Morgunblaðið - 14.10.1999, Síða 35

Morgunblaðið - 14.10.1999, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1999 35 LISTIR > Islenski dansflokkurinn frumsýnir þrjú ný íslensk verk í Borgarleikhúsinu í kvöld Blanda af spennu, hraða o g húmor Þrjú ný íslensk dans- og leikverk við frum- samda íslenska tónlist verða frumflutt í ------------------------7----- Borgarleikhúsinu í kvöld á vegum Islenska dansflokksins. Ragna Sara Jdnsdóttir leit inn á æfíngu, þar sem dramatík, húmor, hraði og spenna voru áberandi, og spjallaði við höfunda verkanna þriggja. ÍSLENSKI dansflokkur- inn frumsýnir í kvöld fyrstu alíslensku sýning- una frá því árið 1996 þegar verk Nönnu Ólafsdóttur, Féhirsla vors herra við tónlist Jóns Leifs og Francis Poulenc var sýnt á Listahátíð. Katrín Hall listdansstjóri hefur á þeim þremur árum sem hún hef- ur gegnt stöðu listræns stjómanda dansflokksins fengið til liðs við sig fjölda þekktra erlenda danshöf- unda til þess að bæði semja og setja upp eldri verk fyr- ir flokkinn. Nú breytir Kat- rín yfii' í algerlega íslenska sýningu þar sem sköpun ís- lenskra listamanna fær að njóta sín. I kvöld verða frumsýnd þijú verk, eftir íslenska danshöfunda. Eitt verk- anna er þó ekki einungis byggt á dansi heldur er þar um að ræða dansleikverk sem flokk- urinn Pars pro toto stendur að. Verk- ið Æsa: ljóð um stríð, er samvinna Láru Stefánsdóttur danshöfundar, Þórs Tulinius leikstjóra og Guðna Franzsonar tónskálds. Hugmyndin að verkinu kviknaði upphaflega út frá sögunni um Tyrkja-Guddu og þeim hörmungum sem þeir 400 Islending- ar sem numdir voru á brott í Tyrkjar- áninu árið 1627 þurftu að þola. Þau voru slitin frá sínum nánustu og flutt tíl framandi lands þar sem þau voru hneppt í þrældóm. Aðeins um 35 manns áttu afturkvæmt til Islands en lítíð sem ekkert er vitað um örlög hinna. „I verkinu tengjum við Tyrkjarán- ið við það sem er að gerast í heimin- um í dag,“ segir Lára Stefánsdóttír danshöfundur og Þór Tulinius leik- stjóri bætir við. „Þetta er saga svo margra á ólflcum tímum. Þetta er ekki bara sagan um það hvemig fór fyrir Islendingunum í Tyrkjaráninu heldur einnig um svipaða atburði sem eiga sér stað í dag. Það er stríðsást- and svo víða en það má segja að Tyrkjaránið sé það næsta sem ís; lenska þjóðin hefur komist stríði. I verkinu skoðum við hvemig Tyrkjar- ánið snertir okkur í dag.“ Leitín að sannleikanum Þór, sem skrifar sögu verksins, segir að helstu útgangspunktar sem hópurinn hafi unnið útfrá hafi verið ofbeldi, menningar- og trúabragðaá- rekstrar og aðskilnaður einstaklinga við sinn eigin menningar- heim. Guðni Franzson tón- skáld segir að verldð sé mjög dramatískt og í því eigi sér stað átök hins sanna og hins rétta: „Gmndvallarhugmynd verksins snýst um spurn- inguna: hvað er sannleik- ur? I ólíkum menningar- samfélögum og hjá ólíkum trúarhópum þrífst ólíkur sannleikur. Sannleikur sem er sannur á einum stað er rangur á öðrum stað og það er þess vegna sem við sjáum stríðsástand víða.“ Verkið Æsa: ljóð _ um stríð er dansleikverk. I því em fjórir dansarar og tveir leikarar. Það blandar sam- an nútímadansi, leiklist, texta og tónlist en er þó ekki hin hefðbundna blanda listformanna eins og þekkt er í hinu evrópska dansleik- húsi, að sögn þremenninganna. Verk- ið er fimmta sýning Pars pro toto flokksins sem stofnaður var árið 1985 og starfað hefui’ með hléum síðan. Guðni Franzson semur og leikur tónlistina. Hann leikur á fjölda hljóð- færa, þar á meðal hljóðfæri sem not- uð em í löndum Norður-Afríku. Þá notar hann elektrónísk hjjóð, líka- mshijóð og söng. Tónlistin verður gefin út á sérstökum geisladiski en verkið era rúmlega klukkustundar langt. Skárren ekkert fær