Morgunblaðið - 01.12.1999, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
BePaid.com hefur starfsemi
Borgað fyrir auglýsingaáhorf
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Samningar Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og fjögurra fjárfestingaraðila
um vörslu Framtakssjóðs voru nýverið undirritaðir. Sjóðnum er ætlað að
stuðla að nýsköpun og atvinnuuppbyggingu með áherslu á landsbyggðina.
Framtakssjóður, áhættufjárfestinga-
sjóður, settur á laggirnar
Ahersla
lögð á lands-
byggðina
NETFYRIRTÆKIÐ BePaid.com
hóf formlega starfsemi á mánudag-
inn, en starfsemi þess snýst um að
bjóða völdum notendum Netsins að
skoða auglýsingar sem ætla má að
höfði til þeirra, og munu notendur fá
greitt fyrir áhorfið.
Forráðamenn BePaid.com segja í
fréttatilkynningu að auglýsingai’ á
Netinu eigi eftir að aukast mjög að
umfangi á næstunni, og geti auglýs-
endur með þessu valið sér þann
markhóp sem henti þeim.
Fyrirtækið, sem finna má á vef-
slóðinni www.bepaid.com, er íslenskt
að uppruna en hyggur á starfsemi
erlendis jafnt sem hérlendis.
Ingvar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri BePaid.com, segir í
samtali við Morgunblaðið að auglýs-
ingarnar verði sniðnar að áhugasviði
HARALDUR Böðvarsson hf. á
Akranesi hefur sent Verðbréfaþingi
íslands afkomuviðvörun þar sem
fram kemur að afkoma fyrirtækis-
ins á þessu ári verði verri en rekstr-
aráætlun gerði ráð fyrir. Ástæða
þess sé aðallega sú að loðnuafli á
sumar- og haustvertíð hefur brugð-
ist. Afkoma fískvinnslu í landi hafí
verið óviðunandi, en rekstur bolfis-
kvinnslu á sjó hafi verið vel viðun-
andi. Gert er ráð fyrir að afkoma
ársins af reglulegri starfsemi verði
neikvæð, en að hagnaður verði af
heildarstarfsemi félagsins á árinu.
Gripíd til nokkurra aðgerða
Fyrirtækið segir að til að mæta
þessum aðstæðum hafi verið gripið
til nokkurra aðgerða nú í haust.
Frystitogarinn Helga María AK 16
hvers einstaklings og sé markhópur
þessarar þjónustu allir sem hafi
gaman af slíku.
Notendur velja og
hafna auglýsingum
„Auglýsandinn mun gera notand-
anum tilboð um að horfa á auglýs-
ingu á lítilli fjarstýringu sem kemur
á skjáinn í upphafi, og gerist það
sjálfkrafa þegar viðkomandi er á
Netinu. Notandinn metur tilboðið og
hvort honum líst vel á auglýsandann
og það sem hann býður.
Ef honum líst vel á það tekur hann
tilboðinu og auglýsingin birtist, en
auglýsingarnar munu taka um 5 til
20 sekúndur hver. Notandinn getur
einnig frestað auglýsingunum og
horft á þær síðar. Þetta verða
auglýsingar sem ná yfir allan skjáinn
var keyptur til félagsins, með afla-
heimildum sem nema um 600
þorskígildistonnum, aðallega í
þorski. Einn ísfisktogara af þremur
hefur verið settur á söluskrá og
tekinn úr rekstri.
Landvinnsla fyrirtækisins hefur
verið endurskipulögð. í Sandgerði
hefur áhersla verið lögð á vinnslu í
nýrri loðnuþurrkunarverksmiðju
og þar hefur nú hefðbundinni bol-
fiskvinnslu verið hætt.
Þá hefur vinnsluferli í frystihúsi
fyrirtækisins á Akranesi einnig ver-
ið endurskipulagt. Þáttur í því er
uppsetning á nýrri vinnslulínu frá
Skaganum hf. og Marel hf. sem
auka mun framlegð vinnslunnar.
Nýja vinnslufyrirkomulagið mun
verða tekið í notkun hinn 15. janúar
2000.
og er meðal annars ætlunin að nýta
Macromedia Flash-tækni til að hafa
hreyfimyndir og hljóð í auglýsingun-
um,“ segir Ingvar.
