Morgunblaðið - 23.02.1999, Page 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Garðar við
æfingar hjá
Leeds og
Rangers
GARÐAR Bergmann Gunnlaugs-
son, bróðir knattspyrnumannanna
Arnars og Bjarka, hefur dvalið við
æfingar hjá enska knattspyrnulið-
inu Leeds. Garðar, sem verður 16
ára í næsta mánuði og leikur með 3.
flokki IA, hefur æft með unglinga-
liði Leeds og 19 ára leikmönnum
þess frá því á þriðjudag í síðustu
viku. Garðar átti að leika með ung-
lingaliði Leeds gegn unglingaliði
Nottingaham Forest á sunnudag.
Gunnlaugur Sölvason, faðir
Garðars, sagði að Kenny Moyes,
umboðsmaður Arnars, hefði haft
milligöngu um að Garðar fengi að
æfa með Leeds. Moyes kom honum
að við æfingar hjá Glasgow Ran-
gers í fyrra og óskaði þá félagið eft-
ir að fá hann aftur til sín. Gert var
ráð fyrir að Garðar færi til félags-
ins í dag og yrði fram á fimmtudag.
Guðjón
í Belgíu
GUÐJÓN Þórðarson, landsliðs-
þjálfari karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu, er staddur í Belgíu til að
fylgjast með íslenskum knatt-
spyrnumönnum. Guðjón fylgdist
með Arnari Viðarssyni í leik með
Lokeren, sem sigraði Wasterlo 3:0 í
átta liða úrslitum bikarkeppninnar
á laugardag. Guðjón sagði að Arnar
hefði spilað allan leikinn.
Guðjón kvaðst gera ráð fyrir að
sjá leik Genk og Sint-Truiden í bik-
arkeppninni í kvöld. Með Genk
leika synir Guðjóns: Þórður, Bjarni
og Jóhannes. Guðjón, sem einnig
hefur fylgst með íslenskum knatt-
spymumönnum á æfingamóti á La
Manga á Spáni undanfarnar vikur.
Leikur Arsenal og Sheff. Utd. endurtekinn
ALÞJÓÐA knattspyrnusam-
bandið, FIFA, hefur heimilað að
ieikur Arsenal og Sheff. Utd í
ensku bikarkeppninni verði
endurtekinn.
Arsenal sigraði SheiT. Utd 2:1
í 5. umferð bikarkeppninnar 13.
febníar. Marc Overmars skor-
aði sigurmarkið með umdeild-
um hætti og bauð Arsenal Sheff.
Utd. að endurtaka leikinn.
Enska knattspyrnusambandið
hafði samþykkt að leikurinn
yrði háður að nýju, en FIFA tók
málið hins vegar til skoðunar.
Hafði Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, hótað að
draga lið sitt úr bikarkeppninni
ef FIFA kæmist að þeirri niður-
stöðu að ieikurinn yrði ekki
endurtekinn. Arsenal var á móti
hótað háum (jársektum ef liðið
yrði dregið úr keppninni.
FIFA tók ákvörðun um að
breyta ekki niðurstöðu enska
knattspyrnusambandsins og
verður hann liáður á Highbury í
Lundúnum í kvöld.
KEILA / ISLANDSMEISTARAMOT EINSTAKLINGA
Morgunblaðið/Kristinn
FREYR Bragason og Sólveig Guðmundsdóttir, íslandsmeistarar einstaklinga í keilu 1999.
Bræðurnir börðust til þrautar
SÓLVEIG Guðmundsdóttir og
Freyi- Bragason, Keilufélagi
Reykjavíkur, urðu um helgina ís-
landsmeistarar einstaklinga í keilu,
en síðasti hluti mótsins fór fram í
keilusalnum í Mjódd. Um leið unnu
þau sér inn þátttökurétt á Evrópu-
bikarmót landsmeistara sem fram
fer í ísrael í byrjun september.
Keppni í meistaraflokki karla var
spennandi á milli Freys, bróður
hans, Jóns Helga og Jónasar Guð-
mundssonar og hafði Freyr sigur,
fékk 9.343 stig eða 199,6 að meðal-
tali í 46 leikjum. Jónas fékk 92.59
stig, 198,9 að meðaltali og Jón Helgi
9.262 stig, 198,5 að meðaltali.
Freyr vann Jón bróður sinn í tvö-
fóldum úrslitaleik með 414 stig á
móti 389. Þetta er í fyrsta skipti
sme Freyr vinnur Islandsmeistara-
titilinn en Jón Helgi vann 1993 og
1997.
Sigur Sólveigar var öruggari.
