Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 26
Qeíur sjónuarpsáhorf stuðlað að bættu heilsufari? Sjónvarpsfíklum komið í form SÚ hugmynd virðist æði lífseig að þeir sem horfa mikið á sjónvarp séu meiri og mýkri um sig en æski- legt væri. Gengur þessi orörómur svo langt að talað er um sófadýr og sjð þá flestir fyrir sér fölan og skvapmikinn mann hálfliggja í sófanum með stofuboröið þakið poþpi og alls kyns sælgætisbréfum ð meö- an sjónvarpsdagskráin er inn- byrt. Til að reka slyðruoröiö af þeim sem stunda þá símennt- un sem sjónvarpsáhorf vissu- lega getur verið var haft sam- band við Ágústu Johnson í Hreyfingu og hún spurð hvernig hinn áhugasami sjónvarpsnot- andi geti stundaö þetta áhuga- mál sitt og á sama tíma komist í gott form. LÍTIL HREYFING BETRI EN ENGIN Ágústa sagði aö þrátt fyrir að vissulega væri ráðlegra að stunda reglubundna lík- amsrækt væri samt lítil hreyfing betri en engin og víst væri hægt að þjálfa sig á meðan horft væri á sjónvarp- ið. Aöspurö hvort prjónavinna þjálfaöi einhverja vöðva segir Ágústa það fremur ólíklegt. „Það er nú frekar talað um vöövabólgu eftir prjónaskapinn en að einhverjir vöövar séu að þjálfast," segir hún létt í bragði. - Hvaö um armbeygjur? Ágústa hlær nú bara að þessari uppástungu. „Arm- beygjur eru fullerfið æfing til að gera fyrir framan sjónvarps- tækið og ekki víst að sjón- varpsefniö kæmist vel til skila. Hins vegar geta líkamsræktar- tæki eins og þrekhjól til dæm- is nýst vel og eins og sjá má ð mörgum líkamsræktarstöðvum í dag eru sjónvarpstæki í tækjasölunum til aö stytta fólki stundirvið æfingarnar." HOLLARA SNARL Nú hættir mörgum sem mik- ið horfa ð sjónvarp til að nasla ótæpilega fyrir framan tækiö og er oft gripiö til þess að fá sér popþkorn, kartöflu- flögur og sælgæti sem síðan er skolað niður með gosdrykk. Þetta fæöi býður upp á að setan við sjónvarpiö hafi eftir- mála sem sést berlega á vigt- inni. „Það er allt í lagi aö fá sér popp, til dæmis létt örbylgju- popp, ef það er ekki á hverjum degi,“ segir Ágústa. Hún mælir einnig meö því að gosdrykkirnir séu látnir eiga sig og fólk drekki íslenska vatnið sem er allra meina bót. „Niöurskorið grænmeti með salsasósu er líka ágætur kostur og hitaein- ingarýr." SEX ÆFINGAR Ágústa segir aö afleitt sé ef þeir sem mikið horfi á sjón- varþ hangi í slæmri líkams- stöðu allan tímann. „Fólk þarf að vera sér meövitað um mik- ilvægi góðrar líkamsbeitingar og mikilvægi þess að hreyfa sig til að halda góðri heilsu. Öll hreyfing er betri en engin." Ágústa segir að margar æf- ingar komi til greina þegar horft er ð sjónvarp. Hægt sé að gera léttar gólfæfingar og síðan séu til hentugar æfingar fyrir þá sem sitja í sófa. Þær síöarnefndu ættu að geta nýst vel við sjónvarpsáhorfiö og fylgja þær því hér á eftir, en Svanbjörg Helena Jónsdótt- ir var fengin til að sýna hvern- ig æfingarnar eru geröar. 26

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.