Morgunblaðið - 14.10.1999, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Leitum
að ljúka
Morgunblaðið/RAX
Nokkrir söluaðilar í Grindavík kvarta til Fjármála-
eftirlits vegna endurkröfu kortafyrirtækis
Kunni aðferð til að snið-
ganga heimildarnúmer
Uppgjöri
lokið við
skipverja
HLUTAFÉLAG það, sem Véla-
verkstæðið Gjörvi ehf. stofnaði um
kaup á lettneska togaranum Od-
incovu, lauk fullnaðaruppgjöri við
áhöfn togarans í gær og er reiknað
með að skipverjarnir fari til síns
heima með flugi á morgun, föstu-
dag.
Að sögn Borgþórs Kjærnested,
fulltrúa Alþjóðasambands flutn-
ingaverkamanna hjá Sjómannafé-
lagi Reykjavíkur, fékk áhöfnin, sem
í eru 13 Lettar auk skipstjórans
sem er kanadískur ríkisborgari,
tæpar 13 milljónir króna útborgað-
ar eftir frádrátt.
Odincova hefur legið við Reykja-
víkurhöfn síðan um miðjan febrúar
og er þetta í fyrsta skipti sem
áhöfnin fær laun greidd síðan þá.
--------------
Harður
árekstur á
Miklubraut
UMFERÐARSLYS varð á gatna-
mótum Háaleitisbrautar og Miklu-
brautar um klukkan 21 í gærkvöldi.
Slysið varð með þeim hætti að bíll,
sem ekið var um Háaleitisbraut,
keyrði í veg fyrir annan bíl á gatna-
mótunum. Farþegi í bílnum, sem
ekið var á, var fluttur með sjúkrabfl
á slysadeild en meiðsl hans reynd-
ust ekki alvarleg. Ökumaður bflsins
og annar farþegi óku hins vegar
sjálfir á slysadeild.
Á Sæbraut ók ökumaður á um-
ferðarljós og síðan á kyrrstæða bif-
reið eftir að hann hafði misst stjórn
á bifreið sinni í bleytu.
FINNUR Ingólfsson viðskiptaráð-
herra telur ekki nauðsynlegt að
sinni að gera frekari ráðstafanir til
að stöðva aukningu verðbólgunnar.
Eins og fram kom í blaðinu í gær
hækkaði vísitala neysluverðs um
0,8% frá októberbyrjun til nóvem-
berbyrjunar og hækkun vísitölunn-
ar síðustu þrjá mánuði samsvarar
8,3% verðbólgu á ári.
Finnur segir að ríkisstjómin hafí
lagt áherslur sínar í fjárlagafrum-
varpi næsta árs. Telur hann ekki
ástæðu til að breyta frumvarpinu
með tilliti til nýjustu verðbólgutalna
en eftir sé að sjá hvað gerist í með-
förum Alþingis. Finnur tekur fram
að hann telji líkur á að úr verðbólg-
unni muni draga þegar í næsta
mánuði. Byggir hann skoðun sína á
því að það hljóti að draga úr hækk-
un fasteignaverðs og bensínverðs.
ENN er verið að smala fé í
sveitum landsins þó sláturtíð
fari senn að ljúka. Bóndinn færir
sér nútímatækni í nyt og hvílir
lúin bein á skotti bflsins sem
notaður er við smölunina. Bfllinn
nyakast áfram meðan féð hleyp-
ur áfram eftir veginum skammt
frá Olkeldu á Snæfellsnesi.
Verulegar hækkanir komu fram á
flutningum í lofti, 4,5%, og fatnaði,
4,7%, við útreikning vísitöluverðs að
þessu sinni.
Samkvæmt upplýsingum Hag-
stofu Islands hækkuðu flugfargjöld
á ákveðnum leiðum til útlanda en
innanlandsfargjöldin breyttust ekki
að þessu sinni. Hagstofan getur
ekki veitt upplýsingar um það
hvaða leiðir er um að ræða. Hækk-
anir á fatnaði stafa af því að verð er
að færast til fyrra horfs eftir sum-
arútsölur, samkvæmt upplýsingum
Hagstofunnar. Verð á fatnaði lækk-
aði verulega við útreikning vísitöl-
unnar í ágúst, vegna þess að þá
voru útsölur, og hefur síðan verið
að ganga til baka. Verð á fötum er
enn undir því verði sem fram kom
við útreikning vísitölunnar í júlí-
byrjun.
