Morgunblaðið - 31.10.1999, Qupperneq 56
56 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1999
J--------------------------
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
beriamó
Vestmannaeyjum - Níu félagar í
gönguklúbbnum „Doddarnir“
brugðu sér í berjamó 24. október
sl. Enn er góð ber að finna víða í
hrauninu vestur við Hamarinn
þrátt fyrir að fyrsti vetrardagur
sé liðinn. Eftir stutta stund voru
garparnir búnir að fylla ílátin af
j berjum. Þá var slegið upp hádeg-
isberjaveislu til að kveðja sumar-
ið, sem aldrei kom, og heilsa
vetri. A myndinni eru þeir Gunn-
laugur Ólafsson, stórútgerðar-
maður og skipstjóri, Þórarinn
Sigurðsson rafvirkjameistari, Jón
Ólafsson, rafeindavirki og sjón-
varpsstjóri, Torfi Haraldsson,
fyrsti stjórnandi á Hafnarvog-
inni, Hannes Haraldsson, skip-
stjóri á Baldri, Stefán Sigurjóns-
son, skósmiður og stjórnandi
Lúðrasveitar Vestmannaeyja,
Bragi Ólafsson, umdæmisstjóri
Flugfélags íslands í Vestmanna-
eyjum, og Geir Sigurlásson,
bólstrari og húsgagnasali.
íistinn er á
hálfvirði meðan
birgðir endast
= kr. 300,-
stór listi
Sími 555 2866 • bmag@simnet.is
snyrtivörurnar
laga og lækna
þaö sem hægt er
4
Hæð 30 sm.
Mismunandi gerðir.
Nú kr. 1.900
Fullt verð kr. 2.900
Meðan birgðir endast.
Pantið J-3000.
Full búð af vörum
Pöntunarsími 555 2866.
Fax 565 2866.
bmag@simnet.is
Oheft hugmyndaflug
ÍSLENSK hönnun ungs fólks verður til sýnis í Gall-
eríi Geysi í Hinu húsinu í dag og eru það nemendur
í hönnunardeild Iðnskólans í Reykjavík sem sjá um
sýninguna sem er hluti af Unglist. Óheftu hug-
myndaflugi þeirra var leyft að ráða ferðinni í hönn-
un þess sem fyrir augu ber og mun því margt skrít-
ið, skemmtilegt og sniðugt prýða galleríið.
„Það verða um 25 manns sem sýna hönnun sína,“
segir Aslaug Þorgeirsdóttir sem hefur liaft veg og
vanda af undir-
búningi sýningar-
innar. „Mikið af
hönnunarnáminu
í Iðnskólanum
tengist teikningu. Við lærum undirstöðuatriði hönn-
unar og þau felast mikið í því að læra að teikna,
fara rétt með liti, læra fjarvídd og fríhendisteikn-
ingu, svo eitthvað sé nefnt. Því eru verkin sem eru
á sýningunni alls konar myndir; grafískar myndir
og jafnvel ljósmyndir."
Að sögn Áslaugar eru nemendur deildarinnar
margir hverjir mjög listrænir og áhugasamir um
myndlist og ber sýningin þess nokkur merki. Auk
mynda af ýmsum stærðum og gerðum verður hægt
að skoða hluti sem nemendur sjálfir hafa hannað og
smíðað.
„Við munum t.d. sýna nokkrar gerðir af stólum
sem var verkefni í formhönnun í skólanum,“ segir
Áslaug. „Einnig verða aðrir þrívíðir hlutir sem
nemendur hafa verið að vinna að bæði í skólanum
og utan hans á sýningunni."
Hönnunarsýningin í Galleríi Geysi mun standa til
7. nóvember og er aðgangur ókeypis eins og á alla
viðburði Unglistar.
Morgunblaðið/Kristinn
Sigríður Ásdis Jónsdóttir, Linda Heider Reynis-
dóttir og Áslaug Þorgeirsdóttir báru hitann og
þungann af undirbúningi hönnunarsýningarinnar.
Hér eru þær að hengja upp teppi sem Berglind
Tryggvadóttir hannaði.
it was ön
f everyone s tongue
Fight Cl<
tvrópufrumsynd
5. nóvember
.www.tulerdDrden.rom
Unglist á
mánudagskvöldió
Kanntu
að meta
djass?
LISTAFÉLAG Menntaskólans
við Hamrahlíð heldur reglulega
listakvöld í Norðurkjallara þar
sem ýmsar listgreinar fá að
njóta sín. Á mánudagskvöld
verður boðið upp á
skemmtilega blöndu af djassi
og ljóðaflutningi í nafni
Unglistar, listahátíðar unga
fólksins, sem haldin er um alla
Reykjavík þessa dagana.
Áð sögn Steinars Júlíussonar
úr menningarsveit Hins
hússins þótti viðeigandi að leiða
djassinn og ljóðin saman í eina
sæng, en mikil gróska er í
báðum þessum listgreinum hjá
ungu fólki.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og
flytjendur verða Varð, Frost,
Markús, Júlíanna, Eiríkur og
Pétur sem ætlar að flytja ljóð.
„Þetta verður ekta listakvöld
að hætti MH,“ segir Steinar,
„en hver sem er getur haft
gaman af.“