Morgunblaðið - 13.10.1999, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.10.1999, Blaðsíða 23
Nýr liðsstjóri t... Petta helst Sérstakt að koma fram í eigin persónu .Spurningaþátt- urinn ... Þetta helst hefur veriö á dagskrá Sjón- varpsins tvo síö- astliðna vetur við miklar vin- sældir áhorf- enda. Leikurinn verður endurtek- inn f vetur með svipuöu sniði og er umsjónar- maður þáttarins sem fyrr Hildur Helga Sigurðar- dóttir. í fyrra hafði Hildur Helga sér til fulltingis liðsstjór- ana Björn Brynjólf Björnsson kvikmyndagerðarmann og Ragnhildi Sverrisdóttur blaöa- mann og fengu þau til sín nýja keppendur í hverjum þætti sem spreyttu sig á fréttaget- raun og slógu á létta strengi. Nú hefur nýr liðsstjóri tekið við af Ragnhildi, þar sem hún er farin utan til náms, og er það leikkonan góðkunna, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. FYRSTA UPPTAKAN PRÓFSTEINN „Þetta leggst vel f mig en ég er frekar kvíðin," viðurkenn- ir Steinunn Ólína. „Fyrsta upp- takan verður á morgun [6. októþerj og hún verður próf- steinn á hvort það veröur það síðasta eða hvort ég fæi að halda áfram," bætir hún við og hlær. í fyrra sem í ár var þátturinn á dagskrá á fimmtudagskvöld- um en þá var Steinunn Ólína oft upptekin á leiksviöinu og missti því gjarnan af þættin- um. „Svo gæti einnig farið í vetur," segir hún. „En ég hef rennt yfir eldri þættina og haft ansi gaman af." - Nú fetar þú í fótspor Ragnhitdar Sverrisdóttur. „Nei, ég feta nú varla í fót- Steinunn Olína verður á sjón- varpsskjánum á fimmtudög- um í vetur. spor hennar. Við verðum aldrei eins og ég hef heldur ekki hugsaö mér að reyna að leika hana," segir Steinunn Ólína og hlær. - Spurt er um frétta- tengt efni í þættinum, fylgist þú vel með fréttum? ,,Já, ég reyni að gera það. Ég les Moggann og önnur blöð sem ég kemst í á morgnana en oft safnast þetta upp og ég ligg í þessu um helgar. Það fer allt eftir því hvað ég hef mikinn tíma. En núna verð ég að gefa mér góðan tíma á hverjum degi til að lesa blöðin." FALIÐ SIG Á BAK VIÐ LEIKINN - Hvernig líst þér á aö veröa vikulegur gestur í stofum landsmanna? „Það verður svolítið sér- stakt þvf að í minni vinnu hef ég yfirleitt getaö faliö mig á bak við það að vera að leika en í þættinum mun ég koma fram I eigin persónu sem er allt annaö mál. Ég er lítið reynd á því sviði." Steinunn Ólína er fastráðin við Þjóðleikhúsiö og leikur þar í nokkrum sýningum í vetur. Frá fyrra leikári eru það Sjálf- stætt fólk og söngleikurinn Rent sem leikhúsgestir geta séð hana í og um þessar mundir er hún að æfa nýtt leikrit eftir Hrafnhildi Hagalfn, Hægan Elektra, sem verður frumsýnt í janúar. Að auki fer Steinunn Ólína með hlutverk í Gullna hliðinu sem erjólasýn- ing leikhússins. Maggie hefur tilfinningar til samstarfsmanns sfns, Richards. Kona á krossgötum Þættimir „Maggie" fjalla um eiginkonu og móður sem kemst að þvf að hún laðast að öörum manni. Þeir sýna hugarheim hennar, sem hún opinberar fyrir sálfræðingnum sínum, og dag- legt líf. Maggie Day (Ann Cusack) nálgast fertugt og svo virðist sem 19 ára hjónaband hennar sé að liðast í sundur fyr- ir augunum á henni. Átján ára dóttir hennar, Am- anda (Morgan Na- gler), hlustar aldrei á hana; hún er á leiöinni í sitt fyrsta starf sem dýralæknir og hún er aö hugsa um að halda framhjá manninum sínum. Eiginmaöurinn, Arthur (John Getz), er mjög framarlega á sviði æöasjúkdóma en hann er of upptekinn af sínum eigin frama til að taka eftir þörfum eiginkonu sinnar. Dóttirin á í platónsku ástarsambandi við listamanninn, Reg (Todd Gliben- man), sem hefur nýlega tekið þá ákvörðun að vera hýr vegna þess að honum finnst að allir bestu listamennirnir séu það. Eini vinur Maggie er sú sem sér um móttökuna á dýraspítalan- um, Amy Sherwood (Melissa Samuels). En maðurinn sem Maggie telur sig vera að falla fyrir er einmitt einn af dýralækn- unum á spítalanum, Richard Meyers (John Slattery). Ann Cusack hefur leikið í myndum eins og „League of Their Own", „Malice" og „Grosse Point Blank" og þáttum á borð viö „From the Earth to the Moon". John Getz lék í Oliver Stone-myndinni „Born on the Fo- urth of July" ásamt öðru. Melissa Nagler hefur komið fram í þáttunum „Falcon Crest" og „Punky Brewster". Á bakviö tjöldin er leikstjórinn Pamela Fryman en hún hefur leikstýrt mörgum af vinsælustu gaman- þáttarööum sem sýndar hafa verið eins og „Friends", „Frasi- er“, „Suddenly Susan", „Just Shoot Me" og nú sfðast „The Norm Show". Samband Maggie við dótt- urina er ekki sem best. ciihsáshci n ■ Hícmnti* i ■ ctiotrotci 1 ■ hihcihhhi ■ ÁHtHtnsrim is mmtcóui u 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.