Morgunblaðið - 01.12.1999, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Tinni varð 70 ára á þessu ári en hér má m.a. sjá forsíðuna á bókinni um
Tinna í Sovétríkjunum en hún kom út árið 1929.
Breta kennt um dal-
andi gengi Tinna
Lundúnum. The Daily Telegpraph.
Nýskipuð heimastjórn tekur til starfa á N-Irlandi á morgun
Viðbrögð almennt
jákvæð en yfirveguð
Belfast. AFP, The Daily Telegraph.
TINNI, teiknimyndahetjan góð-
kunna sem lifði af margan lífshásk-
ann í sögunum vinsælu sem belgíski
teiknarinn Hergé samdi um hann,
hefur nú mætt ofjarli sinum í Eng-
lendingi, sem er að ganga af vin-
sæidum hans dauðum. Þessu er
haldið fram í nýrri franskri bók.
Frakkinn Huges Dayez hefur
valdið uppnámi með bókinni „Tinni
og erfíngjarnir" með því að halda
því fram, að Bretinn Nick Rodwell,
sem kvæntist ekkju Hergés, Fanny,
fyrir sex árum, sé ábyrgur fyrir því
að sala á Tinnasögunum hafí dalað
um allan helming á síðustu árum.
Árið 1992 seidust enn um þrjár
milljónir Tinnabóka, en að sögn
franska dagblaðsins Figaro er sal-
an nú aðeins um helmingur þessa.
Þessi tími sölusamdráttar er settur
í samhengi við að á sama tímabili
hefur Rodwell verið að gera sig
gildari í stjórn Hergé-stofnunarinn-
ar.
„Nick Rodwell vill sljórna öllu.
Ilann vill sljórna bókunum, mark-
aðssetningunni, öllu sem varðar
Tinna. Það sem mestu skiptir með
Tinna er að gefa honum stöðugt
ferska ímynd. Það verður að gera
það með menningarlegum verkefn-
um. En í Brussel, heimaborg Her-
gés, er ekki einu sinni safn [tileink-
að verkum hans],“ segir Dayez.
Dayez vísar einnig til samninga
við Steven Spielberg um gerð
Tinna-kvikmyndar, sem ekkert
varð úr, misheppnaðrar útgáfu
tímarits fyrir Tinnaáhugamenn, og
að ekki skuli hafa verið gerður
„Tinna-garður“ í stíl við „Ástríks-
garðinn" í útjaðri Parísar. Allt
þetta segir hann vera Rodwell að
kenna.
I bókinni rekur Dayez feril
Rodwells frá því er hann rak teikni-
myndabókabúð í Covent Garden í
Lundúnum til þess er hann „sölsaði
undir sig völdin“ í Tinna-stofnun-
inni snemma á þessurn áratug.
Hann gefur í skyn að Rodwell hafi
bolað Alein Baran, „andlegum
syni“ Hergés úr sessi sem æðsta
umsjónarmanns hinnar ábatasömu
arfleifðar.
Rodwell tekur ásökununuin með
jafnaðargeði. „Það hata mig allir.
Þeir hata mig vegna þess að ég er
Breti sem er setztur að í Belgíu og
er að segja Belgum fyrir um hvern-
ig þeir eigi að umgangast það sem
hjá þeim jafnast á við Bítlana [í
Bretlandi]. En ég hef ekki svo mikl-
ar áhyggjur af þessu. Tinni hefur
aldrei verið vinsælli en hann er
núna,“ hefur Daily Telegraph eftir
honum.
UTAN við leiksvið stjórnmálanna
tekur almenningur í Belfast fréttun-
um af myndun fyrstu heima-
stjói-narinnar, sem í sitja bæði kaþól-
ikkar og mótmælendur, vel, en af
yíirvegun.
Landshlutinn hefur þrætt þyrnda
braut frá því að hinni sögulegu und-
irritun friðarsamningsins, sem
kenndur er við föstudaginn langa,
var fagnað í apríl 1998.
