Morgunblaðið - 14.10.1999, Blaðsíða 41
40 FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1999 41
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SAMÞJOPPUN
í SJÁVARÚTVEGI
*
IUMRÆÐUM á Alþingi í fyrradag, gerði Svanfríður Jónas-
dóttir, alþingismaður Samfylkingarinnar, að umtalsefni þá
þróun, sem er að verða í sjávarútvegþ þar sem sífellt færri og
stærri fyrirtæki eignast stærri og stærri hlutdeild í veiðiheim-
ildum og varpaði fram þeirri spurningu, hvort fundizt hefði leið
til þess að fara framhjá lögum, sem Alþingi hefur sett til að
koma í veg fyrir, að of stór hluti veiðiheimilda færist á of fáar
hendur. Þingmaðurinn sagði m.a.: „Getur verið, að þrátt fyrir
vilja Alþingis og lagasetningu um hámarksaflahlutdeild ein-
stakra sjávarútvegsfyrirtækja hafi fundizt annar farvegur til
yfirráða á auðlindinni i miklu stærri mæli en einstökum fyrir-
tækjum leyfist?"
Til skýringar á þessum ummælum benti Svanfríður Jónas-
dóttir á, að Burðarás hf., eignarhaldsfélag Eimskipafélags ís-
lands, ætti „umtalsverðan" hlut og stundum „ráðandi hlut“ í
fyrirtækjum, sem hafa yfir að ráða yfir 60 þúsund
þorskígildistonnum eða um 16% heildaraflahlutdeildar. Þá
benti þingmaðurinn á eignarhlut Samherja hf. í Skagstrend-
ingi, sem nemur um 37%, sem er að vísu ekki ráðandi hlutur við
þær aðstæður, sem ríkja í því fyrirtæki þótt þessi eignarhlut-
deild mundi duga til yfirráða í flestum öðrum sjávarútvegsfyr-
irtækjum, sem skráð eru á markaði.
Burðarás hf. á eins og kunnugt er um 40% í Utgerðarfélagi
Akureyringa, sem er augljóslega ráðandi hlutur. Hlutdeild fyr-
irtækisins í Haraldi Böðvarssyni hf. á Akranesi nemur nú um
27%, sem fer að verða nálægt ráðandi hlut, og um 23% í Síldar-
vinnslunni og þarf augljóslega ekki mikla viðbót til þess að þar
geti hlutur fyrirtækisins farið að nálgast ráðandi stöðu. Aðrar
stórar samsteypur eru Grandi og Þormóður rammi en fyrr-
nefnda fyrirtækið á umtalsverðan hlut í því síðarnefnda og
jafnframt er að verða mikil sameining í Vestmannaeyjum, sem
leiðir til þess að þar verða miklar veiðiheimildir á einni hendi.
Það eru ákveðin rök fyrir þessum ábendingum Svanfríðar
Jónasdóttur og ekki hægt að horfa fram hjá þeim. Alþingi hef-
ur sett lög um hámark veiðiheimilda hjá sama fyrirtæki og ef
hægt er með rökum að halda því fram, að þau lög tryggi ekki
að markmiði þeirra verði náð þarf Alþingi augljóslega að skoða
þá lagasetningu nánar.
A hinn bóginn er Ijóst, að það eru líka ákveðin rök fyrir því
að með því að útgerðarfyrirtækin verði stærri sé hægt að ná
aukinni hagkvæmni í rekstri þeirra. Að vísu hefur ekkert kom-
ið fram um það, að Burðarás hf. hafi í hyggju að vinna að sam-
einingu þeirra þriggja fyrirtækja, sem hér um ræðir og þegar
Samherji hf. keypti stóran hlut í Skagstrendingi var það sér-
staklega tekið fram af hálfu forráðamanna Samherja, að mark-
miðið væri ekki sameining fyrirtækjanna. Hins vegar má vel
vera, að ábendingar Svanfríðar Jónasdóttur og þær umræður,
sem skapast í kjölfar þeirra leiði til þess að settar verði enn
frekari takmarkanir á magn þeirra veiðiheimilda, sem megi
vera í höndum sama útgerðaraðila. Slíkar takmarkanir mundu
þá koma til viðbótar þeim takmörkunum, sem nú eru á framsali
veiðiheimilda.
