Morgunblaðið - 14.10.1999, Page 16

Morgunblaðið - 14.10.1999, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Morgunblaðið/Porkell Um 2.000 íbúar í hverfinu hafa skrifað undir beiðni um göngnbrú yfir Miklubraut til móts við Framheimilið. Hafnar eru framkvæmdir við nýja göngubrú yfir Miklubraut til móts við Hagkaup, en um- ferðarhraði hefur aukist inn í borgina eftir að brúin við Skeiðarvog var tekin í notkun og umferðarljósin felld þar niður. Krafa um göngubrú til móts við Framheimilið Málið í athugun hjá borgaryfírvöldum Reykjavík BORGARYFIRVÖLD eru enn að kanna hvort byggja eigi göngubrú yfir Miklu- braut til móts við Framheim- ilið en um 2.000 íbúar hverfis- ins skrifuðu undir beiðni um brú fyrr á árinu. Að sögn Stefáns Hermannssonar borgarverkfræðings mun nið- urstaða fást í vetur. Borgarverkfræðingur benti á að framkvæmdir væru hafnar við göngubrú yfir Miklubraut til móts við Hag- kaup í Skeifunni. Rökin fyrir þeirri brú væru þau að eftir að ljósin voru felld niður við Skeiðarvog væri meiri hraði á umferðinni inn í borgina að fyrstu ijósum við Grensásveg. Sagði hann að í þeim tillögum sem fyrir lægju væri ekki gert ráð fyrir göngubrú til móts við Framheimilið. „Við höfum ekki mótmælt því að aðgengi gangandi úr Hvassaleiti í undirgöngin við Kringluna er ekki gott,“ sagði hann. „Það var því ákveðið að skoða þetta aftur þegar er- indi barst um það en þá var búið að binda framkvæmdir þessa árs og næsta árs í vega- áætlun.“ Fjölskylduráðgjöfín Efling starfar í Hafnarfírði Margar fj ölskyldur hafa leitað aðstoðar Morgunblaðið/Eiríkur P. Georgía Kristmundsdóttir sálfræðingur og starfsmaður Eflingar. Hafnarfjörður FJÖLSKYLDURÁÐGJÖFI N Efling hefur verið starf- rækt hjá Hafnarfjarðarbæ í tæp tvö ár. Markmið hennar er að veita fjöl- skyldumeðferð fyrir fjöl- skyldur í vanda með það fyrir augum að efla sam- heldni þeirra og hæfileika til að leysa úr vandamálum sfnum. Að sögn Georgíu M. Kristmundsdóttur sálfræð- ings hefur fólk leitað tals- vert til Eflingar og aðsókn farið stigvaxandi. Georgía er eini starfs- maður Eflingar og hóf störf þar í mars 1998, en starfsemin hófst nokkrum mánuðum fyrr. Tæpur helmingur þeirra sem leita til Eflingar kemur eftir til- vísun frá félagsráðgjöfum og um fjóröungur eftir til- vísanir frá skólum í Hafn- arfírði. Einnig getur fólk leitað til Eflingar að eigin frumkvæði og er íjöldi þeirra um fimmtungur af hcildarfjölda þeirra sem leitað hafa til Eflingar frá upphafi. Frá skólunum koma aðilar allt frá leik- skóla upp í framhaldsskóla til meðferðar. Að sögn Georgíu er í flestum tilfellum um að ræða fjölskyldumeðferð vegna vandamála á heimil- um sem oft verða vegna samskiptaerfiðleika. Hún segir meðferðina byrja þannig að gerður sé samn- ingur á milli hennar og viðkomandi fjölskyldu, sem m.a. snerti mætingar og þagnarskyldu. „Það sem rætt er hér innan veggja er alfarið á milli mín og skjólstæðinganna," segir Georgía. Einnig eru sett meðferðarmarkmið sem farið er yfir að meðferð Iokinni og athugað hvort þau markmið hafi náðst. Ef niðurstaðan er sú að þau hafi náðst er meðferðinni lokið, en að öðrum kosti er það metið hvort skjólstæð- ingarnir haldi áfram vinnu hjá Eflingu eða sé vísað til annars meðferðaraðila. Meðferðin gengur einnig út á það að fólkið sé sjálft virkt á milli viðtalstíma og fá fjölskyldurnar þá ýmis verkefni til að takast á við heimafyrir. Georgía telur að um 160 fjölskyldur eða einstakling- ar hafi leitað til Eflingar frá upphafi og það sé mun meiri fjöldi en hún hafði reiknað með í upphafi. Hún segir að fólk virðist kunna vel að meta þessa þjónustu og að eftirspurnin hafi far- ið stigvaxandi. Georgía segir það sjálfsagt fyrir fólk, sem telur að einhverj- ir erfiðleikar séu til staðar á heimilinu, að hafa sam- band við sig. „Segja má að því fyrr sem fólk leitar sér aðstoðar, þeim mun auð- veldara verður að leysa vandann og það er betra að takast á við vandamálið áður en það nær að grafa sig of djúpt í fjölskyldulíf- ið.