Að sögn Ingvars jafngildir það
gjald sem boðið verður fyrir að horfa
á auglýsingu því, að tekjur viðkom-
andi á klukkustund væru frá 1.500 til
8.500 krónur. Auglýsandinn sé því að
greiða frá 20 og til 70 krónur íyrir
hvert áhorf.
Hann segir að í upphafi gefi not-
andinn ýmsar upplýsingar um sig
sem hjálpi auglýsendum að velja ein-
staklinga sem líklegt sé að séu hluti
af þeirra markhóp. „Ef þú hefur
áhuga á bílum færðu væntanlega
auglýsingar frá bílaumboðum og svo
framvegis. Þetta verður í samræmi
við áhugamálin. Notandinn ákveður
þó hve mikið af upplýsingum hann
gefur um sig.“
Skrifstofur í Danmörku, Bretlandi
og Bandaríkjunum
í fréttatilkjmningu segir einnig að
BePaid.com ráðgeri að opna skrif-
stofur í Danmörku, Bretlandi og í
Bandaríkjunum. „Við erum komnir í
samstarf við einn aðila, en við stefn-
um á að byggja upp þetta net að
mestu sjálfir." Ingvar, sem er raf-
magnsverkfræðingur að mennt og
með meistaragráðu í iðnaðarverk-
fræði, segir að nákvæmlega það fyr-
irkomulag sem BePaid.com mun
hafa á þessari þjónustu þekkist
hvergi annars staðar í heiminum.
Aðspurður segir hann að þjónust-
an verði m.a. markaðssett með
margþrepa markaðssetningu (á
ensku „multilevel marketing“) og sé
það fyrirkomulag einnig ríkjandi hjá
öðrum fyrirtækjum sem hafa boðið
greiðslu fyrir að horfa á auglýsinga-
borða á Netinu. Með því muni not-
endur geta aukið tekjur sínar í sam-
ræmi við auglýsingaáhorf þeirra sem
skrá sig inn í þjónustuna gegnum
notendanúmer viðkomandi.
SAMNINGAR Nýsköpunarsjóðs at-
vinnulífsins og fjögurra fjárfestinga-
raðila um vörslu svokallaðs Fram-
takssjóðs voru undirritaðir á
föstudag. Framtakssjóði, sem er
1.000 milljónir króna, er ætlað að
stuðia að nýsköpun og atvinnuupp-
byggingu með áherslu á landsbyggð-
ina, einkum á sviði upplýsinga- og
hátækni. Þeim fjármunum sem ráð-
stafað er úr Framtakssjóði skal var-
ið til hlutafjárkaupa í arðvænlegum
nýsköpunarfyrirtækjum.
Vonandi lyftistöng
fyrir landsbyggðina
Úlfar Steindórsson, framkvæmda-
stjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífs-
ins, segist vonast til að sjóðirnir
verði mikil lyftistöng fyrir atvinnulíf
á landsbyggðinni. „Þar hefur skort-
ur á áhættufjármagni oft og tíðum
staðið arðvænlegum verkefnum fyrir
þrifum,“ segir hann.
Að mati Ulfars er ekki hætta á að
óánægja blossi upp meðal fyrirtækja
og einstaklinga á höfuðborgarsvæð-
inu, þótt áhersla sé lögð á lands-
byggðina. „í fyrsta lagi metum við
það svo, að þótt skírskotað sé til
landsbyggðarinnar í reglum um
sjóðina, sé ekki óheimilt að fjárfesta
annars staðar. í öðru lagi held ég að
hingað til hafi verið mun auðveldara
fyrir fyrirtæki í Reykjavík að nálg-
ast áhættufé en fyrirtæki úti á landi.
í þriðja lagi hefur áhættufjárfestum
fjölgað mjög. Ég hef því enga trú á
því að fyrirtækjum á höfuðborgar-
svæðinu finnist á sig hallað þótt sjóð-
ir séu skilgreindir með þessum
hætti. Þarna er einfaldlega leitast
við að virkja þá auðlind sem fólkið á
landsbyggðinni er. Það er grundvall-
aratriði sem menn verða að gera sér
grein fyrir þegar verið er að tala um
þessar áhættufjárfestingar, að arð-
semiskröfur eru strangar. Ef fyrir-
tæki ekki ganga upp eru það fleiri en
Nýsköpunarsjóður sem tapa fjár-
munum,“ segir Úlfar.
