Morgunblaðið - 14.10.1999, Side 6

Morgunblaðið - 14.10.1999, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sameiginleg heimasíða allra lögregluembætta landsins Ætlað að stytta bilið milli lögreglu og almennings SÓLVEIG Pétursdóttir dóms- málaráðherra opnaði með form- legum hætti í gær sameiginlega heimasiðu á vegum ríkislög- reglusljóra fyrir öll lögreglulið landsins. Með opnun síðunnar hefur almenningi verið gert kleift að skoða öll lögregluemb- ætti landsins með innbyrðis tengingum með því að fletta upp einni sameiginlegri síðu lögregl- unnar á fslandi. Veffang heimasíðunnar er www.logregla.is og www.police.is og um gerð vefj- arins sá Hugvit hf. í samvinnu við starfsmenn tölvudeildar rík- islögreglustjórans og lögregl- unnar í Reykjavfk. Heimasíðan er þannig upp- byggð að ákveðnar upplýsingar eru staðlaðar fyrir allt landið. Má nefna að á aðalsíðu eru m.a. lögreglufréttir, dagbók lögreglu og netföng lögreglumanna. Er gert ráð fyrir að almenningi verði auðveldaður aðgangur að upplýsingunum með því að bjóða upp á áskrift að upplýsingunuin með tölvupósti. Með notkun heimasiðunnar getur almenningur einnig sent fyrirspurnir til lögregluembætta í landinu og spurt t.d. um fram- gang mála sinna hjá lögreglunni og komið með ábendingar um fjölmörg málefni, sem almenn- ingi þykir eiga heima á skjá lög- reglunnar. Að sögn Haraldar Johannes- sen ríkislögreglustjóra leggur lögreglan áherslu á að heima- síðan nýtist sem þjónustu- miðill fyrir almenning og með tilkomu hennar færist lögregl- an og störf hennar nær almenn- ingi. „Við erum að stytta bilið á milli hins almenna borgara og lögreglunnar og leggjum áherslu á að þeir fái skjót svör við þeim fyrirspurnum sem þeir varpa fram, bæði um störf lög- reglunnar og einstök mál sem varða þá,“ sagði Haraldur. Lögreglan vonast til þess að Morgunblaðið/Golli Frá formlegri opnun heimasíðu lögreglunnar í gær. Frá vinstri: Árni Albertsson aðstoðaryfirlögregluþjónn, Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra og Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri. með notkun heimasiðunnar tak- ist að virkja almenning til að auðvelda lögreglunni ýmis störf, en reynslan af heimasíðu lögreglunnar erlendis hefur gefíð ágæta raun í því tilliti, eins og eftirfarandi saga vitnar um. I Halifax týndist lítið barn fyr- ir nokkru og barst staðarlög- reglu tilkynning þess efnis. Við lögreglunni blasti erfið leit á stóru svæði og greip hún til þess ráðs að lýsa eftir baminu á fréttasíðu sinni á Netinu. Einn fjölmargra áskrifenda lögreglu- fréttanna sá tilkynninguna og meðfylgjandi ljósmynd af hinu týnda barni er hann opnaði tölvupóstinn á einkatölvu sinni. Kannaðist viðkomandi við að hafa séð barnið í verslunarmið- stöð í borginni og hafði samband við lögreglu. Við eftirgrennslan hennar kom í ljós að um var að ræða hið eftirlýsta barn og leiddu því upplýsingar borgar- ans til þess að barnið fannst að- eins fáeinum kiukkustundum eftir að það týndist. Rafiðnaðarsambandið mótmælir hugmyndum um breytingar hjá Orkuveitu Reykjavíkur Sömu menn leggi heim æðar og heimtaugar Banaslys í umferðinni Atján manns hafa látist á árinu ÁTJÁN manns hafa látist í umferð- arslysum á þessu ári, samkvæmt upplýsingum frá Umferðarráði. Ellefu banatilvikanna urðu utan þéttbýlis og sjö í þéttbýli eða í næsta nágrenni við þéttbýli. í októbermánuði í fyrra höfðu 20 manns látist í umferðarslysum en á öllu síðasta ári létust 27 manns í umferðinni. Samkvæmt upplýsingum frá Umferðarráði voru flestir hinna átján sem látist hafa það sem af er árinu, á aldrinum 25 til 64 ára, eða sex manns. Tveir hinna látnu voru böm undir 15 ára aldri, einn á aldr- inum 15 til 16 ára, fimm manns á aldrinum 17 til 20 ára, einn á aldr- inum 21 til 24 ára og þrír 64 ára og eldri. I umdæmi lögreglunnar á Sauð- árkróki hafa orðið fjögur banaslys á árinu, þrjú í Reykjavík og jafnmörg í Hafnarfirði og í umdæmi lögregl- unnar í Borgarfirði. HUGMYNDIR eru uppi innan Orkuveitu Reykjavíkur að þjálfa raf- virkja sem vinna við að leggja raf- magnsheimtaugar til að leggja um leið heimæðar heita vatnsins. Einnig að bjóða þessi verk út sameiginlega en gera jafnframt kröfur um að raf- virkjar verði fengnir til að sjá um lagningu rafmagns. Rafiðnaðarsamband íslands hefur sent Orkuveitu Reykjavíkur opið bréf þar sem íyrirætlunum Orku- veitunnar í þessu efni