Morgunblaðið - 15.09.1999, Síða 23

Morgunblaðið - 15.09.1999, Síða 23
□ Þættir Qeðlæknir t kreppu Eftir að hinum ofurvinsælu þáttum „Cheers" lauk fóru flestir úr leikarahópnum í sína áttina hver. Kelsey Grammer, sem lék eina af vinsælustu persónum þáttanna, geðlækninn Frasier Crane, fékk hins vegar tilboð um að flytja persónu sína til Seattle og byrja í nýrri þáttaröð sem snerist um Frasier sjálfan og fólkið í lífi hans. í fyrsta þætt- inum sem ber nafnið „The Good Son“ kynnir hann sig á þessa leið fyrir hlustend- um útvarþs- þáttarins, sem hann stjórnar, og um leið áhorfendum: „Fyrir sex mán- uðum bjó ég í Boston. Konan mín hafði yfirgefið mig sem var mjög sársaukafull upplif- un, síðan kom hún aftur til mín sem var óbærilegt. Ekki bætti það úr skák að þaö hall- aöi undir fæti hjá sálfræði- stofu minni og félagslíf mitt snerist um það aö hanga á sama barnum kvöld eftir kvöld. Ég hélt dauöahaldi í líf sem gekk ekki upp lengur og ég vissi að ég varö að gera eitthvaö, hvað sem er. Svo ég batt enda á hjónabandið, pakkaði niður í töskur og flutti aftur hingað til fæöingarstaðar míns, Seattle. Áfram Sea- hawks!" Strax í fyrsta þættin- um kynnumst við þeim per- sónum sem verða undirstaða næstu sex ára að einni mest verölaunuðu og vinsælustu gamanþáttaröö sem gerðar hefur verið. Má sem dæmi nefna að þættirnir hafa unniö 5 ár f röð Em- my-verðlaunin fyrir bestu gamanþátta- röð. Þótt mörgum finn- ist Frasier vera hroka- gikkur og menningar- snobbari kemur í Ijós að yngri bróö- ir hans, Ni- les, sem leikinn er stórkost- lega af David Hyde Pierce, er litlu skárri. Bræðurnir eru sí- fellt að reyna að metast um hvor þeirra sé fremri f geðlæknar og menningunni og eru samtöl þeirra uppfull af tvíeggja svörum og hárbeittri kímni. Algjör andstæöa viö bræðurna er faóir þeirra, Mart- in, leikinn af John Mahoney, en hann er fyrrverandi lög- reglumaður sem hætti störf- David Hyde Pierce og Kelsey Grammer um vegna skots sem hann varð fyrir. Besti vinur hans er hundurinn, Eddie, og uppá- haldsstaðurinn er gamli hæg- indastóllinn hans. Þegar Mart- in flytur inn til Frasiers ákveð- ur sonurinn að þaö þurfi ein- hvern til þess að sjá um gamla manninn og ræöur til þess Daphne, sem leikin er af Jane Leeves. Daphne hefur skrftnar skoöanir á heiminum og er oft á öndverðum meiði við heimspekilegar vangaveltur Crane-bræðranna, en Niles veröur á svipstundu ástfang- inn af henni en í þau ár sem þættirnir hafa gengiö hefur hún ekki tekiö eftir neinu, þótt hún segist vera skyggn. Aörar persónur í þáttunum eru Roz, leikin af Peri Gilpin, en hún er framleiöandi þáttanna sem Frasier sér um. Roz er vergjörn kona og hefur ákveðn- ar skoöanir á samskiptum kynjanna sem fara oft í taug- arnar á Frasier, en þau eru ávallt til staöar fyrir hvort ann- að og þegar líður á þættina kemur Roz meira og meira inn í fjölskylduna en bara sem vin- ur. Síðastan ber aö nefna Bull- dog, leikinn af Dan Butler, og er hann stjórnandi íþróttaþátt- ar sem kemur á eftir þætti Frasiers í dagskránni. Bulldog er eins og margar persónur þáttanna gott mótvægi við hroka Frasiers og er hann holdgervingur karlhormónsins, á meðan Frasier leitar á slóöir hinna sfgildu elskhuga. Ríkis- sjónvarþið er nú að hefja sýn- ingar á sjöttu þáttaröðinni um geölæknirinn og endaði sú síöasta á að Frasier var rekinn úr starfi sínu á útvarpsstööinni og fjalla næstu þættir mikiö um tilraunir hans til að hefja nýtt Iff án frægöarinnar sem hann hafði búið við svo lengi. 23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.