Fjórir
vörsluaðilar
Framtakssjóður er í umsjá fjög-
urra vörsluaðila víða um land. Hver
hinna fjögurra sjóða er 250 milljónir
króna og þurfa rekstraraðilar hver
um sig að leggja fram mótframlag
upp á 125 milljónir króna. Hver
framtakssjóður nemur því 375 mil-
ljónum króna.
Vörsluaðilar eru: Fjárfestingafé-
lag Austurlands hf. (rekstraraðili
Framtakssjóður Austurlands ehf.,
með sjóðstjóra í Reyðarfirði í
Fjarðabyggð), Landsbankinn
Framtak hf. (rekstraraðili Lands-
bankinn - Framtakssjóður ehf., með
sjóðstjóra á Akureyri), Fjárfestinga-
félag Vestmannaeyja hf. (rekstra-
raðili Fjárfestingafélag Suðurlands
ehf., með sjóðstjóra í Vestmannaeyj-
um) og Framtakssamlag EFA
(rekstraraðili EFA Framtak ehf.,
með sjóðstjóra í Reykjavík).
Þessir aðilar voru valdir í kjölfar
útboðs sem fór fram á vegum Ný-
sköpunarsjóðs í mars síðastliðnum.
Sjóðimir mega ekki fjárfesta í fyrir-
tækjum fyrir meira en sem nemur
49% hlutafjár þeirra og eru ákvæði
um stjórnunarlega þátttöku í samn-
ingunum. Samningarnir sem undir-
ritaðir voru í gær gilda til 10 ára og í
lok samningstímans skulu nýsköp-
unarsamningarnir gerðir formlega
upp. Skulu rekstraraðilar þá greiða
Nýsköpunarsjóði eignarhlutdeild
hans í fjármunum í fjárvörslu og
söluandvirði hlutafjár í nýsköpunar-
fjárfestingu.
Félag viðskiptafræðinga
og hagfræöinga
Markaðssetning íslenskra fyhrtækja
erlendis og Leiðir til markaðssetningar
á Netinu
Fimmtudaginn 2. desember verður haldin ráðstefna á vegum Félags viðskiptafræðinga
og hagfræðinga kl. 12.00 - 13.30 á Radisson SAS, Hótel Sögu, Ársölum, 2. hæð.
Fjallað verður um hvaða atriði þarf að hafa í huga þegar fyrirtæki stefna á erienda markaði
og hvernig Útflutningsráð getur aðstoðað fyrirtæki sem hyggja á erlenda útrás. Einnig
mun vera skýrt frá hvernig staðið hefur verið að markaðssetningu Flugleiða erlendis og
fulltrúi Gæðamiðlunar fjallar almennt um markaðssetningu á Netinu.
Haukur Björnsson, deildarstjóri hjá Útflutningsráði mun stýra fundinum
og fjalla um:
Starfsemi Útflutningsráðs.
Flvernig Útflutningsráð aðstoðar íslensk fyrirtæki sem stefna á erlenda
Steinn Logi Björnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs
Flugleiða mun fjalla um:
Alþjóðlega markaðssetningu íslands og Flugleiða.
Kjartan Guðbergsson, ráðgjafi hjá gm.is mun fjalla um:
Markaðssetningu og auglýsingar á Netinu.
Verð með hádegisverði kr. 1.900 fyrir félagsmenn FVH og kr. 2.500 fyrir aðra.
Skráning þátttöku í síma 568 2370
eða með tölvupósti fvh@fvh.is
Opinn fundur - gestir velkomnir
Vinalínan
er opin á hverju kvöldi frá kl. 20-23
Ókeypis símaþjónusta
100% trúnaður
- Símí 800 6464
— Vinalína Rauða krossins
þegar þú þarft á uini að halda
Afkomuviðvörun frá
Haraldi Böðvarssyni hf.