héldi áfram og Aston Villa gæti
náð sér á strik á ný „en í lok mars má
gera ráð fyrir baráttu tveggja liða“.
Enn einu sinni tapaði Charlton 1:0
en þetta var 13. leikur liðsins í röð í
deildinni án sigurs og stjórinn Alan
Curbishley var allt annað en ánægð-
ur. „Leikmennirnir gerðu allt sem
þeir gátu en ég var óánægður með
síðustu 20 mínúturnar.“
Tilfinning eins og hjá
veðurfræðingum
Chelsea lék 21 leik í röð án taps en
Dennis Bergkamp skoraði fyrir Ar-
senal eftir hálftíma leik á Highbury
og heimamenn héldu fengnum hlut.
„Þetta er ekki búið,“ sagði Arsene
Wenger, stjóri Arsenal. „Það var
mikið álag á okkur fyrir leikinn því
við vissum að við urðum að sigra til
að vera með í baráttunni um titilinn.
Tap hefði þýtt að þetta væri búið því
þá hefði enginn náð Chelsea. Ég vissi
að menn mínir voru tilbúnir - eftir
nokkur ár vita menn hvað klukkan
slær. Þetta er eins og hjá veðurfræð-
ingunum. Þeir hafa á tilfinningunni
hvort það rignir eða ekki.“
Gianluca Vialli, stjóri Chelsea,
sagðist ögn vonsvikinn „en svona er
þetta í úrvalsdeildinni og það er
erfítt að halda stöðugleika. Þetta er
mikil barátta og vonandi helst hún út
keppnina. Allir eiga möguleika á titl-
inum og menn verða að geta brugð-
ist við tapi án þess að missa sjálfs-
traustið.“
Villa tapaði í Newcastle
Aian Sheai-er gerði fyrsta mark
sitt síðan 26. september, skoraði með
skalla snemma leiks á St. James’
Park, og átti þátt í öðru marki
Newcastle sem Temuri Ketsbaia
gerði um miðjan fyrri hálfleik en
Paul Merson minnkaði muninn fyrir
Aston Villa eftir klukkutíma leik.
„Slakui- fyrri hálfleikur varð okk-
ur dýrkeyptur,“ sagði John Gregory,
stjóri VOla, sem hefur verið í efsta
sæti lengst af á tímabilinu. „Við
sýndum lit eftir hlé en það var of
seint.“
Ruud Gullit, starfsbróðir hans hjá
Newcastle, var ánægður með fyrsta
deildasigurinn í fimm leikjum. „Ég
er mjög ánægður með frammistöð-
una. Liðið hefur lengi sýnt hvað í því
býr en uppskar nú samkvæmt því.
Það var það sem við vildum. Við vOd-
um sigra og andrúmsloftið var ein-
staklega gott en ég var sérstaklega
ánægður með samvinnuna. Okkur
hefur ekki gengið vel að undanförnu
en það er mjög mikilvægt að sigra lið
sem er í baráttunni um meistaratitil-
inn.“ Gullit var líka mjög ánægður
með Shearer. „Hann hefur verið
undir miklu álagi en ýtti því tO hliðar
og byrðin er léttari. Hann er ekki að-
eins góður leikmaður heldur frábær
fyrirliði.“
Coventry úr fallsæti
Coventry City fékk mikilvæg stig
þegar liðið fékk Liverpool í heim-
sókn og vann 2:1. George Boateng
skoraði eftir klukkutíma og Noel
Whelan bætti öðru marki við
skömmu síðar en Steve McManaman
minnkaði muninn fímm mínútum
fyrir leikslok.
„Ég var ánægður með aUt,“ sagði
Gordon Strachan, knattspymustjóri
Coventry, „frammistöðuna, viðhorfið,
marktækifærin og síðast en ekki síst
stigin þrjú. Síðustu mínútumar voru
verstar og ég bað þess að þeir næðu
ekki að jafna vegna þess að við höfð-
um leikið svo vel. Við gerðum allt rétt
en þegar leikið er á móti Owen,
Fowler, McManaman og Riedle er
ekki hægt að taka lífinu með ró.“
Gerard Houllier, stjóri Liverpool,
sagði að tap liðsins í bikarkeppninni
hefði ekki legið á leikmönnum sínum.
„Við gerðum mistök og mistök eru
dýrkeypt í úrvalsdeUdinni. Við lögð-
um mikið á okkur en fyma mark
þeirra kom á slæmum tíma fyrir
okkur því þá vomm við að ná tökum
á leiknum.“
Stærsti sigur Southampton
Southampton hefui’ ekki gengið
vel en fagnaði stærsta sigri sínum á
tímabilinu, fékk Leeds í heimsókn og
vann 3:0.
