Morgunblaðið - 01.12.1999, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 01.12.1999, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hann er alveg búinn að missa áhugann á rör-listinni, hann vill bara hossa sér áfram í stólnum. fbúðahverfíð „Icelandic Close“ í Hull endurbætt Færa Islendingum þakkir RÆÐISMAÐUR Islands í Hull í Englandi hefur sent Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur, borgarstjóra Reykjavíkur, bréf þar sem borgar- búum og útvegsmönnum á íslandi eru færðar sérstakar þakkir fyrir peningagjöf er þeir færðu borginni fyrir um 50 árum síðan. Árið 1946 afhenti borgarstjórinn í Reykjavík borgarstjóra Kingston- upon-Hull 20.000 pund að gjöf frá Félagi íslenskra botnvörpuskipaeig- enda. Gjöfín var háð þeim skilmálum að henni yrði varið til byggingar leiguíbúða á vildarkjörum fyrir aldr- aða, þar sem aldraðir sjómenn hefðu forgangsrétt. Alls voru 27 íbúðir byggðar og hlaut íbúðahverfið, sem nýverið hef- ur verið endurbætt, nafnið „Iee- landic Close.“ I bréfi ræðismannsins kemur fram að húsnæði í hverfinu hafi verið reist eftir hörmungar og eyðileggingu síð- ari heimsstyijaldarinnar. Ræðjs- maðurinn segir að framlagið frá Is- landi hafi nýst vel og fer hann þess sérstaklega á leit að Landssambandi íslenskra útvegsmanna séu kynntar endurbætur hverfisins. Hann segir íbúa Hull þakkláta fyrir örlæti og samhygð íslenska sjávarútvegsins fyrir hálfri öld. Dagdeild geðdeildar SHR tuttugu ára Góð reynsla af hópmeðferð Ingvar Kristjánsson UM þessar mundir eru tuttugu ár síðan dag- deild geðdeildar Borg- arspítala nú Sjúkrahúss Reykjavíkur (SHR) tók til starfa. Hún starfar nú á Hvítabandinu við Skólavörðustíg þar sem hún raunar var í upp- hafi, en í millitíðinni hefur hún verið til húsa í Templarahöll og eitt ár í Hafnarbúðum. Ingvar Kristjánsson er sérfræðingur þessarar deildar. Hann var spurður hvert væri um- fang hennar núna? „A þessum tuttugu árum hafa 1.200 sjúkl- ingar fengið þjónustu á deildinni. Þeir eru á aldrinum 18 ára til sex- tugs en algengasti al- durinn er 30 til 35 ára. Um fimm til sex konur eru á móti hverjum karli í sjúklingahópnum.“ -Hvaðþjáir þetta fólk oftast? „Þunglyndi er algengasti sjúk- dómurinn sem sjúklingar hér stríða við. Persónuleikaraskanir af ýmsu tagi einnig, svo og hugsýki sem áður var nefnd taugaveiklun, afleiðingar áfalla verða mörgum þungbærar einn- ig samskiptaörðugleikar og ein- angrun. Þess má geta að nokkuð margir sem hafa komið hingað hafa áður átt við að stríða of- notkun áfengis og fengið með- ferð við því sem hefur dugað, en kvarta um andlega vanlíðan. Við erum líka hér með fólk sem hefur orðið fyrir misþyrmingum, svo sem nauðgunum, barsmíðum á heimili og annars konar ofbeldi." - Kemur þessi þjónusta að því gagni sem að var stefnt þegar deildin varstofnuð? „Það er ótvírætt að þessi starf- semi kemur að gagni. Einn meg- inkostur við svona starfsemi er að fólk er í góðum tengslum við sitt daglega umhverfi þótt það njóti meðferðarinnar. Það kemur hingað einn og hálfan tíma á dag þannig að meðferðin skilar sér væntanlega beint út í samfélagið. Við sjáum ótvíræð einkenni þess að sjúkdómseinkenni batna og teljum að sjúklingarnir sem oft búa við ómegð heima séu miklu hæfari til þess að veita börnum sínum það sem þeim er tilfinn- ingalega nauðsynlegt. Meðferðin skilar sem sagt samfélaginu hraustara ungviði og nýtari þegnum, ekki aðeins þeim sem koma hingað í meðferð heldur líka afkomendum þeirra. Þess má geta að við erum með í gangi ítarlega árangursrannsókn.