Morgunblaðið - 15.09.1999, Page 29
Dustin Hoffmann
Sir Laurence Olivier
Með hjartað á
réttum stað
Kvikmyndin The Marathon
Man eftir John Schlesinger
verður á dagskrá Sjónvarpsins
föstudaginn 17. september kl.
22.10. Margir eiga eflaust eft-
ir aö hlakka til að sjá þá mynd
þar sem tveir skemmtilega
ólíkir leikarar fara með hlut-
verk; Dustin Hoffmann og Sir
Laurence Olivier.
Edda Björgvinsdóttir leik-
kona sagði okkur eina góða
„dæmigeröa leikarasögu" frá
upptökutíma kvikmyndarinnar.
„Eitt sinn þegar Dustin
Hoffman átti að vera mjög illa
haldinn af þreytu og stressi f
einu atriöi, mætti hann ósof-
inn í tökur. Þá sagöi Sir
Laurence Olivier við hann: „Af
hverju leikurðu það ekki bara,
elsku drengurinn. [Why don’t
you just act it, dear boy.j
Dustin Hoffman var nefni-
lega af hinum svokallaða að-
ferðaskóla Lee Strasberg, þar
sem fólk kafar inn í sjálft sig
eftir efniviö í persónur sínar,
en Sir Laurence Olivier var af
gamla breska tækniskólanum
þar sem menn trúðu á listina
að leika, og sóttu þá frekar
efnivið í umhverfið.
- Hvað finnst þér um aö
einn leikari geri þannig lítið úr
aöferðum annars?
„Hann var bara hissa á að
menn skyldu vera aö leggja
það á sig að koma ósofnir og
illa fyrir kallaðir í vinnuna. En
Sir Laurence Olivier náði betur
en nokkur annar að skaþa trú-
veróugar persónur. Þá er
sama hvort maöur byrjar að
utan eða innan; mestu máli
að skiptir enda með hjartaö á
réttum stað og það gera þeir
báðir, finnst mér.“
- Hvorn þeirra heldur þú
meira upp á?
„Ég elska Sir Laurence Olivi-
er.“
- Hefurðu séð myndina?
„Já, mér finnst ofboöslega
gaman að henni, og gaman að
sjá þessa tvo leikara saman,
mér finnst báðir mjög
skemmtilegir."
KASMÍR - SILKI
MERINOULL
frá John Lmng
Vorö frá kr. 2.900
Siökjöl.'ir fr.iAKILI.LA
Vorö fr.i kr. 7.900
[i
issa tískuhús
Síml 562 5110
Kona í uppreisn
gegn samtímanum
Á Stöð 2 verður bíómyndin
Tom & Viv sýnd fimmtudaginn
23. september kl. 13.00 og
kl. 22.50. Þar segir frá skáld-
inu T.S. Eliot og sambandi
hans við eiginkonu sína Vi-
vienne Haigh-Wood sem ekki
gekk alveg heil til skógar and-
lega.
Jóhann Hjálmarsson rithöf-
undur er mikill aðdáandi
skáldsins og áhugamaður um
samband þeirra hjóna og segir
hann eftirfarandi um kvik-
myndina:
Erfiðleikar Viv voru miklir.
Hún var kona f uppreisn gegn
borgaralegum lífsháttum og
uppreisnin beindist ekki síst
gegn eiginmanninum. Fem-
inistar vilja kenna Eliot um
ófarir hennar ásamt læknis-
fræöilegri vankunnáttu á þess-
um tímum. Samkvæmt nýleg-
um ævisögum er höfnun hans
á henni að nokkru réttlætt
með því að hún hafi í tíma og
ótíma auðmýkt skáldið, í ein-
rúmi og í viöurvist annarra, tal-
að niður til hans og gert lítið
úr honum. Þetta hafi verið
Eliot óbærilegt, og hann hafi
þess vegna neyöst til að snúa
baki við henni. Annars var
Eliot mótsagnakenndur maður
og kvennamál hans áttu m.a.
eftir að koma á óvart. Hann
kvæntist t.d leynilega og í flýti
ungum ritara sínum, þegar
menn héldu að annarrar konu
biði það sæti.
Kvikmyndin er góð og gefur
hugmynd um yfirstéttarlegt
bókmenntalíf á Englandi, og
sýnir baráttu manns við að
koma reglu á líf sitt með hjálþ
trúarinnar. Leikur er yfirleitt
mjög góður.“
Það eru Willem Dafoe og
Miranda Richardson sem fara
meö aðalhlutverkin, og var
hún tilnefnd til Óskars-,
BAFTA og GoldenGlobe verð-
launanna fyrir frammistööu
sína. Aðrir leikarar eru Ros-
emary Harris, Tim Dutton,
Nickolas Grace og Philip
Locke. Handritið er byggt á
vinsælu leikriti eftir Michael
Hastings en hann skrifaði
handritið ásamt leikstjóranum
Brian Gilbert.
29