Morgunblaðið - 01.12.1999, Síða 12

Morgunblaðið - 01.12.1999, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Tannlæknafélag Islands hefur leitað skýringa á reglugerð um tannhreinsun Elli- og örorkulífeynsþegar fái fulla endurgreiðslu TANNLÆKNAFELAG Islands hefur fengið úr því skorið af hálfu heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins að elli- og örorkulífeyris- þegar skuli hljóta takmarkalausa endurgreiðslu fyrir tannhreinsun. Tryggingastofnun ríkisins sé því eklri heimilt að takmarka tann- hreinsun elli- og örorkulífeyrisþega við tvær til fjórar tímaeiningar á ári eins og hún hefur gert. Þá hefur lög- fræðingur TFÍ efasemdir um að um- rædd reglugerð standist lög. Tannlæknafélag íslands leitaði lögfræðiálits og álits ráðuneytisins í kjölfar þess að sett var reglugerð um þátttöku Tryggingastofnunar ríkis- ins í kostnaði við almennar tann- lækningar í janúar 1998. Að sögn Bolla R. Valgarðssonar, fram- kvæmdastjóra Tannlæknafélags Is- lands, var reglugerðin sett í mikilli andstöðu við heilbrigðisstéttina og ekkert tillit var tekið til vísindalegra raka við samningu hennar. Tannlæknafélagið taldi ekki koma skýrt fram í reglugerðinni hvort þær takmarkanir sem settar voru á um endurgreiðslu vegna almennra tann- lækninga ættu við um elli- og ör- orkulífeyrisþega jafnt sem um börn og unglinga, og til hvaða aldurs takmarkanirnar gildi er varðar börn og unglinga. TFÍ veitir ókeypis aðstoð við að útbúa kærur Ingólfur Hjartarson, hæstaréttar- lögmaður, segir í lögfræðiáliti sínu að samkvæmt almennum lögskýr- ingarreglum verði að túlka orðalagið „Tannhreinsun barna 13 ára og eldri“ samkvæmt orðanna hljóðan og í samræmi við upphaf gi-einarinnar þar sem vísað er til barna og ungl- inga 17 ára og yngri. TFÍ hvetur tannlækna til að upp- lýsa skjólstæðinga sína um rétt þeirra til endurgreiðslu þessa þáttar. Félagið býður jafnframt þeim elli- og örorkulífeyrisþegum sem vilja leita réttar síns ókeypis aðstoð við að út- búa kæru til nefndarinnar, að sögn Bolla. Hann segir að þegar sé til meðferðar kæra hjá úrskurðarnefnd almannatrygginga vegna endur- greiðslu af þessu tagi og væntanlega muni kærum til nefndarinnai- fjölga í kjölfar fyrrnefndra yfírlýsinga ráð- uneytisins. Bolli segir að það sé umhugsunar- efni fyrir hagsmunasamtök elli- og örorkulífeyrisþega að tannlæknar séu að gæta réttar skjólstæðinga þeirra. „Við erum að verja rétt elli- og örorkulífeyrisþega og mér finnst það umhugsunarefni fyrir hags- munasamtök elli- og örorkuiífeyris- þega, svo sem Félag eldri borgara, Óryrkjabandalag íslands og Þroska- hjálp að þau skuli ekki gæta réttar skjólstæðinga sinna hvað þetta varð- ar betur en raun ber vitni,“ segir Bolli. TFÍ leitaði einnig álits hjá Tómasi Jónssyni hæstaréttarlögmanni varð- andi reglugerðina. í áliti hans segir að hann hafi miklar efasemdir um það hvort reglugerðin standist lög. „í raun má segja að reglugerð 28/ 1998 standist ekki að því leyti sem hún takmarkar rétt manna til tann- læknaþjónustu skv. 37. gr. alm.tr. laga,“ segir í áliti Tómasar. , , Morgunblaðið/Golli Álmur, sem stendur við Túngötu 6, hefur verið valinn tré ársins af Skógræktarfélagi íslands. SIT áréttar fyrri yfir- lýsingu sína SAMBAND íslenskra tryggingafé- laga hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar tilkynningar FÍB. Þar er ár- éttað að um mikinn vanda sé að ræða og bent er á að um sam- norrænt verkefni hafi verið að ræða. í ályktun SÍT segir: „Til að meta umfang vátryggingasvika skoðuðu tjónsuppgjörsmenn vátryggingafé- laga kröfur sem settar höfðu verið fram um greiðslu vátryggingabóta. Skráð var