Hún hlaut 8.373 stig sem gerir 178,1
stig að meðaltali í 46 leikjum. í öðru
sæti varð íslandsmeistari síðasta
árs, Elín Óskarsdóttir, fékk 8.235
stig, 176,3 stig að meðaltali og
Ragna Matthíasdóttir varð þriðja
með 8.228 stig, 176 stig að jafnapi.
Höskuldur Höskuldsson varð ís-
landsmeistari i 1. flokki með 6.508
stig, sem gerir 185,4 stig að jafnaði.
Sólveig vann Elínu örugglega í
úrslitaleik með 426 stigum gegn 325
stigum Elínar sem gekk óvenjuilla
og fékk mikið af glennum í fyrri
hluta leiksins.
SUND / HEIMSBIKARMOT I PARIS
Örn Arnarson fann til eymsla í öxl og varð að hætta keppni í París
Vonum að þetta sé
ekki alvarlegt
ÖRN Arnarson, SH, hafnaði í þriðja sæti í 100 metra baksundi
á heimsbikarmóti sem fram fór í París um helgina. Örn synti á
54,32 sekúndum, en íslandsmet hans frá Evrópumeistaramót-
inu í Sheffield í desember er 53,71 sekúnda. Örn fann fyrir
eymslum í öxl á sunnudaginn og keppti ekki. „Það voru tals-
verð vonbrigði að hann gat ekki verið með i 200 metra
baksundinu á sunnudaginn, en við vildum ekki taka neina
áhættu og ákváðum því að draga hann úr keppni,“ sagði Brian
Marshall, þjálfara Arnar.
I rian sagði of snemmt að segja
I til um hversu alvarleg meiðsli
Arnar væru en hann sagði þau
ekki lýsa sér ósvipað þeim er
hrjáðu sundmanmnn síðastliðið
sumar og ollu honum talsverðum
óþægindufn um tíma.
IVEg vona að meiésfin séu ekki
eins alvarleg og í l'yira og þau
stafi fyekar af mildu álagi sem Örn
hefur verið undir síðustu vikur, en
um leið og við koraum heim hittum
við lækni á vegum ÍSÍ og látum
hann greina þetta og ráðleggja
okkur hvað best sé að gera,“ sagði
Marhail ennfremur. „Fyrst og
fremst held ég að þetta séu álags-
meiðsli.“
Marshall sagðist vera ánægður
með árangur Ai-nar í 100 metra
baksundinu. „Hann var yngstur
þeirra sem voru í úrslitum og það
er vitað mál að eldri sundmenn
eru sterkari í þessari grein. Við
leggjum meiri áherslu á 200 metra
baksundið og í þeirri grein liggja
möguleikar Amar eins og mál
standa nú.“ Sigurvegári varð
Franck Esposito, Frak-kiandi, á
53,63 sekúndum og annað sætið
hreppti Bretinn Martin Harris &
54,09.
Lára hrund Bjargardóttir, SH,
komst í úrslit í 100 metra fjór-
sundi á síðari keppnisdegi. í und-
anrásum synti hún á 1.04,90 mín-
útum og var þriðjung úr sekúndu
frá eigin meti sem hún setti í Glas-
gow um síðustu helgi. í úrslitum
náði hún sér ekki á strik og synti á
1.05,86. Eigi að síður er þessi tími
vel undir fyrra meti í greininni. Þá
varð Lára í 27. sæti í 100 metra
skriðsundi á 58,93 sekúndum, í 11.
sæti í 200 metra fjórsundi á
2.21,23 og í 18. sæti 200 metra
skriðsundsins á 2.04,05 mín. „Lára
er orðin þreytt eftir langa æfinga-
og keppnistörn svo ég tel að ár-
angur hennar sé alveg viðunandi,"
sagði Brian.
Elín Sigurðardóttir, SH, varð í
9. sæti í 50 metra skriðsundi á
26,30 sekúndum og var hársbreidd
frá úrslitum, um leið er þefta ann-
ar besti árangur sem Elín nær á
ferlinum í þessári grein. J 100
metra flugsundi kom Elín tuttug-
asta og önnur í mark á. 1.05,95
mínútum. Elín ætlaði sér síðan um
of í 50 metra flugsundi þar sem
hún hafði hug á að sauma nærri
meti Eydísar Konráðsdóttur,
Keflavík, Elín þjófstartaði og var
dæmd úr leik.
