Morgunblaðið - 01.12.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 13
Félagsþjón-
usta Reykja-
víkur hlýtur
starfsviður-
kenningu
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri veitti í gær Félags-
þjónustu Reykjavíkur starfsviður-
kenningu borgarinnar fyrir árið
1998. Starfsviðurkcnninguna hlýt-
ur jafnan sú stofnun eða fyrirtæki
borgarinnar sem hverju sinni þykir
hafa skarað fram úr í rekstri eða
þjónustu. Borgarsijóri sagði árs-
reikninga borgarinnar staðfesta
hve rétt sú ákvörðun hafi verið að
fela strofnunum borgarinnar meira
vald, svigrúm og ábyrgð.
Ingibjörg Sólrún sagði að Félags-
þjónustan hafi á síðustu árum sýnt
frumkvæði í að skilgreina hlutverk
sitt í ljósi þjóðfélagsþróunar. Lögð
hafi verið áhersla á þjónustu-
hlutverkið og virðingu gagnvart
viðskiptavinum. Félagsþjónustan
hafi unnið kerfísbundið að því að
auka upplýsingastreymi og skilning
á hlutverki sínu. Lögð hafí verið rík
áhersla á að virkja forstöðumenn
og starfsmenn í að auka hag-
kvæmni og væri heimaþjónustan
gott dæmi um það.
Jafnframt sagði borgarstjóri að
Félagsþjónustan hafi lagt áherslu á
dreifstýringu og starfsemi í hverf-
um borgarinnar og tekist einkar
vel til við verkefni sem færðust yfír
frá Ráðhúsinu með dreifstýring-
unni.
Lára Bjömsdóttir, félagsmála-
stjóri Reykjavíkurborgar, veitti
viðurkenningunni móttöku og fékk
jafnframt það verkefni í hendurnar
frá borgarstjóra að velja í viður-
kenningarskyni þá 10 starfsmenn
Félagsþjónustunnar, sem boðið
verður ásamt mökum í áramótahóf
borgarinnar í Perlunni, sem haldið
verður í tilefni þess að Reykjavík
verður ein af menningarborgum
Evrópu árið 2000.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Jakobi R.
Möller, hæstaréttarlögmanni:
„Síðdegis sunnudaginn 28.
nóvember 1999 hringdi í mig Eirík-
ur Jónsson, blaðamaður á DV,'
vegna útvarpsþáttar á Bylgjunni,
sem var nýlokið. Þar hafði Jón
Steinar Gunnlaugsson, hrl., verj-
andi ákærða í hæstaréttarmálinu
nr. 286/1999, fjallað um málið frá
sínum sjónarhóli, auk þess sem
sjónarmið ættingja kæranda í mál-
inu komu fram.
í viðtalinu, sem á eftir fór, vildi
blaðamaðurinn fá að vita, hvort ég
teldi að ættingi kæranda ætti að
kæra lögmanninn fyrir einhvers-
SAMRAÐSVETTVANGUR um
náttúruvernd (SRN) í Noregi hefur
sent Norsk Hydro bréf þar sem
þess er óskað að fyrirtækið taki
ekki þátt í að reisa álverksmiðju í
Reyðarfirði nema að undangengnu
lögformlegu mati á umhverfisáhrif-
um á Fljótsdalsvirkjun.
Aðild að SRN eiga Ferðamála-
samtök Noregs, Náttúruverndar-
samtök Noregs, Skot- og stangveið-
isamtök Noregs og World Wildlife
Foundation í Noregi. I bréfinu
hvetur SRN Norsk Hydro til að
falla frá byggingu álvers í Reyðar-
konar yfirvöldum vegna brota sem
blaðamaðurinn sagði, að ættinginn
teldi lögmanninn hafa framið.
Blaðamanninum var skýrt frá því,
að í tengslum við Lögmannafélag
Islands væri starfandi úrskurðar-
nefnd lögmanna, sem fjallaði um
firði nema tryggt sé að orkuveitan
sem knýr álverið skaði hvorki né
eyðileggi íslenska náttúru. „Það eru
lágmarkskröfur að Norsk Hydro
taki ekki þátt í slíku verkefni nema
Fljótsdalsvirkjun og Eyjabakkalón
fari í mat á umhverfisáhrifum sam-
kvæmt íslenskum lögum,“ segir í
bréfinu.
