Morgunblaðið - 30.05.1999, Page 18

Morgunblaðið - 30.05.1999, Page 18
18 B SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR BÖRN ERU BESTA FÓLK/Hvaöapættir eru mikilvægastir íuppeldi barna? Hlýja, öryggi, festa og skopskyn FRÁ örófí alda hafa foreldrar fylgst með börnum sínum, séð þau vaxa og þroskast, takast á við vandamál og erfiðleika, gefið þeim ráð og reynt að útbúa þau með sem allra best veganesti til framtíðar. Einatt skiptast á skin og skúrir. Góð börn verða stundum óþæg börn og baldin böm og hrekkjalómar hafa komist til manns, mörgum til gagns og gleði. Fyrstu áhrifavaldar í lífí barns og þeir veigamestu era yfirleitt foreldrar þess og er ábyrgðin því mikil sem hvílir á herðum okkar. REYNUM að Iíta ekki á athafnir barna okkar frá sjónarhdli fullorðinna. Gamalt máltæki segir að „það sé mannlegt að skjátlast". Því megum við ekki gleyma sem for- eldrar. Okkur skjátlast oft í uppeld- inu þó við reynum ætíð að gera okk- f ar besta. Börn þurfa að læra að enginn er óskeikull, hvorki foreldr- ar, prestar, uppeldisfræðingar né kennarar. Þau komast að þessu hvort sem er á vissu þroskaskeiði. Við þurfum að vera tilbúin til að læra af mistökunum, hafa okkur sjálf í sífelldri endurskoðun og end- urhæfingu sem foreldrar og síðar sem afar og ömmur. Verum opin fyrir nýrri þekkingu og leggjum okkur fram um að búa bömum okk- ar góðan heim. Unnt væri að nefna ótal margt sem er nauðsynlegt góðu uppeldi en hér verður minnst á þrjá þætti sem við teljum veigamikla til að barn » geti orðið að heilbrigðum einstak- lingi sem kann að elska, getur tjáð tilfinningar sínar og líður vel. Hlýja er mikilvæg öllum börn- um. Kærleikur sem er skilyrðislaus og krefst einskis í staðinn. Við ger- um böraum okkar eitthvað gott af því að okkur þykir vænt um þau. eftir Þóri S. eftir Þóru Bryndísi Guðbergsson Þórisdóttur Við veitum þeim ekki ástúð og um- hyggju til þess að þau geri eitthvað fyrir okkur á móti eða hegði sér á ákveðinn hátt. Sumir ganga svo langt að segja að krafa um þakk- læti handa foreldrum sé beinlínis hættuleg vegna þess að foreldrar eiga í raun ekki tilkall til barna sinna. Börn eru sjálfstæðar verur. „Þau eru synir og dætur lífsins og eiga sér sínar eigin langanir. Við erum farvegur þeirra" (Kahlil Gi- bran). Að sjálfsögðu þurfa börn þó að læra almenna kurteisi og að þakka fyrir sig. Öllum er nauðsynlegt að læra að bera virðingu fyrir persónu- frelsi annarra og til þess að sam- skipti verði til jákvæðs þroska þurf- um við að kunna að meta og þakka fyrir það sem vel er gert. Oryggi er öllum börnum nauð- synlegt. Með því er átt við að böra þurfi athvarf og skjól á hverju sem dynur. Þau þurfa að vita að foreldr- arnir era sannir vinir sem standa með þeim í blíðu og stríðu og að leit- að verður leiða til að stuðla að ham- ingju þeirra og heilsu. Þetta má ekki misskilja á þann veg að aldrei eigi að vanda um við börn eða benda þeim á það sem aflaga fer heldur að það sé gert á þann hátt að þau skilji hvers vegna við viljum aga og skynji að það sé gert af ást og með hlýju. Festa skiptir öll börn miklu máli. Þau þurfa viðmið og reglur sem þau geta notað til þess að feta sig áfram í flókinni veröld. Þeim er nauðsyn- legt að vita hvað þau mega og hvað þau mega ekki og hvar mörkin liggja við margvíslegar