Það er afar ólíklegt, að umræður sem þessar mundu fara
fram, ef útgerðarfyrirtækin greiddu gjald fyrir réttinn til þess
að nýta auðlindina. Ef slíkt sanngjarnt og eðlilegt gjald væri
greitt, sem rynni í almannasjóði, er mjög sennilegt, að almenn-
ingur mundi líta svo á, að þegar það gjald væri greitt væri það
mál útgerðanna sjálfra, hvort það hentaði þeim að stunda
rekstur í stórum einingum eða smáum. Það má líka telja lík-
legt, að almanna stuðningur yrði við það, að útgerðarfélögin
ættu að hafa frjálsar hendur um framsal veiðiheimilda eftir því,
sem hentaði hagsmunum þeirra hverju sinni.
Þau fyrirtæki, sem Svanfríður Jónasdóttir nefndi í ræðu
sinni og önnur stór fyrirtæki, sem hafa fjárfest marga milljarða
í útgerð, eiga mikilla hagsmuna að gæta að fjárfesting þeirra
skili sér og að friður verði um þá atvinnugrein, sem þau hafa
lagt svo mikla fjármuni í. Þess vegna væri rökrétt, að málflutn-
ingur þingmannsins leiddi til þess að aukinn stuðningur yrði
við það innan stóru útgerðarsamsteypanna og annarra þeirra,
sem hafa lagt mikið fjármagn í sjávarútveg, að til þess að
tryggja bæði frið og frelsi til að ná aukinni hagkvæmni, verði
skynsamlegasta leiðin sú, að taka fullan þátt í þjóðarsátt um
sanngjarnt og eðlilegt gjald fyrir veiðiréttinn.
Með því að taka undir þessi sjónarmið og lýsa vilja til að
standa að lausn á þessu mikla deilumáli á þennan veg mundu
þau fyrirtæki og þeir aðilar ná meiri árangri í að tryggja að
fjárfesting þeirra skili góðum arði en með því að halda áfram
þeim deilum, sem staðið hafa á annan áratug. A tímum opinna
viðskipta á hlutabréfamarkaði skiptir það meiru en flest annað.
Lögreglan gagnrýnir afleiðingar nýs lagaumhverfís í stóra fíkniefnamálinu
Morgunblaðið/Júlíus
Rannsókn lögreglu á stóra fikniefnamálinu hefur leitt til þess að tíu menn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald og lagt hefur verið hald á rúmlega 30
kg af fíkniefnum. Þá eru ótalin mikil verðmæti sem komin eru í vörslu lögreglu, sem talið er að hafi verið aflað með hagnaði af fíkniefnaviðskiptum.
Sakborningar leitast við að
samræma framburði sína
Tíu íslendingar hafa verið úrskurðaðir
í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á stóra
fíkniefnamálinu nú þegar rúmur mánuður er
síðan upp komst um málið. Örlygur Steinn
Siguijónsson kynnti sér sögu málsins og
greinir m.a. frá því að gagnrýni lögreglunn-
ar á nýtt lagaumhverfí sem hún vinnur í
og telur að spilli rannsókn málsins sé til
athugunar hjá dómsmálaráðuneytinu.
FYRSTU mennimir sem
handteknir voru í þágu
rannsóknar málsins hafa
lokið ríflega helmingi af
gæsluvarðhaldsvist sinni, en þeir
voru úrskurðaðir í varðhald til 11.
nóvember eftir handtöku lögreglunn-
ar hinn 10. september.
Fimmti maðurinn, sem var hand-
tekinn og úrskurðaður í eins mánaðar
gæsluvarðhald, verður látinn laus
næstkomandi mánudag, 18. október,
nema lögregla leggi fram kröfu um
framlengingu á varðhaldi hans og
dómari samþykki kröfuna.
