Morgunblaðið - 01.12.1999, Side 16

Morgunblaðið - 01.12.1999, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Borun rannsóknarholu við Bakkahlaup í Öxarfirði olli vonbrigðum Holan ekki náð fullum hita BORUN fyrstu rannsóknarholunn- ar við Bakkahlaup í Öxarfirði á veg- um einkahlutafélagsins Islenskrar orku ehf. er nú lokið en hún er 2.000 metra djúp. Hæsta hitastig holunn- ar hefur mælst 180 gráður en fyrir um tveimur mánuðum benti margt til þess að hitastig holunnar yrði um 250 gráður. Holan hefur ekki náð fullum hita eftii- borun og því alls ekki útilokað að hitinn eigi eftir að fara vel yfir 200 gráður. Hins vegar er ýmislegt sem bendir til þess að holan sé bor- uð í jaðri háhitasvæðisins. Vonir standa til að afla megi gufu á svæð- inu við Bakkahlaup til verulegrar raforkuframleiðslu fyrir almennan markað og stóriðju, þegar hennar verður þörf. Að sögn Franz Árnasonar, fram- kvæmdastjóra Hita- og vatnsveitu Akureyrar og stjómarformanns Is- lenskrar orku, liggja niðurstöður rannsókna ekki fyrir en miðað við fyrirliggjandi forsendur sé a.m.k. 240 stiga hiti á svæðinu og að sú orka sem reiknað var með fáist þar. „Rannsóknir munu nú halda áfram en frekari ákvarðanir um framhaldið verða ekki teknar fyrr en niðurstöður þeirra liggja fyrir,“ sagði Franz. Heildarkostnaður við verkið verður 120-130 milljónir króna, sem er svipuð upphæð og reiknað var með. Engin háhitaummerki á yfirborði Háhitasvæðið við Bakkahlaup er hluti af ósum Jökulsár á Fjöllum á miðjum söndum Öxarfjarðar innan Kröflusprungubeltisins. Svæðið er óvenjulegt fyrir þær sakir að það er nánast kaffært í sandi og lítil sem engin háhitaummerki sjást á yfirborði. Háhitasvæðið fannst með svokölluðum viðnámsmælingum sem Orkustofnun framkvæmdi fyr- ir rúmum tveimur áratugum. Ann- að sem er óvenjulegt við svæðið er að þar er hugsanlega að finna olíu- gas. Akveðið hefur verið að setja net jarðskjálftamæla í rannsóknarskyni er nýtast mun við rannsóknir á jarðhitasvæðum í Öxarfirði, á Þeistareykjum, í Kröflu og Bjarn- arflagi. Hluthafar í Islenskri orku ehf. eru Hita- og vatnsveita Akur- eyrar, Jarðboranir hf., Keldunes- hreppur, Landsvirkjun, Orkuveita Húsavíkur, Rafmagnsveitur ríkis- ins, Rafveita Akureyrar og Öxar- fjarðarhreppur. Stofnhlutafé var um 130 milljónir króna. Morgunblaðið/Kristj án Franz Árnason, framkvæmdastjóri Hita- og vatnsveitu Akureyrar og stjórnarformaður Islenskrar orku ehf., og Gísli Gíslason hjá Landsvirkjun og stjórnarmaður í félaginu, framan við borinn Sleipni við Bakka- hlaup í Oxarfirði. Desemberspá Veðurklúbbsins á Dalbæ s Ostöðugt veður en engin stórviðri VEÐUR í desembermánuði verð- ur svipað og verið hefur í nóvem- ber, en jafnt og þétt harðnar, seg- ir í spá Veðurklúbbsins á Dalbæ á Dalvík. Félagar í klúbbnum eru ánægðir með nóvemberspá sína en hún gekk að mestu leyti eftir. Nú eru tvö af vetrartunglunum búin og hefúr hlánað í þau bæði og svo gert smáhret upp úr tungl- fyllingunni. Veðurklúbbsmenn segja að framundan sé smákafli þar sem lítið eitt hlánar, en mun minna en í síðustu tveimur mán- uðum og verður desember því ekki eins hlýr og þeir voru. Lík- legt sé að snjóinn taki ekki alveg upp. Búast þeir klúbbfélagar við að veðrið verði fremur óstöðugt, en gera samt ekki ráð fyrir neinum stórviðrum. Upp úr 22. desember spá þeir smáhreti og yfir jólin má samkvæmt spánni gera ráð fyrir hríðarhraglanda, en að gott verði á milli. Jólin verði því hvít og falleg og áramótaveðrið verði einnig þokkalegt. Þannig haldist veðrið fram að eða fram yfir þrettándann. Upp úr því er breytinga að vænta, en félagarn- ir eiga eftir að liggja betur yfir þeim. Þeir sjá eitthvert undar- legt aukatungl i janúarmánuði sem enn sé ótfóst hvaða þýðingu hafi. Verslunarhúsnæði til leigu á besta stað í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð. - Stærð 82 fm. - Húsaleiga á mán. kr. 45.000. - Allar innréttingar, faxtæki og peningakassi til staðar. - Húsnæðið er laust strax. Upplýsingar gefur Jón Stefánsson ísíma 461 1861. Skákþing Norðlendinga í opnum flokki Halldór marði SKÁKÞING Norðlendinga í opnum flokki var háð á Akureyri um síðustu helgi. Keppni var mjög jöfn og spennandi og fyrir síðustu umferð gat sú staða komið upp að fímm keppendur yrðu jafnir og efstir. Sig- urvegari varð hins vegar 15 ára pilt- ur, Halldór Brynjar Halldórsson. Hann fékk 