er mótmælt. „Okkur hefur borist tilkynning um að Orkuveitan hafi ákveðið að þjálfa rafiðnaðarmenn og gera þá færa um að leggja hitaveituæðar. Einnig hef- ur okkur verið tjáð að samskonar til- kynning hafi verið send til járniðnað- armanna sem hingað til hafa starfað að heimæðum Hitaveitunnar, um að þeir verði þjálfaðir til þess að leggja og ganga frá rafmagnsheimtaugum," segir meðal annars í bréfinu sem birt er á heimasíðu Rafiðnaðarsambands- ins. Er þessum fyrirætlunum mót- mælt harðlega, sagt að þau séu þver- brot á gildandi iðnlöggjöf og raf- magnsreglugerðum og ógni öryggi starfsmanna Orkuveitunnar og borg- arbúa. Þá eru boðaðar aðgerðir starfsmanna og stéttarfélaga þeirra. Bætt þjónusta Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, sem til varð með sameiningu Hitaveitu Reykja- víkur og Rafmagnsveitu Reykjavík- ur, segir að hugmyndir um hagræð- ingu með því að sameina lagningu heimtauga rafmagns og heits vatns hafi komið frá þeim starfsmönnum sem vinna þessi verk. Hugmyndin sé að bjóða rafiðnaðarmönnum upp á „ÞETTA voru mistök hjá starfs- mönnum okkar,“ sagði Gunnar Skúli Guðjónsson, framkvæmda- stjóri Dominos, eftir að tólf ára drengur, sem staðinn var að síma- ati, var látinn vinna upp í tjónið eins og greint var frá í frétt Morg- unblaðsins í gær. Höfðu gabbað fyrir um sjö þúsund krónur Gunnar sagði að þegar hefði ver- ið haft samband við móður drengs- ins og hún beðin afsökunar á því að drengurinn var látinn vinna upp í skuldina án þess að henni væri gert viðvart. „Ég held að sættir suðunámskeið og próf til þess að þeir geti einnig lagt heimæðar heita vatnsins. Þá væri rætt um að bjóða þessi verk út sameiginlega, þegar þau væru falin verktökum, en jafn- framt gerð krafa um að menn hefðu nauðsynleg réttindi, svo sem raf- virkjun, til að leggja heimtaug raf- magns. Guðmundur vísar því á bug að þessi áform feli í sér brot á reglugerð- um og bendir í því sambandi meðal annars á að lagnirnar séu utan húss og byggingareglugerð taki því ekki til þeirra. Þá hafi ekki verið krafist iðn- réttinda til að leggja heimæðar heita vatnsins. Hann neitar því einnig að öryggi starfsmanna eða borgarbúa sé stefnt í hættu. Tilgangur hugsanlegra breytinga sem feli margt fleira í sér sé að veita betri og fljótari þjónustu á sem hagkvæmastan hátt. hafi náðst,“ sagði Gunnar. „Það eina sem móðirin var óhress með var að ekki var þegar haft samband við hana. Strákarn- ir gáfu að vísu ekki upp réttan aldur og sögðust vera 14 ára. Það er töluvert um símaat og þessir eru búnir að gabba fyrir um 7 þúsund krónur en í svona tilfell- um á að hringja beint í lögregluna og afgreiða málið þannig. Það eru eðlileg viðbrögð og er yfírleitt gert þegar við getum rakið sím- tölin. Þá er hringt beint í foreldr- ana og þeir hafa komið hingað með börn og látið þau borga fyrir símaatið.“ Fangels- isdómur fyrir vor- veiðar RÚMLEGA tvítugur piltur hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fang- elsi fyrir að hafa skotið frið- aða fugla við Hjörleifshöfða í Vestur-Skaftafellssýslu hinn 1. maí í vor. Pilturinn var einnig sviptur skotvopnaleyfi og að auki dæmdur til að greiða 90 þúsund ki'ónur í sekt. Piltinum var gefið að sök að hafa skotið þrjár gæsir, sex stokkendur, tvo lóma og tvo tjalda að morgni hins 1. maí og brotið þar með lög um vemd, friðun og veiðar á villt- um fuglum og villtum spen- dýrum. Ákærða var einnig gefið að sök að hafa skotið að fuglum úr bifreið sinni í landi Straums og Vorsabæjar í Austur-Landeyjum án leyfís landeiganda síðar um daginn og játaði ákærði bæði brotin. Ákærði var ennfremur fundinn sekur um að hafa stofnað lífi og heilsu bóndans í Vorsabæ í hættu er hann ók með bóndann hangandi utan í bifreið sinni er bóndinn reyndi að stöðva för piltsins er hann hugðist hverfa fyrir- varalaust af vettvangi. Hafði bóndinn hringt á lögreglu vegna háttsemis piltsins en þar sem hún var langt undan vildi bóndinn fá piltinn til að bíða. Pilturinn reyndi hins vegar að flýja undan bóndan- um á bifreiðinni og dróst bóndinn nokkra tugi metra með henni og hlaut af því mar og skrámur. Jón Finnbjörnsson, dómari við Héraðsdóm Suðurlands, komst þó að þeirri niðurstöðu að bóndinn hefði ekki sýnt sérstaka varúð með fram- göngu sinni. Framkvæmdastjóri Dominos Mistökin lig-gja hjá starfsmönnunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.