Auk þess sem lögreglan í Reykja-
vík fékk mennina fimm úrskurðaða í
gæsluvarðhald, lagði hún hald á
nokkrar glæsibifreiðir og mikið magn
fíkniefna, sem fannst við upphaf
málsins hinn 8. september. Þá fund-
ust sjö kg af hassi í tyrknesku leigu-
skipi Samskipa við Reykjavíkurhöfn
og fáeinum dögum síðar hafði lög-
reglan lagt hald á 1 kg af kókaíni, 4
kg af amfetamíni, 24 kg af hassi og 6
þúsund e-töflur.
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra hóf fljótlega afskipti af málinu
og aðstoðaði lögregluna í Reykjavík
við að upplýsa fjármálahlið þess.
Ekki leið á löngu uns efnahagsbrota-
deildin hafði lagt hald á mikil verð-
mæti, þ.e. fasteignir, dýrar bifreiðir,
lausafjármuni, listaverk og fleira sem
talið er að sé afrakstur fíkniefna-
gróða í málinu.
Lögreglan í Reykjavík handtók
síðan sjötta manninn 24. september
og fékk hann úrskurðaðan í tveggja
mánaða gæsluvarðhald daginn eftir.
Tveir Islendingar handteknir
í Kaupmannahöfn
Jafnhliða því sem rannsókn máls-
ins hélt áfram hérlendis höfðu tveir
Islendingar verið eftirlýstir í gegnum
Interpol og voru að lokum handtekn-
ir í miðborg Kaupmannahafnar 26.
september en þá höfðu þeir verið eft-
irlýstir í Evrópu í hálfan mánuð.
Voru þeir fluttir til íslands þar sem
þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald til 1. desember.
Alls voru því átta menn komnir
bak við lás og slá á þeim tæpu þrem-
ur vikum, sem liðnar voru frá því lög-
reglan haldlagði fíkniefnin og hand-
tók fyrstu mennina í málinu.
Lögð var mikil áhersla á að rann-
saka fjármálahlið málsins af hálfu
efnahagsbrotadeildarinnar, en á tæp-
um hálfum mánuði hafði deildin lagt
hald á eignir og fjármuni að verð-
mæti um 70 milljónir króna.
Níundi grunaði aðilinn bættist í
hóp gæsluvarðhaldsfanga 2. október
er hann var úrskurðaður í gæsluvarð-
hald til 8. desember í þágu rannsókn-
ar málsins.
Nýjasta handtakan var svo gerð
þegar efnahagsbrotadeildin handtók
karlmann á fimmtugsaldri síðastlið-
inn sunnudag og fékk hann úrskurð-
aðan í gæsluvarðhald til 19. október.
Var það fyrsti sakborningurinn sem
efnahagsbrotadeildin fékk úrskurð-
aðan í gæsluvarðhald eftir að deildin
hóf afskipti af málinu og jafnframt tí-
undi sakborningurinn í málinu. Er
hann elstur gæsluvarðhaldsfanganna,
sem eru undir þrítugu nema einn,
sem er 36 ára gamall.
Tekist á um rannsóknargögn
Mikið hefur gengið á við rannsókn
málsins að því er varðar samskipti
lögreglunnar og verjenda sakbom-
inganna, sem krafist hafa aðgangs að
mikilvægum rannsóknargögnum í
þeim tilgangi að sýna skjólstæðing-
um sínum þau á grundvelli nýs
ákvæðis í 43. gr. laga um meðferð op-
inberra mála, en lögunum var breytt í
vor og tóku gildi 1. maí sl.
Fyrir gildistöku breytingai’frum-
varpsins sagði í þágildandi ákvæði 43.
gr. laga um meðferð opinberra mála,
að ekki mætti láta sakborningi í té
eintak af endurriti rannsóknargagna
eða kynna honum efni þess með öðr-
um hætti, þótt verjendur hefðu hins
vegar rétt á að fá aðgang að máls-
gögnum sem áður. Kom fram hörð
gagnrýni á þetta ákvæði m.a. frá lög-
mönnum sem töldu að það samrýmd-
ist ekki hlutverki þeirra sem verj-
enda að halda upplýsingum leyndum
fyrir skjólstæðingum sínum. Var 43.