í bréfinu er gerð grein fyrir því
að um sé að ræða stærsta ósnortna
víðerni í Vestur-Evrópu. Þar sé að
finna gljúfur sem sé 10 sinnum
stærra en gljúfrin í Alta-ánni í Nor-
egi. Þar séu jarðfræðilegar minjar
brot á lögmannalögum og siðai-egl-
um lögmanna. Ekkert erindi hefði
þá, eftir því sem ég vissi bezt, bor-
izt nefndinni eða stjórn félagsins
frá kærandanum eða ættingjum
hennar. Úrskurðarnefnd lögmanna
tekur ekki mál upp að eigin fnim-
og landslag sem líkt hefur verið við
Yellowstone þjóðgarðinn í Banda-
ríkjunum og votlendissvæðið Eyja-
bakkar sem er mikilvægt fyrir fugla
og sérstakt hvað varðar gróður.
„Það verður veruleg eftirsjá fyrir
kynslóðir framtíðarinnar ef votlend-
issvæðið Eyjabakkar hverfur undir
lón. Það bryti í bága við Ríó- og
Ramsarsáttmálana um vernd vot-
lendissvæði. Við teljum jafnframt
að verði verkefnið að veruleika
muni það skaða verulega ímynd
Norsk Hydro sem umhverfisvæns
fyrirtækis," segir í bréfinu.
kvæði, frekar en aðrir úrskurðarað-
ilar og var blaðamanninum sagt
það. Hann spurði um aðrar leiðir,
sem ættinginn gæti farið. Ég sagði
honum, að teldi aðili máls að annar
aðili þess, eða lögmaður, hefði brot-
ið gegn ákvæðum laga um meðferð
opinberra mála í tengslum við mál-
ið, gæti viðkomandi snúið sér til
lögreglu með kæru.
Því fer mjög fjarri, að ég hafi
sagt við blaðamanninn að ættinginn
ætti að kæra lögmanninn til lög-
reglunnar, heldur sagði ég í svari
mínu það sem fram kemur að ofan,
að sá sem teldi brotið gæti kært til
lögreglu.
Jakob R. Möller, hrl.“
Morðákæra
þingfest
Þórhallur
• •
Olver
Gunnlaugs-
son lýsir sig
saklausan
ÞÓRHALLUR Ölver Gunnlaugs-
son, sem ákærður er fyrir mann-
dráp og þjófnað með því að hafa
ráðið Agnari W. Agnarssyni bana á
heimili hins látna í sumar og rænt
skartgripum að verðmæti 285 þús-
undum króna, lýsti sig saklausan af
ákæru ríkissaksóknara að því er
varðar þann ákærulið sem fjallar
um manndráp, en játaði á sig
þjófnað á heimili hins látna.
Akæra ríkissaksóknara hefur
verið þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur og verður málið tekið
fyrir 8. desember.
Ákærði krafðist
lokaðra réttarhalda
Ákærði fór fram á að dómþing
færi fram fyrir luktum dyrum en
Valtýr Sigurðsson, dómsformaður í
fjölskipuðum dómi héraðsdóms,
hafnaði þeirri kröfu. Krafðist skip-
aður verjandi ákærða þá úrskurðar
dómsins vegna kröfunnar og gaf
dómsformaður verjanda frest til
fimmtudagsins 2. desember til að
leggja fram skriflegan rökstuðning
fyrir kröfunni. Jafnframt verður
ákæruvaldinu gefið færi á að tjá sig
um kröfuna áður en dómsformaður
kveður upp úrskurð sinn um hvort
dómþing skuli haldið fyrir luktum
dyrum.
Verjandi ákærða tjáði dóminum
ennfremur að fram færi gagnaöfl-
un í þeim tilgangi að vísa ákæru
ríkissaksóknara frá dómi.
Akærða er gefið að sök í ákæru
ríkissaksóknara að hafa stungið
hnífi margoft í brjósthol Agnars
heitins að framan og aftan 14. júlí í
sumar. Ákærði hefur setið í gæslu-
varðhaldi síðan 20. júlí, en þá úr-
skurðaði héraðsdómur hann í
gæsluvarðhald til 21. desember.
Var úrskurðurinn kærður til
Hæstaréttar sem stytti gæsluvarð-
haldið til 1. desember.
