Morgunblaðið - 01.12.1999, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 25
ERLENT
Einstakt samstarf sænskra dagblaða gegn nýnasistum
Birtu myndir af
62 nýnasistum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
FJÖGUR stærstu dagblöð Svía,
Dagens Nyheter, Svenska Dagbla-
det, Aftonbladet og Expressen,
birtu í gær sömu úttektina á starf-
semi nýnasista í Svíþjóð. Auk þess
að segja frá starfseminni og rekja
ofbeldisaðgerðir þeirra birta blöðin
myndir af 62 nýnasistum, sem ann-
aðhvort eru grunaðir um eða hafa
verið dæmdir fyrir ofbeldi byggt á
kynþáttafordómum. Átakið er einn-
ig áskorun á yfirvöld að taka starf-
semina fastari tökum, því hún sé
ógnun við réttari-íkið.
I viðtali við sænska útvarpið í gær
sagði Mats Svegfors ritstjóri
Svenska Dagbladet að sökum þess
hve þetta ofbeldi væri ógnarlegt
hefðu blöðin ákveðið að taka saman
höndum á einstakan og eftirminni-
legan hátt.
Ofbeldisslóð nýnasista
„í júní í sumar lýsti yfirmaður
sænsku öryggislögreglunnar því yf-
ir að starfsemi nýnasista væri ekki
ógnun við öryggi ríkisins. Nú vitum
við að þetta er ekki rétt,“ segir í inn-
gangi að leiðara Svenska Dagbladet
í gær. „Sænskir nýnasistar og mó-
torhjólagengi, sem á margan hátt
eru þeim náin, vinna kerfisbundið
að því að gera einstaka hluta réttar-
ríkisins óvirka, allt frá réttarkerfinu
yfir í frjálsa rannsóknarblaða-
mennsku.“
I leiðaranum er bent á að þetta sé
gert með ofbeldi og ofbeldishótun-
um og um leið virki innra öryggi
réttarríkisins ekki sem skyldi. Það
er þessi slóð ofbeldis og hótana, sem
umfjöllun blaðanna fjögurra rekur
síðan.
Dæmin frá því á þessu ári eru
morð á tveimur lögregluþjónum,
sprengjutilræði gegn blaðamanni
og fjölskyldu hans og morð á verka-
lýðsmanni, sem hafði barist gegn
nýnasistum og kynþáttafordómum.
Eldri dæmi eru morð á skólapilti af
innflytjendaættum og íþróttamanni,
ansikter
I ett unikt samarbete har Aftonbladet, ON,
Expressen och SvD kartlagt nazister och MC
-gáng och avslöjar dem som ligger bakom
riánga av attentaten mot demokratin.
f T
55,,
Auglýsingin sem birtist í sænsku
blöðunum.
sem var hommi, en báðir þessir pilt-
ar eru úr hópum, sem nýnasistar
hafa ímugust á.
Blöðin benda á að ekki sé hægt að
tala um að hóparnir berjist fyrir
ákveðinni þjóðfélagsgerð. Sýn
þeirra virðist ekki skýr, en heldur
markist af hatri, bæði gegn þjóðfé-
laginu og einstökum þjóðfélagshóp-
um. Með þessu fylgi kröfur um að-
gerðir, ofbeldisaðgerðir.
Hótanir hræða vitni til þagnar
Það er algengt að vitni segi frá
ódáðum nýnasista við lögreglurann-
sókn, en dragi svo vitnisburð sinn til
baka í réttarhöldum og vilji þá ekki
vitna opinberlega. í umfjöllun blað-
anna í gær er einmitt talað við vitni,
sem dró framburð sinn til baka. I
viðtalinu segir hann að þarna sé við
að eiga hópa, sem hann vilji ekki
egna til reiði.
Hótanir beinast einnig gegn lög-
reglumönnum, dómurum, blaða-
mönnum og öðrum, sem á einhvern
hátt koma að starfsemi gengjanna.
Hótanirnar eru oft svo tvíræðar að
ekki er beint hægt að sýna fram á að
um hótanir séu að ræða. Það vekur
síðan enn frekari óánægju, að sögn
blaðanna, að dómstólarnir dæmi oft
nýnasíska ofbeldismenn til vægrar
refsingar.
Tekið á málum með festu,
ekki hörku
Blöðin fjögur minna á hve vægt
hafi verið tekið á Adolf Hitler á sín-
um tíma og fylgismönnum hans. Það
hvort og hvernig eigi að banna
nýnasískar hreyfingar sé að þeirra
mati fræðileg umræða. Telja þau
nær lagi að taka strangt á afbrotum
af þessu tagi, dæma til harðra refs-
inga og dæma strax.
I sænska útvarpinu í gær var rætt
um hvort myndbirtingar væru rétt
leið. Rætt var við ýmsa álitsgjafa,
sem flestir voru á því að myndbirt-
ing væri ein leið til að vekja athygli
á þessari hættu. Einnig var bent á
að oft væri talað um þessa hópa sem
stráka, en rétt væri að vekja athygli
á að þetta væru ekki venjuleg
strákapör, heldur alvarlegir glæpir.
Betra væri að kalla hlutina sínum
réttu nöfnum og ekki taka á málun-
um af hörku, heldur festu.
I fjölmiðlaumræðunni í gær
beindist athyglin að því hvaða hóp-
um væri hætt við að lenda í þessum
slæma félagsskap. Oft er um að
ræða unga menn, sem á einhvern
hátt falla ekki inn í hópinn, en leita
þá eftir fótfestu í hópum af þessu
tagi, þar sem áherslan er lögð á aga
og samstöðu og alið á hatri gegn
þjóðfélaginu og einstökum þjóðfé-
lagshópum. Bent var á að ekíri væri
rétt að gera grín að nýnasistum,
heldur bara sýna þá eins og þeir
væru. Myndbirtingin og stutt frá-
sögn af ferli þeirra, eins og gert var,
þjónaði þeim tilgangi.
Reykvíkingar
Munið borgarstjórnarfundinn
á morgun kl. 17.00.
Fundurinn er öllum opinn.
Á dagskrá er m.a. fyrri umræða
um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
fyrir árið 2000.
Útvarpað verður á
l\lær
flðft«[«Z4sy
Reylgavíkurborg
Skrifstofa boigarstjórnar
Samviskuviðbit
0 Gottfyrir hjartað
Gottfyrir heilann
I/ Gottáhrauðið
s/ Inniheldur Omega-3
Vertu í sátt við samviskuna. Plús3 er fituskert
viðbit með smjörbragði sem inniheldur hinar
eftirsóttu Omega-3 fitusýrur sem fást að
öðrum kosti helst úr sjávarfangi og lýsi.
... ,xip„ar vísindarann-
YBr5Tt’^“^,ilÞcss
S6Xi-jS,USÍIU'SéUS''“ 5