gr. laganna því breytt og segii- í nú-
gildandi ákvæði 43. gr. laga um með-
ferð opinberra mála í 2. mgr. að
„Þegar verjandi hefur fengið aðgang
að gögnum máls er honum heimilt að
láta sakborningi í té eintak af endur-
riti eða kynna honum gögnin með
öðrum hætti.“
Lögreglan telur hins vegar að laga-
ákvæðið leiði til þess að verjendur
sakborninganna í stóra fíkniefnamál-
inu komist mun fyrr inn í málið en
ella hefði orðið og með því að þeim sé
heimilt á grundvelli ákvæðisins, að
sýna skjólstæðingum sínum gögnin,
sé vörnin í málinu komin það framar-
lega, að hætt sé við að rannsóknin
komist í uppnám.
Viðurkennt að óheftur aðgang-
ur gæti spillt rannsókn máls
Er breytingamar á 43. grein lag-
anna voru gerðai' var þó viðurkennt
að með óheftum aðgangi sakbornings
að rannsóknargögnum væri hætta á
að hann gæti spillt rannsókn máls,
t.d. með því að hagræða framburði
sínum eftir að hafa fengið vitneskju
um framburð annama sakborninga
eða vitna. Til að koma í veg fyrir það
var lögreglu heimilað í 1. mgr. 43. gr.
laganna að neita að veita verjendum
sakborninga aðgang að einstökum
skjölum eða öðrum gögnum í allt að
eina viku frá því þau urðu til eða
komust í vörslu hennar ef hún teldi
að það gæti skaðað rannsókn máls.
Einnig var lögbundið að dómari
mætti framlengja nefndan vikufrest í
allt að þrjár vikur ef lögregla teldi
nauðsynlegt að skýrsla yrði tekin fyr-
ir dómi af sakborningi, brotaþolum
eða öðrum vitnum til þess að upplýsa
mál áður en aðgangur að gögnunum
yrði veittur.
Lögreglan telur á hinn bóginn að
þessi málamiðlun komi fyrir lítið
enda hafi það sýnt sig í stóra fíkni-
efnamálinu að sakborningar hafi kos-
ið að þegja í stað þess að tjá sig sjálf-
stætt um sakarefnið og bíði þess að
fresturinn líði, sem lögregla hefur til
að mega synja verjendunum aðgang
að gögnunum. I málinu sé komin upp
sú staða, að verjendur sakboming-
anna sækist efth' gögnum málsins í
þeim tilgangi að geta leiðbeint skjól-
stæðingum sínum í því hvemig þeir
eigi að bregðast við m.a. framburðum
annarra sakborninga. Þannig séu
sakborningar að leitast við að sam-
ræma framburði sína, sem er mjög
skaðlegt fyrir rannsóknina.
Þetta hefur vakið upp þá spurn-
ingu hvort staða lögreglunnar hafi
verið það sterk gagnvai’t sakborning-
um, að ástæða hafi verið til að setja í
ákvæði lög þess efnis að heimila verj-
endum sakborninga í sakamálum að
sýna skjólstæðingum sínum rann-
sóknargögn lögreglu eftir að hafa
fengið aðgang að þeim.
DómsmálaráðheiTa segir aðspurð-
ur um þetta atriði, að sá tímafrestur
sem gefinn væri upp í 1. mgr. 43 gr.
laganna væri talinn hæfilegur og að
talið sé að hann myndi ekki spilla
rannsóknarhagsmunum, en tæki
jafnframt tillit til hagsmuna sakbom-
inga.
Þær upplýsingar sem ráðuneytinu
berast frá lögreglu um gang rann-
sóknarinnar í því lagaumhverfi sem
hún telur að skaði rannsóknina, eru
engu að síður til athugunar hjá ráðu-
neytinu og verður gagnrýni lögregl-
unnar þess efnis rædd við réttar-
farsnefnd sem starfar á vegum ráðu-
neytisins og vonast ráðherra til að
niðurstaða úr þeim viðræðum fáist
fljótt.
