Morgunblaðið - 01.12.1999, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 01.12.1999, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Búvélar kaupa 75% í Bújöfri Valtra Valmet-traktorarnir eru framleiddir eftir óskum kaupenda og aðstæðum sem þeir eru notaðir við. BÚVÉLAR hf. á Selfossi hafa keypt 75 % hlut í í Bújöfri hf. í Reykjavík. Hið sameinaða fyrir- tæki mun hafa aðsetur á Selfossi. Eigendur Búvéla á Selfossi eru Vélasmiðja KÁ hf., Kaupfélag Ár- nesinga og einstaklingar. Við kaupin á Bújöfri hf. bætist í eig- endahópinn Þorgeir Elíasson sem var aðaleigandi Bújöfurs. Fyrir- hugað er að stækka eigendahóp hins nýja félags. Framkvæmda- stjóri félagsins er Finnbogi Magn- ússon. Búvélar á Selfossi hafa flutt inn landbúnaðarvélar, innréttingar og búnað í fjós ásamt ýmsum rekstr- arvörum íýrir bændur. Bújöfur hefur flutt inn og selt Valtra Val- met-dráttarvélar ásamt öðrum tækjum fyrir landbúnað. Hið nýja félag mun bjóða áfram vörulínu beggja félaganna og leitast við að breikka hana eftir þörfum markað- arins. Við undirritun kaupsamnings sagðist Óli Rúnar Astþórsson, framkvæmdastjóri Kaupfélags Ar- nesinga, vonast til þess að bændur og aðrir sem nota þurfa þjónustu hins nýja fyrirtækis taki þessum breytingum vel. Þorgeir Elíasson sagði í ávarpi að Bújöfur hefði haft 13-17% markaðshlutdeild á íslandi. En fé- lagið hóf innflutning árið 1994 og því hefur vöxturinn verið jafn og hraður. Hann sagðist vera ánægð- ur með þennan samruna en hann hefur haft nokkuð langan aðdrag- anda. Hann sagði að fyrirtækið hafi alla tíð lagt mikla áherslu á að koma skilaboðum til bænda og það hafa þeir gert með viðamikilli út- gáfu á kynningarefni um fram- leiðslu Valtra Valmet sem er fram- leiðsluaðili þein-a véla sem fyrirtækið selur. Valtra Valmet er frá Finnlandi og er meðal stærstu framleiðenda dráttarvéla í heiminum í dag og eru helstu mai’kaðssvæði þess Evrópa og Suður-Ameríka. Fram- leiðsla Valtra Valmet fer fram í Finnlandi og Brasilíu og eru til yfir 400 þúsund möguleikar á útfærslu á dráttarvélum til að mæta óskum kaupenda. Að sögn Jari Osmale, sölustjóra Valtra, þá byggist velgengni Valtra Valmet á þessari grundvallar- áherslu gagnvart kaupendum. Þorgeir Elíasson afhenti við þetta tækifæri hjónunum Ólafí Inga Sigurmundssyni og Önnu Gísladóttur viðurkenningu af því tilefni að þau keyptu 200. dráttar- vélina frá Valtra Valmet á Islandi. Ríkisvíylarí markflnkkiirri í dagki. ii:oo mun fara framútboð á ríkisvíxlum hjá Lánasýslu ríkisins. Að þessu sinni verður boðið upp á 2, % mánaða ríkisvíxil, en að öðru leyti eru skilmálar útboðsins í helstu atriðum þeir sömu og í siðustu útboðum. í boði verður eftirfarandi flokkur ríkisvíxla í markflokkum: Flokkur RVoo-o?i7 Gjalddagi 17. febrúar Lánstími 2 V, mánuðir Núverandi staða* 5.760 Áætlað hámark tekinna tilboða ?.ooo 'Miljónir króna Milij.kr. 9.000----- 8.000 7.000 6.000 5°°° 4.000 3.000 ?.ooo 1.000 Markflokkar ríkisvíxla Staða3o. nóvember 8.895 niilljónir Aaetluð hámarksstærð ogsala 1. desember 1999. 3 mán 6 mán 12 mán Gjalddagar I Aætluð áfyllingsíðar | Áætluð salai.desemberi999 | Staða3o.nóvemberi999 Sölufyrirkomulag: Ríkisvíxlamir verða seldir með tilboðs- fyrirkomulagi. Öllum erheimilt að bjóða í ríkisvíxla að því tilskyldu að lágmarksfjárhæð tilboðsins sé ekki lægri en 20 milljónir. Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóðum, fjárfestingalánasjóðum, verðbréfafyrir- tækjum, verðbréfasjóðum, lífeyrissjóðum og tryggingafélögum er heimilt að gera tilboð í meðalverð samþykktra tilboða, að lágmarki 500.000 krónur. öll tilboð í ríkisvíxla þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 11:00, miðvikudaginn 1. desember 1999. Útboðsskilmálar, önnurtilboðsgögn ogallar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 562 4070. LANASYSLA RIKISINS Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 4070 • Fax: 562 6068 Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: utbod@lanasysla.is 1100 Netsíminn eins árs Okeypis símtöl í tvo tíma í dag 1100 Netsíminn mun bjóða við- skiptavinum sínum að hríngja ókeypis til útlanda í samtals tvo tíma í dag, eða milli klukkan 10-11 og 16-17. Ástæðan er eins árs af- mæli Netsímans sem er í eigu Skímu hf., dótturfélags Landsíma Islands hf. „Við erum mjög ánægðir með við- tökurnar sem fyrirtækið hefur feng- ið, en viðskiptavinir þess eru bæði úr hópi fyrirtækja og einstaklinga. Notkun þjónustunnar er stöðug og viðskiptavinir tryggir. 1100 Netsíminn var brautryðj- andi hér á landi að því leytinu til að hægt er að nýta sér lægra verð símtaia til útlanda sem mögulegt er vegna Netsins án þess að notendur þurfi að fjárfesta í sérstökum bún- aði. Venjulegur heimilissími er allt sem þarf,“ segir Njörður Tómasson, markaðsstjóri 1100 Netsímans, í samtali við Morgunblaðið. 25-50% lægra verð Hann segir að gæði símtala gegn- um 1100 Netsímann séu sífellt að færast nær gæðum venjulegra milli- landasímtala, en hins vegar séu sveiflur í gæðum sambandsins meiri en þegar hringt er gegnum 00. Áð sögn Njarðar mun verð á sím- tölum til útlanda einnig lækka í dag, og mun lækkunin verða á bilinu 5- 46%, mismunandi eftir löndum. „Þetta þýðir að símtöl gegnum 1100 Netsímann munu kosta frá 25% til 50% minna en símtöl til útlanda gegnum almenna símkerfíð," segir Njörður. Hann bætir við að þetta sé þriðja verðskráin sem lögð sé fram frá upphafi fyrirtækisins, sem þýði að verð hafí verð lækkað tvisvar. „Við teljum að innkoma okkar á markaðinn fyrir millilandasímtöl hafi hreyft við markaðnum og haft áhrif til lækkunar,“ segir Njörður. 1100 Netsími Skímu byggir á flutningi samtalsgagna gegnum Netið, eða á svokölluðum IP-staðli og segir Njörður að ýmsar nýjungar séu væntanlegar. Símtalsflutningur og myndsendingar Notandinn mun geta valið hvort hringt sé úr síma eða úr tölvu. Einn- ig verður mögulegt að nota mynd- síma á næstunni, sem gerir fjar- fundi mögulega, segir Njörður. Njörður segist búast við því að samkeppni muni koma til með að aukast á þessu sviði á næsta ári með innkomu nýrra fyrirtækja. „Þessi markaður er að breytast og þróast það mikið,“ segir Njörður. .--------- Ráðstefna um mark- aðssetn- ingu FÉLAG viðskiptafræðinga og hag- fræðinga stendur fyrir ráðstefnu um markaðssetningu íslenskra fyrir- tækja erlendis og leiðir til markaðs- setningar á Netinu fimmtudaginn 2. desember, kl. 12-13.30. Fjallað verður um hvaða atriði þarf að hafa í huga þegar fyrirtæk- istefna á erlenda markaði og hvernig Útflutningsráð getur aðstoðað fyrir- tæki sem hyggja á erlenda útrás. Einnig mun vera skýrt frá hvernig staðið hefur verið að markaðssetn- ingu Flugleiða erlendis og Gæða- miðlunar (GM) sem hefur sérhæft sig á sviði markaðssetningar á Net- inu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.