„Ég minnist þess að bílar óku nið-
ur Falls Road með írska fána á lofti, í
eins konar sigummu,*1 rifjar íbúi í
hverfi kaþólskra í Vestur-Belfast
upp um stemmninguna sem ríkti þá.
Viðbrögðin nú eru öllu yfirvegaðri,
en einkennast þrátt fyrir það al-
mennt af ánægju með að þessum
áfanga skuli loks vera náð, myndun
heimastjórnarinnar, sem samið hafði
verið um í friðarsamningnum fyrir
einu og hálfu ári.
í heimastjórninni munu eiga sæti
tveir fulltrúar Sinn Fein, stjórn-
málaarms írska lýðveldishersins
(IRA), ásamt þremur fulltníum
stærsta flokks sambandssinna,
UUP, tveimur harðlínusamban-
dssinnum úr flokki Ians Paisleys,
DUP, og þremur fulltrúum hóf-
samra kaþólikka úr SDLP-flokkn-
um.
AFP hefur eftii' ónafngi-eindum
Belfastbúa, að fyrir fimm árum hefði
hann álitið Gerry Adams, leiðtoga
Sinn Fein, „hryðjuverkamann sem
iðraðist einskis“. Nú „trúi ég því að
hann og Martin McGuinness [aðal-
samningamaður Sinn Fein] vilji
raunverulega frið,“ segir hann. „Við
verðum að láta þá njóta vafans.“
Deilt um skipun McGuinness
McGuinness, sem talið er að hafi
stjórnað deild IRA í Londonderry,
hlaut útnefningu sem menntamála-
ráðherra heimastjórnarinnar.
Ekki eru allir jafnhrifnir af þess-
um framgangi mála. Róttækir sam-
bandssinnar eni reiðir því að fulltrú-
Róttækir sam-
bandssinnar mót-
mæla ráðherra-
útnefningu
McGuinness
AP
Martin McGuinness, aðalsamn-
ingamaður Sinn Fein sl. 10 ár,
tekur við embætti menntamála-
ráðherra í nýrri heimastjórn N-
Irlands.
um Sinn Fein skuli heimilað að taka
sæti í heimastjórninni áður en IRA
hefur byrjað að afvopnast. David
Trimble, leiðtogi UUP, og hinir þrír
ráðherrar flokksins, hafa heitið af-
sögn í febrúar nk., hafi IRA ekki haf-
ið afvopnun fyrir alvöru fyrir þann
tíma.
Nigel Dodds, meðlimur í DUP,
sagði að öll ánægja með að vera falið
ráðuneyti félagsmála í heima-
stjórninni hefði gufað upp við til-
hugsunina um að þurfa að deila völd-
um með „hryðjuverkamönnum".
Sagði Dodd það undir öllum eðlileg-
um kringumstæðum vera mikill
dýrðardagur í lífi manns, er hann
tæki við slíku embætti. „En það er
því miður ómögulegt, vitandi af því
að sá maður sem falið hefur verið að
stýra menntun skólabarna okkar er
fyrrverandi forsprakki IRA. Þetta
varpar skugga á hina svokölluðu
nýju dögun á N-írlandi,“ hefur Daily
Telegraph eftir Dodd.
McGuinness er einn allraþekktasti
maðurinn í forystu baráttu n-írskra
kaþólikka íyi'h' sameiningu við írska
lýðveldið, sem staðið hefur í 30 ár. I
augum margi’a lýðveldissinna er
hann persónugervingur vopnaðrar
baráttu þeirra.
McGuinness gekk fyi-st í IRA
haustið 1970, þá tvítugur. Strax
tveimur árum síðar var hann orðinn
samtökunum svo mikilvægur, að
flogið var með hann með leynd frá
N-Irlandi ásamt Gerry Adams og
öðrum fangelsuðum forystumönnum
IRA til samninga við William Whit-
elaw, þáverandi ráðherra N-írlan-
dsmála í brezku ríkisstjórninni, um
leiðir til að binda enda á hryðju-
verkaherferð IRA.