Málfundur um jafnvægí kennslu og rannsókna í Háskóla íslands
Rannsóknir marka Háskóla Islands
sérstöðu meðal skóla á háskólastigi
Hlutverk háskóla er
að afla þekkingar, varð-
veita hana og miðla
henni, en hvar er rétta
jafnvægið milli rann-
sókna og kennslu
í starfi þeirra? Birna
Anna Björnsdóttir
sat málfund í Háskóla
-7--------------------
Islands þar sem þessu
umhugsunarefni var
varpað fram.
ÞEGAR menntamálaráðu-
neytið og Háskóli íslands
sömdu nýverið um kennslu
og fjárhagsleg samskipti
undirrituðu Björn Bjarnason
menntamálaráðhema og Páll Skúla-
son, rektor Háskóla Islands, einnig
yfirlýsingu þess efnis að þeir muni
beita sér fyrir gerð sérstaks samn-
ings um rannsóknir við stofnunina í
tengslum við undirbúning fjárlaga
fyrir árið 2001.
I tilkynningu frá Vöku, félagi lýð-
ræðissinnaðra stúdenta, segir að það
sé sífellt umhugsunarefni fyrir há-
skóla hvemig jafnvægi milli rann-
sókna og kennslu skuli háttað. Félag-
ið efndi í vikunni til málfundar um
þetta efni í hátíðarsal Háskóla Is-
lands þar sem Páll Skúlason rektor
Háskólans, Sigríður Ólafsdóttir, sér-
fræðingur á Raunvísindadeild Há-
skólans, og Þórlindur Kjartansson,
formaður Vöku, fluttu framsögu og
tóku þátt í pallborðsumræðum með
Bjarna Armannssyni, forstjóra Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins, Sigríði
Jóhannesdóttur, þingmanni Samfylk-
ingar, og Bimi Bjai-nasyni mennta-
málaráðherra.
Gæði menntunar eru stærsta
hagsmunamál stúdenta
Þórlindur Kjartansson, formaður
Vöku, sagði í framsögu sinni að mikil-
vægt væri að stúdentar tækju fmm-
kvæði í því að ræða málefni sem
þessi, því gæði menntunar væri
stærsta hagsmunamál stúdenta til
lengri tíma litið. Hann bendir á að
hlutverk Háskólans sé tvíþætt, ann-
ars vegar að miðla þekkingu og hins
vegar að skapa nýja þekkingu. Hann
telur mikilvægt fyrir Háskólann að
leggja áherslu á öflugar rannsóknir
en við núverandi aðstæður sé það
erfitt, meðal annars vegna þess að
fjöldi nemenda fari vaxandi og vegna
þess að sífellt erfiðara sé að keppa
um hæft starfsfólk. Þess vegna hafi
Háskólinn ekki efni á öðm en að losa
sig við þá sem ekki standi sig. Hann
segir þetta mjög flókið og viðkvæmt
mál því erfitt sé að finna góða mæli-
kvarða á þessu sviði. Þó verði að
reyna að setja þá því það sé mjög
þýðingarmikið að Háskólinn laði til
sín hæft fólk.
Þórlindur segist hlynntur því að
Háskólinn fái einnig fjármagn frá at-
vinnulífinu. Hann segir það vera
hræðsluáróður að segja akademískt
hlutleysi skólans vera í hættu komi
slíkt fjármagn til og bendir á að eng-
inn vilji leggja fé í vísindarannsóknir
sem skili ekki réttum og hlutlausum
niðurstöðum. Skapi Háskólinn sér
góðan orðstír í rannsóknum leiði það
til þess að aukið fjármagn berist til
hans og því sé lykilatriði fyrir Há-
skólann að öflugt rannsóknarstarf sé
unnið innan hans og að aðstæður til
þess séu eins og best verður á kosið í
heiminum.