sérstaklega, þar sem ein- hver grunur gat leikið á því að um vátryggingasvik væri að ræða. Langalgengast er að tryggingasvik birtist á þann veg að gert er meira úr tjóni en efni standa til, og á þann veg krafist hærri bóta en réttmætt getur talist. Niðurstöður gefa vísbendingu um, að á Norðurlöndum kæmu vá- tryggingasvik við sögu í 10% bóta- krafna, og að 10% bótagreiðslna fé- laganna séu umfram það, sem réttmætt getur taljst. Niðurstöður athugunarinnar á íslandi bentu til minna umfangs vátryggingasvika hérlendis og lægju sambærilegar tölur fyrir Island á bilinu 5-10%. M.ö.o. annaðhvort væru íslendingar heiðarlegri í þessum efnum en nor- rænir frændur vorir eða eftirlit og skráning íslensku vátryggingafélag- anna væri betri. Eigi að síður er um mikinn vanda að ræða hér á landi.“ í niðurlagi yfirlýsingar SÍT segir: „Það er óviðunandi að hinn heiðar- legi meirihluti vátryggingataka sé að greiða fyrir ólögmætan ávinning tiltölulegra fárra í formi hærri ið- gjalda en ella.“ TRÉ ársins hefur verið valið og er það tæplega 11 metra hár álinur, sem stendur við Túngötu 6. Skóg- ræktarfélag íslands veitti Reykja- víkurborg, sem er núverandi eig- andi trésins, viðurkenningu af þessu tilefni í gær og veitti Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir borgarstjóri henni viðtöku. f grein Brynjólfs Jónssonar, fram- væmdastjóra Skógræktarfélags ís- lands, um tré ársins, sem birtist í Skógræktarritinu, segir: „Álmurinn er eitt af mestu djásnum Reykjavík- ur. Hann breiðir umfangsmikla krónu sína í allar áttir og hefur á síðustu áratugum notið þess frelsis að fá að vaxa án þrenglsa af bygg- Álmur við Túngötu val- inn tré ársins ingum eða öðrum trjám.“ Tré ársins var nú valið í annað skiptið, en í fyrra varð birkitré á Akureyri fyrir valinu. Brynjólfur sagði í samtali við Morgunblaðið að tilgangurinn með þessu væri að draga fram í dagsljósið gömul og merkileg tré og beina því til fólks að huga vel að þeim. Auk borgarstjóra fékk Agnar Kofoed-Hansen, alnafni langafa síns, sem var lögreglustjóri og flug- málastjóri á sínum tíma, viðurkenn- ingu. Áfi Agnars gróðursetti tréð á sínum tíma, líklega rétt eftir alda- mótin, fyrir Magnús Einarsson dýralækni sem bjó þá í húsinu við Túngötu 6. Magnús Finnsson, dótt- ursonur Magnúsar Einarssonar, fékk einnig viðurkenningu frá Skógræktarfélinu. Brynjólfur sagði að sú tegund af álmi sem stæði við Túngötuna væri nær útdauð í Evrópu, vegna álm- veiki, en að veikin hefði ekki náð hingað til lands, þar sem hún bærist með bjöllutegund sem þrifist ekki við íslenskar aðstæður. FÍB telur að Samband tryggingafélaga ofmeti stórlega vátryggingasvik á fsiandi Vísa útreikningum á bug FÉLAG íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, telur að Samband íslenskra tryggingafélaga hafi byggt útreikn- inga um vátryggingasvik á íslandi á röngum forsendum, en sambandið komst að þeirri niðurstöðu að 5-10% allra tjónabóta séu fengnar með vá- tryggingasvikum. FÍB bendir á að þessi niðurstaða sé ekki byggð á hald- bærum rökum úr bókhaldi trygginga- félaganna heldur norskri skoðana- könnun. Röksemdimar standist ekki nánarí skoðun. „FÍB sér ástæðu til að taka upp hanskann fyrir biireiðaeigendur gegn þessum dylgjum, þar sem SÍT telur að bifreiðaeigendur standi að baki 60% tryggingasvikanna. Samkvæmt tölum frá 1997 greiddu íslensku tryggingafélögin um 4,3 milljarða í bætur vegna ökutækja. Þau telja að allt að 600 milljónir króna af þeirri fjárhæð séu fengnar með svikum eða 14% af bótagreiðslum," segir í frétta- tilkynningu frá FIB. „Samkvæmt könnuninni telja Norðmenn að svik í hveiju máli nemi um 10 þúsund