Morgunblaðið - 01.12.1999, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
20,5 milljarðar í skatttekjur á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi Reykjavíkurborgar
Skatttekjur aukast um
1,6 milliarða milli ára
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri seg-
ir að frumvarp til fjárhagsáætlunar Reykjavikur-
borgar fyrir næsta ár endurspegli gott jafnvægi í
fjármálum borgarinnar en segir þó að ekki hafi
skapast forsendur til að skerða tekjustofna borg-
arsjóðs eða bæta við rekstur hans. Fmmvarpið
verður tekið til fyrri umræðu á morgun, fimmtu-
dag.
Að sögn Ingibjargar Sólrúnar gefur fjárhags-
staða borgarinnar tilefni til meiri bjartsýni en oft
áður þar sem betra jafnvægi er nú á milli skatt-
tekna, rekstrargjalda og fjárfestinga borgarsjóðs
en verið hefur allan þennan áratug. Skatttekjur
dugi nú fyrir rekstri og fjárfestingu borgarsjóðs
og tekjur sem skapast vegna sölu eigna eða niður-
færslu á eigin fé Orkuveitu Reykjavíkur verða
notaðar til að greiða niður skuldir um 2,5 milljarða
króna á næsta ári. Er jafnframt áætlað að borgin
eigi um tvo milljarða króna í lok næsta árs í pen-
ingalegum eignum en stefnt er að því að nota það
fé til að greiða niður skuldir á árinu 2001.
Aætlaðar skatttekjur borgarsjóðs á næsta ári
em 20,5 milljarðar króna. Þar af er útsvar rúmir
17 milljarðar og fasteignagjöld rúmir 3,3 milljarð-
ar króna. Áætlað er að skatttekjurnar aukist um
1,6 milljarða króna milli áranna 1999 og 2000 eða
sem nemur 8%. Skatttekjuaukningin er litlu minni
en hún var á milli áranna 1998 og 1999 en þá var
um 10% aukningu að ræða.
Mest útgjöid til fræðslumála
Rekstrargjöld borgarsjóðs næsta ár eru áætluð
16,4 milljarðar króna og aukast um 1,2 milljarða á
milli ára. Vegur þar þyngst 525 milljóna króna
hækkun til fræðslumála sem er langstærsti út-
gjaldaliður borgarinnar eða 32% af skatttekjum.
Ingibjörg Sólrún telur að þótt framlög hafí
hækkað til fræðslumála hefðu þau mátt vera enn
hærri svo unnt væri að ljúka einsetningu grann-
skólanna sem fyrst, en stefnt er að því að ljúka ein-
setningunni á næstu þremur áram.
í greinargerð með fjárlagaframvarpinu kemur
fram að hlutfall einsetinna skóla í borginni hefur
aukist úr 48% í 75% á siðustu þremur áram. Spá
fyrir næsta ár hljóðar upp á að hlutfall einsetinna
skóla fari í 83%.
Hækkun framlaga til annarra málaflokka vegur
einnig þungt í þeirri 1.200 milljóna króna rekstr-
argjaldaaukningu sem um ræðir en þar má nefna
170 milljóna króna hækkun til leikskóla, 140 millj-
óna króna hækkun til menningarmála og 115 millj-
óna króna hækkun til viðhalds gatna og holræsa.
I frumvarpinu er áætlað að 80% af skatttekjum
næsta árs fari til rekstrarmálaflokka eða sem
svarar rúmum 16,4 milljörðum ki-óna sem fyrr var
getið, en samkvæmt yfirliti hefur hlutfall rekstr-
argjalda af skatttekjum ekki verið jafnlágt síðan
árið 1992 þegar það var 72% af skatttekjum.
Heildarskuldir borgarsjóðs era nú tæpir 15,5
milljarðar króna eða rúm 80% af skatttekjum og
gert er ráð fyrir því að heildarskuldir fari niður í
tæpa 13 milljarða króna á næsta ári, eða sem svar-
ar 63% af skatttekjum.