Fólk verður aldrei fullnuma
Sigríður Olafsdóttir, sérfræðingur
við Raunvísindadeild HÍ, sagði í
framsögu sinni að með þeim breyt-
ingum sem nú ættu sér stað í heimin-
Fjöldi nemenda Háskóla Islands kom á málfundinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Bjarni Ármannsson, forstjóri Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, og Páll
Skúlason, rektor Háskóla Islands, ræðast við á málfundi um jafnvægi
kennslu og rannsókna í Háskóla Islands.
um yrðu allir að horfast í augu við
það að verða aldrei fullnuma og í því
samhengi benti hún á hversu mikil-
vægt sé að mennta og þjálfa fólk tU
rannsókna. Hún segir að aðstaða og
umhverfi tU rannsókna í Háskólanum
hafa breyst tU hins betra á undan-
förnum árum og góðan árangur af
þeim breytingum megi merkja á
auknum fjölda rannsókna og birtra
niðurstaðna. Hún segir brýnt að efla
rannsóknir við Háskólann enn frekar
og að liður í því sé að efla framhalds-
nám við allar deUdir, því rannsóknir
séu stór hluti af framhaldsnámi.
I rannsóknum felst að skUgreina
ný og áður óþekkt viðfangsefni á
skipulegan hátt og segir Sigríður
grunnrannsóknir oft vera eins og ferð
án fyrirheits þar sem forvitni reki
fólk áfram. Öll tækniþekking okkar
sé tilkomin vegna grunnrannsókna
en vandinn við fjármögnun slíkra
rannsókna sé sá að enginn viti hversu
lengi þurfi að bíða eftir ái-angri
þeirra. I Háskólanum fari fram mikl-
ar grunnrannsóknir og segir hún að
Islendingum beri skylda, sem einni af
ríkustu þjóðum heims, til að leggja
eitthvað af mörkum í þeirri þekking-
arleit sem eigi sér stað í dag.
Hún segir brýnt fyrir Háskólann
að leggja áherslu á rannsóknir því
þær skUi sér í fleiri og fjölbreyttari
atvinnutækifærum og hjálpi fólki að
standa sig á breyttum tímum.
Mikilvægt að vítt rann-
sóknarsamfélag dafni
Páll Skúlason, rektor HI, sagði í
framsögu sinni að meginviðfangsefni
háskóla, samkvæmt hefbundinni skil-
greiningu á hlutverki hans, sé að afla
þekkingai', varðveita hana og miðla
henni. Hann leggur áherslu á að
nemendur séu virkir aðUar í starfi há-
skólans og að þeir séu ekki aðeins þar
til að taka á móti þekkingu, heldur
einnig tU að taka þátt í þekkingarleit-
inni. Hann bendir á að sterk tengsl
séu á milli rannsókna og kennslu og
að nám í háskóla snúist um að beita
gagnrýnni hugsun og þjálfa hana.
Páll segir rannsóknarþáttinn verða
sífellt mikilvægari í háskólanámi, líka
í grunnnámi og bendir á þann fjölda
lokaverkefna sem byggist á rann-
sóknum. Hann segir kröfu tímans
vera þá að allt skuli rannsaka og yfir-
vega á fræðUegan hátt. Umhverfið
kalli á aukna þekkingu og að krafan
um fræðUeg vinnubrögð verði æ
sterkari.
Hann segir að rannsóknarum-
hverfið sem háskólar skapi sé mjög
mikUvægt og að gagnrýni og eftirlit
með rannsóknum hafi mikla þýðingu.
TU að stunda fræðirannsóknir verði
kunnátta og vald á rannsóknarað-
ferðum að vera tU staðar, sem og
skUningur á niðurstöðum þeirra.
MikUvægt sé að meta gæði rann-
sókna stöðugt og á það bæði við innra
mat á þeim og mat á gildi þeirra fyrir
þjóðfélagið. Hann bendh' á að hvergi
gangi fólk undir eins mikla og
stöðuga hæfnisdóma og í háskólum.
Þetta eigi bæði við um nemendur og
kennara og segir hann að eftirlit og
mat á hæfni og frammistöðu fræði-
manna og kennara sé sífellt að
aukast.