liðsauka frá Quarashi Katrín Hall listrænn stjómandi ís- lenska dansflokksins setur upp sitt fyrsta dansverk á sýningunni í kvöld. Verkið NPK er unnið í samvinnu hennar og hljómsveitarinnar Skárren ekkert. Nafri verksins vekur upp spumingar, en það er nafn á áburði sem Aburðarverksmiðjan framleiðir. NPK, eða Nitur - Fosfór - Kalíum, örvar vöxt plantna en á einfaldan hátt má breyta honum í mjög kröftugt sprengiefhi. Katrín fæst við hlið- stæðu þessarar verkunar áburðarins í verkinu. „NPK er næring fyrir gróður. Við manneskjumar þurfum jafnframt næringu en það er spuming hvemig við ætlum að næra sálir okkar. Er það með einhveiju veraldlegu eða einhveiju andlegu,“ segir Katrín og heldur áfram. „Gmnnhugmyndin að baki verkinu er togstreita okkai- Að verkinu Æsa: ljtíð um stríð standa Guðni Franzson, Lára Stefánsdóttir, og Þór Tulinius. gagnvart því hvemig lífi við ætlum að lifa. Ætlum við að njóta augnabliksins eða ætlum við að sogast inn í hraða lífsgæðakapphlaupsins?" Verldð reynir mikið á þol og styrk dansaranna og segist Katrín jafn- framt vera að prófa sig áfram með hreyfingar og form, og tengsl tónlist- ar og hreyfingar. „Danshöfundar em að hugsa svo ótrúlega margt og ég verð ánægð ef áhorfendur koma auga á, þó ekki sé nema eitthvað af því sem ég er að velta fyrir mér.“ Hljómsveitín Skárren ekkert fer áður ótroðnar slóðir í tónlistinni að þessu sinni. Tónlistín byggist bæði á umhverfishljóðum úr Aburðar- verksmiðjunni meðal annars og tölv- utónlist, en einnig er hlutí tónlistar- innar spiluð lifandi af hljómsveitinni á sviðinu. Skárren ekkert hefur fengið til liðs við sig Sölva Blöndal, trommu- leikara úr hJjómsveitinni Quarashi sem einnig spilar með þeim á sviðinu. Maðurinn er ávallt einsamall Þriðja verk sýningarinnar er eftir Olöfu Ingólfsdóttur og kallast Maður- inn er alltaf einn. Upphaflega samdi Olöf verkið fyrir danshöfundasam- keppni íslenska dansflokksins sem haldin var fyrir ári síðan. Nú hefur hún lengt verkið og og er það í kring- um 20 mínútur. I verkinu bregður Ólöf upp mynd af sérstöðu hvers ein- staklings og því að aðrir öðlast aldrei fullan skilning á upplifunum hans í líf- inu. „Verkið Qallar um þann hluta mannlegrar tilvera að maðurinn er alltaf einn. Engir tveir einstaklingar upplifa sama hlutinn eins, upplifun þeirra byggist alltaf á annarri reynslu þeirra. Engii- tveir era eins hið innra jafhvel þótt það sem utan frá séð virð- ist vera eins. í verkinu eru fimm dansarar sem hver dansar sinn eind- ans og saman mynda þeir eina heild. Þeir gera sama Mutinn en hver á sinn hátt og það endurspeglar þá stað- reynd að engir tveir eru eins. Þörfin fyrir samskipti sprettur út frá þessari sértæku upplifun einstaklinga og þótt við öll þrífumst á samskiptum við aðra munu aðrir aldrei skilja okkur til fulls,“ segir Ólöf. Tónlistin er eftír Hall Ingólfsson og er hún trumsamin fyrir þetta verk. Tónlistin verður gef- in út á geisladiski ásamt tónlist Skár- ren ekkert við verkið NPK. Auk þess sem öll dansverkin sem ftmmsýnd verða í kvöld era frumsam- in af íslenskum höfundum, er tónlistin einnig frumsamin af íslenskum tónl- istarmönnum og búningar og leik- mynd eru eftír íslenska hönnuði. Því er hér um að ræða allstóran viðburð í íslensku menningarlífi. Garðlj Garðljósin eru komin aftur. • 4 í pakka • Spennubreytir • Perur fylgja • Framlengingarsnúra OS Tilboðsverð 5.990 kr. HÚSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is 3D Stiidio Max Grunnatriði þrívíddarfon itsins 3D Studio Max 20 stunda námskeið -► Skráning í síma 568 5010 T rí GRUNNUR t k RAFIÐNAÐARSKÓLINN Skeifan 11b, sími 568 5010, skoli@raf.is, www.raf.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.