Morgunblaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDID
Jólaföndur
foreldra-
og kennara-
félagsins
Grindavík - Harpa Guðmunds-
dóttir, formaður foreldra- og
kennarafélags Grunnskóla
Grindavíkur, var ánægð með
þátttökuna í hinum árlega jóla-
föndursdegi félagsins.
„Þetta eru þriðju jólin hjá mér
í þessu félagi og algjör metþátt-
taka. Jólafóndrið er frábært frá
þeim í Heimaföndri enda sést það
á sölunni og þátttökunni. Það
sem er skemmtilegast er hvað
foreldrarnir eru jákvæðir og hér
er jákvæður andi yfir öllum,
sannkölluð jólastemmning. Það
eru svo margir mættir að ég vona
bara að allir fái eitthvað með
kaffinu á eftir,“ sagði Harpa.
Það má segja að þessi dagur sé
sá dagur sem kemur flestum
Grindvíkingum í jólaskapið.
Jólalög eru spiluð og foreldrar
mæta með kökur þannig að allir
fái eitthvað með kaffinu.
Frá jólaföndrinu í grunnskólanum.
Morgunblaðið/Garðar Páll
Snerpa setur
upp vefsíur
í Lands-
bankann
ísafirði - Landsbanki Islands hefur
samið við Tölvuþjónustuna Snerpu á
ísafirði um uppsetningu hins nýja
vefsíubúnaðar (klámsíubúnaðar)
Snerpu í öllum stofnunum og útibúum
bankans um land allt. Þessa dagana
er unnið að uppsetningu búnaðarins á
tölvunetum bankans og verður hann
notaður þar til áramóta til reynslu.
Hér er um að ræða búnað sem
hægt er að nota til þess að útiloka
hvaða tegundir af efni sem óskað er
en er alls ekki einskorðaður við klám.
Þannig er hægt að útiloka að sóttar
séu kvikmyndir eða annað tiltekið af-
þreyingarefni, t.d. ef líkur eru taldar
á því að starfsmenn fyrirtækja mis-
noti vinnutíma sinn með því að liggja
á Netinu. Búnaðurinn útilokar til-
tekna vefþjóna, en hjá Snerpu eru
skráðir tæplega 10.000 vefþjónar sem
sérhæfa sig í klámi og á hverjum
þeirra eru yfirleitt tugir eða hundruð
klámsíðna. Klámsían hefur þegar ver-
ið tekin í notkun í nokkrum skólum og
hefur m.a. verið ákveðið að setja hana
upp í Melaskóla í Reykjavík.
ir til ára sinna. Er slökkviliðið all-
vel tækjum búið til að takast á við
eldsvoða eftir tilkomu nýja slökkvi-
bílsins þó svæðið sé víðfeðmt eða
báðir hrepparnir. Innflutningsaðili
þessa nýja slökkvibíls er IB Inn-
flutningsmiðlun ehf. á Selfossi.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Slökkviliðs- og sveitarstjórnarmenn við nýja slökkvibílinn.
Nýr slökkvibfll
á Flúðum
Hrunamannahreppi - Brunavarnir
Hrunamanna og Gnúpverja hafa
eignast nýjan og fullkominn
slökkvibíl. Af því tilefni komu
slökkviliðs- og sveitarstjórnar-
menn saman í slökkvistöðinni á
Flúðum sl. föstudag þar sem bif-
reiðin var afhent slökkviliðinu.
Hér er um að ræða Ford 350 frá
Kanada með 10 strokka bensínvél
og glussadrifinni 1500 lítra slökkvi-
dælu auk 40 m slöngukeflis.
Jóhann K. Marelsson, slökkvi-
liðsstjóri, sagði í ávarpi sínu við
þetta tækifæri að mjög mikilvægt
væri að komast sem fyrst á bruna-
stað með nauðsynleg tæki. Þessi
nýi bíll bætti því úr brýnni þörf,
svo öflugur og hraðskreiður sem
hann væri, hann kæmi sér því mjög
vel sem þörf viðbót við eldri bif-
reiðar slökkviliðsins.
Með bílnum kom nýr slökkvibún-
aður, sá fyrsti sinnar tegundar á
landinu. Þetta er ný gerð banda-
rísks slökkvibúnaðar sem er léttari
og öflugri en hefðbundinn búnaður
slökkvibíla. Þessi búnaður nefnist
„The snuffer" en á íslensku Eldbít-
ur. Eldbíturinn myndar slökkvi-
froðu með háþrýstingi. Er tækn-
inýjungin m.a. í því fólgin að
einungis 1/10 hluta af dýrum
freyðihvata þarf til að mynda jafn-
mikið magn af froðu af sambæri-
legum gerðum. I stað þess að dæla
miklu magni vatns á eld er með
þessu tæki hægt að dæla froðu og
kæfa þannig eld á mun skemmri
tíma með mun léttari slöngu.
