Morgunblaðið - 01.12.1999, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 29
fslamskur flokkur þrefaldaði fylgi sitt í kosningunum í Malasíu
Bandalag Mahathirs
hélt rúmlega tveimur
þriðju þingsætanna
Kuala Lumpur. AP, AFP.
ÞJÓÐFYLKINGIN í Malasíu, undir
forystu Mahathirs Mohamads for-
sætisráðherra, hélt rúmlega tveimur
þriðju þingsætanna í kosningunum í
fyrradag og er því enn í aðstöðu til að
breyta stjórnarskránni án stuðnings
annarra flokka. Þingmönnum
stjómarandstöðunnar fjölgaði þó um
tæpan helming. Islamski flokkurinn
PAS náði talsverðu fylgi af Þjóðfylk-
ingunni og þrefaldaði fylgi sitt í
kosningunum.
Þjóðfylkingin fékk 148 þingsæti af
193, en var með 166 þingsæti í síð-
ustu kosningum. Þjóðfylkingin hélt
ennfremur meirihluta á þingum níu
ríkja Malasíu, en kosið var til ellefu
ríkisþinga af þrettán.
Þingmönnum stjórnarandstöð-
unnar fjölgaði úr 23 í 42 og það var
íslamski flokkurinn PAS sem jók
fylgi sitt mest. Þingmönnum hans
fjölgaði úr átta í 27 og flokkurinn
fékk einnig meirihluta í tveimur rík-
isþingum.
Þjóðfylkingunni hafði verið spáð
miklu fylgistapi vegna réttarhald-
anna yfír Anwar Ibrahim, sem Ma-
hathir vék úr embætti aðstoðarfor-
sætisráðherra í fyrra. Veraldlegu
stjórnarandstöðuflokkunum tókst þó
ekki að færa sér réttarhöldin í nyt.
Lýðræðislegi framtaksflokkurinn
(DAP), sem nýtur einkum stuðnings
kínverska minnihlutans í landinu,
fékk ekki þann stuðning sem hann
hafði vænst og fékk aðeins tíu þing-
menn, einum fleiri en í síðustu kosn-
ingum. Lim Kit Siang, leiðtogi DAP,
lýsti kosningaúrslitunum sem ósigri
fyrir flokkinn og sagði að hann hefði
„misst af sögulegu tækifæri" til að
binda enda á drottnunarvald Þjóð-
fylkingarinnar. Lim missti sjálfur
þingsæti sitt í kosningunum.
Flokkur eiginkonu Anwars, Rétt-
lætisflokkurinn, fékk fimm þingsæti
og hún sagði að „hræðsluáróður"
Þjóðfylkingarinnar væri aðalástæða
þess að flokkurinn fékk ekki meira
fyigi-
Staða flokks Mahathirs veikist
Nokkrir sérfræðingar í málefnum
Malasíu sögðu að kosningaúrslitin
endurspegluðu vaxandi sundurlyndi
þjóðarbrota og trúflokka í landinu.
Malajar eru rúmlega helmingur
íbúanna, Kínverjar um 30% og Ind-
verjar 10%.
„Heimur malaja er í uppnámi og
ekkert hefur sýnt það betur en þess-
ar þingkosningar,“ sagði í forystu-
grein malasíska dagblaðsins The
Sun, sem styður stjórnina.
Þótt Þjóðfylkingin hafi haldið velli
eru kosningaúrslitin talin mikið áfall
fyi’ir flokk Mahathirs forsætisráð-
herra, Sameinuð þjóðarsamtök mal-
aja (UMNO, stærsta flokkinn í
bandalagi stjórnarinnar. Flokkurinn
missti mikið fylgi til íslamska flokks-
ins PAS.
„Þetta er mikill sigur fyrir Þjóð-
fylkinguna, en mikill ósigur fyrir
UMNO,“ sagði stjórnmálaskýr-
andinn Abdul Razak Baginda. „UM-
NO var sá flokkur sem batt Þjóðfylk-
inguna saman og réð lögum og lofum
innan bandalagsins. UMNO hefur
nú veikst verulega."
PAS hafði hvatt Mahathir til að
stofna íslamskt ríki í Malasíu en
lagði ekki áherslu á þá stefnu sína í
kosningabaráttunni eftir að hafa
gengið til samstarfs við hófsamari
múslima í stjórnarandstöðunni.
Mahathir er orðinn 73 ára og hef-
ur verið forsætisráðherra í átján ár,
lengur en nokkur annar þjóðarleið-
togi í Asíu. Hann hafði ætlað að
draga sig í hlé í ár en hætti við það
eftir að hafa vikið Anwar úr stjórn-
inni í fyrra. Mahathir hafði sjálfur
valið Anwar sem eftirmann sinn en
mikil óvissa er nú um hver tekur við
af honum þegar hann dregur sig í
hlé. Talið er að þetta séu síðustu
kosningarnar sem hann tekur þátt í.
Þjóðfylkingin sökuð uin
kosningasvik
Eftirlitsmenn er fylgdust með
framkvæmd kosninganna á vegum
samtaka, sem beita sér fyrir frjáls-
Reutcrs
Mahathir Mohamad, forsætisráðherra Malasíu, fagnar sigri Þjóðfylk-
ingarinnar í kosningunum í fyrradag eftir að Ijóst var að hún héldi
tveimur þriðju þingsætanna.
um kosningum í Asíu, sögðust í gær
ekki geta dregið þá ályktun að kosn-
ingarnar á mánudag hefðu verið
„frjálsar og lýðræðislegar". „Við get-
um ályktað að gerð hafi verið skipu-
leg tilraun til að haga skráningu
kjósenda þannig að sigurlíkur ákveð-
inna flokka ykjust," sagði einn eftir-
litsmanna, Sunai Phasuk, og kvaðst
eiga við flokka Þjóðfylkingarinnar.
Sunai sagði að innflytjendur frá
Filippseyjum hefðu fengið bráða-
birgðaskilríki til að geta kosið gegn
því skilyrði að þeir kysu Þjóðfylking-
una. Hann dreifði ljósritum af skil-
ríkjum með myndum af sama mann-
inum en mismunandi nöfnum og
númerum.
i
Speki Agústínusar og Speki eyðimerkurfeðranna
Sígildur arfur kristninnar handa nútímafólki. Góö hjálp viö
íhugun og styrkur þeim sem eru leitandi. Dr. Sigurbjörn
Einarsson, biskup, tók saman Speki Ágústínusar og
herra Karl Sigurbjörnsson, biskup íslands, þýddi Speki
Eyðimerkurfeðranna.
Hver er tilgangurinn?
Hver er ég? Hvers vegna
lifi ég? Hvaö gerist þegar
ég dey? Þessi bók svar-
ar mörgum brennandi
spurningum nútímafólks
út frá kristnu sjónar-
horni.
Hver er
tilgangurinn?
Augliti til auglitís - íhuganir handa konum
Bók sem lengi hefur veriö beöiö eftir. Sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir kann vel til verka í sálgæslu kvenna
og leiðir konur í stuttu og skýru máli viö íhuganir og
eflingu andans. Hún kemur til móts viö konur í ýmsum
aðstæðum lífsins og hjálpar nútímakonunni til aö horfa
hispurslaust framan í sjálfa sig.
Bækurnar fást
í Kirkjuhúsinu
Laugavegi 31
og í helstu
bókaverslunum.
Skálholtsútgáfan
Útgáfufélag þjóðkirkjunnar
9