Morgunblaðið - 15.09.1999, Blaðsíða 15
□ FóMc
Konan bakvið
þægilegu röddina
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir þulur.
I eldhúsinu er verið að elda
kvöldveróinn. í útvarpinu heyr-
ist þægileg kvenmannsrödd
flytja tilkynningarnar: Dánar-
fregnir og jarðarfarir... Röddin
sem flytur tilkynningarnar ger-
ir meira en maður gæti í
fyrstu haldiö, því svo samofin
er hún orðin heimilishaldi
margra heimila á landinu að
án hennar væru eldhússtörfm
ekki svipur hjá sjón. Það fylgir
röddinni öryggi sem staðfestir
að heimurinn virðist í það
minnsta hafa einhvern stöð-
ugleika. Það sé hægt að
treysta því að tilkynningar
komi á undan fréttum og lífið
muni ganga sinn vanagang.
Raddir þulanna eru orönar
hálfgeróir heimilisvinir þrátt
fyrir að fæstir geti tengt and-
lit við raddirnar.
ÞEKKIST OFT AF RÖDDINNI
í útvarpinu eru fjórir þulir,
þau Ragnheiður Ásta Péturs-
dóttir, Gerður G. Bjarklind,
Sigvaldi Júlíusson og Einar
Örn Stefánsson. Ragnheiður
Ásta hefur verið þeirra lengst
í starfi þuls en hún hóf störf
snemma á árinu 1962. „Ég
er búin að vinna í útvarpinu
næstum því jafn lengi og
elstu menn muna,“ segir
Ragnheiður Ásta og hlær.
- Lendirðu oft í því að fólk
þekkir þig af röddinni?
„Ég upplifi það mjög oft að
fólk sýni mér vinsemd ef það
þekkir mig af röddinni. Það
sem hefur komiö mér
skemmtilega á óvart er að
margir af ungu kynslóðinni
þekkja mig úr Útvarpinu."
- Nú gera margir sér mynd
af manneskjunni bakvið rödd-
ina. Hefur fólk sagt þér að
það hafi gert sér aðra mynd
af þér í huganum?
„Ég held að fólk sé svo
kurteist að það er ekkert aó
minnast á þaö. Hins vegar
man ég eftir því að kona ein
sagði eitt sinn við mig að hún
hefði alltaf séð samstarfs-
mann minn og vin til margra
ára, Jóhannes Arason, fyrir
sér sem hávaxinn mann en
hann myndi nú frekar teljast
nettur rnaður," segir Ragn-
heiður kímin.
BÖLLIN BÖNNUÐ
- Eru einhverjar skemmti-
legar tilkynningar sem sitja í
minningunni frá þessum far-
sæla ferli?
„Ég man fjöldann allan af
skemmtilegum tilviikum. Ég
man til dæmis eftir því að
lengi vel var bannað í útvarp-
inu að auglýsa ball. Það var
haldið að ef minnst væri á
ball væri dottið í það. Mér
fannst mjög skemmtilegt þeg-
ar ein stúlka af auglýsinga-
deildinni breytti auglýsingu
sem hljóðaði svo: Húrra nú
ætti að vera ball! og setti f
staðinn Húrra nú ætti að vera
dansleikur! Þetta fannst mér
afskaplega fyndiö og ég gerð-
ist nú svo djörf að halda mig
við frumútgáfuna."
- Það hefur enginn hama-
gangur fylgt í kjölfarið?
„Nei, nei, ekki í það skipt-
ið," segir Ragnheiöur Ásta og
hlær.
- Þú hefur aldrei fiþast við
lesturinn?
„Nei, ég held ég sé nú bet-
ur læs en svo. Ég held að
það ætti ekki að ráða annaö
fólk til að lesa í útvarp annað
en það sem hefur góða rödd
og er orðió vel læst strax
sem smábörn. Ég var oröin
læs sem smábarn og hef ver-
ió fluglæs síðan. Aftur á móti
hef ég einu sinni lent í því aö
hlæja mikiö í útsendingu og
þaö var út af sérkennilega
oröaöri auglýsingu sem hljóð-
aði svo: Losiö ykkur við um-
framþungann. Mér fannst
þetta mjög hlægileg auglýsing
og átti erfitt með að hætta
að hlæja."
- Þú átt margar skemmti-
legar minningar?
„Já. Öll þessi ár sem ég
hef unniö á Útvarpinu eru
smám saman að umbreytast
í skemmtilegar minningar."
Játvarður
með mynd
um ömmu
• Aldarlöng ævi
bresku drottning-
armóöurinnar
Elísabetar verður
efniviður sjón-
varpsmyndar sem
framleidd verður
af dóttursyni henn-
ar, Játvarði prinsi. Fyrirtæki
hans, Ardent Prods., gekk nýver-
iö frá samningi við NBC um gerð
þáttanna. Þetta eru ekki einu
eggin í körfu hans hátignar þvf
hann er einnig að framleiða
þætti um konungsfjölskylduna
fyrir kapalrásina E! sem nefnast
„Royalty A-Z“ og klukkutíma lang-
an þátt fyrir CBS um gulu press-
una sem Windsor-fjölskyldan
ætti að vera farin að gjörþekkja.
—★★★—
Heimsóknir
í þætti
• I gamanþáttum
vestanahafs er
það vinsælt að
gestir úr öðrum
þáttum líti í heim-
sókn, jafnvel sem
þeir sjálfir. Mel
Gibson mun t.d.
koma fram í Simpson í eigin
persónu og Meryl Streep fer í
heimsókn til fjölskyldunnar í
King of the Hill, ásamt Heather
Locklear og kántrýsveitinni Dixie
Chicks. I þætti Pamelu Anderson
Lee V.I.P. mun eiginmaðurinn,
Tommy Lee, verða gestaleikari.
——
Nyjar ráðgát-
ur í vændum
• Tveir handritshöfunda og
framleiðenda Ráögátna hafa
samiö við Draumasmiðjuna og
NBC-sjónvarpsstöðina um að
búa til nýja sjónvarpsþætti.
Tvíeykið Glen Morgan og Jim
Wong mun einnig framleiða sjón-
varpstrylli Draumasmiðjunnar
Hinir. Þeir eru orðnir sérfræðing-
ar í þáttagerð sem fæst við hið
yfirnáttúrulega enda komu þeir
einnig við sögu í gerð þáttanna
„Millenium". Þá skrifuðu þeir
handritið að tryllinum „Right
180" sem Wong leikstýrði.
15