Að mati Ingibjargar Sólrúnar mai-ka þessir
áfangar skil í rekstri Reykjavíkurborgar en hún
telur þó ástæðu til að gjalda varhug við því að líta
svo á að skapast hafi forsendur fyrir því að skerða
tekjustofna eða bæta við rekstur borgarsjóðs þar
sem slíkt svigrúm sé ekki fyrir hendi.
í framvarpinu er einnig ráðgert að selja eignir
borgarinnar að andvirði 1,7 milljarða króna þar
sem sala Sjúkrahúss Reykjavíkur til ríkisins veg-
ur þyngst. Einnig er ráðgert að selja skuldabréf
útgefið af Orkuveitu Reykjavíkur fyrir 3 milljarða
króna.
Framvarpið verður tekið til síðari umræðu í
borgarstjórn Reykjavíkur og endanlegrar af-
greiðslu hinn 16. desember.
Jóla-
korta-
vefur á
mbl.is
LESENDUM mbl.is gefst nú
kostur á því að senda vinum
og vandamönnum jóla- og
nýárskveðjur á Jólakortavef
mbl.is. Kortin eru búin til
með þremur einföldum að-
gerðum sem útskýrðar eru
jafnharðan fyrir notendum.
Notendur geta valið um
átta mismunandi tungumál
þegar kveðjurnar eru sendar.
Móttakandi fær tölvupóst þar
sem fram kemur hvernig
nálgast megi kortið. Hverjum
móttakanda er einnig úthlut-
að númeri sem hann getur
slegið inn á upphafssíðu vefj-
arins og fengið yfirlit yfir öll
þau kort sem honum hafa ver-
ið send.
Dregið verður úr nöfnum
þeirra sem senda kort og fá
13 heppnir sendendur vinn-
inga frá Hans Petersen. Má
þar nefna stafræna Kodak
myndavél af gerðinni DC 215
og Canon Ixus Xl-myndavél.
i
f
i
Salmonellusýking í kúm á bæ í Djúpárhreppi f Rangárvallasýslu
Miklar ráðstafanir til
að fyrirbyggja smit
i " —
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þriggja bíla árekst-
ur á Akureyri
SALMONELLUSÝKING hefur
greinst í kúm á bænum Bjólu I í
Djúpárhreppi í Rangárvallasýslu, að
sögn Halldórs Runólfssonar yfir-
dýralæknis. Héraðsdýralæknirinn á
Hellu stöðvaði þegar sölu á mjólk og
sláturdýram og gerði jafnframt aðr-
ar nauðsynlegar varúðarráðstafanir
til að fyrirbyggja að smit bærist frá
búinu. Þegar hafa nokkrar kýr drep-
ist á Bjólu og margir gripir era veik-
ir.
Auglýsing-
ar á baksíðu
Frá og með deginum í dag, mið-
vikudeginum 1. desember, er
auglýsendum Morgunblaðsins
gefinn kostur á að fá birta
auglýsingu á baksíðu blaðsins.
Á baksíðu í dag er fyrsta
auglýsingin af þessu tagi og er
hún frá fyrirtækinu B&L.
Auglýsingar á baksíðu era í
fastri stærð, 2ja dálka sinnum 6
sm á hæð, neðst á síðu, sem er
nýlunda, en áfram bjóðast
auglýsingar, 1 dálkur sinnum 3
sm á hæð, beggja vegna blað-
hauss á baksíðu eins og verið
hefur.
Að sögn yfirdýralæknis er hér um
alvarlegan sjúkdóm að ræða sem get-
ur einnig borist í fólk. Á Bjólu er rek-
ið mjög snyrtilegt kúabú sem nýlega
tók í notkun svokallaðan mjaltaþjón
en ekki er talið að búnaður þessi eigi
nokkurn þátt i að sýking kom upp á
búinu. Hins vegar á lausaganga
kúnna við slíkan búnað hugsanlega
þátt í því að smitið hefur magnast
innan hjarðarinnar.
Sigurður Sigurðarson, dýralæknir
nautgripasjúkdóma, sagði enga
hættu á að sýkingin bærist með af-
urðum. Þegar hefði verið tekið íýrir
sölu á mjólk og sláturgripum frá
Bjólu. Bakterían væri ekki lífseig og
dræpist við gerilsneyðingu.