aðstæður. Við eigum að vera sjálfum okkur samkvæm í því sem við segjum og gerum, segja ekki eitt í dag og ann- að á morgun. Við setjum ekki reglur reglnanna vegna, - ekki aga til þess að við getum sýnt þeim „hver ræð- ur“. Reglur þurfa að vera einfaldar, skýrar, fáar og sanngjamar - við ræðum við börnin um þær svo að þau skilji grundvöllinn sem þær eru byggðar á. Þetta viðhorf felur í sér að við vitum og börain vita að öllum getur skjátlast. Stundum virðist sem mjög flókin vandamál séu leyst með einfaldri setningu: Það hlýtur að vera foreldranum að kenna! Að baki erfiðra vandamála liggja yfir- leitt margvíslegar orsakir. Aðalat- riðið er ekki að finna sökudólg held- ur að komast að jákvæðri niðurstöðu og lausn mála. (Thomas Gordon.) Skopskyn er nauðsynlegt að nefna. Öll brot af kátlegum atvikum í hringekju dagsins sem kitla hlát- urtaugar geta haft áhrif á ónæmis- kerfið, bætt geð og létt lund. Ef við leyfum okkur að hafa gaman af því þegar bamið missir strump út um gluggann, í stað þess að bölsótast, öðlumst við skemmtilega fjölskyldu- minningu um bjartsýna strumpinn sem hélt að hann gæti flogið! - Leyfum hugmyndafluginu að hefja sig á loft með bömum okkar. Börn eru dýrmætur efniviður og það skiptir máli hvernig við með- höndlum hann, slípum og forverjum fyrir framtíðina en leyfum honum samt að halda sérkennum sínum, fegurð og eiginleikum. „Löngu áður en börn hafa náð þroska fullorðinna krefjumst við af þeim að þau hegði sér eins og full- orðið fólk. Við gefum þeim ekki nægan tíma til leikja.“ (A.S. Neill 1883-1973.) Með leikjum sínum uppgötva börn veröldina og með skapandi hugsun verða þau tilbúin til að breyta henni til batnaðar. • Næstu vikur birtast í Morgun- blaðinu greinar undir heitinu „Börn eru besta fólk“, þar sem Þórir S. Guðbergsson og Þdra Bryndís Þór- isdóttir fjalla um þroska barna og uppeldi og benda á fáein atriði sem foreldrum gæti þdtt forvitnilegt að vita og gagnlegt að velta fyrir sér. I greinaflokknum reifa þau ýmist sín- ar eigin hugrenningar eða tilvitnan- ir í fræðimenn og rannsóknir. > LÆKNISFRÆDI/Er eðlilegt aðþað sé sykur í blóðinu? Blóðsykur og sjúkdómar FÆÐUEFNUM má skipta í þrjá meginflokka, prótein, fitu og kolhýdröt. Flest kolhýdröt era sykursameindir af mismunandi stærðum og gerðum. Allur sykur er samsettur úr einingum sem era hringlaga sameindir sem kallast einsykrar eða einsykrangar. Sykur getur þannig verið einsykra, tvísykra eða fjölsykra. Venjulegur sykur, sem notaður er í matargerð, er unninn úr sykurreyr eða sykurrófum, hann nefnist súkrósi og er tvísykra samsett úr einni sam- eind af þrúgusykri (glúkósa) og einni sameind af ávaxtasykri (frúktósa). I blóðinu er talsvert af sykri, sem er nær eingöngu ein- sykran glúkósi. I BRISINU myndast m.a. hormónin insúlín og glúkagon. Sykur á einhverju formi er nauð- synlegt fæðuefni og heppilegast er að hann sé að mestu sem fjöl- sykrar, en þær era yfirleitt ekki sætar á bragðið. Glúkósinn í blóðinu er mikilvægur orkugjafi, hann berst til allra framna líkamans og þær nota hann tU að framleiða orku. Blóðsykrin- eftir Mognús um er stjómað af Jóhannsson hormónum og þar skipta mestu máli insúlín og glúkagon sem bæði myndast í briskirtlinum. Insúlín er nauðsynlegt til að frumur líkamans geti tekið upp og nýtt sér glúkósa