„Fyrst við getum leikið svona,
verð ég að spyrja hvað við höfum
verið að gera undanfarna fímm mán-
uði,“ sagði Dave Jones, stjóri Sout-
hampton. „Við höfum verið harðlega
gagnrýndir en það er auðvelt að
sparka í liggjandi mann. Nú lékum
við við mjög sterkt lið en Leeds kom
varla við boltann eftir að við gerðum
annað markið. Það var frábært að
fylgjast með þessu og stuðnings-
mennirnir sýndu það með því að rísa
á fætur og klappa liðinu lof í lófa í
lokin. Ef við höldum svona áfram
eigum við möguleika á að forða okk-
ur frá vandræðum."
David O’Leai-y, knattspyrnustjóri
Leeds, sagði að þetta hefði verið
versti leikur liðsins síðan hann tók
við stjórninni. „Ekki fer á milli mála
að við vorum á hælunum og mun
hungraðra lið hakkaði okkur í sig.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég er
vonsvikinn með liðið en ef til vill
koma þessi úrslit okkur til góða þeg-
ar fram líða stundir. Við höfum haft
meðbyr að undanfórnu en getum
ekki gert ráð fyrir að sigra með því
einu að mæta til leiks. Þetta kemur
strákunum niður á jörðina og von-
andi læra þeir af þessu.“
Hvernig á að fagna?
Nottingham Forest vann Everton
óvænt 1:0 á Goodison Park í Liver-
pool en liðið hafði leikið 19 leiki í röð
án sigurs og leikmennirnir vissu ekki
hvernig þeir áttu að fagna. „Ég hef
verið í búningsklefa á Wembley eftir
bikarsigur en ég hef ekki upplifað
andrúmsloft eins og ríkti eftir þenn-
an sigur," sagði Ron Atkinson, sem
stjórnaði hðinu í annað sinn. „Leik-
mennirnir voru yfir sig ánægðir en
spurðu mig við hverju væri búist af
þeim eftir sigur. Þeir ráfuðu um bún-
ingsherbergið og spurðu hvað þeir
ættu að gera.“
Everton sótti stíft en Pierre van
Hooijdonk gerði eina mark leiksins
og gestirnir héldu fengnum hlut.
„Heppnin var með okkur en hún ger-
ir það þegar maður trúir að þannig
verði það,“ sagði Atkinson og hrósaði
sérstaklega markverðinum Dave Be-
asant. „Ef við höldum svona áfram
eigum við jafna möguleika á að halda
sætinu."
„Þetta var dæmigerður leikur hjá
okkur,“ sagði Walter Smith, stjóri
Everton. „Við fengum betri mark-
tækifæri en nýttum þau ekki. Þegar
slíkt gerist fá mótherjarnir tækifær-
ið. Við höfum lengi vitað að ekki eru
til peningar til að kaupa nýja menn.
Þeirri stöðu verður ekki breytt en
vandamálið er að við sigrum ekki á
heimavelli, skorum ekld og færumst
nær fallsvæðinu."
Jansen skoraði
Matt Jansen, sem Blackburn
keypti af Crystal Palace fyrir 4,1
millj. punda, skoraði í fyrsta leik sín-
um með liðinu en Steffen Iversen
jafnaði fyrir Tottenham. Mínútu síð-
ar missti Blackburn Jason Wilcox út-
af með rautt spjald en einum færri
stóðust heimamenn álagið.
Þetta var í þriðja sinn í röð á
Ewood Park sem leikmaður Black-
burn fær rautt spjald en Brian Kidd,
stjóri liðsins, áréttaði að liðið væri
ekki gróft og vildi ekki gagnrýna
dómarana. „Þeir dæma það sem þeir
sjá og ég ætla ekki að blanda mér í
það. Starf þeirra er nógu erfítt en við
erum ekki grófir.“
Spurs hefur leikið átta leiki á úti-
velli síðan George Gráham tók við
stjórninni, en aldrei sigrað. „Þeir
hefðu getað gert tvö mörk á fyrstu
fímm mínútunum en síðan fengum
við þrjú góð marktækifæri. Þeir
gerðu glæsilegt mark og í hléinu
sagði ég að ég yrði sæmilega sáttur
við jafntefli en í lokin var ég ekki
ánægður með það.“
Prior í sviðsljósinu
Spencher Prior átti stóran þátt í
1:0 sigri Derby á Sheffíeld Wednes-
day á Hillsborough. Hann gerði eina
markið, fyrsta mark hans síðan í
mars 1996, og var sem klettur í vöm-
inni.