Salmonellutegundin sem fundist
hefur á Bjólu er Salmonella thypim-
urium, sem er algeng í mávum og
hröfnum hér á landi og hefur valdið
dauðsföllum meðal folalda á Suður-
landi. I fréttatilkynningu frá yfir-
dýralækni segir að leitað verði allra
leiða til að upplýsa með hvaða hætti
sýkillinn hefur borist inn á búið og
sýni hafa verið tekin af fóðri og vatni.
Engin hætta talin á faraldri
Sigurður segir að ekki sé nein
hætta á að þetta verði faraldur. „Það
er heldur ekki mikil hætta á að þetta
breiðist út þegar menn vita við hvað
er að fást,“ sagði hann.
Sigurður sagði að hægt væri að
koma í veg fyrir útbreiðslu sýkingar-
innar með varasemi í umgengni og
hreinlæti. „Við því var varað strax og
fyrstu fréttir bárast af þessu að þetta
kynni að vera varasamt upp á dreif-
ingu. Heimilisfólk var beðið að sjá
um að ekki yrði farið af bænum í fatn-
aði sem notaður er í gripahúsunum
og eins var tekið fyrir heimsóknir á
bæinn og það hefur alveg verið farið
eftir því að mér skilst," sagði Sigurð-
ur.
Mánuðir gætu liðið þar til búið
verður opnað aftur
„Það er ekki gott að segja um það
með vissu hvað það getur tekið lang-
an tíma að hreinsa jörðina. Hún er
stór, um 70 kýr og geldneyti, og það
teygir á tímanum meðan þetta er að
breiðast út í þessum hópi. Það gæti
a.m.k. tekið nokkrar vikur,“ sagði
Sigurður, en tekið hefur verið fyrir
sölu á mjólk og sláturdýram frá bæn-
um uns gripirnir hafa hreinsað sig af
sýklinum og náð góðri heilsu á ný og
búið sótthreinsað að því loknu.
„Það verður væntanlega fylgst
með gripunum með sýnatöku og
ræktun og haldið áfram þar til ekkert
finnst og nokkrar neikvæðar prafur
fengnar áður en opnað verður aftur.“
Sigurður sagði að ómögulegt væri
að segja með nokkurri vissu hvað
langur tími gæti liðið en jafnvel gæti
verið um mánuði að ræða.
ÞRIGGJA bíla árekstur varð á
mótum Mýrarvegar og Þingvalla-
strætis á Akureyri um klukkan
sex í gærkvöldi. Að sögn lög-
reglunnar á Akureyri var ein
manneskja flutt á slysadeild lítið
meidd, en aðrir slösuðust ekki.
Bílarnir eru allir töluvert
skemmdir og þurfti að draga einn
þeirra af vettvangi með dráttar-
bifreið.
Að sögn lögreglu vildi ár-
eksturinn þannig til að einn bíll-
inn ók yfír á rauðu ljósi og lenti á
bifreið sem var að aka þvert yfir
gatnamótin á móti grænu ljósi, sú
bifreið kastaðist síðan á aðra bif-
reið sem ók í gagnstæða átt á
móti grænu ljósi.
Fimm aðrir árekstrar urðu á
Akureyri í gær og var ein mann-
eslga flutt á slysadeild lítið
meidd, aðrir sluppu við meiðsl.
Tveir bflar skemmdust mikið í
þeim árekstrum og voru dregnir
á brott með dráttarbifreið.
í dag
WWW.MBL.IS
► í Verinu í dag er meðal annars sagt frá verðhækkunum
á Kvótaþingi, ungum athafnamönnum á Flateyri og fjallað
um sjávarafurðamarkaðinn í Þýskalandi. f blaðinu er einnig
að finna fiskifréttir, auk hefðbundinna upplýsinga um land-
anir og verð á erlendum og innlendum fiskmörkuðum.
Með
Morgun-
blaðinu
í dag er
dreift
blaði frá
Bison
Bee-Q
„Mjúkir
pakkar
fyrir
jólin
1999.“