og veldur því lækkun blóðsykurs, glúkagon veldur hins vegar losun glúkósa úr sykurbirgðum líkamans og hækkar þannig blóðsykurinn. Þrátt fyrir þessa öflugu stjórnun er eðlilegt að blóðsykurinn hækki tals- vert eftir máltíð en lækki þess á milli. Ef líkaminn býr við mikinn sykurskort getur lifrin búið til syk- ur úr próteinum og fitu. Stjómun sykurefnaskipta líkamans getur raskast á ýmsan hátt og leitt til ' þess að blóðsykurinn verði of hár eða of lágur en við það koma fram ýmis óþægindi. Ef blóðsykurinn verður of hár fer sykur að skiljast út í þvagi, við það eykst þvagmagn- ið og því fylgir þorsti og einstak- lingurinn léttist. Þetta geta verið fyrstu einkenni sykursýki. Sykur- sýki er af tveimur megingerðum, insúlínháð sykursýki, sem oftast byrjar fyrir 30 ára aldur, og fullorð- ins sykursýki, sem oftast byrjar eft- ir 30 ára aldur. Sykursýki er með- höndluð með mataræði, lyfjum og hæfilegri hreyfingu og miðast með- ferðin við að halda blóðsykrinum sem næst því að vera eðlilegur. Blóðsykur getur líka verið of lágur og getur það stafað af þekktum sjúkdómum eða af óþekktum ástæð- um. Sjúkdómsástand sem getur valdið of lágum blóðsykri era m.a. afleiðingar skurðaðgerða á efri hluta meltingarfæra, meðfæddir efnaskiptasjúkdómar og æxli sem framleiða insúlín. Einnig geta nokk- ur lyf og efni valdið lágum blóðsykri og má þar nefna aspirín og skyld lyf, própranólól (betablokki), áfengi o.fl. Algengasta ástæðan fyrir of lágum blóðsykri er þegar sykur- sýkisjúklingar taka of stóra skammta af sýkursýkilyfjum. Lág- ur blóðsykur veldur margvíslegum óþægindum, m.a. frá miðtaugakerfi og stundum meðvitundarleysi. Ein- kennin era skjálfti í höndum, svimi, svitnun, svengdartilfinning, höfuð- verkur, hjartsláttur, föl húð, skyndilegar geðsveiflur eins og t.d. ástæðulaus grátur, klunnalegar hreyfingar, athyglisskortur og sviði eða fiðringur umhverfis munninn. Þessi einkenni eru oft verst nokkram kiukkustundum eftir mál- tíð. Sé áfengis neytt á fastandi maga getur það valdið blóðsykurs- lækkun með tilheyrandi einkennum sem nærstaddir mistúlka gjaraan sem mikla áfengisvímu. Þeir sem fá óþægindi af of lágum eða of háum blóðsykri þurfa að leita læknis til að fá rétta sjúkdómsgreiningu. Síðan þarf að gera ráðstafanir sem miðast að því að halda blóðsykrinum sem mest innan eðlilegra marka. Þeir sem era með sykursýki þurfa að lifa reglusömu lífi og finna rétt jafnvægi milli fæðu, lyjaskammta og hreyf- ingar. Þeir sem fá óþægindi vegna lágs blóðsykurs þurfa oft að temja sér breytt mataræði og breyttar matarvenjur. Mikilvægt er að borða fjölbreyttan og hollan mat og minna í einu en oftar; t.d. mætti fjölga máltíðum úr 2-3 í 5-6 minni máltíðir yfir daginn. Fyrir þá sem fá lágan blóðsykur án þess að taka sykur- sýkilyf er freistandi að taka inn syk- ur til að bæta ástandið. Þetta er mjög óheppilegt, sykumeysla veld- ur skyndilegri og mikilli hækkun á blóðsykri, við það eykst insúlín- framleiðsla með þeim afleiðingum að nokkru síðar verður blóðsykur- inn ennþá lægri en í byrjun. Mun heppilegra er að neyta sykurs á formi fjölsykra (kolvetna) eins og þeirra sem era í kommat, t.d. brauði. ÞJÓÐLÍFSMNKAR // w ) verður það næst? Kossar ágirndarinnar „ÉG ER ekki ein af þeim sem alltaf vilja vera að skrifa í blöð en mér fyndist