Brunavarnir þessara tveggja
sveitarfélaga eiga fyrir fjóra
slökkvibíla, sumir þeirra eru komn-
Stykkishólmi - Félagsmiðstöðin X-ið
í Stykkishólmi er starfrækt í gamla
bíóhúsinu. I haust hafa verið gerðar
miklar endurbætur á húsnæðinu, og
var það löngu orðið tímabært og hef-
ur húsið nú fengið andlitslyftingu.
Stykkishólmsbær lagði fram fjár-
muni til að mála allt húsið að innan
og ný húsgögn voru keypt ásamt
tækjabúnaði. Að framkvæmdum
loknum hefur öll aðstaða breyst til
batnaðar. Húsnæðið er orðið hlý-
legra og unglingunum líður þar bet-
ur.
I haust var ráðinn umsjónarmað-
ur, Þórhallur Guðmundsson, úr
Reykjavík. Hann hefur boðið upp á
fjölbreytta starfsemi þá 5 daga vik-
unnar sem X-ið er opið. Nú á dögun-
um var haldið myndlistarnámskeið á
vegum Félagsmiðstöðvarinnar.
Leiðbeinandi var Hafsteinn Guð-
mundsson, bróðir Þórhalls. Um 20
unglingar sóttu námskeiðið og fengu
þeir að spreyta sig á að mála stórar
myndir. Myndirnar verða síðan fest-
ar upp og munu prýða veggi félags-
miðstöðvarinnar. I desember verður
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Kristrún Kristófersdóttir leiðbeinir viðskiptavinum.
Kynning hjá Kristó
Egilsstöðum - Snyrtistofan Kristó
á Egilsstöðum var nýverið með op-
ið hús fyrir viðskiptavini sína.
Kynntar voru Phydomer-snyrtivör-
ur og var Undína Sigmundsdóttir,
meistari í snyrtifræði frá Phydom-
er, til ráðgjafar um vörurnar, auk
þess sem viðskiptavinir gátu fengið
húðgreiningu og ráðgjöf um réttar
snyrtivörur þar að lútandi.
Sylvía Arnfjörð, förðunarfræð-
ingur frá John Van G, leiðbeindi
um val á farða og litum, auk þess
að gefa prufuförðun. Einnig voru
kynntir skartgripir úr eðalsteinum
sem eru að koma á markað í fyrsta
sinn á Islandi. Eigandi Kristó er
Kristrún Kristófersdóttir.
Verkalýðs- og sjómanna-
félag Sandgerðis 7 0 ára
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Félagsmiðstöðin X-ið í Stykkishólmi bauð unglingunum upp á mynd-
listarnámskeið og var þátttaka góð. Myndin sýnir þátttakendur ásamt
bræðrunum Þórhalli og Hafsteini Guðmundssonum sem stóðu fyrir
námskeiðinu. Eitt af listaverkunum er í baksýn.
nóg um að vera í X-inu og ætti tíminn hjá unglingunum í Stykkishólmi við
fram að jólum að verða fljótur að líða nám og leik.
Sandgerði - Nýverið var haldið
upp á að 70 ár eru liðin frá stofnun
Verkalýðs- og sjómannafélags
Miðneshrepps. Stofnfundurinn var
haldinn í barnaskólanum við
Skólatjörn þann 27. október 1929
og voru stofnfélagar 60.
Fyrsti formaður félagsins var
Guðjón Jónsson. í dag eru um 400
félagar skráðir í félaginu.
Félaginu
færðar gjafir
Tímamótanna var minnst með
afmælisdagskrá sem fram fór í
Safnaðarheimilinu þar sem Baldur
G. Matthíasson, núverandi formað-
ur, flutti ræðu ásamt gestum sem
færðu félaginu gjafir. Karlakór
Keflavíkur söng nokkur lög,
Lúðrasveit Keflavíkur lék, Lilja
Hafsteinsdóttir söng, Sigurður
Jónsson lék á harmoniku og Einar
Einarsson flutti gamanmál.
Að lokinni dagskrá í Safnaðar-
heimilinu var kaffisamsæti í Sam-
komuhúsinu og um kvöldið var
dansleikur fram eftir nóttu.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Björn Grétar Sveinsson, for-
maður Verkamannasambands
íslands, flutti ræðu í tilefni
afmælisins.
Myndlistarnámskeið í
X-inu í Stykkishólmi