krónum íslenskum. Ef sú tala er heimfærð á íslenskar öku- tækjatryggingar koma vátrygginga- svik þá árlega við sögu í allt að 60 þús- und ökutækjatjónum hér á landi. Það ljónir króna árlega, þ.e. 10 þúsund krónur í 1.500 málum. Sú upphæð er 0,34% af heildartjónagreiðslum vegna ökutækjatrygginga ársins 1997, en ekki 5-10% eins og SÍT heldur fram. Ef norska 10 þúsund króna svika- talan er yfirfærð á öll meint trygg- ingasvik hér á landi, þá lætur nærri að SÍT saki allt að 100 þúsund íslend- inga um svik vegna tjónabóta á hverju ári,“ segir í frétt FIB. FIB bendir á að ef 10% bóta- greiðslna séu fengnar með svikum nemi prettirnir ekki 10 þúsund krón- um í hveiju svikamáli heldur 400 hundruð þúsund. kemur engan veginn heim og saman við raunveruleikann, því íslensku tryggingafélögin afgreiða um 15 þús- und tjónamál vegna ökutækja á hverju ári. Jafnvel þó um svik væri að ræða í hveiju einasta tjónsmáli næðu heildarsvikin mest 150 milljónum króna en ekki 600 miðað við þessar forsendur. En SÍT heldur því þó ekki fram að hvert einasta tjónamál sé svik- samlegt, heldur allt að 10% þein-a. Miðað við norsku tjónatöluna - 10 þúsund í hveiju máli - kosta svik vegna ökutækjatrygginga íslensku tryggingafélögin í mesta lagi 15 mil- Varað við útikertum Drengur brennd- ist illa UM helgina brenndist 13 ára drengur þegar hann rak fótinn í útikerti sem komið hafði verið fyrir utan við byggingu. Hlaut drengurinn 2. stigs bruna á fæti þegar heitt vax úr kertisskál- inni slettist á hann. Af þessu tilefni vill Árvekni, Átaksverkefni um slysavamir barna og unglinga, koma því á framfæri við fólk að meðhöndl- un útikerta krefst varúðar þar sem slys af völdum þeirra hafa orðið á aðventunni. Þau kerti sem um ræðir eru stór kerti í ál- eða blikkdósum og geta reynst hættuleg þegar þau hafa bráðnað að fullu vegna hins mikla magns af vaxi sem í þeim er. Kertum sem þessum er oftast komið fyrir við útidyi' verslana, veitingastaða, sam- komustaða og íbúðarhúsa. Vill Árvekni beina því til fólks að koma kertunum fyrir í stöðug- um stjökum og forðast að stað- setja þau við útidyr. Rann niður í Leirvogsá KONA missti vald á bíl sínum seint í fyrrakvöld við Leirvogsá skammt of- an við Mosfellsbæ með þeim afleið- ingum að bíllinn fór fram af kanti og ofan í ána. Um 15 metra fall er að ræða. Lögreglumaður, sem var á heimleið úr vinnu, sá ljósglampa í gilinu og fór að athuga málið. Konan hafði þá setið í bíl sínum um ein- hvern tíma og var orðin nokkuð köld. Bíllinn kom niður á hjólunum. Árekstur við Skálatún Um svipað leyti varð árekstur á Vesturlandsvegi við Skálatún. Oku- maður missti vald á bíl sínum þannig að hann lenti á bíl sem kom úr gagn- stæðri átt. Sá bíll kastaðist á ljósa- staur. Ökumenn beggja bílanna voru fluttir á slysadeild, en munu ekki vera alvarlega slasaðir. Bílarnir ein illa farnir. Vont veður og slæm færð var a þessu svæði í fyrrakvöld. Snjóflóð á Siglu- Q’arðar- veg Siglufirði-Tvö lítil snjóflóð féllu á veginn til Siglufjarðai' á mánudagsmorgun í svokölluð- um Mánárskriðum. Að sögn Rúnars Péturssonar hjá vega- gerðinni á Sauðárkróki voru flóðin lítil, en þó nægilega stór til að teppa veginn í 1-2 klukkustundir. Rúnar sagði að ekki hafi verið nein hætta af flóðunum svo vitað væri, en þó yrði allt- af að hafa varann á vegna um- ferðar um veginn þegar þess- ar aðstæður sköpuðust. Þó að flóðin hafi ekki verið stór, gætu þau hæglega skapað hættu fyrir vegfarendur. Síðara flóðið féll þegar moksturstæki höfðu lokið við að hreinsa fyrra flóðið af veg- inum og voru komin inn á Siglufjörð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.