Morgunblaðið - 01.12.1999, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
-
m
Sagnaþætjir
T ó M A S A R
, M U N ÐSSON*R
Perlur
íslenskrar
sagnaiistar
Sagnaþættir
Tómasar
Guðmundssonar
sameina skáldlegt
innsæi, fagran stíl
og sagnfræðilega
nákvæmni.
Þjóðlegur fróðleikur
eins og hann gerist
bestur.
|M|
Mál og menning|W|
malogmonníng.ls I |t| I
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Sími 510 2500
V
Jólaskrautið frá Orrefors er
komið, hvenær kemur þú?
Þegar þú kemur í Leifsstöð áttu erindi í íslandica.
Ferðalangar koma í vöruvalið hjá okkur.
Komdu líka í íslandica
Leifsstöð Simi 425 0450
ERLENT
Hneykslismál í „stóru flokkunum“ í Þýzkalandi
Kohl gengst við ábyrgð
á leynireikningum
Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari, unikringdur fréttamönnum er hann
mætti á fund flokksstjórnar CDU í Berlín í gær.
Arftaki
Schröders í
Neðra-Saxlandi
segir af sér
Berlín. Reuters, AFP.
HELMUT Kohl, fyrrverandi kanzl-
ari Pýzkalands, gekkst í gær við
ábyrgð á því sem hann nefndi „mis-
tök“ varðandi leynilega bankareikn-
inga Kristilegra demókrata (CDU),
en Kohl var formaður flokksins í 25
ár.
A sérstökum aukafundi flokks-
stjómar CDU í Berlín í gær játaði
Kohl, sem lét af flokksformenn-
skunni um leið og hann tapaði þing-
kosningum í fyrrahaust, að ábyrgðin
á kerfi dulinna bankareikninga, sem
flokkurinn réð yfir, væri sín. „Það er
því persónuleg ósk mín, að axla póli-
tíska ábyrgð á mistökum sem áttu
sér stað á meðan ég var í embætti,"
sagði Kohl í skrifaðri yfirlýsingu,
sem hann las á blaðamannafundi eft-
ir flokksstjórnarfundinn. Hann neit-
aði að svara spumingum frétta-
manna.
„Sem flokksformaður taldi ég
nauðsynlegt að viss mál, svo sem
sérstök framlög til einstakra eininga
flokksins - svo sem til pólitísks
gmndvallarstarfs - ættu að með-
höndlast í trúnaði," sagði hann.
„Bókhaldskerfi, aðskilið frá venju-
legum reikningum fjármálastjórnar
flokksins, sýndist mér eiga fullan
rétt á sér.“
Kohl sagði að sér þætti leitt að
þetta kynni að hafa leitt til skorts á
gegnsæi og bryti hugsanlega í bága
við gildandi lög um stjómmála-
flokka. „Það vildi ég ekki, ég vildi
bara þjóni flokknum mínurn," lýsti
Kohl yfu'.
I ljósi hinnar opinbem umræðu
um málið sagðist hann vilja firra
flokk sinn frekari skaða, og tók fram
að meðlimir í CDU væm 640.000 og
nýir menn væm þar nú við stjórnvöl-
inn.
Núverandi formaður flokksins,
Wolfgang Scháuble, sem áður var
hægri hönd Kohls, sagði flokks-
stjórnin hafa átt „mjög opnar“ um-
ræður um málið, og hefði hlýtt á það
sem Kohl hefði fram að færa „með
mikilli virðingu". Schauble sagði
flokkstjómina hafa verið einhuga í
því að ekki væri ástæða til að álykta
annað en að engar vafasamar hvatir
hefðu legið að baki og lagði áherzlu á
að Kohl, sem ber titil heiðurflokks-
formanns, hefði á engan hátt notið
persónulegs fjárhagsávinnings af
þessu „hliðarfjármögnunarkerfi".
„Við emm vissir um, að enginn
hagnaðist persónulega á þessu,“
sagði Scháuble.
Hvað sem því líður er slík leynileg
fjármögnun og dulið bókhald ólögleg
í Þýzkalandi, þar sem telja ber fram
öll framlög í sjóði stjórnmálaflokka,
sem fara yfir ákveðin lágmarks-
mörk.
í þýzkum fjölmiðjum hefur verið
upplýst, að þýzkur vopnasali gi-eiddi
fjármálastjóra CDU, Walther Leis-
ler Kiep, eina milljón marka, and-
virði rúmlega 38 milljóna króna, í
reiðufé í málmtösku, sem afhent var
á bflastæði í Sviss árið 1991, skömmu
eftir að ríkisstjóm Kohls hafði heim-
ilað útflutning stórrar hergagna- I
sendingar til Sádí-Arabíu.
Sakarannsókn er í gangi gegn p
Kiep, sem meðal annars snýst um
skattsvik af fé sem barst í flokkssjóð
CDU. Kohl ítrekaði á fundinum í
gær, að hann hefði ekki vitað um
þessa tilteknu milljón marka
greiðslu.
Jafnaðarmannaflokkur Gerhards
Schröders hefur hvatt til þess að
fram fari rannsókn á því á vegum
þingsins, hvort meintar ólöglegar I
greiðslur til CDU hafi haft áhrif á |
ákvarðanir Kohl-stjórnarinnar.
Leiðtogaskipti í Neðra-
Saxlandi
Jafnaðarmenn sjálfir eiga annars
við eigin hneykslismál að stríða. A
föstudag sagði Gerhard Glogowski,
arftaki Gerhards Schröders í
héraðsleiðtogastólnum í Neðra-Saxl-
andi, af sér forsætisráðhemaem-
bættinu í kjölfar spillingarásakana.
Brást forysta SPD snarlega við og ^
tilnefndi þegar á laugardag Sigmar |
Gabriel eftirmann Glogowskis, en
Gabriel vai- formaður þingflokks
SPD á þingi Neðra-Saxlands.
Flugslysið á Svalbarða 1996
Deildu um stefnuna
i
Ósió. Morgunbiaöið.
EKKI virðist hafa verið um vélar-
bilun að ræða er rússnesk farþega-
þota fórst á Svalbarða árið 1996 en
þá týndi 141 maður lífi, Rússar og
Ukraínumenn. Að sögn norsk-rúss-
neskrar rannsóknarnefndar var
það ágreiningur meðal áhafnarinn-
ar, sem slysinu olli.
Síðustu mínúturnar áður en
Tupolev-vélin rakst á Operafjall á
Svalbarða, 29. ágúst 1996, deildu
flugmennirnir og siglingafræðing-
urinn um það hvort sveigja ætti
henni til hægri eða vinstri. Hafði
siglingafræðingurinn betur en með
þeim afleiðingum, að vélin flaug
beint á klettavegginn.
Furðu vekur, að ekki skuli hafa
verið hætt við aðflugið undir þess-
um kringumstæðum en auk þess
virðist ljóst, að siglingafræðing-
num hafi verið ætlað meira verk en
hann gat með góðu móti ráðið við.
Viltu kaupa
eða selja verðbréfí
Ráðgjöf varðandi verðbréfaviðskipti
hérlendis og erlendis
Ávöxtun fjármuna
VERÐBREFASTOFAN
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 570-1200