Það er því e.t.v. von, að mai'gir
spyrji hvaða erindi maður eins og
McGuinness, sem ekki viðurkennir
yfirráð brezku stjórnarinnar yfir N-
Irlandi, telui' sig eiga í heimastjórn
sem þiggur vald sitt frá stjórninni í
Lundúnum.
„Ef Gerry Adams, sem formaður
Sinn Fein, er opinbert andlit lýðveld-
ishyggjunnar, er litið svo á að McGu-
inness sé vörður hagsmuna „hörku-
tólanna“ á vettvangi, sem hvergi
vilja \ikja. Eina mögulega ályktunin
er sú, að hann trúi því að markmið-
um lýðveldissinna verði náð með
þátttöku [í heimastjórninni],“ skrifar
Daily Telegraph.
Allt að hundrað líka leit-
að á búgörðum í Mexíkó
Ciudad Juárez. AP, AFP.
Talið er að fjöldagrafírnar tengist
drápum eiturlyfjasmyglara
LÖGREGLUYFIRVÖLD í Banda-
ríkjunum og Mexíkó hafa hafið
rannsókn á fjöldagröfum sem fund-
ist hafa við tvo búgarða nálægt
mexíkósku landamæraborginni
Ciudad Juárez. Ríkissaksóknari
Mexíkó sagði að hugsanlegt væri
að rúmlega hundrað menn hefðu
verið grafnir á búgörðunum, þar af
24 Bandaríkjamenn. Grunur leikur
á að eiturlyfjasmyglhringur, sem
kenndur er við borgina, hafi myrt
mennina.
Jorge Madrazo Cúellar, ríkissak-
sóknari Mexíkó, sagði að markmið-
ið með rannsókninni væri að upp-
lýsa meint dráp eiturlyfjasmyglara
á íbúum borga við landamæri
Mexíkó og Bandaríkjanna. „Á síð-
ustu fjórum árum, og hugsanlega
lengur, hafa borgarar frá báðum
löndunum horfið sporlaust í Ciu-
dad Juárez,“ sagði Madrazo.
Fjöldi likanna óljós
Lögreglumaður, sem vildi ekki
láta nafns síns getið, sagði frétta-
manni AFP að þrír bræður hefðu
verið handteknir á búgarðinum og
talið væri að þeir hefðu starfað þar
sem verðir.
Óstaðfestar fregnir hermdu
einnig að tveir liðsmenn banda-
rísku fíkniefnalögreglunnar væru á
meðal þeirra sem voru myrtir.
Mexíkóskir og bandarískir emb-
ættismenn vildu ekki veita nánari
upplýsingar um fjöldagrafirnar og
sögðu að ekki væri vitað hversu
mörg líkin væru.
Tugir vopnaðra hermanna réð-
ust inn á annan búgarðanna í fyrr-
inótt. Búgarðurinn er um 16 km
sunnan við Ciudad Jaárez, sem er
nálægt borginni E1 Paso í Texas.
Fréttamenn sáu engin lík borin
út af búgarðinum í gær en nokkrir
hermenn sáust fara þaðan með sjó-
poka. Enginn hermannanna eða
lögreglumannanna á staðnum vildi
ræða við fréttamenn.
Rodrigo Falcon, átján ára
Mexíkói, sagði að fjölskylda sín
hefði haft umsjón með búgarðinum
í fjarveru eigandans, sem héti Jor-
ge Ortiz og væri frá E1 Paso. Hann
sagði að Ortiz hefði ekki komið á
búgarðinn í alllangan tíma.
Falcon var með grátstafinn í
kverkunum og sagði að hermenn-
irnir hefðu ekki hleypt honum inn í
búgarðinn þegar hann sneri þang-
að aftur eftir vinnu í nálægri verk-
smiðju í fyrrakvöld.
Ekki var vitað í gær hversu
margir lögreglumenn væru á
staðnum en bandaríska sjónvarpið
CBS sagði að um 200 lögreglu-
menn ættu að taka þátt í rannsókn-
inni og uppgröfturinn hefði hafist í
gær. Líkin verða síðan flutt til E1
Paso.