Þremur mínútum eftir markið var
Pavel Srnicek, markverði Wednes-
day, vikið af velli fyrir brot á
Malcolm Christie rétt utan vítateigs
en liðsmunurinn kom ekki niður á
heimamönnum. „Þeir tóku frum-
kvæðið þegar þeir voru 10 og við
gerðum okkur lífið erfitt," sagði Jim
Smith, stjóri Derby, og var ekki
ánægður þó að liðið hafi aðeins tapað
einu sinni í síðustu 10 leikjum.
Wednesday hefur ekki skorað í sjö
af 12 heimaleikjum í deildinni á tíma-
bilinu. „Við höfum skapað okkur færi
í hverjum leik en ekki nýtt þau og
það er greinilega umhugsunarefni,“
sagði Danny Wilson, stjóri liðsins,
sem var ekki sáttur við brottrekstur
markvarðar síns.
Redknapp bjartsýnn
Wimbledon og West Ham gerðu
markalaust jafntefli í frekar daufum
leik en Harry Redknapp, stjóri West
Ham, sagði að nýju mennirnir Marc-
Vivien Foe og Paolo Di Canio ættu
eftir að sýna hvað í þeim býr. Foe
lék allan leikinn á miðjunni en Di
Canio, sem hefur ekki leikið í fjóra
mánuði, kom inná þegar tæplega 20
mínútur voru til leiksloka.
Feyenoond
refsar
stuðnings-
mönnum
ÁHANGENDUR Feyenoord
urðu sér til skammar í
Leverkusen í Þýskalandi um
helgina og í kjölfarið ákvað
félagið að banna stuðnings-
mönnum smuin að sækja úti-
leiki liðsins í Evrópukeppni
næsta eina og hálfa árið.
„Þessir svokölluðu stuðnings-
menn hafa enn einu sinni sett
svartan blett á nafn okkar og
við getum ekki liðið það,“
sagði Jorien van den Herik,
formaður hollenska félagsins.
„Staða okkar í Evrópukeppni
er í hættu vegna þessa,“ bætti
hann við.
Greint var frá því að 10
manns hefðu slasast og þó
nokkrar skemmdir orðið á
inannvirkjum eftir uppþot
sem varð að loknum æfinga-
leik Feyenoord í Leverkusen.
Lætin komu lögreglunni í
opna skjöldu en hún hélt um
1.000 manns á vellinum þar
til á sunnudagsmorgun.
Stuðningsmannafélag liðsins
studdi ákvörðun formannsins
þó það væri sárt því 90 til
95% áhangenda liðsins hög-
uðu sér vel.
■ EVERTON hefur aðeins gert
þrjú mörk í 12 heimaleikjum og hef-
ur ekkert félag gert svo fá mörk á
þessu stigi. Woolwich Arsenal átti
fyrra metið, var með fjögur mörk
eftir 12 leiki í 1. deild 1912 til 1913.
Liðið sigraði aðeins í einum heima-
leik á umræddu tímabili, gerði 11
mörk í 19 heimaleikjum og féll.
■ RIGOBERT Song lék með Liver-
pool í fyrsta sinn en hafði ekki er-
indi sem erfiði, Coventry vann 2:1.
■ JOHN Hartson var fyrirliði"
Wimbledon sem gerði markalaust
jafntefli við West Ham, liðið sem
hann lék með þar til fyrir skömmu.
■ RON Atkinson hefur stýrt
Sheffield Wednesday og Coventry
frá falli og trúir að með heppni tak-
ist honum slíkt hið sama með Nott-
ingham Forest.
■ JOSEPH-Desire Job gerði tvö
mörk þegar Lyon vann meistara
Lens 3:0 í frönsku deildinni.
■ MILADIN Becanovie tryggði Le
Havre fyrsta útisigurinn á tímabil-
inu þegar hann skoraði stundar-
fjórðungi fyrir leikslok í Strasbo-
urg. Strasbourg hefur ekki sigrað í
sjö síðustu leikjum.
■ LAURENT Battles gerði eina
markið þegar Toulouse vann Metz
1:0. Þetta var fyrsti sigur liðsins í 13
leikjum.
■ SEBASTIAN Perez hefur verið
lánaður aftur til franska félagsins
Bastia frá Blackburn Rovers á
Englandi. Lánið gildir til loka leik-
tíðarinnar.
■ PEREZ hefur lítið getað leikið
með Blackburn vegna meiðsla, hef-
ur aðeins verið sjö sinnum í byrjun-
arliðinu, gert tvö mörk og einu sinni
hlotið rauða spjaldið. Ástæða heim-
fararinnar er þó spunnin af öðrum
toga; barnung dóttir hans hefur
verið með stanslausa flensu frá því
fjölskyldan flutti yfir Ermarsundið
og kennir faðir hennar miklum
kuldum þar um. „Hún er vön sólinni
og vörmu loftslagi, en hér er alltaf
kalt,“ sagði leikmaðurinn í gær.