Morgunblaðið - 18.08.1999, Side 11
Sjónvarpið hefur nú tekið til
sýninga síöustu þáttaröðina
um lögregluforingjann Derrick,
félaga hans Klein og þá kyn-
legu kvisti sem verða á vegi
þeirra þegar þeir leysa hverja
morðgátuna á fætur annarri.
Fyrstu þættirnir um Derrick
voru gerðir árið 1974 og var
síöasta þáttaröðin, sú sem
sýnd verður í sjónvarpinu nú,
gerð f fyrra og voru þættirnir
því framleiddir í 24 ár sam-
fleytt. En nú er sagan um
Derrick öll og ástæða þess er
sú að aöalleikara þáttanna,
Horst Tappert, fannst mál til
komið að kalla þetta nóg.
Tappert er oröinn 76 ára gam-
all og átti hann við nokkur
veikindi að stríða um tíma en
mun hafa náð sér sæmilega
af þeim.
Þættirnir um Derrick hafa
náð mikilli útbreiöslu og vin-
sældum út um allan heim og
eru líklega allra þekktustu
þýsku sjónvarpsþættirnir utan
Þýskalands, en þeim er dreift
til nær hundrað landa. Það
hefur komið Þjóðverjum heidur
á óvart hversu góðar viðtökur
Derrick aftur í
sjónvarpinu
þættirnir hafa fengið erlendis
og finnst þeim í raun sniðugt
að sú mynd sem mjög margir
útlendingar hafi af mannlífi í
Þýskalandi sé dreginn upp af
aöstandendum þáttanna um
Derrick. Gerður var sjónvarps-
þáttur í Þýskalandi um vin-
sældir og útþreiðslu Derricks.
Þar voru sýnd brot úr Derrick
Horst
Tappert er
íslandsvin-
ur, en hann
hefur kom-
Ið í frí hing-
að til
lands. Hér
er hann
heima hjá
sér með
konu sinni,
Ursulu.
ira.is
Á NETINU
FRÁ
--- REYKJAVÍK
meö japönsku tali og fjallað
um aðdáendaklúbba hans í
Brasilíu og víðar.
Þættirnir hafa líka þó nokk-
uö gildi fyrir þýskukunnáttu
fólks og hafa þættirnir verið
sýndir í kennslustundum í
þýsku, meöal annars T fram-
haldsskólum hér á landi. Þó
aö Derrick og Klein búi og
starfi í Múnchen þar sem aðal-
lega mun vera töluð
bæverska, þá tala þeir og
flestir sem verða á vegi þeirra
þýsku sem auðvelt er að skilja
og finnst mörgum þættirnir vel
til þess fallnir að viöhalda og
auka við þýskukunnáttuna. Er
það ekki amalegur kaupbætir,
þó að sumum aödáendum
hins geðþekka og ráðagóða
lögregluforingja finnist stund-
um kannski nóg um hversu
„glæpalegur" þýskur orðaforði
þeirra sé orðinn.
BÆJARLIND 6 200 KÓPAVOG! Sfmi: 554 6300 Fax: 554 6303
•X<v° > OPID
11:00-02:00
sunnud - fimmlud
58 12345 11:00-05:00
www.daminas.is föslud. - taugmi
1969-1999
30 ára reynsla
Hert gler
Öryggisgler
GLERVERKSMIÐJAN
Sawi/c/*k
Eyjasandur 2 • 850 Hella
® 487 5888 • Fax 487 5907
11