Morgunblaðið - 13.10.1999, Síða 14
69,90 mínútan á Bylgjunni
Á Bylgjunni hljómar nú dag-
lega nýtt framhaldsleikrit eftir
Súsönnu Svavarsdóttur sen
nefnist 69,90 mínútan. Leikrit-
ið er flutt kl. 9.30, endurtekið
kl. 12.20 og síðan eru aliir
fimm þættir vikunnar fluttir
saman á sunnudagseftirmið-
dögum.
„Það geta allir haft gaman af
þessu sem hafa gaman af því
að sjá sjálfa sig og aðra í kóm-
ísku Ijósi,“ segir höfundurinn.
„Leikritiö fjallar um hjón
sem eru á kafi í skuld-
um, og það er eiginlega
allt að í þeirra lífi. Hjóna-
bandið líður auðvitaö fyr-
ir það og ástarlífið er
ekki upþ á marga fiska.
Auk þess viröast þau
vera með alla á bakinu;
fyrn/erandi eiginkonu
hans og mömmu henn-
ar, börnin frá fyrra hjóna-
bandi eru I skralli og
þau losna aldrei við
neinn."
ALLT í SKRALLI
Það eru Edda Björg-
vinsdóttir og Hilmir
Snær Guönason sem
leika hjónin Donnu og
Jonna, sem Súsanna seg-
ir vera dæmigerð íslensk hjón.
„Það eru allir í bulli í fjármál-
um, það er endalaust hægt að
fá lán, bjarga öllu fyrir horn, og
fólk er almennt búiö að tapa
raunveruleikaskyninu í fjármál-
um hér á íslandi. Donna og
Jonni eru bæði kaupsjúk og
alltaf að kaupa eitthvað sem
þau þurfa ekkert á að halda.
Og svo þegar allt er komiö til
andskotans hjá þeim, þaö á
að fara að bjóöa uþþ húsið og
annaö slíkt, þá dettur henni í
Ódýr
meðöt til
að redda
hlutunum
hug að stofna klámsímalínu.
Enda er hún algerlega upptek-
in af útliti sínu og kynlífi."
- Og leikritið er þá með eró-
tísku ívafi?
„Já, en það er bara veriö að
gera grín að erótík í þessum
þáttum. Erótík og kynlífsáhugi
landsmanna er tekinn fyrir og
undinn. Þau hjónin eru engan
veginn sammála um hvernig
eigi aö reka símalínuna frekar
en nokkuð annað, en hún hef-
ur alltaf rétt fyrir sér, því hún
er meö mömmu sína og vin-
konu sína sér til stuönings. En
það eru einkenni vinkvenna að
spana mann upp í vitleys-
unni."
AFNEITUN OG
RAUNVERULEIKAFIRRING
- Er þetta fullorðinsleikrit
þar sem hægt er að hiæja að
sjálfum sér?
„Já, þetta er farsi og ég er
fýrst og fremst að gera grín að
eyösluseminni í okkur, þessari
afneitun á staöreynd-
um og þessari raun-
veruleikafirringu sem
viö búum ansi miklð
við hérna á íslandi.
Hjónabandið hjá þeim
er í klessu en þau
gera sér enga grein
fýrir því. Það er alltaf
verió aö finna einhver
ódýr meðöl til aö
redda hlutunum. Þau
taka ekkert alvarlega
og eru ekta afleiöing
af ‘68 hugsjóninni
sem virðist hafa eyði-
lagt ansi mikið sem
heitir tryggð eða trún-
aður og heiöarleiki f
samskiptum. Þau
hafa enga tilfinninga-
lega dýpt og áhyggjur virðast
vera eina tilfinningin sem
vaknar hjá þeim."
- Þetta er nú ekkert gaman-
mál. Er þetta ekki örugglega
grín?
„Þetta er náttúrlega hrein-
ræktað grín. Og kannski er
eina leiðin til að segja hlutina í
gegnum grínið. Fólk ræður
hvort það tekur þetta alvarlega
eöa hvort það lítur á Jonna og
Donnu sem einhver fyrirbæri.
En ég held að það sé býsna
mikið til af svona fólki."
- Er þetta fyrsta útvarpsleik-
ritið sem þú skrifar?
„Já, en ég er alltaf að skrifa
mér til skemmtunar, og þess
vegna helst gamanverk. Mér
finnst bara miklu meiri húmor í
mér en alvara og ég er ekki
mjög dramatísk manneskja. En
ég læt yfirleitt ráðast hvað úr
því verður. Mér liggur ekkert á.
Síðasta leikáriö eða bókaút-
gáfuárið er ekki að líða og ég
hef engar áhyggjur af þessu.
Ég skrifa það sem mér finnst
skemmtilegt að skrifa.
Kannski kemur eitthvað út úr
því, kannski ekki."
Laus og
liðugur
• Hjartaknúsar-
inn George Cloo-
ney er nú laus
og liðugur eftir
að kærasta
hans til fjögurra
ára, Celine Ba-
litran, sagði hon-
um upp á dögunum. Clooney
sagði í viðtali í októberhefti
Esquire að hin franska Balitr-
an hefði verið orðin leið á pip-
arsveinatöktum hans og fjar-
veru vegna upptakna á mynd-
um. „Hún entist í sambandinu
jafn lengi og ég hafði gert ráð
fyrir," segir Clooney í viðtali.
„Ég upplifði sambandsslitin
eins og hún hefði sagt við
mig: Ég vil ekki vera meö
þessa uppgerö lengur."
Þó virðist Clooney ekki
gráta ofan í bjórinn sinn því
nýlega sást til læknisins
fyrrverandi af Bráðavaktinni á
bar í New York í fylgd tveggja
dökkhærðra þokkagyðja.
—-k-k-k—
Dómsdagur
Howards Stern
• Howard Stern
mun fara meó
aðalhlutverk og
framleiöa 13
þátta teikmynda-
myndaröð með
yfirskriftinni
„Dómsdagur"
fyrir UPN. Gerast þættirnir eft-
ir ragnarök í Bandaríkjunum
þar sem allir höfðu nær látið
lífið eftir furðulegt geislavirkn-
islys. Er fylgst með feröalagi
Bradley-fjölskyldunnar um
landið í leit aö nýjum stað til
að kalla „heimili". Stern mun
tala inn á fyrir fjölskylduhund-
inn Orinthal og er það viróing-
arvottur við eftirlætis sögu-
persónu hans, O.J. Simpson.
Framleiöendurnir stefna að
því að kvikmyndastjörnur
verði algengir gestir í þáttun-
um og að þættirnir verði til-
búnir á næsta ári.
Morgunblaðið/Ásdís
Súsanna Svavarsdóttir er höfundur framhalds-
leikrits á Bylgjunni.
14