Morgunblaðið - 14.10.1999, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 14.10.1999, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ *50 FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1999 MINNINGAR INGUNN ÓLAFSDÓTTIR + Irigiinn Ólafs- dóttir fæddist á Bakkagerði í Borg- arfírði eystra 15. júlí 1918. Hún lést á sjúkrahúsinu á Eg- ilsstöðum 25. sept- ember siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Bakka- gerðiskirkju 2. október. Ingunn Ólafsdóttir, eða Inga okkar eins og við vorum vön að kalla hana á Snælandi, er nú fallin frá. Við kvöddum hana í Fossvogskirkju þriðjudaginn 5. október og síðan lagði hún uppí sína síðustu ferð í fæðingarfjörðinn sinn, Borgarfjörð eystri, sem hún unni svo heitt. Inga fæddist á Borg- arfirði sumarið 1918 en fluttist þaðan árið 1940 til Reykjavíkur. Pó fjörðurinn sé fagur gat hann líka verið grimm- ur, veður vond og sam- göngur slæmar. Til að lifa af varð fólk á þess- um útkjálkafirði að treysta á hvort annað í blíðu og stríðu og böndin milli fólks urðu því sterk og náin. Sú þjóðfélgsþróun sem átti sér stað um og eftir seinna stríð hjó skarð í þennan stað eins og aðra af- sketta staði, fólk flutti í þéttbýlið. En tilfinningarnar til heimabyggð- arinnar, sú taug sem tengdi fólk sem hafði lifað saman súrt og sætt og fegurð fjarðarins sóttu á hugann. Fyrir fimmtíu árum stofnuðu brottfluttir Borgfirðingar eystri átt- hagafélag í Reykjavík og nágrenni. Inga var einn helsti hvatamaður að stofnun félagsins og frá upphafi einn öflugasti liðsmaður þess. Hún var stjórnarmaður í fyrstu stjórn félagsins og sat í stjórn þess í sam- tals 22 ár. Hún bakaði kossa fyrir bamasamkomur og tók virkan þátt í öllum skemmtunum svo sem þorra- blótum, ferðalögum og spilakvöld- um. Inga var félagslynd og glaðvær kona með eindæmum og þegar hún sveif í dans með sveitungum sínum á þorrablótum geislaði af henni lífs- gleðin. Inga bar hag Borgarfjarðar og Borgfirðinga mjög fyrir brjósti alla tíð og sinnti erindum í höfuðborg- inni fyrir sveitunga sína heima. Hún var líka hvatamaður að ýmiss konar verkefnum innan Borgfirð- ingafélgsins í Reykjavík til að styrkja og styðja heimabyggðina. Hún beitti sér t.d. fyrir að ferming- arkirtlar voru gefnir Bakkagerðis- kirkju, hún var fengin til að af- henda félagsheimilinu Fjarðarborg hljóðfæri að gjöf við vígslu þess ár- ið 1973 og hún var í þeim flokki sem afhenti hringsjá sem var fyrirkomið á Alfaborginni árið 1979. A kveðju- stund þakkar átthagafélag Borg- firðinga eystri Ingu allt hennar óeigingjarna starf. Inga kom oft á Snæland og lét sér annt um okkur öll. Pað var alltaf sérstök stemmning á jóladag þegar beðið var eftir að systurnar, Inga og Björg, kæmu því enginn annar en Inga gat séð um að búa til sósuna með steikunum, þannig að rétt bragð væri af. Inga er nú kominn til nýrra heim- kynna og laus við sjúkdóma sem hrjáðu hana síðustu árin. Þar hittir hún fyi-ir marga sveitunga sína og kæmi mér ekki á óvart þótt hún beitti sér fyrir stofnun átthagafé- lags Borgfirðinga eystri í sæluvist- inni. Þar verður kátt á hjalla, ástar- pungar bakaðir, dans stiginn og ekki verða nú vandræði með sós- una. Þar verður líka væntanlega sungið: Vér biðjum yfir Borgarfjörð blessun Drottins streymi. Því engan blett og engan fjörð vér elskum meir í heimi Dönsum og dönsum og kveðum kvæðafans kveði undir Dyrfjöll og allar vættir lands:,: Hafðu þökk fyrir allt. Elísabet Sveinsdóttir (Stella). Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. ATVINNUAUGLÝSINGAR > f Fræðslumiðstöð Reykjavíkur annast stjórnsýslu fræðsluráðs Reykjavíkur, auk þess að vera faglegt forystuafl í skólamálum borgarinnar og þjónustustofnun fyrir skóla. f Reykjavík eru starfandi um 40 grunnskólar auk annarra skólastofnana. Rekstrarumfang skólamála í Reykjavík er um 6 milljarðar króna á ári. Starfsmenn skólanna eru um 2000 talsins og annast Fræðslumiðstöðin launaafgreiðslu þeirra. Fræðslumiðstöð Reykjavíkur Laust er til umsóknar starf forstöðumanns fjármálasviðs á Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. Starfssvið: • Stýra gerð fjárhagsáætlunar fyrir grunnskóla Reykjavíkur og aðrar stofnanir sem undir Fræðsiumiðstöðina heyra. • Stýra eftirliti með framkvæmd fjárhagsáætlunar. • Hafa yfirumsjón með launa-, rekstrar- og fjármálum skóla borgarinnar af hálfu Fræðslumiðstöðvarinnar. Hæfniskröfur og menntun: • Stjórnunarhæfileikar. • Háskólapróf í viðskipta- eða hagfræði, framhaldsmenntun æskileg. • Reynsla af fjárhagsáætlanagerð og launamálum æskileg. • Lipurð í mannlegum samskiptum er nauðsynlegur kostur. Forstöðumaður fjármálasviðs er staðgengill fræðs I ustjóra Reykjavíkur/fram kvæmdastjóra Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur. Umsóknir óskast sendar til Ráðningarþjónustu PricewaterhouseCoopers merktar „Fræðslumiðstöð" fyrir 17. október nk. Rétt er að vekja athygli á að það er stefna borgaryfirvalda að auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum á vegum borgarinnar, stofnana hennar og fyrirtækja. Upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Netfang: thorir.thorvardarson@is.pwcglobal.com PricewaTerhousE(cdpers Höfðabakka 9*112 Reykjavík • Sími 550 5300 • Bréfasími 550 5302 • www.pwcglobal.com/is ^ Iþróttafélagið Leiknir óskar eftir að ráða þjálfara fyrir 2. flokk karla í knattspyrnu. Upplýsingar í símum 897 4880 Arnar og 861 1408 Guðmundur. Byggingarfélagið Fagvangur ehf. óskar eftir smiðum. Mikil vinna framundan. ■•HJpplýsingar í símum 896 6618 og 897 3117. Trésmiðir Óskum eftir að ráða trésmiði til ýmissa verk- . efna. Mikil vinna í boði. w Þ.G. verktakar, sími 896 2330. Byggingaverkamenn Okkur vantar nokkra duglega verkamenn í vinnu á nýbyggingasvæði okkar við Hulduhlíð í Mosfellsbæ. Hafið samband við Einar Ágústsson í síma 898 0997. W ÁI f t á r ó s www.alftaros.is Lúgusjoppa á stór- Reykjavíkursvæðinu Óska eftir að ráða starfskraft á „besta aldri". Um er að ræða 70—100% vaktavinnu. Nánari upplýsingar gefur Kristín í síma 565 8050 á milli kl. 8.00 og 12.00 og 14.00 og 16.00. Blaðbera vantar við Nýlendugötu. ^ Upplýsingar í síma 569 1122. Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag, Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru i Kringlunni 1 í Reykjavik þar sem eru yfir 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa i Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. Sölumaður Vanur sölumaður óskast til starfa í véla- og verkfæraverslun okkar í Reykjavík. Þekking á vélum, verkfærum og rafsuðu æski- leg, nokkur tölvukunnátta og bílpróf. Skrifleg umsókn með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf umsækjanda sendist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 20. október 1999 merkt: „Sölumaður — Reykjavík". SMÁAUGLÝBIINIGAR TILKYNNINGAR Frá Sálar- rannsóknar- félagi íslands Breski transmið- illinn Les Driver starfar hjá félag- inu frá 14.—27. október. Les, sem er talinn mjög góður trans- miðill og miðill, verður með opinn transmiðils- fund laugardaginn 16. október kl. 15.30 í Garðastræti 8. Húsið opnað kl. 15.00. Aðgangur kr. 1.500 fyrir félagsmenn og kr. 2.000 fyrir aðra. Ath. Les býður einnig upp á einkafundi í trans- miðlun. Upplýsingar og bókanir eru í síma 551 8130 og á skrifstofunni Garðastræti 8 frá kl. 9—15 alla virka daga. SRFÍ. FÉLAGSLÍF Landsst. 5999101419 VIII I.O.O.F. 11 - 1801014872 - Bk. I.O.O.F. 5 = 18010148 = 9.0* Aðalfundur frjáfsíþrótta- deildar ÍR verður fimmtudaginn 21. októ- ber kl. 20.30 í ÍR-heimilinu við Skógarsel. Hjálpræðis- herinn Kírkjustræti 2 Kl. 20.30: Israelssamkoma. Allir hjartanlega velkomnlr. Frá Sálar- rannsóknar- félagi íslands Við minnum á hugleiðslu- kvöldið í umsjá Jórunnar Sig- urðardóttur í kvöld kl. 20.30 i Garðastræti 8. Húsið opnað kl. 20.00. SRFÍ. \v---7/ KFUM V Aðaldeild KFUM, Holtavegi Fyrsti fundur vetrarins í Vatna- skógi í kvöld. Ólafur Sverrisson flytur ávarp. Sr. Ólafur Jóhanns- son hefur hugleiðingu og Karla- raup sr. Friðriks verður flutt. Rútuferð verður frá Holtavegi kl. 19. Allir karlmenn velkomnir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.