Uppljóstrari FBI benti á
grafirnar
Ekki var heldur vitað hvenær
fjöldagrafirnar fundust. The New
York Times sagði að leitin að gröf-
unum hefði hafist eftir að FBI
hefði fengið ábendingu frá heimild-
armanni sínum sem hefði játað að
hafa tekið þátt í nokkrum dráp-
anna.
Maðurinn er fyrrverandi lög-
reglumaður frá Mexíkó og hann
fullyrti að allt að 200 manns hefðu
verið grafin á nokkrum stöðum við
landamærin, þeirra á meðal nokkr-
ir 'menn sem hefðu veitt banda-
rískum lögreglumönnum upplýs-
ingar um eiturlyfjasmygl frá
Mexíkó til Bandaríkjanna.
Bandarískir embættismenn
sögðu að þótt maðurinn væri trú-
verðugur, auk þess sem vitað væri
að margir uppljóstrar FBI, banda-
rísku fíkniefnalögreglunnar og toll-
gæslunnar hefðu horfið, hefði ekk-
ert komið fram sem staðfesti að
eiturlyfjasmyglararnir hefðu myrt
svo marga.
Maðurinn er einnig sagður hafa
skýrt FBI frá því að mexíkóskir
lögreglumenn, sem hefðu starfað
fyrir eiturlyfjasmyglara í Juárez,
hefðu myrt nokkra mannanna.
The New York Times hafði einn-
ig eftir bandarískum embættis-
manni að rannsókn málsins hefði
hafist fyrir nokkrum mánuðum.
Juárez-smyglhringurinn hefur
árum saman haft bækistöðvar sín-
ar í Ciudad Juárez sem er ein af
helstu smyglleiðunum til Banda-
ríkjanna. Smyglhringurinn var
undir stjórn Amados Carillos Fu-
entes, helsta kókaínsmyglara
Mexíkó þar til hann lést eftir að
hafa gengist undir lýtalæknisað-
gerð árið 1997. Tugir manna voru
drepnir í borginni eftir dauða hans
og lögreglan taldi í fyrstu að dráp-
in tengdust valdabaráttu innan
smyglhringsins. Nú bendir hins
vegar ýmislegt til þess að smygl-
hringurinn hafi drepið marga
þeirra til að losa sig við uppljóstr-
ara.
Mannesmann
verst Vodafone
Hvattir til
að hafna
Berlín. AFP.
ÞÝZKA Mannesmann-samsteypan
hrinti á mánudag af stað herferð
meðal hluthafa til að verjast yfir-
tökubeiðni brezka farsímarisans
Vodafone AirTouch, eftir að stjóm
Mannesmann hafnaði yfirtökunni
einnig.
Forstjóri Mannesmann, Klaus Es-
ser, hóf herferðina á blaðamanna-
fundi í Lundúnum, þar sem hann
staðfesti að samsteypan myndi gera
allt sem í hennar valdi stæði til að
hindra eigendaskiptin. Hann ítrek-
aði að stjórnendur Mannesmann
höfnuðu kauptilboði Vodafone upp á
124 milljarða evra, andvirði yfir 9500
milljarða króna, sem þó hefur enn
ekki verið formlega borið fram við
hluthafa Mannesmann. Sagði Esser
þessa upphæð töluvert undir raun-
virði fyrirtækisins.
Sagði Esser að ekki væri ástæða
til að ætla annað en að það samstarf
sem fyrirtækin tvö, Mannesmann og
Vodafone, hafa með sér á ýmsum
sviðum héldi áfram hvað sem hinu
óumbeðna yfirtökutilboði liði.
Lagði Esser áherzlu á að Mannes-
mann væri sterkt fyrirtæki og hefði
enga þörf á að sameinast öðru. Sagði
hann að því stefnt, að hagnaður af
rekstri fjarskiptatæknideildar sam-
steypunnar fyrir skatta myndi
hækka um 30% á ári á tímabilinu
2000-2003.