6,5 vinninga af 9 mögu- Jólatréð frá Randers Ljósin kveikt KVEIKT verður á jólatrénu frá Randers, vinabæ Akureyrar í Danmörku, á laugardag, 4. des- ember, og hefst athöfnin kl. 15.30. Lúðrasveit Akureyrar leikur, Kór Akureyrarkirkju syngur jólalög, Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri flytur ávarp sem og Sigurður Jóhannesson, ræðis- maður Dana. Ljósin verða svo tendruð á trénu kl. 16.15 og að því loknu syngur kór Mennta- skólans á Akureyri nokkur jóla- lög og jólasveinar koma í heim- sókn. Tónleikar TÓNLISTARSKÓLINN á Akur- eyri efnir til nokkurra tónleika í desembermánuði og verða þeir fyrstu haldnir á fímmtudagskvöld, Brynjar sigur legum og er því Skákmeistari Norð- lendinga 1999. Jafnir í 2. til 4. sæti urðu Þór Val- týsson, Gylfí Þórhallsson og Sigurð- ur Eiríksson með 6 vinninga. í 5. sæti varð Stefán Bergsson með 5,5 vinninga og í 6. til 7. sæti urðu Jón Árni Jónsson og Jakob Þór Krist- jánsson með 4 vinninga. I síðustu umferð tefldu þeir innbyrðis Halldór Brynjar og Stefán en þeir voru jafnir fyrir lokaumferðina. Halldór Brynj- ar vann skákina eftir tvísýna baráttu en með jafntefli hefðu fímm kepp- endur orðið jafnir í efsta sæti. Ólafur hraðskákmeistari Hraðskákmeistari Norðlendinga varð Ólafur Kristjánsson en hann fékk 13 vinninga af 14 mögulegum. Gylfi Þórhallsson hafnaði í 2. sæti með 11,5 vinninga og í 3. til 4. sæti urðu þeir Þór Valtýsson og Halldór Brynjai- Halldórsson. Skákstjórar á Norðurlandsmótinu voru Ari Frið- fínnsson og Ingimar Friðfínnsson og Jón Björgvinsson. Næst á dagskrá hjá Skákfélagi Akureyrar er æfíng barna og ung- linga nk. laugardag kl. 13.30. Sunnu- daginn 5. desember kl. 14 er tíu mín- útna mót með nýju fyrirkomulagi, þar sem sigur gefur þrjú stig en jafntefli eitt stig. Teflt er í Skipagötu 18. 2. hæð. gítarnema 2. desember. Það eru tónleikar gít- ardeildar og verða þeir haldnir á sal skólans og hefjast kl. 20.30. Fram koma nemendur á efri stigum. Umferðar- óhöpp í hálkunni TVEIR fólksbflar rákust harkalega saman á gatnamót- um Drottningarbrautar og Leiruvegar á Akureyri í gær- morgun. Ökumaður annars bflsins var fluttur með sjúkra- bifreið á slysadeild FSA en meiðsl hans voru ekki talin al- varleg. Eignatjón varð hins vegar mikið og þurfti að flytja annan bflinn af vettvangi með kranabfl. Þá rakst lítill pallbfll utan í flutningabfl með tengivagn í Víkurskarði skömmu eftir há- degi í gær. Ökumaðurinn var fluttur til skoðunar á slysa- deild FSA en meiðsli hans voru ekki talin alvarleg. Bfll- inn stórskemmdist og var dreginn af vettvangi með kranabfl en flutningabfllinn skemmdist lítið. Tilkynningar um þrjú önnur umferðaróhöpp höfðu borist lögreglunni á Akureyri seinni- partinn í gær. Ekki urðu slys á fólki í þeim óhöppum en nokkurt eignatjón. Mikil hálka var á götum Akureyrar og ná- grennis í gær en þrátt fyrir það voru tveir ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur, á Drottningarbraut og Ólafs- fjarðarvegi. Ljóðakvöld á Sigurhæðum Sverrir Pálsson les SÍÐASTA ljóðakvöldið að sinni verður í Sigurhæðum - Húsi skáldsins í kvöld, mið- vikudagskvöldið 1. desember. Þá les Sverrir Pálsson skáld og fyrrverandi skólastjóri Gagnfræðaskólans á Akureyri eigin Ijóð, birt og óbirt, en hann hefur lengi verið þekkt- ur fyrir að fást við skáldskap þótt ekki hafí orðið af útgáfu fyrr en á síðustu árum að hann bar fram uppskeru sína í bókunum „Slægur" og „Töðu- gjöld“ Er Svemr hinn síðasti í bili í röð Akureyrarskálda sem lesið hafa ljóð sín í Húsi skáldsins nú í haust, en fram- hald verður á þegar þráðurinn verður að nýju tekin upp á þorranum. Auk lestrar Sverris mun Erlingur Sigurðarson for- stöðumaður Sigurhæða minn- ast fullveldisins með nokkrum ljóðum úr sjálfstæðisbaráttu seinni tíma og velur þeim tit- illjóð Snorra Hjartarsonar „Land, þjóð og tunga“. Alls hefur verið efnt til níu ljóðakvölda og eru gestir þeirra þegar orðnir á þriðja hundraðið. Þá hefur verið tek- ið á móti hópum, bæði félaga- samtaka og úr framhaldsskól- um bæjarins. Flugelda- sýning í DAG miðvikudaginn 1. des- ember kl. 18.00 verður flug- eldasýning í miðbæ Akureyrar, nánar tiltekið á uppfyllingunni við höfnina. Sýningin er haldin á vegum Nýja bíós og Símans GSM en nú er um eitt ár liðið frá því að Nýja bíó og verslun Símans opnuðu í miðbænum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.