Halldóra Þorgeirsdóttir synti
200 metra bringusund á 2.43,44,50
metra bringusund á 35,41 sekúndu
og varð í 16. sæti. Þá hreppti hún
20. sætið í 50 metra flugsundi á
30,82 sek. Halldóra synti einnig
100 metra bringusund á 1.14,73,
varð í 26. sæti og 1 18. sæti í 200
metra fjórsundi á 2.30,07. „Hall-
dóra synti betur núna en á Glas-
gow-mótinu fyrir viku þannig að
hún kemur reynslunni ríkari úr
þessari ferð,“ sagði Brian þjálfari.
„Elín var óheppin í 50 metra
flugsundinu, en í heild góð, er
bjai-tsýn og mér líst svo á að hún
eigi eftir að synda vel á íslands-
meistaramótinu eftir þrjár vjkur,“
sagði Marshall ennfremur.
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, ÍA,
setti stúlknamet í 100 metra fjór-
sundi, synti á 1.05,61 og bætti met
Láru Hrundar sem var 1.06,59.
Kolbrún varð í 10. =sæti. Þá varð
hún tuttugasta í 100 metra skrið-
sundi á 58,23 sek. Einnig varð hún
í 17. sæti í 200 metra baksundi á
2.20,43, í 9. sæti í 50 metra
baksundi á 30,14 sek., og í 19. sæti
50 metra skriðsundsins á 26,85
sek.
Ólafur
skoraði
tólf mörk
FLENSBORG sigraði Lenigo í
stórslag helgarinnar í þýska
handknattleiknum, 22:20, eftir að
staðan í hálfleik var 13:8, Flens-
borg í vil. Þar með eru Flens-
borgarar komnir með 3ja stiga
forystu og ætti þetta hálfdanska
lið sem hefur 5 danska landsliðs-
menn auk Danans Erik Veje
Rassinussen, þjálfara, innan sinna
vébanda að vera nokkuð öruggt
með meistaratitilinn. Það yrði
fyrsti titill Flensborgar í sögunni
en borgin sem félagið kemur frá
iiggur sem kunnugt er alveg við
landamæri Danmerkur og er
fjöldinn allur af Dönum sem
sækja heimaleiki liðsins. Christi-
ansen hornamaður gerði 5 mörk
fyrir Flensborg, og Morten
Bjerre 4, en fyrir Lemgo var
Daniel Stephan yfirburðamaður
með 9 mörk.
Wuppertal lék mjög vel gegn
slöku liði Minden sem var án fjög-
urra fastamamia. Sigurinn var
mjög mikilvægur fyrir Wupperlai
sem færðist fjær botninum og ætti
að vera nokkuð öruggt um að
þurfa ekki að fara í aukaleiki um
fall í 2. deild. Aðeins eitt lið fellur
beint úr 1. deildinni en næst
neðsta liðið þarf að spila aukaleik
við næstefsta lið úr annaðhvort
norður- eða suðurriðli annarrar
deildar. Þetta er vegna íjölgunar
liða úr 16 í 18 lið. fslendingatríóið
lék að venju vel og voru lykiimemi
liðsins. Norðmaðurinn Stig Rasch
sýndi loksins góðan leik, var
markahæstur með 6 mörk. Valdi-
mar Grúnsson gerði 4, Dagur Sig-
urðsson 3 og Geir Sveinsson 2.
Ólafur Stefánsson átti stórleik
fyrir Magdeburg og gerði 12
mörk, þar af 7 úr vítum. Hann
var besti maður vallarins í sigri
Magdeburg á siöku liði Wallau
Massenheim Frankfurt, 30:21.
Gummersbach gerði góða ferð
til Nettelstedt og sigraði óvænt
24:33. Nettelstedt sem hefur leik-
ið vel að undanförnu hefur
greinilega vanmetið Gummers-
bach því nokkra leikmenn vant-
aði í liðið vegna meiðsla, m.a.
markvörðinn snjalla Steinar Ege.
Kóreumaðurinn Yoon var að
venju markahæstur, Gummers-
bach með 10 mörk en Króatinn
Mikulic skoraði 11 fyrir Nettel-
stedt og eru þessar tvær vinstri-
handar skyttur markahæstar í
þýsku deildinni. Dutenhofen sigr-
aði lið Niederwurzbach 31:25.
Grosswallstadt vann öruggan
sigur á TUSEM Essen, 29:20, en
Essen hefur leikið injög vel að
undanförnu. Páll Þóróifsson
gerði 1 mark fyrir Essen.
Rodman
DENNIS Rodinun, körfuknad-
leiksniaðurinn skrautlegi, til-
kynnti í gær að hann heföi
ákveðið að leika méð Los Ang-
eles Lakers í NBA-deildinni í
vetur. „Ég mun skrifa undir
samning við Lakers i kvöld,“
sagði Rodman, fyri-verandi
leikmaður Chicago Bulls, í
gær.