“ - Hvernig eru aðstæður deild- arinnar núna? „Ég myndi segja að þær væru nokkuð góðar. Við erum til húsa á þriðju hæð Hvítabandsins og nýtum einnig risið að nokkru. En meðferðin hér er í raun þríþætt. Við erum í fyrsta lagi með sam- talsmeðferð - sem er analytisk hópmeðferð, síðan er það listmeð- ferð - art therapy og loks líkamsvitundar- meðferð sem við höf- um kallað svo. í sam- talsmeðferð er leitast við að draga fram ómeðvitaðar tog- streitur í sálarlífi sjúklinganna og gera þær meðvitaðar svo þeir geti barist við þær. í listmeðferð- inni er myndlist beitt í sama til- gangi í líkamsvitundarmeðferð- inni eru líkamsæfingar af ýmsu tagi notaðar í sama skyni. Marg- ir þeir sem eiga lengi við andlega ► Ingvar Krisljánsson fæddist í Vesturbæ Reykjavíkur árið 1939. Hann tók stúdentspróf 1959 frá Verslunarskóla Islands og lauk læknaprófi frá Háskóla íslands 1966. Hann lagði stund á geð- lækningar í Lundúnum á árunum 1969 til 1976 en eftir að sérnámi lauk kom hann heim og hóf störf á Kleppsspítala, síðan á geðdeild Landspítalans þegar hún opnaði 1979. Árið 1985 flutti hann sig um set og hóf störf sem sérfræð- ingur á Borgarspítala. 1989 tók hann við hópmeðferðardeild dagdeildar Borgarspítala sem nú starfar á Hvítabandinu við Skóla- vörðustíg. Ingvar er kvæntur Erlu Nielsen tónmenntakennara og eiga þau þrjú börn. erfíðleika að stríða eru með má segja „fasta spennu“ í vöðvum sem hefur áhrif á líkamsbeitingu og líkamsstöðu og veldur tals- verðri vanlíðan. Um þess spennu má losa með réttum líkamsæf- ingum." - Notið þið mikið meðul í ykk- ar meðferð? „Við notum lyf eftir þvi sem við teljum þörf á en reyndin er sú að því lengra sem sjúklingarn- ir komast í hópmeðferðinni því minna nota þeir af lyfjunum og sumir útskrifast án lyfja.“ - Erþessi hópmeðferð algengt meðferðarform núna? „Ég tel að þessi meðferð sé notuð langtum minna en efni standa til. Að jafnaði eru aðeins á þriðja tug sjúklinga sem njóta meðferðarinnar hverju sinni en með auknum mannskap mætti hugsa sér að margfalda umfang- ið og beita þessu formi meðferð- ar við sálvefræna sjúkdóma í auknum mæli.“ -Hvaðan koma sjúklingai'nir sem þið hafið í meðferð? „Þeir koma frá geðdeildum ríkisspítala og öðrum geðdeild- um. Einnig frá heimil- islæknum, sjálfstætt starfandi sérfræðing- um og margir frá Fé- lagsmálastofnun Reykjavíkur. Þess má geta að á Norðurlönd- um er hópferðarformið miklu meira nýtt en hér og í vor er ráð- gert að íslendingar haldi í fyrsta skipti samnorrænt þing hópmeð- ferðaraðila og verður það í Reykjavík. Á þessu þingi von- umst við hér til að geta birt fyrstu niðurstöður úr fyrr- nefndri árangursrannsókn okkar á Hvítabandinu.“ Samnorrænt þing hópmeð- ferðaraðila hér í vor
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.