—♦ ♦ -
Galli í öryggisbelta-
búnaði Mercedes
Benz af M-línu gerð
Ræsir kall-
ar inn bif-
reiðar til
skoðunar
RÆSIR hf., sem hefur umboð fyrir
Mercedes-Benz á íslandi, mun á
næstu dögum kalla inn til skoðunar
allar Mercedes-Benz bifreiðar af
M-línu gerð. I gæðaprófun í verk-
smiðju fyrirtæksins kom í ljós að
líklega þarf að skipta um öryggis-
beltabúnað í um 0,5% bifreiða af
þessari gerð.
í fréttatilkynningu frá Ræsi seg-
ir: „Þetta er gert í ítrasta öryggis-
skyni eftir að belti losnaði úr hylki
við gæðaprófun í verksmiðju á dög-
unum. Eftir þetta atvik voru 2.500
M-línu bílar skoðaðir í verksmiðj-
unni og voru gerðar athugasemdir
við búnaðinn í þremur þeirra. Eng-
ar kvartanir hafa borist frá við-
skiptavinum og ekkert slys hefur
orðið.
Til að gæta fyllsta öryggis hyggst
Ræsir hafa samband við eigendur
M-línu bifreiða á Islandi og kalla
þær inn til skoðunar. Læsingar-
hylkin í framsætunum verða skoðuð
og prófuð og þeim skipt út ef galli
kemur í ljós.“
Forystumenn KI, BSRB og BHM gengu á fund ráðherra
Mótmæla frumvarpi
fj ármálaráðherra
FORYSTUMENN Kennarasambands íslands,
BSRB og BHM gengu á fund Geirs H. Haarde
fjármálaráðherra í gær og afhentu honum sam-
eiginlega yfirlýsingu þessara samtaka, þar sem
mótmælt er lagafrumvarpi fjármálaráðherra
um breytingar á lögum um kjarasamninga opin-
berra starfsmanna. Krefjast samtökin þess að
frumvarpið verði dregið til baka.
„Það verður engin sátt um þessi lög ef þetta
fer svona fram,“ sagði Björk Vilhelmsdóttir,
formaður BHM, í samtali við Morgunblaðið en
samtökin gagnrýna stjórnvöld fyrir að ætla að
breyta leikreglum kjarasamninga einhliða og
segja það fela í sér grófa misbeitingu ríkisvalds.
Samtök opinberra starfsmanna hafi ítrekað þá
afstöðu að rétt sé að endurskoða lögin frá
grunni með hagsmuni að leiðarljósi.
„Lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar þrengir
enn frekar að réttarstöðu opinberra starfs-
manna - sem þegar er mun þrengri en reglur
sem gilda á almennum vinnumarkaði. Frum-
varpinu er ætlað að koma í veg fyrir að opinber-
ir starfsmenn segi upp störfum sínum til þess
að ná fram sameiginlegu markmiði. Fullur vilji
hefur verið til þess að ræða um slíkar breyting-
ar á lögum um kjarasamninga opinberra starfs-
manna samhliða öðrum breytingum á lögunum.
Breytingar á sameiginlegum leikreglum verður
hins vegar að ákveða með samkomulagi en ekki
aðeins breyta því einu sem vinnuveitendum er í
hag hverju sinni,“ segir í yfirlýsingunni.
Getur torveldað
næstu samningsgerð
Samningar opinberra starfsmanna og ríkisins
renna út á næsta ári. Aðspurð sagði Björk að
þetta mál gæti haft áhrif á komandi kjaravið-
ræður. „Ef þetta er sá andi sem á að verða í
komandi samningum, að teknar séu einhliða
ákvarðanir um sameiginleg málefni, þá mun
þetta gera samskiptin miklu erfiðari en þau
annars þurfa að vera,“ sagði hún.
Morgunblaðið/Golli
Lára Björnsdóttir, félagsmálastjóri Reykjavíkurborgar, veitir starfsviðurkenningu borgarinnar viðtöku úr
hendi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra.
Norsk ferðaþjónustu- og náttúruverndarsamtök
mótmæla Fljótsdalsvirkjun
Segja umhverfísvæna
ímynd Norsk Hydro í hættu
Yfírlýsing frá Jakobi R. Möller, formanni Lögmannafólags Islands
Sagði að hlutað-
eigandi gæti kært,
ekki ætti að kæra