VEITINGAMAÐUR í Grindavík
hefur fyrir hönd nokkurra fyrir-
tækja í bænum kvartað til Fjár-
málaeftirlitsins vegna þess að
Europay Island hafnar færslum á
fjöida úttekta einstaklings á veltu-
kort frá Sparisjóði Reykjavíkur og
nágrennis. Korthafinn virðist hafa
kunnað aðferð til að sniðganga
notkun heimildarnúmers og skuldar
margfalda heimild sína. Endur-
greiðslukrafan nemur liðlega 400
þúsund krónum. Framkvæmda-
stjóri Europay Island segir að við-
komandi söluaðilar hafi ekki farið
að skflmálum og verði því sjálfír að
innheimta skuldina.
Árni Björn Björnsson, veitinga-
maður í Hafur-Birni í Grindavík,
kvartaði til Fjármálaeftirlitsins fyr-
ir hönd sex fyrirtækja í Grindavík.
Hann segir að posamir hafi stund-
um beðið um heimildarnúmer þeg-
ar viðkomandi einstaklingur notaði
veltukort sitt. Þá hafi korthafinn
beðið afgreiðslufólkið að stimpla
inn tveggja stafa tölu og síðan
fyrstu stafina í kortanúmerinu og
við það hafi færslan gengið í gegn.
Árni Bjöm segist ekki hafa áttað
sig á því að með þessu væri hann að
taka ábyrgð á úttektinni enda ekk-
ert um slíkt getið í handbók. Segist
hann standa í þeirri trú að posinn
eigi ekki að samþykkja annað en
rétt heimildamúmer og synja út-
tekt að öðrum kosti. Telur Árni
Söluaðilar
innheimti skuld-
ina sjálfír
Bjöm útlit fyrir að þarna sé gat í
tölvukerfinu og vill ekki sætta sig
við að þurfa að borga tjón sem af
því hlýst.
Upphæðirnar verða dregnar af
viðkomandi fyrirtækjum nema
Fjármálaeftirlitið grípi inn í. Ámi
Bjöm á allt eins von á því að fá fleiri
bakreikninga því korthafinn hafi
notað kortið fram í september. „Ég
sætti mig ekki við að greiða upp-
hæðina og mkka viðkomandi ein-
stakling sjálfur. Ef ég fer yfir á
mínu korti, synjar kerfið um úttekt-
ina en segir ekki já eða kannski,"
segir Árni Bjöm og bætir því við að
verði endurgreiðslukrafan ekki
dregin til baka verði hann að hætta
að taka greiðslukort, að minnsta
kosti Eurokort.
Skilmálar ekki virtir
Ragnar Önundarson, fram-
kvæmdastjóri Europay ísland, seg-
ir að viðkomandi söluaðili hafi ekki
farið að skilmálum fyrirtækisins.
Segir hann að þegar tölvan gefur
ekki heimild til úttektar á kort, eins
og stundum komi fyrir, eigi söluaðil-
inn að leita heimildar í síma. Það
hafi ekki verið gert í þessum tilvik-
um, heldur hafi korthafinn verið af-
greiddur með öðram hætti. Þar sem
ekki hafi verið farið að skilmálum
séu úttektimar Europay óviðkom-
andi. Segir Ragnar að málið komi
upp vegna þekkingarleysis starfs-
manna eða óvandvirkni. En vonandi
sé það ekki alvarlegra en svo að
söluaðilinn þurfi sjálfur að standa í
innheimtunni og viðskiptavinurinn
greiði skuld sína.
Aðspurður hvort tilvik sem þessi
séu algeng, segir Ragnar að tækni-
lega séð geti söluaðili afgreitt við-
skiptavini án þess að fara að reglum
Europay. Hann segir allt of algengt
að það sé gert, til dæmis að undir-
skrift sé ekki borin saman við kort
og mynd á korti ekki skoðuð. Hvet-
ur hann söluaðila til að huga betur
að þessum málum.
Tókút 1.200 þúsund
I kvörtun Árna til Fjármálaeftir-
litsins kemur fram að viðkomandi
korthafi er nítján ára gamall. Hann
fékk veltukort hjá SPRON í vor,
með 300 þúsund kr. heimild, sam-
kvæmt upplýsingum Árna, án þess
að hafa ábyrgðarmann, og náði að
koma sér í 1.200 þúsund króna
skuld á kortinu áður en því var lok-
að. Segir Ámi það umhugsunarefni
hvernig þetta geti gerst. Og þegar í
óefni sé komið beri kortafyrirtækið
og bankinn enga ábyrgð heldur
reyni að koma henni á söluaðilann.
Viðskiptaráðherra telur að verð-
bólgan muni hjaðna
Ekki frekari
ráðstafanir
Sérblðð í dag fHfrglwMltifrÍfo
Xt>
BLAÐINU í
dag fylgir
aukablað
um stækkun
Kringlunnar.
Atli Eðvaldsson með tilboð
frá KR-ingum / C1
Jafntefli í nágrannaslagnum
í Hafnarfirði / C3
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
Sérblad mn vibskiþti/atvinnulíf
www.mbl.is