ástæða til að koma á framfæri andúð á því tiltæki að láta fólk kyssa bíla til þess að reyna að eignast þá - mér finnst þetta ógeðsleg hugmynd hjá for- ráðamönnum bílafyrirtækis,“ sagði gáfuð og vel menntuð kona í samkæmi sem ég sat um daginn. Allar sex konumar sem í þessu samkvæmi voru kváðust algerlega vera á móti svona tiltækjum og raunar finnast þau lítils- virðandi fyrir þá sem í þeim tækju þátt. „Mér finnst stórandarlegt að frétta- mennimir sem sögðu frá þessum langdregnu bílakossum skyldu ekki sýna þess nein merki að þeim þætti þetta óeðlilegt," bætti fyrmefnd kona við. Við nánari umhugsun er ýmislegt undarlegt við þetta auglýsingatiltæki. A Ifyrsta lagi er þetta óvenjulegt vegna þess að þama var komið á einskonar „líkamlegu" sambandi milli bíls og mannveru. Ég hef þekkt marga menn um dagana sem hafa haft ást á bíl- n eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur um en engmn þeirra mér vitan- lega hefur þó gengið svo langt að kyssa bíl. Hingað til hafa jafnvel mestu bílaaðdá- endur látið duga að strjúka lauslega yfir gljáfægt lakk hins elskaða bíls. Nú er sem sé brotið blað, það er staðreynd að fólk er tilbúið til að kyssa bíl langtímum saman í von um að eignast umræddan grip. Með bólgnar varir og stirða liði máttu allir þátttakendur bflkossakeppn- innar nema einn bíta í það súra epli að fá ekki bílinn. Frekar ömurleg lífsreynsla. Það er tvennt sem fólki sýnist oft sérlega skeinuhætt, það að láta hégómleikann teyma sig á asnaeyranum og svo hitt að ágimd- in taki af því ráðin. í þessu tilviki virðist það hafa verið ágimdin sem réð ferðinni. Við höfum raunar áður orðið vitni að svipuðu - það var þeg- ar fólki var boðið að fá síma gefins ef það mætti nakið á staðinn. Sumir gerðu þetta og fengu síma, en hvort þeir gerðu þetta af ágimd eða hé- gómagimd er ekki alveg jafn vist. Hitt má telja víst að nú arka þeir hinir sömu um allar götur og spjalla í símana sína. Kannski sjá þeir á ferðum sínum bregða fyrir konu sem ekur um götur í bfl sem hún eignaðist með því að kyssa hann lengur en aðrir „keppendur" í bíl- kossakeppni? Því lengur sem ég hugsa um þetta atvik því furðulegra finnst mér það. Ég hef oft undrast hve ágirndin getur teymt fólk langt. Ætla má að ekki aðeins hafi ágirnd átt þátt í að fólk tók þátt í um- ræddri keppni heldur líka að henni var komið á laggirnar. Ég á bágt með að trúa að fólk kyssi bfla lang- tímum saman bara af því að það langi svo til þess. Ég á líka bágt með að trúa að fyrirtæki gefi bfla þeim sem fást til kyssa þá lengi án þess að eitthvað búi á bak við annað en góðsemin eintóm. Ég er ekki viss um að þetta sé góð leið að fara út á og finn til efasemda um að siðferði- lega samrýmist þetta „vönduðum“ viðskiptaháttum. Það er eitthvað ógeðfellt við þetta, hvort sem hugs- að er um þá sem kysstu bflinn eða þá sem buðu þeim til keppninnar. Hvað ætli það verði næst? Kannski býður einhver samborgurum sínum til keppni í hver geti lengst enst við að sleikja bflrúður, sjúga gírstangir, nudda afturendanum upp við aftur- stuðara og hvaðeina sem hægt vasri að láta sér detta í hug að gera. Ég ætla ekki að fara lengra út í þessa sálma, en tek bara undir lokaorð konunnar í samkvæminu: „Það er eitthvað „sick“ við þetta.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.