Páll segir mikUvægt að vítt rann-
sóknarsamfélag fái að dafna. Það sé
hlutverk Háskólans að stunda grunn-
rannsóknir og segir hann samvinnu
við annað rannsóknarstarf í landinu,
bæði meðal stofnana og fyrirtækja,
skipta máli. Hann segir alþjóðleg
samskipti einnig hafa mikla þýðingu
og ef horft sé á Háskólann sem rann-
sóknarháskóla sé mikUvægt að fá mat
á rannsóknir hans erlendis frá.
Fyrirtæki vilja ekki
stýra starfi Háskólans
I pallborðsumræðum að loknum
framsögum sagði Bjami Ármanns-
son, forstjóri FBA, að fyrirtæki í at-
vinnulífinu þyrftu á Háskóla Islands
að halda. Sá mannauður sem þar
byggi væri mikilvægur og að þar
skiptu gæði nemenda ekki síður máli
en gæði kennara. Hann segir rann-
sóknh’ innan Háskólans þýðingar-
miklai’ fyrir atvinnulífið og að Há-
skólinn væri á réttri braut með því að
efla þær.
Hann var spurður hvort hann teldi
að með styrkveitingu fyrirtækja tU
Háskólans gæti þróunin orðið sú að
fyrirtækin reyndu að hafa áhrif á það
starf sem þar færi fram. Þetta telur
Bjarni harla ólíklegt og bendir á að
með því að styrkja Háskólann séu
fyrirtæki ekki að reyna að stýra því
sem þar fari fram. Þau fyrirtæki sem
velji það að láta gera rannsóknir inn-
an Háskólans séu einmitt að sækjast
eftir þeim vinnubrögðum sem þar séu
notuð. Stjórnendur þessara fyrir-'
tækja geri sér grein fyrir því að
rannsóknir krefjist frelsis og þess að
hugarflugið fái lausan tauminn.
Nauðsynlegt að efla
framhaldsnám
Sigríður Jóhannesdóttir, þingmað-
ur Samfylkingar, segist telja að Há-
skólinn hafi staðið sig vel í rannsókn-
um í gegnum tíðina, þrátt fyrir tak-
markað fjármagn. Hún segir að frá
því að ný lög um Háskólann voru
samþykkt hafi horft tU betri vegar og
að nýr samningur um fjárhagsleg
samskipti ríkis og Háskólans gefi
ástæðu til bjartsýni.
Hún telur nauðsynlegt að efla
rannsóknir við Háskólann enn frekar,
þó að vel hafi verið gert hingað tU.
Hún segir eflingu framhaldsnáms
mikilvægan þátt í því og að æskilegt
væri að taka upp doktorsnám í ein-
hverjum greinum. Doktorsrannsókn-
ir væru oft á tíðum mjög hagnýtar og
eftirsóttar í atvinnulífinu.
ísland verði í fremstu röð
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra segir að í kjölfar yfirlýsingar
sem hann og háskólai’ektor hafi und-
irritað, þar sem fram kemur að þeir
muni beita sér fyrir gerð sérstaks
samnings um rannsóknir við Háskól-
ann i tengslum við undirbúning næstu
fjárlaga, sé mikUvægt að nota næstu
vikur og mánuði í að skUgreina betur
þátt rannsókna í starfi Háskólans.
Hann telur mikUvægt að skapa þeim
sem stunda vísindi, kennslu og rann-
sóknir frelsi til að ná árangri og að
auknar rannsóknir leiði tU meiri dýpt-
ar í námi. Ennfremur skuli setja það
markmið að Island verði í fremstu röð
hvað rannsóknir varðar og að fyrir-
myndarrannsóknarsetur geti orðið
hér í ákveðnum fræðigreinum.
Menntamálaráðherra tekur fram
að rannsóknirnar séu sá hluti há-
skólastarfsins sem marki Háskóla Is-
lands sérstöðu innan háskólastigsins.
Hann bendir á að með tUkomu nýrra
skóla hafi miklar breytingar orðið á
háskólastiginu á örskömmum tíma.
Hann segir mikUvægt að hefja um-
ræðu um háskólastigið við þessar
breyttu aðstæður, því umræða um
hvaða gildi það hafi fyrir þjóðina að
eiga öfluga háskóla verði að fara
fram. *