Morgunblaðið - 13.10.1999, Síða 46
FIMMTUPAGUR
14■ október
GAMAN
Spilafíkillinn -
The Winner [‘97]
Billy Bob Thornton, Delroy
Lindo, Rebecca DeMourney,
ofl. góðir leikarar gera
skrýtna smámynd Alex Cox, um smá-
krimma og sauði í Vegas, dálítið
fyndna og forvitnilega.
DRAMA
Julia (77)
Tímamótamynd um vináttu
ÖSb kvenna, rithöfundarins Lillian
Hellman (Jane Fonda) og
hinnar dularfullu Juliu (Vanessa Red-
grave). Þær kynnast á unglingsárun-
um. Hellman verður frægt leikrita-
skáld, hin moldríka Júlía gerist
byltingarsinni, berst á móti fátækt og
misrétti, þó fyrst og fremst uppgangi
nasismans. Fagmannlega uppbyggð
og leikstjórinn, Fred Zinneman, kunnur
fýrir lag sitt á leikurum. Jason Robards
og Vanessa Redgrave hlutu ðskarinn.
■ FÖSTUPAGUR
15. október
FJOLSK.
Aleinn heima 3 -
Home Alone 3 [‘97)
Nýr strákur, skúrkar, handrits-
i höfundar og leikstjóri þræða
gamalkunnar slóðir þar sem
fátt kemur á óvart. Útkoman bærileg.
PRAMA
Mac (‘93)
Fyrsta leikstjórnarverkefni
fljB gæðaleikarans Johns Turturro,
sem skrifar einnig handritið og
leikur aðailhutverkið. Byggir það á lífi
föður síns, sem var trésmiður og til-
einkar honum myndina sem fjallar um
handverksmann, sem er langþreyttur
og særður á metnaðarleysi vinnuveit-
andans, gerist sjálfur verktaki. Óvenju-
leg og heiðarleg mynd um leitina að
Ameríska draumnum. Eftirminnilega
vel leikin, hefur hlotið fjölda verðlauna
á kvikmyndahátíðum.
■ LAUGARDAGUR
16. október
DRAMA
Vinaminni -
Circle Of Friends (‘95)
#Skemmtileg, vel skrifuð mynd
um írska sveitastúlku (Minnie
Driver), sem heldurtil æðra
Gamanmynd með ádeiluundirtón frá árunum milli heimsstyrj-
aldanna. Þá voru kínverskar konur settar skör lægra en bænd-
ur þeirra í Vesturheimi, en aðalpersónan ræður bót á því.
Sprengjuhótun berst eigendum skemmtiferðaskipsins
„Britannic Öflugar sprengjur eru um borð í skipinu og munu
þær springa nema eigendurnir pungi út hálfri milljón punda.
náms í Dyflinni. Verður ástfangin af
aðalnaglanum (Chris O'Donnell).
Það snjóar fljótlega yfir kaþólskuna
og búðarlokuna, sem bíður vongóður
heima í þorpi. Ekkert sérlega efnis-
mikil en aðlaðandi mynd, gerð af Pat
O'Connor (Cal), með góðum
O'Donnell og stormandi fínni Minnie
Driver í hlutverkinu sem skaut henni
upp á stjörnuhimininn.
SPENNA
Verndarinn - Someone to Watch
Over Me (‘87)
Vellauðug, einhleyp kona
(Mimi Rogers), verður vitni að
morði. Snotur, snauð og
harðgift lögga (Tom Berenger) er sett
í að gæta hennar. Morðinginn reiðir
aftur til höggs, gæslunni lýkur, skötu-
hjúin verða að gera upp hug sinn.
Góð ástar/morðsöguflétta með
áhugaverðum persónum. Kvikmynda-
gerðarmenn af betri endanum, nóg af
dölum, en dugar ekki til, spennan
lúffar fyrir léttvægri rómantík.
SUNNUDAGUR
17. október
GAMAN
Neil Simon: Æskuminningar -
Brighton Beach Memoirs (‘86)
Byggð á sjálfsævisöguleikriti
öjwl Simons um þroskatíma í lífi
gyðingadrengs (Jonathan
Silverman) í stórri fjölskyldu í Brook-
lyn. Simon getur verið fyndinn í sam-
tölum og þönkum persónanna án
þess að drepa neinn úr hlátri en hann
getur Ifka verið væmnin uppmáluð.
GAMAN
Þúsund bláar kúlur -
Mille Bolle Blu {‘93)
Tökuvélarnar æða á milli
hæða í fjölbýlishúsi í Rómar-
borg og hitta fyrir undurfurðu-
lega íbúana: Þokkadísir, dándis-
menn, lúða, perra og angurgapa.
Næstum á við helgarreisu til Rómar.
PRAMA
Hinir heimilislausu -
Saint of Fort Washington (‘93)
#Óvenjuleg, vel leikin, vönduð
mynd um undirmálsmenn
(Matt Dillon, Danny Glover),
sem draga fram lífið á götum New
York. Reyna að halda stoltinu þó
stormurinn sé í fangið. Athyglisverð,
fjarri Hollívúdd formúlum.
■ ÞRIÐJUPAGUR
19. október
STRIÐ
Lengstur dagur -
The Longest Day (‘62)
Stórfengleg endursköpun
■ innrásarinnar í Normandí,
með völdum leikara í hverju
hlutverki - sem er bæði kostur og
galli. Þennan mikilvægasta hildar-
leik sögunnar er tæpast hægt að
endurgera betur. Sýndur frá sjónar-
hóli innrásarliðsins, Þjóðverja og
Frakka. Til að gera atburðarásina
raunverulegri, mælir hver þjóð á eig-
in tungu. Fyrst og fremst meistara-
verk framleiðandans góðkunna,
Darryls F. Zanuck, sem hafði yfirum-
sjón með öllum þáttum frá upphafi
til enda. Magnað, eftirminnilegt
sjónarspil.
STRIÐ
York liðþjálfi -
Sergeant York (‘41)
Sögufræg mynd friðarsinna
í (Gary Cooper), bónda úr
Miðríkjunum sem kynnist
hörmungum stríðsátaka í fyrri heims-
styrjöld. Snýrtil baka sem hetja og
reynslunni ríkari. Örlítið barnaleg í
dag en hreinskilin og kemur and-
stríðsboðskapnum skilmerkilega frá
sér (leikstjóri Howard Hawks).
Cooper fékk Óskarinn.
■ MIÐVIKUDAGUR
20. október
SPENNA
Sprengjuhótunin -
Juggernaut (74)
Frambærilegur hryðjuverka-
tryllir um björgunarleiðangur
sem sendur er út á reginhaf
til að koma í veg fyrir að sprengja
springi um borð í risastóru skemmti-
ferðaskipi. Dágóð saga sem
Richard Lester tekst að gera mjög
spennandi á köflum. Richard Harris
í toppformi, dyggilega studdur af
gæðaleikurunum lan Holm og Ant-
hony Hopkins.
46