“ Að sögn Georgíu kemur fólk til hennar með marg- vísleg vandamál sem til verða innan fjölskyldunn- ar. Samskiptaörðugleikar og vissir erfíðleikar við að setja sér mörk eru þó oft undirrót vandans. Hún seg- ir það misjafnt og einstak- Iingsbundið hversu fólk eigi auðvelt með að stíga það skref að leita sér að- stoðar. „Mér finnst góð reynsla af þessu starfi og tel að náðst hafi verulegur ár- angur,“ segir Georgía. Hún hvetur alla þá sem eru að hugleiða að leita sér að- stoðar að hafa samband fyrr en síðar, enda hafi reynslan frá því í fyrra sýnt að eftir því sem líður á veturinn hafi aðsóknin aukist til muna. „Þessi þjónusta er fyrir bæjarbúa og sjálfsagt fyrir þá að nýta sér þessa þjónustu, sem er rnjög dýr sé leitað til sérfræðinga sem starfa sjálfstætt," segir Georgía. Fram að þessu hefur ekki verið tekið gjald fyrir þessa þjónustu, en til stendur að sefja á gjald- skrá á næstunni, sem vænt- anlega verður þó viðráðan- leg fyrir fjölskyldur sem þurfa að leita til Eflingar. Fyrsta húsið rís á nýju hafnarsvæði Morgunblaðið/Ásdís Hafnarfjörður FYRSTA húsið á nýja hafn- arsvæðinu við Hafnarfjarð- arhöfn er nú að taka á sig mynd. Það er skipasmíða- stöðin Ósey hf. sem er eig- andi hússins. Framkvæmdir hófust seinni hluta ágúst- mánaðar þegar byrjað var að grafa fyrir sökklum húss- ins. Grindin er nú öll risin og eru menn byrjaðir að klæða húsið. Byggingin er 3.600 fermetrar og 38.000 rúmmetrar að stærð. Braut- arskálinn er 20 metra hár, 50 metra langur og 22 metra breiður. Hallgrímur Hall- grímsson, framkvæmda- stjóri Óseyjar, segir að verk- ið sé komið vel af stað, en reiknað er með að húsinu verði skilað fullbúnu 20. des- ember næstkomandi. Hallgrímur sagðist þó reikna með að fyrirtækið hefji þar starfsemi eitthvað fyrr, enda sé þó nokkur tími sem reiknaður er í ýmiskonar frágang. Hann segir að nú standi á veitumálum á nýja svæðinu, það vanti bæði heitt og kalt vatn, rafmagn og síma. Verið er að vinna í þeim málum, en að sögn Hallgríms er verkið ekki ennþá komið í útboð, og finnst honum að menn séu nokkuð seinir varð- andi framkvæmd veitumála á nýja svæðinu. „Þetta er eins og að byggja í eyðimörk, ekk- ert öðruvísi," segir Hallgrím- ur. Að sögn Hallgríms eru næg verkefni fyrirliggjandi hjá Ósey og smíðar á nýju skipi hófust í síðustu viku sem á að afhenda næsta vor. Það skip verður fyrsta ný- smíði í nýja húsinu. Byrjað er að smíða hluta af skrokkn- um í Póllandi og reiknað er með að það sem smíðað verð- ur þar komi tU landsins um áramót. Það fer þá beint inn í húsið og klárast þar. Nýtt 30 km hverfi Hafnarfjördur SAMÞYKKT hefur verið á fundi skipulags- og umferð- amefndar Hafnarfjarðar að í íbúabyggðinni suðaustan við Suðurbraut verði sett á 30 km hverfi rneð tilheyrandi aðgerðum. Á fundinum voru lögð fram erindi frá íbúum við Móabarð og Þúfubarð sem kvörtuðu undan of mikl- um hraða í hverfinu og bentu á að 50 km hámarkshraði væri of mikUl miðað við að- stæður. í ályktun nefndarinnar segir að stefnt sé að fjölgun svokallaðra 30 km hverfa í bænum og að þetta hverfi sé mjög vel til þess fallið. Þarna sé um að ræða tiltölulega einsleita íbúðabyggð þar sem ekki séu tU staðar nein stærri fyrirtæki eða verslan- ir og leikskóli sé í útjaðri hverfisins. Aðkomur að hverfinu eru þrjár og engar almenningssamgöngur eru innan þess.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.